Morgunblaðið - 29.04.1987, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 29.04.1987, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987 -4 Engin náð í New Orleans Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Engin miskunn — No Mercy ☆ ☆ '/2 Leikstjóri Richard Pearce. Handrit Jim Carabatsos. Kvik- myndun Michael Brault. Sviðs- mynd Patrizia Von Branden- stein. Tónlist Alan Silvestri. Aðalleikendur Richard Gere, Kim Basinger, Jeroen Krabbe, George Dzundza, Gary Bas- araba, William Atherton. Bandarísk. Tri Star 1986. Þegar lögreglumaðurinn (Ric- hard Gere) finnur félaga sinn í blóði sínu á hótelherbergi eftir að þeir hafa hálfklúðrað máli í heimaborg þeirra, Chicago, eltir hann morðingjana niður til New Orleans. Eini tengill Gere við þá grunuðu er ljóskan Kim Basinger, en hún tengist forsprakka þeirra, Jeroen Krabbe, á all sérstakan hátt. En hún kemur Gere á sporið og um tíma er fjandinn laus í New Orle- ans. Þrátt fyrir hálaunaða leikara, vandvirka kvikmyndagerðar- menn, góða tónlist, magnað umhverfi, svolítið dulúðugan söguþráð, og auðsjáanlega moð af dollurum, er lögguþrillerinn Engin miskunn hasarmynd rétt í meðallagi. Hugmyndin, að leiða löggumann úr köldu stórborginni í norðri suður í lævíst og fram- andi, hálf-franskt andrúmsloftið í New Orleans, með sína gjörólíku glæpamenningu, blandaða vúdú- galdri og vondum hefðum, er virkilega góð. En þau Gere og Basinger ná illa til áhorfenda, auk þess sem ólíkindi sögunnar nálg- ast fásinnu á köflum. Gere er mun heppilegri í skúrkshlutverk, sbr. Looking for Mr. Goodbar, Breathless, Am- erican Gigolo, þau hæfa kauða ágætlega. Basinger virðist hafa af fáu öðru að státa en að vera ósköp sæt, kynþokkinn geislar ekki af henni, lítur oftast út ein- sog hún sé á frívakt af pútnahús- inu. Þessi lúxsápuauglýsing er ekki beint líklegur veruleiki á drullubúlum Algiers hverfisins né á sveimi í fenjaskógum. En Basin- ger er þó að beijast við að sanna að eitthvað búi á bak við glassúr- inn og með góðri leikstjórn og áframhaldandi streði getur hún komið á óvart í framtíðinni. Sá sem stelur senunni og gefur Gere langt nef er annað svaða- mennið ættað frá Niðurlöndum. Nefnist uppgötvunin Jeroen Krabbe. Hann er ekki einasta mikilúðlegur í útliti heldur getur hann leikið og gripið áhorfendur. Og þvert ofaní vilja leikstjórans nýtur hann meiri samúðar þeirra en dúkkulísan Basinger og götu- strákurinn Gere. Þetta er náttúr- lega hálfgert ólán hvað framvinduna snertir, en Krabbe glæðir Enga miskunn svo sann- arlega lífi á meðan hans nýtur við. Og Pearce og kvikmyndar- gerðarmenn hans, einkum sviðs- myndahönnuðir og kvikmynda- tökustjóri, eiga nokkra góða spretti. Að öðru leyti afþreyinga- riðnaður í rösku meðallagi. Hollendingurinn Jeroen Krabbe skýtur þeim Richard Gere og Kim Basinger ref fyrir rass í Engin miskunn. smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar I.O.O.F. 7 = 1694298'/? = I.O.O.F. 9 = 1694298'/z = Fl. □ Helgafell 59874297IV/V-2 □ Glitnir 59874297 - Lokaf. I O G T St. Einingin nr. 14 Fundur í kvöld kl. 20.30 i Templ- arahöllinni v/Eiríksgötu. Kosning og innsetning embætt- ismanna. Dagskrá um voriö i umsjá hag- nefndar. Félagar fjölmennið. Æ.T. Hörgshlíð12 Samkoma i kvöld, miövikudags- kvöld, kl. 20.00. REGLA MUSTERISRIDDARA RMHekla 29.4. HS. MT. m ÚTIVISTARFE/RÐIR Helgarferðir 30. aprfl-3. maí 1. Öræfajökull-Skaftafell 4 dag- ar. Gengin Sandfellsleiöin á Hvannadalshnúk. Tilvaliö aö hafa meö gönguskiði. Farar- stjóri: Egill Einarsson. Upplýs- ingar um útbúnað fást á skrifst. 2. Skaftafell-Öræfi 4 dagar. Göngu- og skoðunarferðir um þjóðgaröinn og Öræfasveitina. Brottför f feröirnar á flmmtud. kl. 20.00. Gist í nýja félags- heimilinu á Hofi, Oræfasveit. Uppl. og farm. á skrffst. Gróf- inni 1, símar: 14606 og 23732. Þórsmerkurferðir, helgar- og sumardvöl hefjast 22. mai. Útivist, ferðafélag. 