Morgunblaðið - 29.04.1987, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRIL 1987
Úr einþáttungnum „Hinn eini sanni Seppi“, talið frá vinstri: Jak-
ob Falur Garðarsson, Marta Eiríksdóttir og sá sem liggur endi-
langur á gólfinu er Rúnar Jónatansson.
Litli leikklúbbur-
inn sýnir í Kópavogi
LITLI Leikklúbburinn á
ísafirði sýnir nú um helgina
einþáttungana „Hinn eini sanni
Seppi“ eftir Tom Stoppard og
„Svart og silfrað“ eftir Michael
Frayn í Hjáleigunni í Kópavogi.
Sýning einþáttunganna er vor-
verkefni klúbbsins og er þetta í
fyrsta sinn sem þessir einþát-
tungar eru sýndir hér á landi. Það
er Guðjón Ólafsson enskukennari
við Menntaskólann á ísafirði sem
þýddi einþáttungana og er jafn-
framt leikstjóri.
„Hinn eini sanni Seppi“ fjallar
um leiksýningu sem atvinnuleik-
hús er að setja upp, og tvo
gagnrýnendur sem koma til að
horfa á.
Leikþátturinn „Svart og silfr-
að“ gerist á einni nóttu og segir
frá ungum hjónum sem fara með
ungabam í ferðalag til Feneyja.
Leikrit Toms Stoppard „Dagur
og nótt“ og leikrit Michaels Frayn
„Skvaldur" hafa verið sýnd í Þjóð-
leikhúsinu. Einnig hafa þeir Tom
Stoppard og Michael Frayn skrif-
að töluvert af leikritum fyrir
sjónvarp.
Alls taka tólf leikarar þátt í
uppsetningu einþáttunganna, en
þeir hafa verið sýndir að undanf-
ömu á Isafirði.
Sýningarnar í Hjáleigunni, sem
er til húsa í Félagsheimili Kópa-
vogs, verða föstudagskvöldið 1.
maí kl. 21.00 og á laugardag 2.
maí kl. 16.00 og 21.00.
Ekið á kyrrstæða Lödu
Kyrrðardagar í Ölveri
Borgarfirði.
í SUMARBÚÐUNUM í Ölveri í
Skólamálaum-
ræða KHÍ:
Kennara
starfið o g
nýirþjóð
félagshættir
UMRÆÐUFUNDUR númer tvö
um skólamál verður fimmtudag-
inn 30. apríl í Kennaraháskólan-
um og hefst hann kl. 15.15.
Frummælandi verður Stella Guð-
mundsdóttir skólastjóri og fjallar
um starfsmenntun kennara:
„Kalla nýir þjóðfélagshættir á
breytta skilgreiningu kennara-
starfsins?“
Að fyrirlestrinum loknum verða
umræður og veitingar sem kennara-
nemar sjá um.
Fyrsti umræðufundurinn var 2.
apríl sl. og talaði Sigutjón Mýrdal
kennslustjóri þá um leiðsögn og
stuðning við kennara sem eru að
helja störf í íslenskum skólum.
Ráðgert er að framhald verði á
þessari skólamálaumræðu næsta
haust.
, Snæfellingafélagið;
Kaffiboð
fyrir
eldra fólkið
FÉLAG Snæfellinga og Hnapp-
dæla i Reykjavík efnir til hins
árlega kaffiboðs fyrir eldri hér-
'aðsbúa sunnudaginn 3. maí nk.
kl. 15.00 í Sóknarsalnum Skip-
holti 50a.
Gefst fólkið þá kostur á að kynna
sér og panta far í væntanlega sólar-
landaferð sem fyrirhuguð er í haust.
Aðalfundur félagsins hefst síðan
að kaffiboðinu loknu.
LÝST er eftir sjónarvotti að
ákeyrslu við Austurver í
Reykjavík laugardaginn 18. apríl
síðastliðinn.
Ekið var á kyrrstæða bifreið við
verslunarmiðstöðina milli kl. 16 og
19 þennan dag. Bifreiðin, sem ekið
var á, er gul Lada Samara og
skemmdist hún töluvert á aftur-
horni. Líklegt er að tjónvaldurinn
hafi verið ljósblá bifreið. Ef ein-
hvetjir kynnu að hafa séð atburðinn
eru þeir beðnir um að hafa sam-
band við slysarannsóknardeild
lögreglunnar í Reykjavík.
Hafnarskógi komu um 30 manns
saman til kyrrðarsamveru um
bænadagana. Var þetta í þriðja
sinnið, sem dvöl af þessu tagi
hefur verið í Ölveri. Skúli Svav-
arsson kristniboði, Benedikt
Arnkelsson kristniboði og Arni
Siguijónsson fyrrverandi banka-
starfsmaður voru með Biblíulest-
ur um efni bænadaganna.
Meginmarkmiðið með dvölinni í
Ölveri, sagði Sveinbjörg Arnmunds-
dóttir forstöðukona í Ölveri, væri
það að fólkið kæmi til þess að eiga
AÐALFUNDUR íslandsdeildar
Amnesty International var hald-
inn þann 8. apríl sl. og var Ævar
Kjartansson kjörinn formaður
samtakanna.
Meðstjórnendur eru Helgi E.
Helgason fréttamaður, Erika Ur-
samfélag saman um bænadagana,
íhuga efni tilheyrandi kyrru vikunni
og komast burtu úr ys og þys dag-
lega lífsins heima fyrir. Þarna væri
fólk á öllum aldri, ijölskyldur með
börn o.fl. Fólkið nyti þess svo sann-
arlega að eiga samfélag saman og
njóta útiverunnar í Ölveri.
