Morgunblaðið - 29.04.1987, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 29.04.1987, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987 Afmæliskveðja: Regína Thoraren sen frá Gjögri Fyrir sjötíu árum, nánar tiltekið 29. apríl 1917, fæddist þeim hjónum Emil Tómassyni og Hildi Þ. Bóas- dóttur á Stuðlum í Reyðarfírði fjörugt og blítt stúlkubarn, sem var vatni ausið og skírt Regína. Og allt frá fyrsta degi er hún sá dagsins ljós og fram á þennan dag hafa leikið um hana íjörugir, stundum kaldir stundum blíðir, vindar eins 9g krydd mannlífsins er, en þó misjafnt eftir því hver stjómar kryddefnunum hveiju sinni. Regína er fyrir löngu landsfræg kona, einna helst fyrir það að koma til dyranna eins og hún er klædd og segja umbúðalaust meiningu sína og skiptir þá ekki máli hvort í hlut á Geiri á Eyrinni eða formað- ur Sjálfstæðisflokksins. Regína er búin að skrifa heilan helling af greinum um dagana og hefur þar kennt margra grasa. Þar hefur hún oft reynt að koma vitinu fyrir mi- svelgefna ráðamenn og oft mátti lesa milli linanna að gleymst hefði að ala þá upp og henni fyndist því ráð að senda þeim móðurlegar jrfninningar. Undirritaður er búinn að þekkja afmælisbarnið í yfir íjörutíu ár og þó að við höfum ekki alltaf verið sammála hefur alltaf farið vel á með okkur Regínu. Sórstaklega minnist ég þess frá uppvaxtarárum mínum á Litla-Nesi að þó kastaðist í kekki milli okkar frændsystkin- anna blönduðu hvorki hún né maður hennar sér í hita leiksins heldur létu okkur alltaf ganga frá upp- gjörinu sjálf og þarna var ekki heimskulega að farið. Regína er fijálslynd kona og víðsýn og hún hefur haft yndi af að fylgjast með dægurþrasinu í gegnum tíðina og grunnt hefur verið á stríðnisbakt- eríunni. Ef hún var á öndverðum meiði við einhvern þá var hún í essinu sínu, eins og köttur leikur sér að mús og sigurinn var hennar. Regína giftist móðurbróður mínum, Karli Thorarensen frá Gjögri í Strandasýslu, 24. ágúst 1939. Áttu þau heima á Gjögri í Strandasýslu í yfir tuttugu ár að þau flytja aust- ur á Eskifjörð og flytja þaðan á Selfoss 1981, þar sem þau búa í dag í Vallholti 20. Áuðinn eignuðust þau í börnum sjnum, sem eru fjögur, allt sóma- fólk og til mikillar fyrirmyndar. Þau eru í aldursröð: Hilmar, Guðbjörg, Guðrún Emilía og Emil. Ekki er ég í vafa um það að Strandirnar eiga huga þeirra hjóna, enda dvelja þau þar á hveiju sumri. Ég tel Regínu mikla gæfumann- eskju að hafa valið Karl Thoraren- sen sér að lífsförunaut, en hann er að mínu viti mikill sóma- og dreng- skaparmaður. Regína verður mér ætíð minnis- stæð persóna fyrir margra hluta sakir og oft var ég í vafa um hvaða manneskju hún hefði að goyma, en smátt og smátt leystist úr þeirri gátu. Þótt hún sýnist fráhrindandi 4/g stríðnisglampi í augum stondur eitt eftir; sjálfstæð og heil porsóna með barnslegt og blítt hjarta. Ég sendi þér og manni þínum mínar bestu hamingjuóskir með merkan tíma í lífí þínu og óska ykkur velfamaðar á ókominni leið. Auðunn H. Jónsson Regína er fædd á Stuðlum í Fá- skrúðsfirði 29. apríl 1917. Þar ólst hún upp í stórum systkinahópi og þótti snemma liðtæk til verka. Regína hefur ætíð verið mannvinur í þess orðs fyllstu merkingu. Ung giftist Regína Karli Thorarensen vélstjóra frá Gjögri í Strandasýslu. Þangað flutti hún og