Morgunblaðið - 29.04.1987, Síða 41

Morgunblaðið - 29.04.1987, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRIL 1987 um. Dætur okkar fengu nóga vinnu á Eskifirði. Þær giftust ungar ágætis mönnum. Þarna gátu ung hjón strax byggt sér gott einbýlis- hús því að atvinna var nóg þegar um reglusamt og duglegt fólk var að ræða. Þarna gekk Emil, yngsta bam okkar, í barnaskóla, síðan í gagn- fræðaskóla og gat þann tíma einnig verið heima. Hann hafði líka at- vinnu á sumrin og var í foreldrahús- um þangað til að hann fór í Verslunarskóla í Reykjavík. Hann vann sjálfur fyrir öllu sínu skóla- námi og vildi ekki hjálp, því að þá voru fljótteknir peningar á Eski- firði, sem enn helst. Haustið 1981 fluttum við hjónin hingað að Selfossi með engum fyrir- vara. Það var vegna heilsu minnar. Ég sá alltaf eftir að þurfa að fara frá Eskifirði því að þrjú af börnum okkar eru þar búsett. Og þar eigum við mörg barnabörn og marga góða kunningja, sem eftirsjá er að. En okkur var tekið alveg sérstak- lega vel af ráðamönnum á Selfossi. Við vorum svo heppin að fá góða íbúð í tvíbýlishúsi og sambýlisfólk alveg frábært. Og er það mikið lán að búa í góðu tvíbýli. Hér tel ég að mikið sé gert fyrir eldra fólk, margt er haft því til skemmtunar. Félagsmálastofnun hér á Selfossi stendur fyrir því. Við Karl erum þess vegna ánægð hér. Helst þykir þó manni mínum það að, að ekkert er hér að gera fyrir mann, sem kominn er yfir sjötugt, þótt hann sé vel vinnufær. En hér má það ekki. — Að lokum Regína; Hvað segir þú nú um lífið eftir 70 ára vegferð hér í heimi? Regína svarar: Ég hef alltaf litið björtum augum á þetta jarðneska líf. Ég trúi ekki öðru en að það sé rétt, sem kristin trú segir okkur. Ég hef alltaf trúað á fram- haldslíf. Ég hef aldrei trúað því, að öllu væri lokið þegar maðurinn deyr. Þú meinar nú sennilega eilíft líf, þegar þú segir framhaldslíf, svara ég. Regína segir: Ég hef verið hepp- in bæði með eiginmann og börnin okkar fjögur og tengdabörn. Allt duglegt og traust athafnafólk. Ég þakka samtalið, Regína. Ég veit að fleiri en ég hafa áhuga á að fá nú loksins einhveijar fréttir af þér sjálfri. Því er nú hér við að bæta, að ég, sem þessar línur rita upp eftir samtali okkar frú Regínu Thórar- ensen, óska afmælisbarninu inni- lega til hamingju með sjötíu árin. Við hjónin biðjum þessum fyrrver- andi sóknarbörnum blessunar Guðs á ævikvöldi. Ingólfur Ástmarsson kynntist þeim norður í Árnesi er hann hafði þar aukaþjónustu eitt ár. Mig langaði alltaf til þess að koma að Gjögri á meðan við vorum í Strandasýslu, en það varð ekki. En þá hefðum við áreiðanlega bæði hitt þessi gestrisnu heiðurshjón. Hér á Selfossi hafa tekist með okkur hin bestu kynni. Við höfum mætt hjá þeim alveg sérstöku vinarþeli. Þau hjón eiga sumarbústað á Gjögri, sitt gamla hús, sem smiðurinn hefur auðvitað smíðað sjálfur. Þar hefur hann stundað sjó á sínum báti á sumrum, síðan þau hjón komu á Selfoss, en hún séð um hús og heimili eftir fornri venju. Þetta hefur verið þeim hjónum gleðigjafi síðan á Selfoss kom. Barnaböm frá Reykjavík munu lengi minnast afa og ömmu og sumranna á Gjögri hjá þeim í gleði og útivist, bæði á sjó og landi. Þann- ig kynnast þau íslandi. Heimboð höfum við hjón átt þar, en það er enn sem fyrr — við höfum ekki bæði komist að Gjögri. Svo snilldarlega gengur Karl frá húsi þeirra hvert haust, að þar kem- ur enginn fúi, né önnur missníði á heimili þeirra og sama er að segja um bát í nausti. Karl hefur farið snemma hvert vor að vitja sinna æskustöðva. Regína sagði að hann hefði verið og væri alveg einstakur heimilis- faðir. Ég ætla mér að nefna eitt dæmi um það, þegar Karl og Regína komu ung hjón að Gjögri, sóttu þar allir vatn í brunna. Lenti það mest á húsfreyjum og börnum. Eitt fyrsta verk Karls var að grafa með eigin höndum fimmhundi-uð metra lang- an skurð, nærri meters djúpan og leggja vatnsleiðslu inn í húsið, svo að konan þyrfti ekki að