Morgunblaðið - 29.04.1987, Side 44

Morgunblaðið - 29.04.1987, Side 44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987 Guðrún Odds- dóttir — Fædd 24. nóvember 1909 Dáin 15. apríl 1987 Þetta var erfiður vetur fyrir hana Gunnu. Tvisvar lá hún við dauðans dyr, en virtist hafa komist yfir versta hjallann. Á Reykjalundi var hún farin að gera æfingar, sem miðuðu að því að hún gæti séð um sig sjálf og komist heim í íbúðina sína. Systurböm Gunnu eru sjaldan stödd samtímis á íslandi. Föstudag- inn 10. apríl voru þau þó öll hér fcog var þá haldin veisla. Gunnu lang- aði að taka þátt og var aufúsugest- ur. Með nýlagt hárið í bláum sparikjól leit hún út fyrir að hafa yngst um mörg ár. Kímnigáfa, pínulítil stríðni og festa í skoðunum einkenndu hana þetta kvöid eins og oft áður enda var hún hrókur alls fagnaðar. Þetta var síðasta sinn sem ég sá Gunnu á lífi. Ég og flölskylda mín söknum hennar sárt, enda höfum við átt margar samverustundir við vinnu og leik. Hún lifir því áfram í góðum minningum. Haukur Filippusson í fagurri sveit við Breiðafjörð á litlu býli niðri við ströndina, á Mið- húsum, fæddist lítil stúlka er hlaut nafnið Guðrún. Hún var dóttir hjón- anna Odds Jónssonar héraðslæknis og Finnbogu Ámadóttur frá Kolla- búðum. Læknishjónin áttu þá fyrir tveggja ára dóttur, Sigríði. Systurn- ar vom mjög samrýndar alla tíð, næstum líkt og dagur fylgir nótt. En nú fyrir páskahátíðina skildi leiðir. Hún Gunna frænka er dáin, svo skjótt skipast veður í lofti og tilveran breytir öll um svip. Það er svo hljótt. Það hringir enginn leng- ur frá Bræðraborgarstígnum og heilsar upp á Miðhúsafólkið til að vita um líðan þess og hvort nokkuð sé hægt að gjöra fyrir það. Það var svo að eiga Gunnu að, mega heimsækja hana, þegar farið var í höfuðborgarreisu. Fallegt lítið heimili með minjagripum frá mörg- um ferðalögum og gjafir frá vinum. Málverk eftir meistarana og myndir af kunnum andlitum, eiginmanni, foreidmm og svo unga fólkið. Hver var ungi drengurinn með stúdentshúfuna? Jú, Trausti er Minning sagði fréttir frá Helsinki, og fleiri og fleiri. Setið var í stofunni hennar frænku við kertaljós og svo var veitinga notið. Rabbað um daginn og veginn og stundum bættust fleiri í hópinn eins og lítil Gunna Odds. Böm og barnabörn Sigríðar systur hennar vom frænku einkar kær. Hún Gunna var svo lagin að skapa gott andrúmsloft með gleði og léttu gríni, þótt við sem þekktum hana vissum að alvara og hið trausta vinarþel var ávallt til staðar. Minningamar þyrpast fram líkt og sólargeislar sem lýsa í gegnum skýin. Á ferðum mínum erlendis hefi ég komið í margar fagrar kirkj- ur og notið þar helgistunda sem tónlistin ein getur veitt, en um leið og maður gengur til sætis á maður þess kost að tendra kertaljós til minningar um látna vini og ætt- ingja og næst bætist við ljósið hennar Gunnu. Á Miðhúsum ólst Guðrún upp á fjölmennu heimili. Þar var hún sam- tíða Kristínu móðurömmu sinni og móðursystkinum, þeim Þórami, Hallvarði, Ragnheiði og Brandísi. I mörgu var að snúast, búskapurinn var bæði til sjós og lands, eyjar og hlunnindi kölluðu á mikinn mann- skap. Hrísey er stór og fögur eyja sem laðar að sér náttúruunnendur, sérstaklega á vorin á varptíma fugl- anna og svo þegar gróðurinn er í blóma. Oftast var reynt að fara eina skemmtiferð út í Hrísey á hveiju sumri, þar var líka gott beijaland. Læknishjónin vom samhent og á heimilinu ríkti menningarbragur, tillitssemi við menn og málleys- ingja. Ferðalög og gestakomur töluverð í sambandi við störf lækn- isins