1927 60 ára 1987 FERÐAFÉLAG IÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SIMAR 11798 og 19533. Kynning á Ferðafélaginu í Gerðubergi — Breiðholti Miövikudaginn 29. apríl kl. 20.30 efnir Ferðafélagiö til kynningar i Geröubergi, menningarmiöstöö Breiöholts. Ólafur Sigurgeirsson sýnir myndir úr ferðum félagsins og segir frá tilhögun þeirra. Gestum gefst tækifæri á að koma með spurningar um starf F.í. Kynnið ykkur feröir Feröafélags- ins og fjölbreytni þeirra. Allir geta fundiö ferö viö sitt hæfi. Aögangur kr. 50.00. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Feröafélag Islands. 1927 60 ára 1987 FERÐAFÉLAG ISLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR11798 og 19533. Helgarferðir 30. aprfl-1. maí Öræfajökull — Skaftafell Brottför kl. 20.00 fimmtudag. Gist i svefnpokaplássi á Hofi í Öræfasveit. Gengiö á Hvanna- dalshnúk (2.119 m). Fararstj.: Snævarr Guömunds- son o.fí. Uppiýsingar um útbúnaö fást á skrifstofu F.í. Þórsmörk Brottför kl. 8.00 föstudag 1. maí. Gist i Skagfjörösskála/ Langadal. Farmiðasala og upplýsingar á skrifstofu F.Í., Öldugötu 3. Ferðafélag íslands. Haraldar Pálssonar, skíða- manns. Skíöaráð Reykjavikur. Tvikeppni, svig og ganga veröur i Bláfjöllum sunnudaginn 3. maí og hefst kl. 13.00. Skrán- ing i Borgarskálanum. Keppt veröur í stuttu svigi og göngu, 5 km fyrir karla og 2,5 km fyrir konur, börn og öldunga. Keppnin er öllum opin, ungum sem öldnum og er allt skíöafólk hvatt til þátttöku í nýstárlegri keppni. Keppt er um veglega farandbikara gefna í minningu National olluofnar og gasvélar. Viðgerðir og varahlutaþjónusta. RAFBORC SF. Rauðarárstig 1, sími 11141. Dyrasímaþjónusta Gestur rafvirkjam. — S. 19637. T réskurðarkennsla Hannes Flosason, s. 23911 og 21396. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar Ármúli 17 — atvinnuhúsnæði til leigu Verslunarhúsnæði: Til leigu ca 260 fm hús- næði á götuhæð. Skrifstofuhæð: Til leigu 216 fm á 2. hæð + 70 fm geymslurými á rishæð. Allar uppl. í síma 28044 frá kl. 9.00-17.00. Til leigu 35 fm skrifstofuherbergi á Ártúnshöfða með aðgangi að kaffistofu og salerni. Lysthafendur vinsamlega leggi tilboð inn á auglýsingadeild Mbl. merkt: „Y — 5078“. Til leigu —Ármúli Til leigu í Ármúla u.þ.b. 100 fm bjart hús- næði á 2. hæð auk sameignar. Húsnæðið er einn salur sem innrétta má eftir þörfum. Sameiginleg snyrting og kaffistofa fullbúin svo og sameign. Upplýsingar í síma 622012 á skrifstofutíma. Ólafur Garöarsson, hdl., Grandavegi 42. Skrifstofuhúsnæði 53+177=230fm 65 fm Til leigu er frá 1. maí fullinnréttað vandað skrifstofuhúsnæði á 3. hæð í Ármúla 38. Upplýsingar veitir Hanna Rúna hjá okkur. Frjálst framtak, Ármúla 18, sími 82300. ^ ÚTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavíkurborgarf.h. Hita- veitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í álklæðningu fyrir gufusafnæðar Nesjavalla- virkjunar. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudag 2. júní nk. kl. 11.00. ÍNNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 Grjótmulningssamstæða KK 57 Skiptaráðandinn á ísafirði, Pólgötu 2 óskar eftir tilboðum í eftirtalda muni: Forbrjót af gerðinni Kuken 57 stærð 40x60 cm. Kónbrjót af gerðinni Svetala 30 tommur. 4 stk. færibönd 15 metra löng 60 cm breið. 1 stk. færiband 15 metra langt 80 cm breitt. Rafstöð kw. Vél Volvo TD 100. Rafall Asea. Borðmalara 6 m3. Hörpu 3.60 x 1.20 2 öxla. Hörpu 3.60 x 1.20 1 öxla. Vagn til að flytja á færibönd 14 m langan. Gorm 20 m2. Snígil. Upplýsingar gefur Lárus Bjarnason í síma 94-3733. Viðgerðir og viðhald Húsfélagið Eyjabakka 1-15 Reykjavík óskar eftir tilboðum í viðgerðir og viðhald utan- húss. Útboðsgögn eru afhent á verkfræði- stofunni Línuhönnun hf., Ármúla 11, og verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 13. maí 1987 kl. 11.00. Línuhönnun h= VeRkFRæðÍStOFQ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.