Morgunblaðið - 29.04.1987, Side 33

Morgunblaðið - 29.04.1987, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987 33 Fallega þ votta- húsið mitt Kvikmyndlr Arnaldur Indriðason Fallega þvottahúsið mitt (My Beautiful Laundrette). Sýnd í Regnboganum. Stjörnugjöf: ☆ ☆ ☆ Bresk. Leikstjóri: Stephen Fre- ars. Handrit: Hanif Kureishi. Framleiðendur: Sarah Radc- lyffe og Tim Bevan. Kvik- myndataka: Oliver Stapleton. Tónlist: Ludus Tonalis. Helstu hlutverk: Gordon Warnecke, Daniel Day-Lewis, Saeed Jaf- frey, Roshan Seth, Derrick Branche og Rita Wolf. Ein afleiðing hinnar gömlu ný- lendustefnu breska heimsveldisins er sú að nú þegar sól þess hefur hnigið til viðar er Bretland orðið að fjölþjóða samfélagi. Bretland er orðið a nýlendu gömlu ný- lendubúanna og önnur kynslóð innflytjendanna lætur ekki bjóða sér það sem foreldrarnir urðu að búa við þegar þeir fyrst komu til landsins og nýta sér tækifæri til jafns við aðra til að rífa sig upp. Handritshöfundur „mánudags- myndarinnar" Fallega þvottahú- sið mitt (My Beautiful Laund- rette), sem fjallar að nokkru um þetta, er Pakistani í Bretlandi, Hanif Kureishi að nafni, og mynd- in, sem Stephen Frears leikstýrir, er um veröld Pakistana í Bret- landi nútímans þ. e. Thatchers. Paksar (eins og þeir eru kallaðir) myndarinnar hata og elska þetta nýja föðurland sitt og eru mest- megnis hataðir á móti. Fallega þvottahúsið mitt er allt í senn harkaleg, erótísk, fyndin og frá- bærlega samin þjóðfélagskómedía um samskipti hvítra og litaðra í ijölþjóða samfélagi. Umhverfi myndarinnar gjör- þekkir Kureishi og sjónarhornið sem hann beitir er okkur fram- andi, því hann lýsir Bretlandi frá sjónarhóli Pakistanans, sem er að nýta sér möguleikana í gamla heimsveldinu. Það er oft talað um draumalandið Bretland í myndinni og draumalandið Pakistan og mitt á milli er söguhetjan Omar (Gor- don Warnecke) að koma sér áfram á hinni kapítalísku framtakssemi sem Járnfrúin Thatcher lofar svo mjög. Pabbi hans (Roshan Seth) er gamall og fátækur vinstrisinnaður blaðamaður frá Pakistan, sem talar níðþungur á brún um að þekkingin sé undirstaða okkar svo við vitum hver við erum og hvað við erum. Sjálfur liggur hann mestanpart uppi í skítugu rúminu sínu, saddur lífdaga. Hann vill að sonur sinn Omar fari í háskóla, en það má enginn vera að því að hugsa um menntun og þekkingu þegar hægt er að græða peninga í nýja landinu. Omar fær vinnu hjá frænda sínum, sem er bissnessmaður mik- ill. Hann tekur Omar upp á arma sína staðráðinn í að gera hann að bissnessmanni líka og lætur hann reka fyrir sig þvottahús, sem Omar byggir upp með stolnum peningum frá kókaínsmyglara í fjölskyldunni. Dóttir frænda er mikið að reyna við unga menn og bera brjóstin sín og eiginkonan bruggar forna indverska seiða til að magna upp galdra sem viðhald frænda verður fyrir barðinu á. Kureishi hefur sagt að öll hans verk fjalli um ástfangna stráka og mitt í stétta- og kynþáttamis- munun, spillingu og fordómum, blómgast ástin á milli Omar og æskuvinar hans Johnny (Daniel Day Lewis), sem er foringi fyrir litlu og vesælu National Front- gengi. Hann fer með Omar út í þvottahúsareksturinn, en það veldur árekstri við gömlu félagana þar til uppúr sýður í lokin. Mynd- in sýnir okkur Pakistanana áfjáða í að koma undir sig fótunum og græða peninga í nýja heiminum á meðan „innfæddir" eyða kröft- um sínum í að stika um göturnar í leit að einhveiju til að berja. Kureishi hafði uppi áætlanir um að gera þessa mynd að þriggja eða fjögurra stunda stórvirki en dró það saman í 93 mínútur og hafði 600.000 pund frá Rás 4 í Bretlandi til umráða. Það skín víða í gegn að hún er gerð fyrir lítinn pening. Leikur aðalpersón- anna er með mestum ágætum. Það er gaman að bera saman góðan leik Daniels Day Lewis í „Þvottahúsinu“ annars vegar og í Herbergi með útsýni hins vegar þar sem hann er óþekkjanlegur fyrir sama mann í hlutverki til- finningalausa uppskafningsins og menntamannsins sem lítur niður á allt og alla. Þeir standa sig all- ir vel leikararnir í „Þvottahúsinu“ alveg frá Warnecke í hlutverki Omars hins unga og upprennandi bissnessmanns til Roshan Seth í hlutverki gamla og mædda Pa- kistanans, sem horfir upp á landa sína týna uppruna sínum og menningu í „gósenlandinu". Sigrún Jónsdóttir ásamt hluta verka sinna en hún sýnir nú í Festi i Grindavík. Sýning hennar stendur til 3. maí nk. Myndlistar- sýningí Grindavík SIGRÚN Jónsdóttir heldur þessa dagana listsýningu í sam- komuhúsinu Festi í Grindavík. A sýningunni eru glermyndir og batikmyndir, auk hökla. Sýningin er opin daglega kl. 16.00-19.00 til 3. maí nk., eii verður opin til kl. 10.00 nk. föstu- dag, laugardag og sunnudag. Eins og alkunna er, hafa sjómannadagssamtökin unnið stórátak í hagsmunamálum aldraðra, með byggingu tirafnistu í Reykjavík og firafnistu í Hafnarfirði, þar sem tugir og hundruðir aldraðra undanfarin þrjátíu ár hafa átt öruggt skjól á sínu ævikvöldi á vistdeildum, lyúkrunardeildum, sjúkradeildum og hjónagörðum. Samt sem áður, þótt miklu hafi verið komið í verk, ekki bara af okkar samtökum, heldur ótal mörgum fleiri aðilum, eru málefni aldraðra sífellt meira knýjandi, m.a. sökum hækkandi meðalaldurs þjóðarinnar. Því er höfuðmarkmið Sjómannadagsráðs, hér eftir sem hingað til, að gera allt sem það megnar til aðstuðla m Happdtætti Dvalarheimilb Aldiaöra Sjómanna Þökkum okkar traustu vidskiptavinum og bjóðum nýja velkomna. EFLUM STUÐNING VIÐ ALDRAÐA. MIDIÁ MANN FYRIR HVERN ALDRAÐAN.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.