og gegndi því unga húsmóðirin oft störfum hjúkrunarkonunnar. Lækninum var svo eiginlegt að lofa öðmm að njóta með sér þess er hann las í bókum, blöðum og erlendum tímaritum. Margir sóttu undirbúningsmenntun sína til hans, áður en farið var til frekara náms og má þar til nefna Ragnheiði Árna- dóttur, ljósmóður, Tryggva Magnússon, listmálara, Sigurkarl Stéfánsson, menntaskólakennara, og marga fleiri. í gamni var eitt sinn sagt að nú væri allt Miðhúsa- fólkið á skólabekk. Árið 1920 lést Oddur læknir. t + Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁSTU ÞORBJÖRNSDÓTTUR, Mímisvegi 2, sem lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 8. apríl, hefur farið fram í keyrrþey að ósk hinnar látnu. Hafsteinn Jónsson, Guðbjörg Jónsdóttir, Vilberg Skarphéðinsson, Erla Jónsdóttir, Jón Ásgrímsson, Ester Jónsdóttir, Ægir Benediktsson, Jón Ægir Jónsson, Jóhann Jónsson, Markrún Óskarsdóttir. > t Bróðir okkar, GUÐMUNDUR JÓHANNESSON, Blindraheimilinu Hamrahlfð 17, andaðist f Landakotsspítala 27. apríl. Systkinin. + Faöir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR HREINN GÍSLASON, bóndi aö Uxahrygg, lést í Borgarspítalanum 18. apríl. Útförin veröur gerð frá Odda- kirkju á Bangárvölium laugardaginn 2. maí kl. 14.00. Magnús Guðmundsson, Kristjana Ólafsdóttir, Dýrfinna Guömundsdóttir, Trausti Runólfsson, Erlingur Guðmundsson, Sigurvina Samúelsdóttir, Árný Guðmundsdóttir, Kristmann Jónsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Emil Ragnarsson, Gfsli Guðmundsson, Helga Narfadóttir, Guðmundur Hólm Bjarnason, barnabörn og barnabarnabörn. Bráðlega varð því unga ekkjan að hætta búskap. Tvennt var það sem hún varð að takast á við að ljúka við, að kaupa jörðina Miðhús og koma dætmm sínum til mennta. Þetta höfðu þau hjónin ákveðið áður en Oddur dó. Finnboga var fíngerð kona, en viljasterk. Hún fluttist með dætmm sínum þangað sem þær gátu notið skólagöngu og hún vann fyrir kostnaðinum. Þetta tókst. Guðrún lauk námi við Kvennaskólann í Reykjavík og fór síðan að vinna hjá Landsímanum. Á þeim ámm vom berklar sá sjúkdómur er vakti ugg hjá fólki. Guðrún smitaðist af þessum sjúk- dómi og þurfti að dveljast á Vífíls- stöðum. Þar kynntist hún Ásberg Jóhannessyni kennara, eiginmanni sínum. Þeim ásamt fleiri berklasjúkling- um tókst að lyfta grettistaki. SÍBS var stofnað, vinnu- og dvalarheimil- ið á Reykjalundi var reist af gmnni. Sjúkir vom styrktir til sjálfsbjarg- ar. Þetta vakti verðskuldaða eftir- tekt langt út fyrir landsteinana. Ásberg og Guðrún störfuðu og bjuggu á Reykjalundi þar til Ásberg dó 1955. Eftir það flutti Gunna til Reykjavíkur, en hélt áfram að vinna hjá SÍBS í Reykjavík. Eitt af áhugamálum frænku minnar vom ferðalög og fór hún víða bæði innan lands og utan. Æskustöðvanna vitjaði hún eins oft og kostur var og var hún okkur frændfólki og vinum í sveitinni hennar kærkominn gestur. Gunna var mikil gæfukona. Hún hlaut svo góða og trausta skapgerð í vöggugjöf. Hún gekk hægt um gleðinnar dyr, en var samt hrókur alls fagnaðar, síung í anda, kyn- slóðabil var ekki á dagskrá. Hún var frændrækin og mikill vinur vina sinna, ávallt viðbúin að vera til aðstoðar þeim er þurftu á stuðningi að halda. Guðrún sóttist ekki eftir fánýtum hlutum, metorð- um eða völdum. Henni þótti vænt um heimili sitt og umhverfi hennar var ætíð svo bjart og aðlaðandi. Það sem er ekta er líka svo einfalt. Steingrímur Thorsteinsson segir í ljóði: Þér finnst allt best, sem íjærst er, þér finnst allt verst sem næst er, en þarflaust hygg ég