þar fæddust bömin þeirra fjögur. Karl vann við Djúpuvíkurverksmiðjuna þar til hætt var að starfrækja hana. RT-gína annaðist bömin og hoimilið og kjmntist sveitungunum og tók þátt í sorg þeirra og gleði. Og það gerir hún enn í dag. Hvort sem hún býr á Eskifirði, Selfossi eða Gjögri eða er inni á sjúkrahúsum. Regína lætur sig ætíð hag annarra skipta og frá henni stafar einstakri hjarta- hlýju og manngæsku. Hún er hreinskiptin og hispurslaus og lætur ekki satt kyrrt liggja þegar henni finnst þess þurfa við. Regína hefur verið fréttaritari fyrir Morgunblaðið og Dagblaðið/ Vísi um árabil, bæði á Gjögri, Eskifirði og Solíossi. Heill sé þér og flölskyldu á heilla- degi þínum. Hulda og Guðlaug Pétursdætur. Þar sem frú Regína Thórarensen er þjóðkunn kona þá datt mér í hug að taka hana tali þegar ég vissi að sjötugsafmæli hennar nálgaðist, enda þótt ég sé ekki blaðakona. — Mér er forvitni á því Regína, að vita úr hvaða jarðvegi þú ert sprottin og heyra nokkuð um þína ævi. Hún svarar strax: Ég er Aust- firðingur í móðurætt. Móðir mín hét Hildur Bóasardóttir frá Stuðlum í Reykjarfirði. En faðir minn var Emil Tómasson frá Úlfsbæ í Suð- ur-sýslunni. Hann var landbúnaðar- kandídat frá Torfa í Ólafsdal. Hann var fenginn til Austurlands til þess að kenna bændum að rækta tún og að fara með þær fáu vélar, sem þá voru til, einnig smíðaði hann ljái, sem þóttu afbragð sinnar tíðar. Sennilega hefur hann t.d. kennt bændum að nota kerfí til að mylja áburð niður í túnin í stað hinnar erfiðu og seinvirku kláru. — Hesti var beitt fyrir herfið. — Herfi er allstór gaddavírsgrind, sem gadda- vír er settur inn í bæði þvert og endilangt, en síðan eru langar torf- ur ristar og settar á herfið. Það er því ærið þungt í drætti og mílur vel í rekju. Faðir minn smíðaði líka spaða og sennilega torfljái. Fyrst þegar hann kom til Aust- Qarða gerðist hann barnakennari á vetrum á Reyðarfirði. Það vissi ég ekkert um fyrr en eftir að ég var fullorðinn. En þetta er forsagan að því, að hann fann móður mína, sem var heimasæta á Stuðlum í Reyðarfirði þar sem þau síðan hófu búskap. Ég tel að vel hafi blandast saman Suður-Þingeyjarsýslu- og Stuðla- ættir. Þegar ég hugsa til æskuára, þá álít ég, að ég hafí alist upp á menn- ingarheimili, því að bæði var faðir minn söngmaður og enn aðrir á heimilinu. Auk þess átti faðir minn harmóniku og lék á hana. Mikið var til af bókum og lesið geysilega mik- ið. Á öllum kvöldvökum var lesið bæði til fróðleiks og skemmtunar. íslendingasögur voru lesnar og ýmsar bækur um önnur fróðleg efni. Síðan spurði pabbi okkur útúr hvað við myndum af því, sem lesið var. En svo voru líka lesnar skernmtisögur t.d. Þúsund og ein nótt, Kapítóla og aðrar bækur, ein- göngu til gamans. Ég kveið alltaf hálfvegis fyrir að læra heima hjá pabba, mér fannst hann alltof strangur sem kennari. Hann ætlaðist til að við lærðum allt með hraði. Barnakennari minn í skólanum var Jóhann Björnsson frá Selja- landi. Hjá hohum fannst mérgaman að læra. Ég hlakkaði alltaf til að fara í tíma hjá Jóhanni og bar djúpa virðingu fyrir honum. En þó að pabbi væri strangur þegar hann kenndi okkur heima þá var hann þar fyrir utan gleðimaður og gestrisinn. Það var mjög gest- kvæmt á okkar heimili. Þar var mikið sungið og pabbi spilaði lögin með á harmóniku, sem