Morgunblaðið - 29.04.1987, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987
Slökkviliðsmenn á
Reylqavíkurflugvelli:
Lýsa furðu á
afskiptum af
kjarabaráttu
Slökkviliðsmenn á Reykjavík-
urflugvelli hafa samþykkt álykt-
un þar sem lýst er furðu á að
löggæslumönnum skuli hafa ver-
ið gert að hafa afskipti af
kjarabaráttu slökkviliðsmanna í
Slökkviliði Reykjavíkur.
Ályktun þessi var samþykkt á
aðalfundi Félags slökkviliðsmanna
Reykjavíkurflugvallar 21. apríl. Þar
var einnig lýst yfír eindregnum
stuðningi slökkviliðsmanna fyrir
bættum kjörum og taldi fundurinn
að starf slökkviliðsmanna væri allt
of lágt metið til launa, eðli starfsins
vegna.
Dráttar-
vélanám-
skeið í dag
NÁMSKEIÐ í akstri og meðferð
dráttarvéla verður haldið að
Dugguvogi 2 í Reykjavik og hefst
það í dag, 29. apríl. Námskeiðið
stendur til 4. maí.
Fomámskeið verður fyrir 14 og
15 ára nemendur og dráttarvéla-
námskeið fyrir 16 ára og eldri.
Fornámskeiðið stendur yfír í 6
kennslustundir og kostar 1100 krón-
ur. Námskeið hinna eldri verður 11
stundir og kostar með öllu (vottorð-
um, mynd, prófgjaldi ofl.) 4000
krónur. Nánari upplýsingar eru
veittar hjá Umferðarráði eða Búnað-
arfélagi íslands.
Óskilamun-
ir á uppboði
í VÖRSLU óskilamunadeildar
lögreglunnar er margt muna,
■til dæmis reiðhjól, bamakerrur,
fatnaður, seðlaveski, handtösk-
ur, úr, gleraugu og hjóiastólar.
Þeim, sem hafa glatað slíkum
munum er bent á að spyrjast fyrir
um þá á skrifstofu óskilamuna,
Hverfísgötu 113 (gengið inn frá
Snorrabraut) frá kl. 14-16 virka
daga. Þeir munir, sem búnir eru
að vera í vörslu lögreglunnar í
eitt ár eða lengur verða seldir á
uppboði í portinu að Borgartúni
7, laugardaginn 9. maí. Uppboðið
‘hefst kl. 13.30.
(Fréttatiikynning)
Nokkrir þeirra, sem unnið hafa að undirbúningi ferðatilboðs Flugleiða og Holiday Inn í Luxemborg.
Aftari röð frá vinstri: Vilhjálmur Guðmundsson forstöðumaður söiudeildar Flugleiða, Knútur Óskarsson
forstöðumaður Úrval, Þorvarður Guðlaugsson söiustjóri í söludeild Flugleiða, Sigfús Erlingsson fram-
kvæmdastjóri markaðssviðs Flugleiða, Már Gunnarsson starfsmannastjóri Flugleiða og Gísii Blöndal frá
auglýsingastofu Ólafs Stephensen. Fremri röð frá vinstri: Helga Bjarnason sölustjóri Flugleiða á Suður-
nesjum, Karel H. Hilkhuysen hótelstjóri Holiday Inn í Luxemborg og Margrét H. Hauksdóttir deildar-
stjóri kynningardeildar Flugleiða.
Flugleiðir og Holiday Inn í
Luxemborg bjóða sumarpakka
FLUGLEIÐIR bjóða nú upp á ferðir til stórhertogadæmisins Luxem-
borgar í samvinnu við Holiday Inn-hótelið fyrir 16.100 krónur. Auk
flugferða fram og til baka, eru í verðinu innifaldar tvær nætur á
Holiday Inn í Luxemborg í tveggja manna herbergi með morgun-
verði báða daga. Fríar rútuferðir eru til og frá flugvelli auk ferða
í miðbæ Luxemborgar. Tilboð þetta gildir í fjóra mánuði, frá 15.
maí til 15. september.
Gestir geta framlengt dvöl sína
á hótelinu allt upp í mánuð og kost-
ar aukanóttin 1.450 krónur fyrir
manninn. Hótelið hefur náð hag-
stæðum samningum við bílaleiguna
Lux Rent A Car og munu gestir
njóta góðs af þeim samningum óski
þeir eftir bflaleigubíl, segir í fréttat-
ilkynningu frá Holiday Inn.