þó að leita lengst i álfum, vort lán býr í oss sjálfum, í vorum reit, ef vit er nóg. Á köldu vetrarkvöldi í fyrra heim- sótti ég frænku mína á Bræðra- borgarstígnum og þar sem við sátum og höfðum það notalegt tók ég eftir litlu borði við hliðina á stóln- um er ég sat í. Þar var stór bók í rauðu bandi og á fremsta blaðið var ritað fíngerðri rithendi nafnið Odd- ur Jónsson. Þetta var Biblían hennar Gunnu, arfur úr foreldra- húsum. Aðspurð sagðist hún vera að lesa bókina frá upphafi til enda. Ég er þakklát fyrir að hafa átt þessa frænku og notið samvista við hana bæði hér heima í Reykhóla- sveitinni hennar og í Vesturbænum. Á Reykhólum og á Miðhúsum eru tvær aldnar konur sem vildu svo gjarnan vera viðstaddar þegar Guð- rún verður kvödd hinstu kveðju, en það eru þær mágkonurnar Steinunn Hjálmarsdóttir og Ingibjörg Árna- dóttir. Miðhúsafólkið minnist Guðrúnar með virðingu og þökk. Við sendum Sigríði systur hennar og öllum ætt- ingjum jnnilegar samúðarkveðjur. Ólína Kristín Jónsdóttir Foreldrar Guðrúnar voru Finn- boga Árnadóttir, f. 14. október 1886 á Ósseli, Steingrímsfirði, d. 4. febrúar 1941 í Reykjavík, og Oddur Jónsson, héraðslæknir, f. 17. janúar 1859 í Þórormstungu í Vatnsdal, V-Húnavatnssýslu, d. 14. ágúst 1920 á Miðhúsum, Reyk- hólasveit, A-Barðastrandarsýslu. Oddur var sonur fátækra hjóna en Eiríkur Briem, prófastur í Stein- nesi, kom honum á framfæri til náms við Latínuskólann. Oddur var með hæstu einkunn við lokapróf í skólanum ásamt Guðmundi Magn- ússyni, síðar prófessor. Báðir lærðu þeir til læknis. Oddur giftist Hall- dóru Waage á námsárunum. Hann varð fyrst héraðslæknir á Þingeyri við Dýrafjörð, síðan á Flatey í Breiðafirði og síðast á Miðhúsum í Reykhólasveit. Þar festi Oddur sér jörð. Onnur kona hans, Jóhanna Samsonardóttir, var þá orðin veik. Fór Oddur þá að Hofsstöðum í Reykhólasveit í þeim alvarlegu er- indagjörðum að leita sér að manneskju til heimilishjálpar, því kona hans þurfti umönnun. Hjónin Kristín og Ámi bjuggu þá á Hofs- stöðum. Yngstu börn þeirra bjuggu hjá þeim, þau Ingibjörg, Finnboga, Anna og Þórarinn. Finnboga tók að sér starfið. Jó- hanna deyr árið 1906 og ári síðar veikist Oddur. Finnboga fór með Oddi til Kaupmannahafnar sama ár og þau giftu sig til þess að hann gæti leitað læknis. Sigríður fæddist árið 1907 og Guðrún árið 1909. Oddur var góður heimilisfaðir og mikill fræðari. Hann talaði mikið við dætur sínar og soninn Steinþór, sem fæddist árið 1895 og ólst einnig upp á Mið- húsum. Guðrún minntist þess stundum hve gaman var að labba upp á fjall með pabba sínum, sem kenndi henni að virða allt í náttúr- unni. Eftir lát heimilisföðurins hélt Finnboga ein áfram að mennta dætur sínar. Hún leigði Miðhús frá sér í fimm ár því hún átti eftir að borga '/3 hluta jarðarverðsins, en þá voru jarðir í háu verði. Að þeim tíma liðnum seldi hún systur sinni Ingibjörgu og Jóni, eiginmanni hennar, Miðhús. Guðrún er um fermingu á Hólum í Hjaltadal hjá Þórarni móðurbróður sínum sem er ráðsmaður þar. Síðan fer hún til Akureyrar með systur sinni og móður, sem er í atvinnu- leit. Seinna fer Finnboga með Guðrúnu til Borðeyrar. Þegar símstöðin var lögð niður á Borðeyri fluttust þær til Isafjarðar. Að lokum fara þær til Reykjavíkur, þar sem Finnboga rekur matsölustað. Guðrún sest í Kvennaskólann í Reykjavík og lýkur kvennaskóla- prófi. Sigríður, systir hennar, lauk gagnfræðaprófí við Gagnfræða- skólann á Akureyri og vann síðan við ritsímann þar. Að námi loknu leggur Guðrún stund á skrifstofustörf í Reykjavík. Hún veikist af bijósthimnubólgu og fer á Vífílsstaðahælið. Þar kynnist hún Ásberg Jóhannessyni, kennara, f. 1902, d. 1955. Ásberg var mikill hugsjónamaður og kom á framfæri, ásamt öðrum berklasjúklingum, hugmyndinni að vinnuheimili SÍBS á Reykjalundi. 