hann átti. Faðir minn las alltaf Passíusálm- ana sjálfur fyrir heimilisfólkið á hverri föstu. Húslestur las hann á hveijum sunnudegi, nema þegar farið var til kirkju. Við börnin sung- um alltaf sálmana með fullorðna fólkinu. Á heimilinu var Jóhann Pétur Malmkvist, sem átti móðursystur mína fyrir konu, en missti hana frá 16 börnum. Hann kom þá á heimili foreldra minna með sex ára dreng og stúlku- barn á fyrsta ári. Jóhann Pétur var mikill söngmaður og varð því sjálf- sagður forsöngvari okkar við sálmasönginn, þegar húslestrarnir voru lesnir. Af öllum þessum sálmasöng á heimilinu kom það af sjálfu sér, að við börnin lærðum mikið af sálmum alveg ósjálfrátt. Eins var það með öll þau kvæði, sem sungin voru til skemmtunar. Við lærðum mikið af ættjarðarljóðum og öðrum vinsæl- um ljóðum og lögum — af því, hve mikið var sungið á heimilinu — og þó mest á sunnudögum. En danslög spilaði pabbi þá stundum líka á harmónikuna, eink- um ef gestir komu og dönsuðu þá allir nema ég. Mér fannst dansinn eitthvað vit- leysislegur. Samt lærði ég seinna að dansá, en var aldrei neitt dansfífl. Við systkinin vorum alls níu, átta komust upp. Það yngsta fæddist andvana og þó að börnin væru mörg, þá var mikill söknuður yfir litla bróður, eins og við kölluð- um hann alltaf, þegar við minnt- umst á hann. Fyrst komu fímm stúlkur í heim- inn og fengu þessi nöfn eftir aldursröð: Sigurbjörg elst, þá Guð- rún, Elín, Borghildur og Regína. Síðan fæddust fjórir drengir í röð, elstur Tómas, næst Bóas, Jón Emil og litli bróðir. Borghildur dó árið sem hún átti að fermast og var það okkur öllum mikill harmur. Elín er dáin fyrir nokkrum árum og Jón Emil einnig. — Þá er nú komið nánar að þínum æviferli, Regína, eftir að þú fórst úr foreldrahúsum. Hún svarar: Já, þegar ég var ung stúlka þótti það jafngilda því að fara á húsmæðraskóla, að ráða sig á heldrimannaheimili í Reykjavík í vist, eins og það var kallað. Enda var þar hægt að læra flest, sem góðri hússtjórn hæfir, bæði venju- lega matreiðslu og veisluhöld. Einnig að læra alla umhirðu heimil- is og frágang á mat til geymslu, svo sem niðursuðu á kjöti og fleiri matvælum. Þegar ég var sextán ára gömul fór ég til Reykjavíkur til þeirra heiðurshjóna Sigurðar Sigurðsson- ar, skipstjóra á Gullfossi og frú Ingibjargar, konu hans. Þau bjuggu í Pálsbæ á Seltjarnarnesi — og höfðu þar kúabú. — Þau höfðu fjósamann til þess að annast búið. Enginn kom nálægt búinu eða mjöltum, nema hann. Heimilið á Pálsbæ var ákaflega myndarlegt og ríkmannlegt. Sem nærri má geta var þar ýmislegt til, meðal annars matarkyns, sem ekki sást einu sinni í búðum í Reykjavík, þar sem skipstjórinn var í milli- íandasiglingum. Þegar skipstjórinn kom í land, þá voru haldnar miklar og ógleym- anlegar veislur í Pálsbæ. Enda var húsmóðirin fjölhæf og myndarleg og hafði nóg til alls. I þessum veislum voru margir höfðingjar í kvöldverðarboði, meðal annars biskupinn yfir Islandi. Ég má til að segja hér frá dálítið spaugilegu atviki, sem sýnir ólíkan tíma þá og nú. Það var eftir eina slíka veislu, að allt fyrirfólkið fór út að skemmta sér eftir kvöldverðinn. Af þessu urðu nokkur vandræði með mig. Ég var unglings-vinnukona og þótti frúnni ekki viðeigandi að taka mig út með hinum tignu gestum. Þegar frúin var komin í sinn glæsilega