Morgunblaðið - 29.04.1987, Page 39

Morgunblaðið - 29.04.1987, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987 39 Síðan skein sól Síðan skein sól er í hópi yngri hljómsveita, en þó eru engir ný- liðar í henni. Síðan skein sól hefur að vísu ekki sést opin- berlega ennþá, en fyrstu tónleik- ar eru í Hlaðvarpanum annað kvöld. Sveitarlimir voru teknir tali og spurður um sitthvað varð- andi hljómsveitina. Svörin komu úr ýmsum áttum og enginn einn sem hafði orðið frekar en annar. Hverjir eru í hljómsveitinni? Pétur Grétarsson, sem leikur á trommur, Jakob Magnússon, sem spilar á bassa, Eyjólfur Jóhannsson sem spilar á gítar og Helgi Björns- son sem sér um sönginn. Hvað finnst ykkur um hljóm- sveitina? Við sjáum hana í nýju ljósi á hverjum degi, þetta er ný vídd. Hvemig er tónlistin? Danstón- list? Nei, ætli það, en annars er mjög erfítt að dæma um þetta sjálfur. Þetta er kannski svona meira rokk, hrárra, enda býður hljóðfæraskip- anin upp á það. Svo erum við með svona gamlan slagarafíling og ýmislegt annað í bland. Af hveiju „Síðan skein sól“? Af því það er alltaf rigning. Nei þetta er svona glæta í tilverunni hjá okkur öllum. Þetta er táknrænt nafn fyrir það. Já ljós í lífinu, þetta er gleðigjafi sem skín á okkar til- veru. Sem væri ansi snauð, snauð- ari, mun snauðari ... ! Er þessi tónlist öll bræðingur frá ykkur, hver kemur með sitt, ein- hver kemur kannski með riff og er byggt í hring um það? Ræður ein- hver einn ferðinni? Það er svo merkilegt með það, það kemur aldrei neinn með neitt. Það verður bara til hér á staðnum. En hvað með framtíðina, er þetta ef til vill bara sumarhljóm- sveit? Ja, þetta er lifandi meðan áhug- inn endist og það er gaman að þessu. Að vísu erum við ekki komn- ir á lappimar ennþá. En þessi ungi er alveg yndislegur, mitt bam er það besta í heimi og allt það. Allir anda í takt. Er þetta fyrst og fremst skemmtun? Já já, en öllu gamni fylgir mikil alvara. Þetta er mikil alvara ef ég má tala út. Við höfum sagt það annarsstaðar. Tíminn er of dýrmæt- ur til að leika sér með hann. Er draumurinn plata? Nei, það er enginn draumur, það er bara spuming um framkvæmdar- atriði. Og viðtökum. Vissulega. Það má kannski segja að þetta sé draumur en við höfum fullan hug á að gera hann að vem- leika mjög fljótlega. En hvað skeður á fimmtudag- inn? Nú er þetta í fyrsta sinn sem hljómsveitin kemur opinberlega fram. Græjurnar bila. Nei, hvemig em taugarnar? Magaverkur. Spenna. Fyrstu skrefin. Unginn að byija að labba. Við teflum djarft. Við emm að gera fullt af hlutum sem enginn okkar hefur gert áður. Við leggjum í þetta með bros á vör. Og ætlumst til þess að fá bros á móti. Er einhver ákveðin hugsun á bak við hljómsveitina? Bara þessi tilfinningalega útrás, þessi sköpunarþrá. Við höfum fund- ið farveg sem við getum sameinast í og fundið sameiginlega músík sem byggist á tilfínningu. Afurðir Söngvakeppninnar Eins og búast mátti við varð mikið kapphlaup meðal hljóm- plötuútgefenda íslenskra eftir útgáfurétti á þeim lögum sem komust í úrslit Söngvakeppni sj ón varpsstöð va. Hljómplötuútgáfan Steinar var fyrst á markað með þijú lög úr kepninni sem gefin voru út á litlum plötum, en Skífa fylgdi fast á eftir og nú eru út tvær stórar plötur með lögum úr keppninni. Skífan gefur út sex laga