Morgunblaðið - 29.04.1987, Page 42

Morgunblaðið - 29.04.1987, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987 ðlAraj Kosning ** Síðastliðinn laugardag voru kosningar til Alþingis íslendinga. Þetta hefur sjálfsagt ekki farið framhjá neinu bami. Flestir krakkar kunnar líka að skrifa X. Það er þó ekki fyrr en böm em orðin 18 ára unglingar að þau fá að taka þátt í kosningu sem þess- fari. Um hvað er verið að kjósa? Það er verið að kjósa fólk til stafa á Alþingi. Á Alþingi em sett lög fyrir landið. Hvers vegna er verið að kjósa? Við búum í lýðræðisríki. Það er hluti af lýðræðinu að fólkið fái sjálft að kjósa sér leiðtoga. Stjóm- málaflokkar og samtök velja fólk á lista, sem síðan er kosið eftir. Kosningin er leynileg. Kjósandinn fær að vera einn í friði með kjörseðilinn og setja X-ið sitt án þess að nokkur standi yfir honum. Seðillinn er síðan brotinn saman og settur í kassa. Þar blandast hann öðmm at- kvæðaseðlum. Kassinn er síðan opnaður á talningarstað þar sem búið er að safna saman öðmm atkvæðakössum. Enginn þarf að segja öðmm hvað hann kaus. Hvað em margir kosnir? Núna vom kosnir 63 til setu á Alþingi. Landinu er skipt í átta kjördæmi. Hvert kjördæmi hefur ákveðinn fjölda þingmanna. Fólk á öllum stöðum á landinu ætti því að hafa fulltrúa á þingi. Hvað er gert á Álþingi? Á Alþingi em sett lög. Það getur tekið langan tíma að und- irbúa lagasetnigu. Sum lög snerta böm meira en önnur. Lög um skóla og umferðarlög geta skipt börn máli beint, en önnur lög skipta þau máli óbeint. Seinna getum við skoðað betur lög og lagasetningu. Frækornið Á vorin og í byijun sumars em margir sem sá fræjum til að rækta blóm eða matjurtir. Margir krakk- ar hafa gaman af að rækta sjálf blóm. Þú getur reynt að rækta baunir, tómata, epla- eða app- elsínutré og margt fleira. Hægt er að taka steinana úr eplunum, appelsínunum eða öðmm ávöxt- um, sem við borðum, þvo þá og þurrka í nokkra daga og nota þá svo, en það er líka hægt að kaupa poka með fræjum, t.d. tómat- fræjum eða blómafræjum. Þú verður að hafa góða gróður- mold og pott. 1. Settu mold í pottinn og settu síðan 2—3 fræ í hann. Ekki of djúpt. Vökvaðu moldina. 2. Settu plastpoka yfir pottinn þar til plantan er komin upp. 3. Þegar plantan er komin upp er hún sett á bjartan stað en ekki í mjög sterka sól. 4. Vökvaðu plöntuna reglulega svo hún þomi ekki alveg. Gangi þér vel. Gleðilegt sumar Fyrsti sumardagur var í síðustu viku. Það fór ekki framhjá neinum að veðrið var ekki sérlega sumar- legt þennan dag. Þó verðum við vör við breytingar. Dagurinn er bjartari. Krían og aðrir farfuglar em óðum að koma, blómin springa út og grasið grænkar. Sauðburður hefst og bömin taka hjólin sín fram. Hvað sem líður veðri sumar- daginn fyrsta væntum við þess að sumarið verði gott. / Vorhreingerning Enn ein frá Eyrúnu Hérna er enn ein af myndum Eyrúnar Eddu Hjörleifsdóttur. Hérna á myndinni er fullt af dóti. Ætli það standi ekki fyrir dyrum vorhreingerning? Á myndinni leynast þrjú eintök af sama hlutnum. Getur þú fundið þá? Penna- vinur Vill einhver skrifast á Við haha Lovísu Jónu Lilllendahl. Hún á heima á Eyjavöllum 9, 230 Keflavík. Lovísa er 10 ára og vill helst skrifast á við stelpur á aldr- inum 9—11 ára. Áhugamál hennar eru límmiðar, Madonna, lestur og hjólreiðar. Mynda- gátan Á myndagátu 25 var eins og þið hafið eflaust öll séð hluti af orgeli. Rétt svör höfðu a.m.k. 20 krakkar. Þar á meðal Bald- vin Esra Einarsson á S'alarnesi og Maríanna áödóttir I Fljótshlíðinni. Hérna er ný myndagáta. Ég vona að hún komi vel út I blaðinu. Sendið svörin til Barnasíðunnar. Heimil- isfangið er: Barnasíðan, Morgunblaðinu, Aðalstræti 6, 101 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.