búning, möttul yst klæða, þá kom hún upp að kveðja mig, segir hún þá við mann sinn og dætur: Hvað eigum við að gera við hana Gínu mína? Ég hafði sér herbergi uppi á lofti. Frúin biður mig að fara ekki niður að tala við fjósamanninn, þeg- ar þau séu farin. Fjósamaðurinn hafði herbergi á neðri hæðinni. Hann borðaði alltaf sér í sínu herbergi, en ég í eld- húsinu — og höfðum við svo sem ekkert kynnst. Ég iofaði því að fara ekki niður til að tala við fjósamann- inn. Þá sögðu dætur þeirra hjóna, að það væri nú öllu líklegra, að fjósamaðurinn kæmi í heimsókn til Gínu, þegar þau væru farin. Þetta sá frúin að var alveg satt. Það fangráð var þá tekið að læsa mig inni í herbergi mínu. En þegar allir voru farnir og ég háttuð, þá bank- aði fjósamaðurinn á hurðina hjá mér. Ég svaraði því, að ég væri læst hér inni í mínu herbergi og frúin hefði sjálf lykilinn, en ég væri að lesa skemmtilega bók og mér leiddist ekkert. Fjósamaðurinn varð mjög reiður, sagði, að þetta væri óforskammað, að læsa mig inni í timburhúsi, ef það kviknaði nú í húsinu á meðan fólkið væri í burtu. — Allt væri það eins á þessu heimili, sagi hann m.m. En ég vissi, að frúnni var það áhugamál, að ég lenti ekki í neinni hættu, sem unglingsstúlka á hennar heimili. En mér hefur skilist, að svo væru tímarnir breyttir, að foreldr- arnir sjálfir megi nú á dögum ekki einu sinni krefjast þess af ungum dætrum sínum að þær komi heim á vissum tíma kvelds, eins og áður fyrr var siður í Reykjavík. Sumt af því svokallaða frelsi endar fyrir mörgum ungum stúlkum í ófrelsi. Ég ber ævinlega hlýjan vinarhug til þeirra hjóna Ingibjargar Olafs- dóttur og Sigurðar skipstjóra og dætra þeirra. Þau voru mér öll svo góð og vildu mér allt það besta. Sumum stúlkum þótti vistin í Páls- bæ nokkuð ströng, en ég hef eingöngu góðar minningar þaðan. Ég var meira að segja þegar leið á vetur látin borða inni í stofu með fjölskyldunni. Móðir mín dó 1933, en pabbi og við systkinin fluttum suður til Reykjavíkur árið eftir. Þá áttum viðyngri systkinin að ganga í skóla. Ég fór í Kvennaskólann til Ingi- bjargar H. Bjarnason. Þar var heragi, en ég var léttlynd og gat alltaf hlegið að öllu saman. En mér líkaði þar vel. Sennilega hafa bústaðaskipti okkar frá Reyðarfirði til Reykjavík- ur orðið til þess að auðvelda yngsta bróður okkar, Jóni Emil, nám í Reykjavík. Hann varð síðar lög- fræðingur. í Reykjavík kynntumst við Karl Thórarensen fyrst, það var árið 1937. Hann var þá að Ijúka járn- smíðanámi. Við settum upp hring- ana á sumardaginn fyrsta 1938. Við giftum okkur á afmælisdegi móður minnar 24. ágúst 1939. Það var löngu ákveðið að við giftum okkur þann dag. En hálfum mánuði áður en gift- ing skyldi fara fram, var Karl beðinn um að koma til Akureyrar til að smíða peningaskáp fyrir Vil- hjálm Þór. Það varð því sér Friðrik Rafnar sem gifti okkur Karl heima hjá sér. Athöfnin var hátíðleg, þó að eng- ir gestir eða ættingjar væru við. Við héldum til á Herkastalanum á Akureyri, þar fengum við brúð- kaupskaffið, sem við pöntuðum sjálf. Kapteinninn á Hernum tók okkur mjög vel og fékk hún okkur til að koma á samkomu um kvöldið, sem var sunnudagskvöld. Hún vissi ekki neitt um giftinguna. En svo fóru að berast skeyti daginn eftir. Kapt- eininn spurði hvort við ættum afmæli. Karl sagði