Morgunblaðið - 29.04.1987, Page 37

Morgunblaðið - 29.04.1987, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987 37 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson „Kæri stjörnuspekingur. Mig langar að biðja þig, stjörnu- spekingur góður, að gera stjörnukort fyrir mig. Ég er fæddur þann 17. maí 1923 kl. 3.40 eftir miðnætti á fsafirði. P.s. Gjarnan mundi ég vilja vita hvemig ég og vinkona mín, Ljón (29.7. 1925), förum saman í hjú- skap. Með fyrirfram þökk.“ Svar: Þú hefur Sól í Nauti, Tungl, Merkúr, Mars og Rísandi í Tvíbura, Venus í Hrút og Steingeit á Miðhimni. Tvíburi Það verður að segjast að í raun ert þú meiri Tvíburi en Naut. Þú getur verið þungur og þijóskur, en gegnum- gangandi ert þú hins vegar hress, léttur, mátulega stríðinn og eirðarlaus per- sónuleiki. Þú ert einnig félagslyndur og þarft að hafa mörg járn í eldinum. Allt eru þetta frekar eiginleikar Tvíbura en Nauts. Lífsorka Þrátt fyrir þetta ert þú eigi að síður Naut í grunneðli þínu og lífsorku. Þú þarft t.a.m. fjárhagslegt öryggi, annars er hætt við að orka þín minnki og að þú verðir þreyttur og hálf síappur. Þú ættir því alltaf að gæta þess að eiga varasjóð. Nautið í þér táknar einnig að þú ert nautnamaður, kannt að meta góðan mat og líkamlegan munað. Daglegt líf Tungl í Tvíbura táknar að þú ert tilfinningalega hress og léttur, ert að öllu jöfnu bjartsýnn og jákvæður. í daglegu lífi þarft þú hreyf- ingu og ijölbreytileika, annars er hætt við að þú koðnir niður. Forvitinn Tvíburinn táknar einnig að þú ert forvitinn og andlega leitandi. Þú hefur gaman af því að lesa um margvísleg málefni og að ræða við fólk um allt milli himins og jarðar. SjálfstœÖur Mars í Tvíbura í spennu við Úranus táknar að þú þarft að vera í hreyfanlegu og fjöl- breytilegu starfi. Þú þarft einnig að ráða þér sjálfur í vinnu. Það gæti t.d. átt við þig að keyra bíla eða vera í starfi sem gefur þér kost á að skipta um umhverfi. Ólík Vinkona þín hefur Sól og Mars í Ljóni, Tungl í Sporð- dreka og Merkúr og Venus í Meyju. Það táknar að þið eruð ólík og eigið ekki sérlega vel saman. (Að vísu vantar fæðingartímann og þar með upplýsingar sem gætu verið mikilvægar). Hið jákvæða er hins vegar það að tveir ólíkir einstaklingar geta bætt hvort annað upp, vegið upp veik- leika og kennt öðru margt. Málamiðlun Spennan á milli ykkar er sú að bæði Naut og Ljón eru þrjósk merki. Þið þurfið því að passa ykkur og gæta þess að vera sveigjanleg. Tungl í Tvíbura og Tungl í Sporð- dreka táknar að þið eruð tilfinningalega ólík, þú léttur og opinn en hún dul og lok- uð. Þegar til lengdar lætur gæti þér fundist hún of stíf og alvörugefin og henni þú of eirðarlaus og flöktandi. Ef þið hins vegar gerið ykkur grein fyrir því ólíka, varist ásakanir og gætið þess að virða hvort annað, ætti ykkur að geta vegnað vel saman. r* /V DDI ID uAKrUn GRETTIR DYRAGLENS HvAÐ mörg stvkki í pvi Ærn BS AP BORPA ? jSK/kÐUR ÍM" nr f>Ö AST pAÐ AU-T, L. VAR PAÐ EKKI ? ) FERDINAND SMÁFÓLK BEFORE THE BALL IS PITCHER YOU 5HOULC7 PECIPE WHAT YOU'RE 60INGTO PO IF IT’5 HIT TO VOU... Áður en boltanum er kast- að verður þú að ákveða hvað þú ætlar að gera ef honuin er kastað til þín... Allt í lagi, ég er búin að ákveða mig ... Ef honum er kastað til mín fer ég heim! BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Einungis tvær slemmur voru í spilunum í leik Polaris og Deltu á íslandsmótinu. Við sáum þá fyrri í gær, en hér er hin: Vestur gefur; allir á hættu. Vestur ♦ G72 VD87G ♦ KG86 ♦ D5 Norður ♦ ÁK98654 ¥ ÁKG2 ♦ 5 ♦ 3 Austur ♦ 103 ¥954 ♦ Á1092 ♦ 9872 Suður ♦ D ¥ 103 ♦ D743 ♦ ÁKG1064 Sex spaðar er ekki sérlega góð slemma á spil NS, en hún vinnst, þar eð trompið brotnar 3—2 og hjartadrottningin liggur fyrir svíningu. Þórarinn Sig- þórsson og Þorlákur Jónsson í sveit Deltu sögðu þannig á spil NS: Vcstur Noröur Austur Suður Pass 1 lauf Pass 2 lauf Pass 21 íglar Pass 3 tíglar Pass 4 spadar Pass Pass Pass Opnun Þorláks í norður var samkvæmt Precision-keríinu, það er að segja sterk. Tvö lauf á móti lofuðu fimmlit og minnst 9 háspilapunktum. Tveir tíglar inntu eftir frekari skiptingu og þrír tíglar sögðu frá 6—4 í láglit- unum. Þorláki leist þá ekki á blikuna og lauk sögnum með íjónim spöðum. Ásmundur Pálsson og Karl- Sigurhjartarson í sveit Islands- meistaranna voru heldur harð- ari: Vcstur Nordur Austur Suður Pass 1 lauf Pass 1 spaði Pass 2 spaðar Pass 3 lauf Pass 4 lauf Pass 4 hjörtu Pass 4 spaðar Pass 5 spaðar Pass 6 spaðar Pass Pass Pass Vestur Nordur Austur Suður Laufopnun þeirra er einnig ■iterk og spyr um kontról. Spaða- ■varið sýnir þtjú, ás og kóng eða jtjá kónga. Síðan fylgja sagnir ðlilegri braut, og Karl í suður Akveður að taka áskoruninni í slemmuna á grundvelli spaða- drottningarinnar. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á alþjóðlegu móti í Dortmund í V-Þýskalandi, sem er að ljúka, kom þessi staða upp í skák V-Þjóðveijanna Hickl og. hins nýbakaða stórmeistara Ralf Lau, sem hafði svart og átti leik. Kóngssókn hvíts virðist í fljótu bragði duga a.m.k. til jafn- teflis, en Lau tókst að verða á undan: 29. - Dxcl!, 30. Hxh5 (Hickl freistar þess að ná þráskák, þiggi hann drottningarfórnina fær hann vonlausa stöðu eftir 30. Hxcl, Hxcl+, 31. Kf2 - Hc2!, 32. Dd3 - Hfc8) Rf3+! og hvítur gafst upp, því hann verður heilum hrók undir í enda- tafli. Þegar tefldar höfðu verið 9 umferðir af 11 var Balashov efstur með 6 V2 v. Tukmakov næstur með 6 v. Þeir Ander- son, Agdestein, Nunn og Ribli höfðu allir 5 V2 1/2 v.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.