plötu með lögunum Hægt og hljótt, sigur- laginu eftir Valgeir Guðjónsson sem Halla Margrét Árnadóttir syngur, Lífsdansinn, eftir þá Geirmund Valtýsson og Hjálmar Jónsson sem Björgvin Halldórsson og Erna Gunnarsdóttir syngja, Ég leyni minni ást, eftir Jóhann G. Jóhanns- son sem Björgvin Halldórsson syngur, í blíðu og stríðu, eftir Jó- hann Helgason sem Jóhann syngur sjálfur, Mín þrá, eftir Jóhann G. sem Björgvin syngur, og Sumarást, eftir þau Þorgeir Daníel Hjaltason og Iðunni Steinsdóttur sem Jóhanna Linnet syngur. Steinar gefur út tólf laga plötu þar sem á er að finna þau þijú lög sem áður komu út á litlum plötum og eitt söngvakeppnilag til við- bótar. Lögin eru Lífið er lag, eftir þá Friðrik Karlsson, Gunnlaug Briem og Birgi Bragason sem hljómsveitin Model flytur, Norður- ljós, eftir þá Gunnar Þórðarson og Olaf Hauk Símonarson sem Eyjólf- ur Kristjánsson syngur, Aldrei ég gleymi, eftir þá Axel Einarsson og Jóhann G. Jóhannsson sem Erna Gunnarsdóttir syngur, og Sofðu vært, eftir Ólaf Hauk Símonarson sem Diddú syngur. Þessu til viðbótar eru fimm íslensk lög á plötunni, þijú ný en tvö endurgerð. Þau eru Þymirós, með Greifunum, sem æðir upp vin- sældalista um þessar mundir, Skyttan, með Bubba og MXinu sem búið er að vera á toppnum um hríð, eitt af hans bestu lögum, Átján rauðar rósir, með Vormönnum ís- lands, sem sést hefur bregða fyrir á vinsældalistum, Vopn og veijur, með Vamöglunum, lag sem komst nálægt toppnum, og No Limit, með Mezzoforte, endurgert. Önnur lög á plötunni em með erlendum flytj- endum, þeirra á meðal Boy George. I.jósmynd/Árni Matthlasson Sykurmolaplata Nú er verið að leggja síðustu hönd á nýju Sykur- molaplötuna sem verið er að vinna i Englandi um þessar mundir. í síðustu viku héldu fjóreinir Sykurmolar tónleika í Hlaðvarp- anum þar sem kynnt var efni af plötunni í bland við eldra efni. Sýndu ’molarnir þar að platan sú verður eiguleg í meira lagi ekki síður en litla platan sem kom út skömmu fyrir jól. Vinsæli j9&9 1 • (3) Þyrnirós ;■ Hægt og hljótt (4) 18 rauðar rósir (2) Lífið er lag • (5) LetitBe (7) Skyttan ‘ JfLr'Uun^infl in The Family • (6) With Or Without You (11) Let’s Wait Awhile J,102. Manhattan Skyline ío O’ The Times (28) LeanOnMe (9) Everything I Own (18) JimmyLee Greifarnir Halla Margrét Árnad. Vormenn íslands Model Ferry Aid Bubbi & MX21 Level 42 U2 Janet Jackson A-Ha Prince Club Nouveau Boy George Aretha Franklin Í: i! II St0,,h;„ t r> • (20) StandByMe F'neYoungC • (13) Vopnog verjur Ben E Kmg : 8 »rMe •"iSSZ : 8S sssssr’------ (y.Duv,;red'Gun N. : ®öa0CÓB H,lteMa,9'«Amaa • (2) Skyttan ^ S WmíoT&oatVoa *~°"»**£ 071 teUSa,rtS'r (6) Carrie Greifarn.r Jg Bunning |n The Family Leveul (23) Letr|tBe°S EW'ólfur Kriatjánsson (10) Vopn og verjur (1|J ManhattanSkyline 9^a Í1R Tou GiY® Lova A Bad Name BonJovi 15) Living On A Prayer 1° • (12) Nothing’s Gonna Stamhin -) Don’t hTeed A*Gun^ íloi It'™G™a,Pre,*nð’' FR™ðddiacMa,“'7 B.I Minþra B^íalfSS • (19) Sign O The Times ■ (—) Day-ln-Day-Out • (24) BigTime ■ (18) Mary’sPrayer (26) StandByMe (—) SkinTrade (25) Everything I Own (—) Respectable (—) Let’s Wait Awhile Prince David Bowie Peter Gabriel Danny Wilson Ben E. King Duran Duran Boy George Mel & Kim JanetJackson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.