Hótelstjóri Holiday Inn-hótelsins
í Luxemborg, Karel H. Hilkhuysen,
var hér á landi í síðustu viku og
kynnti þá meðal annars sumarpakk-
ann fyrir blaðamönnum. Hann
sagðist vera mjög ánægður með það
góða samstarf sem náðst hefur við
Flugleiði, en það samstarf byggir á
um sextán ára reynslu. „Flugleiðir
hafa keppst við r.ð gera vel og ég
sé breytingar til hins betra með
hverju ári sem líður. í vetur tókum
við upp nánara samstarf við flugfé-
lagið, en verið hafði, með því að
bjóða upp á sérstaka vetrarpakka
með góðum árangri. Á síðustu
þremur mánuðum hafa íslendingar
bókað 500 nætur á hótelinu og
gerum við okkur vonir um að sú
tala muni tvöfaldast fyrir lok maí.“
Karel sagði að Islandskynning
hefði verið haldin á hótelinu sl. vet-
ur sem kölluð var „The taste of
Iceland". „Gestir okkar kunnu vel
að meta það sem á boðstólum var
og gerum við fastlega ráð fyrir
annarri slíkri Íslandshátíð næsta
haust,“ sagði hótelstjórinn.
Anda- og
gæsaveiðar
bannaðar
með lögrim
NÚ ER sá tími er farfuglar koma
til landsins. Skotveiðifélag ís-
lands vill hérmeð koma því á
framfæri við alla sem það varð-
ar, að gæsa- og andaveiðar eru
bannaðar með lögum á vorin.
Allar gæsir eru friðaðar frá 15.
mars — 20. ágúst. Allar andateg-
undir eru friðaðar frá 1. apríl —
1. september.
Ennfremur vill félagið benda
landeigendum, sem stuðla á ein-
hvem hátt að því að slíkar veiðar
fari fram, að þeir geti hugsanlega
orðið hlutdeildarmenn í lögbroti
samkvæmt 22. grein laga nr. 19,
1940. Einnig er hér vakin athygli
manna á að öll sinubrenna verði
framkvæmd samkvæmt gildandi
lögum.
(Fréttatilkynning)
AKUREYRI
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hljómsveitin Stuðkompaníið, frá vinstri: Karl Örvarsson, Jón Kjartan Ingólfsson, Magni Friðrik
Gunnarsson, Trausti Már Ingólfsson og Örvar Atli Örvarsson.
Ríkisútvarpið á Akureyri:
Stuðkompaníið og Háls-
hreppur báru sigur úr býtum
í hljómsveita- og spurningakeppni útvarpsins
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Tryggvi Stefánsson, bóndi á Hallgilsstöðum og hreppstjóri Háls-
hrepps, veitir viðtöku forláta steini sem viðurkenningu fyrir sigur
í spurningakeppni svæðisútvarpsins. Það er Ema Indriðadóttir,
forstöðumaður Ríkisútvarpsins á Akureyri, sem afhendir honum
steininn.
HLJÓMSVEITIN Stuðkompa-
níið varð sigurvegari í hljóm-
sveitakeppni sem Ríkisútvarpið
á Akureyri og Menningarsam-
tök Norðlendinga, MENOR,
gengust fyrir nýlega. Fengu
þeir verðlaun afhent fyrir
síðustu helgi og þá var Tryggvi
Stefánsson, bóndi á Hallgils-
stöðum í Fnjóskadal, einnig
heiðraður, en hann er hrepp-
stjóri Hálshrepps, sem sigraði
í spurningakeppni allra hreppa
á hlustunarsvæði svæðisút-
varpsins.
Fjórar hljómsveitir tóku þátt í
umræddri keppni, Stuðkompaníið,
sem er frá Akureyri, Drykkir inn-
byrðis frá Akureyri, Þrumugosar,
sem er skólahljómsveit héraðs-
skólans á Laugum í Reykjadal,
og Biiun, sem einnig er úr
Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu.
Dómnefndir voru starfandi á
Húsavík, Siglufirði, Dalvík og í
Ólafsfírði. Lög sveitanna voru
leikin í svæðisútvarpinu, þar sem
dómnefndir hlustuðu á þau. Nið-
urstaðan varð sú að Stuðkompa-
níið hlaut 16 stig fyrir lagið
Hörkutól stíga ekki dans, í öðru
sæti varð Drykkir innbyrðis með
15 stig fyrir lagið Ef ég væri, og
í þriðja sæti með jafn mörg stig,
15, urðu Þrumugosar með lagið
Brúddela-söngurinn. Bilun varð í
fjórða sæti með 8 stig fyrir lagið
Ella gella.
Eins og lesendur ef til vill vita
fylgdi hljómsveitin Stuðkompaníið
þessum sigri sínum eftir með því
að sigra í Músíktilraunum Tóna-
bæjar og Bylgjunnar um síðustu
helgi.
Sigurlaunin í hljómsveita-
keppninni voru 25 þúsund krónur.
Tryggvi Stefánsson, hrepp-
stjóri Hálshrepps, veitti viðtöku
forláta steini frá svæðisútvarpinu
fyrir sigur í spurningakeppnini,
sem var á dagskrá í allan vetur
í þættinum Gott og vel, sem séra
Pálmi Matthíasson stýrði á mánu-
dögum.