henni þá eins og var, að séra Rafnar hefði verið að gifta okkur á sunnudag. Þá bað hún Guð að hjálpa sér af því að við hefðum sofið saman í þijár eða fjór- ar nætur áður. Hún sagðist hefði látið mig strax hafa annað herbergi ef hún hefði ekki haldið, þegar ég kom að við værum hjón. Nokkru síðar fórum við hjónin til Reykjavíkur, þar sem við stofn- uðum okkar eigið heimili. Hilmar, okkar fyrsta barn, fæddist í Reykja- vík 1940. En rétt á eftir fékk Karl atvinnu í 6 til 8 vikur norður í Djúpuvík í Strandasýslu. Það teygðist nokkuð úr þeim vikum. Við vorum þar í fímm ár. Og síðan í 15 ár á Gjögri. Þá vorum við komin í heimabyggð Karls Thorarensen, þar sem foreldr- ar hans bjuggu. Karl ólst upp í Reykjarfirði í Strandasýslu. Hann var tvíburi og var tekinn þar í fóstur til kaup- mannshjóna. Hálfsystkini hans voru að föður, Jakob Thórarensen skáld, líka járnsmiður og J akobína J akobs- dóttir, kona Kristins kaupmanns á Hólmavík. Mikilhæf kona og stál- greind, alsystir Jakobs skálds. Vilhelmína Gísladóttir, móðir Jakobs skálds og Jakobínu, var Karli alltaf sérjega hlý og hálfsyst- ir hans var honum alltaf góð. Hún tók vel á móti okkur, þegar við komum í Hólmavík. Karl var í vinnu hingað og þang- að við smíðar sérlega á vetrum. Hann smíðaði t.d. alla innréttingu í prestseturshúsinu á Stað í Stein- grímsfirði. En hann stundaði fiski- veiðar á eigin báti á Gjögri vor og sumar. Við komum með einn son frá Djúpuvík að Gjögri og eignuðumst þar þtjú börn: Guðbjörgu Karólínu, Guðrúnu Emilíu og Emil. Á Gjögri ólust börn okkar upp, það yngsta til átta ára aldurs. Við höfðum þama smá búskap, eina kú og nokkrar kindur. Ég álít að þarna hafi verið góð skilyrði til þess að ala upp börn við hæfílega vinnu, bæði á sjó og landi. Þau lærðu að heyja, sinna skepnum, veiða og gera til físk. Nógur tími gafst á vetrum til lestrar og lær- dóms, þó að barnaskólinn stæði þar stutt. Börnin fengu þar góða kennslu en ekki námsleiða. Gjögurbörn gengu í Finnbogastaðaskóla í Ár- neshreppi, vom í heimavist og heima til skiptis. Skólastjóri við Finnbogastaða- skóla á fyrri ámm okkar í Gjögri var Jóhannes Pétursson frá Reykj- arfirði. En síðar Torfi Guðbrands- son frá Heydalsá. Þetta vom góðir kennarar og mætir menn. Regína sagðist alltaf öðru hvom hafa haft símasamband við sína gömlu húsmóður í Pálsbæ. Og einu sinni segir hún fékk ég bréf frá henni að Gjögri, þar sem hún seg- ir, að sér þyki alltaf svo gaman að lesa fréttirnar, sem ég skrifi í Morg- unblaðið. Frú Ingibjörg bætti því við, að hún hefði alltaf álitið að úr mér mundi rætast. Mörgum árum eftir að ég fór úr Pálsbæ kom ég þangað einu sinni þegar ég var á ferð í Reykjavík. Þá var frú Ingibjörg dáin. Én dæt- ur hennar tóku mér með kostum og kynjum. Það var mikill stíll og gömul hefð yfir þeim fallegu og góðu móttökum. Dæturnar bjuggu þá einar í húsinu. Þegar börn okkar komust yfír fermingu urðu þau að fara langt í burtu að heiman, ef þau ætluðu sér lengri skólagöngu. Og eins var það með atvinnu. Þess vegna tókum við Karl okkur upp og fórum þaðan til Eskifjarðar 1962. Þar fékk Karl atvinnu sem verk- stjóri á viðgerðarverkstæði hjá Hraðfrystihúsi Eskiijarðar. Þá var Hilmar, eldri sonur okk- ar, útskrifaður úr Samvinnuskólan-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.