í Ölveri eru reknar sumarbúðir
yfir sumarið og byijar fyrsti flokk-
urinn 4. júní nk. og er hann ætlaður
drengjum á aldrinum 7—9 ára. Eru
sumarbúðirnar starfandi fram til
mánaðamóta júlí/ágúst, jafnt fyrir
stelpur sem stráka. — pþ-
bancic læknaritari, Jóhanna Ey-
jólfsdóttir mannfræðingur og
Steingrímur Gautur Kristjánsson
borgardómari. Varamenn: Guðrún
Hannesdóttir kennari og sr. Jón
Bjarman sjúkrahúsprestur. Endur-
skoðendur: Garðar Gíslason borgar-
dómari og Jón Magnússon hdl.
í hjarta hvers heimilis, eldhúsinu, voru þær Kristrún, Sigríður, Þura
og Sveinbjörg að leggja síðustu höndina á vellingsgerðina fyrir kvöld-
matinn.
Amnesty International:
Ævar Kjartansson
kjörinn formaður
Árekstur á gulu ljósi
HARÐUR árekstur varð á mótum
Kleppsvegar og Sundagarða um
hádegið í gær. Kona slasaðist
nokkuð, en meiðsli hennar munu
þó ekki vera alvarleg.
Áreksturinn varð með þeim hætti
að konan ók Lada-bifreið upp
Sundagarða og ætlaði þvert yfir
Kleppsveg, inn á Dalbraut. Hún ók
þá þvert í veg fyrir Lancer, sem
var ekið austur Kleppsveginn. Við
áreksturinn kastaðist konan út úr
bíl sínum og hlaut af því nokkur
meiðsli.
Þegar slysið varð voru umferðar-
ljósin á gatnamótunum óvirk,
aðeins blikkandi gul ljós í gangi.
Ástæðan er sú að nóttina áður var
ekið á einn umferðarvitanna og
skemmdist hann töluvert.
Árbær o g Breiðholt á
fundi landfræðinga
- FRÆÐSLUFUNDUR á vegum
Landfræðifélagsins verður
fimmtudagskvöldið 30. apríl nk.
í stofu 101 í Odda, húsi Háskóla
íslands. Fundurinn hefst kl.
20.30.
Ásta Urbancic landfræðingur
mun þar flytja erindi um efni MA-
rngeroar sinnar: Ánægja íbúa í
Árbæjar- og Breiðholtshverfum
með umhverfi sitt.
Ásta, sem unnið hefur hjá Borg-
arskipulagi Reykjavíkur, lauk
BS-prófi frá Háskóla Islands árið
1984 og MA-prófi frá háskólanum
í Maryland í Bandaríkjunum árið
1986.
Guðjón Matthíasson
harmonikuleikari og söngvari
, á afmæli 30. apríl
Af því tilefni tekur hann á
móti gestum í Domus
Medica 30. apríl kl. 21.00.
Fólk er beðið að koma ekkí
með blóm eða gjafir. Hlýtt
handtak er nóg fyrir mig.
Sovésku listamennirnir sem væntanlegir eru hingað
til lands og munu halda skemmtanir í Reykjavík og
nágrannabyggðum. Innfellda myndin er af stjórn-
anda hópsins, sjónhverfingamanninum Arútjan
Akopjan.
Sovéskir lista-
menn í heimsókn
FIMM sovéskir listamenn eru
væntanlegir hingað til lands 30.
apríl nk. á vegum MÍR, Menning-
artengsla íslands og Ráðstjórn-
arríkjanna. Hópurinn saman-
stendur af þremur hljóðfæraleik-
urum, þjóðlagasöngkonu og
sjónhverfingamanni.
Stjómandi hópsins er sjónhverf-
ingamaðurinn Arútjan Akopjan.
Hann ber heiðurstitilinn „þjóðíista-
maður Sovétríkjanna" og hefur
nokkrum sinnum borið sigur úr
býtum í aiþjóðlegri samkeppni sjón-
hverfingamanna,, m.a. í París.
Akopjan hefur einu sinni áður kom-
ið til íslands, það var árið 1982 er
hann sýndi á heimilissýningu Kaup-
stefnunnar í Laugardalshöll.
Auk sjónhverfingamannsins eru
þrír hljóðfæraleikarar og söngkona.
Hljóðfæraleikaramir skipa þjóð-
lagatríóið „Bylina", sem stofnað var
árið 1982. Mikhaíl Litvinov leikur
á blásturshljóðfæri af ýmsu tagi,
en hann var áður í þjóðlagaflokkn-
um „Rossía“ sem kom til íslands
fyrir tveimur árum í tilefni Sov-
éskra daga 1985, Vladimír Popov
leikur á bajan (rússneska harmon-
ikku) og gítar, auk þess sem hann
syngur, Aleksander Zdanovski leik-
ur á balalaíka, domru og dragspil
og Galína Borisova heitir söng-
konan.
Fyrsta skemmtun sovésku lista-
mannanna verður í Hlégarði í
Mosfellssveit 1. maí kl. 21.00, en
sama dag skemmta þeir í félags-
heimili MÍR á Vatnsstíg 10 milli
kl. 15.00 og 17.00. Skemmtanir
verða einnig á Hótel Selfossi 2. maí
kl. 16.00, í Gamla bíói 3. maí kl.
15.00 og í Þjóðleikhúskjallaranum
4. maí kl. 20.30. í Þjóðleikhúskjall-
aranum verða jafnframt kynntar
þær hópferðir til Sovétrikjanna sem
MÍR skipuleggur.