sækja vatn. Þetta var alveg einstakt framtak þá, þó að víðar væri leitað en á Gjögri. Eg tel þau hjón einstaklega sam- valin í allri verkhæfni, alúð og myndarskap og traustleika. Þar eftir eru þau bæði miklir skírleiksmenn, um hana er mörgum kunnugt víða um land af skemmti- lega sömdum fréttum á löngum tíma. Ég hef oft sagt við Regínu, að hún væri harðsnúinn blaðamaður og sjónvarpsfréttamaður og fyrst til að ná öllum fréttum, ef hún væri nú á léttasta skeiði og tæki þátt í öllu fjölmiðlafárinu. Þá væri hún löngu komin í heimspressuna. Megi blessun hvíla yfir ókomnum árum ykkar hjóna og farsælum æviferli. Vorbirta fögru kvöldanna á ystu jörðum Islands ljómi yfir ykkar ævikveldi. Kveðja frá húsi mínu. Rósa B. Blöndals Örfáar línur til að óska þér allrar blessunar á sjötugsafmælinu með hjartans þakklæti fyrir allt gott. Mér verður hugsað til okkar fyrstu kynna. Þá varst þú frjáls og fönguleg sextán ára heimasæta á Stuðlum í Reyðarfirði. Það var mannmargt myndarheimili og for- eldrar þínir framúrskarandi gest- risnir. Gestakomur voru tíðar. Meðal annars allir sem leið áttu yfir Stuðlaheiði þáðu beina og margir einnig gistingu. Þetta var fyrir þá tíð er Islendingar fóru að taka greiðslu fyrir gestrisni. Með mínum bamsaugum var margt að 41 sjá á heimili þínu. Mér fannst stof- an á Stuðlum regluleg stássstofa. Þar var margt fallegt unnið af ömmu þinni, móður og ykkur systr- um. Maturinn var líka nýnæmi, allskonar héimaræktað grænmeti, sem ekki var þá á hvers manns borði eins og nú. Foreldrar þínir, Hildur Bóadóttir og Emil Tómas- son, voru mikið framúrstefnufólk með alla matjurtaræktun og hefur það stuðlað að bættri heilsu og ver- ið mikil búbót á stóru heimili. Ég man hvað pabbi minn hafði gaman af að tala við þig. Þá þegar varst þú búin að mynda þér skoðan- ir um mál sem voru í brennidepli og varst ófeimin að láta álit þitt í ljós hvort sem viðmælanda líkaði betur eða ver. Það var snemma þitt aðalsmerki að þora. Þú kemur til dyranna eins og þú ert klædd, fals og fláræði hafa aldrei skotið rótum í þínum huga. Þrátt fyrir að þú hafir ekki gengið heil til skógar um árabil, tel ég þig hamingjunnar bam. Ung giftistu fágætum mann- kosta manni, Karli Thorarensen frá Gjögri í Strandasýslu. Hann er sér- stakt prúðmenni, fastur fyrir og vinur vina sinna (líklega sérhannað- ur handa þér). Bæði eruð þið afburða gestrisin svo lengra verður ekki komist í þeim efnum, alltaf stór veisla hvenær sem gest ber að garði. Og hjálpsemi ykkar og góð- vild er kapítuli út af fyrir sif*r- Börnin ykkar ijögur og barnabörn svetja sig í ættina, öll afbragðs fólk. Það get ég dæmt um af eigin raun. Oft hefur þú vakið kátínu með þínum hnitmiðuðu og spaugi- legu fréttapistlum og að sjálfsögðu líka gremju, þegar þú hefur stungið á „graftarkýlum" á mönnum og málefnum. Þú heldur þínu striki hvað sem hver segir og ég veit að margir meta þig réttilega fyrir það. Að endingu vildi ég óska að þjóð mín ætti sem flestar „Regínur". I«L þyrftum við ekki að óttast um undir- ferli, svik og pretti, sem svo mjög blómstrar í þjóðlífí okkar. Með hjartans kveðju til ykkar hjóna og fjölskyldunnar. Vinkona Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek- in til birtingar frumort Ijóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar af- mælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. L.'""/////////,. Vm ■ j^r.'iiii/iiiii "111111. ''niii. , ^^■llllllllll' ‘illllr "lll' ^toiiiiiiiiiin '1/111' •ni-’iij SBc/ ,,1,11111 -///. “ .iiniiii" .///'■ Kosningahappdrættið stendur straum af kosningabaráttunni SjáLfstæðismenn, greiðum heimsenda gíróseðla. Skrifstofa happdrættisins í Valhöll er opin alla daga kl. 09.00-22.00. Sími 82900 Dregið í kvöld Stórglæsilegir vinningar að verðmæti kr. 3.998.160 3 fólksbifreiðir 34 glæsilegir ferðavinningar 20 húsbúnaðarvTnningar SJÁLFSTÆÐISMENN STÖNDUM SAMAN UM D-LISTANN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.