15. sepit. 1944 gengu þau í hjóna- band. Ásberg var í stjóm SÍBS og vinnuheimilisins þar til hann dó langt fyrir aldur fram. Guðrún og Ásberg bjuggu á Reykjalundi frá 1945 til 1955. Þar störfuðu þau bæði. Ég miunist alltaf kærleikans milli þeirra hjóna. Þau fóru aldrei svo- leiðis af bæ að þau létu ekki hitt vita hvar þau væru. Og hringdu oft hvort til annars þær stundir sem þau ekki vom saman. Er mér minnisstætt þegar þau bjuggu um tíma hjá fjöiskyldu minni á Marar- götu 3. Við keyptum Morgunblaðið. Gunna frænka og Ásberg bjuggu í risinu og keyptu Þjóðviljann, sem ég fékk að klippa úr bamafram- haldssöguna. Gunna frænka hélt svo áfram að safna fyrir mig sög- unni eftir að þau fluttu á Reykja- lund. Þetta er eitt af mörgum dæmum um hugulsemi Gunnu frænku við okkur systkinin í smáu sem stóru. Gunna frænka var einn af hlut- höfum SÍBS. Undanfama áratugi vann hún á skrifstofu SÍBS fyrst á Bræðraborgarstíg og síðan í Suður- götu í Reykjavík, allt þar til hún veiktist alvarlega. Ég minnist þess þegar við systk- inin seldum merki og blöð á berkla- vamardaginn hvað við fengum alltaf góð sölulaun. Einn daginn sagði Einar, bróðir okkar, að við ættum ekki að taka laun fyrir merkjasöluna, fólkið hjá SÍBS ætti sjálft að fá þessa peninga. Fannst mér þetta súrt í broti en samt stór- kostjegt að skila peningunum aftur til SÍBS, þeir hefðu nefnilega dugað fyrir mörgum bíóferðum og enn fleiri lindubuffum. Gunna frænka bjó alla tíð ein eftir lát Ásbergs. Samt var hún aldrei ein því hún var vinmörg. Ættmenni hennar vom mörg og lagði hún mikla rækt við þau tengsl. Var yndislegt að skjótast inn til hennar á Bræðraborgarstíg 53 og létta á hjarta sínu meðan hún sat og hlustaði og gaf góð ráð. Fólkið hjá SÍBS heldur einnig mjög vel saman. Það er stór hópur raunsæs, góðs fólks sem skilur sérstaklega vel_ allt mannlegt. I desember síðastliðnum fékk hún hjartaáfall. Hún lagðist þá á Borgarspítalann og fór þaðan á Reykjalund. Helgina áður en Guðrún lést var hún hress og kát í fjölskylduhópi á Hagamel 35 og hefur sjaldan verið skemmtilegri. Hún hafði heldur engu glatað af sinni afburðaskýru hugsun. Hún var á margan hátt einstök kona, mjög nútímaleg í sér, ekki haldin neinum hleypidómum gagnvart æskunni í dag. Hún hafði einstaka unun af að umgangast ung frændsystkini sín enda góð vinkona þeirra. Það eru því margir sem koma til með að sakna Gunnu frænku. Morguninn 15. apríl gaf hún upp andann á Reykjalundi þar sem hún átti sínar sælustu stundir með Ás- berg. Ég mun aldrei gleyma þegar hún færði mér Passíusálma Hall- gríms Péturssonar í stóru broti og hvitu bandi í tilefni þess að ég lauk prófi við háskólann og sagði um leið að nú væri örðugur hjalli yfir- stiginn. Elsku hljóðláta Gunna frænka er kært kvödd af mér og fjölskyldu minni. Guð blessi minningu hennar. Þóra Guðrún okkar Oddsdóttir hefur kvatt þennan heim. Hún veiktist alvarlega í desemberbyijun, komst samt á fætur aftur af sinni einstöku seiglu og henti góðlátlegt gaman að veikindum sínum. Aldrei hafði hún minnst á að hún kenndi sér meins. Það bar hún ekki á torg fremur en annað sem snerti hennar hagi. Samviskusamlega mætti hún til starfa á skristofu SÍBS öll þau ár sem hún starfaði hér. Þótt vetr- ararveður geisuðu og snjóþyngsli stöðvuðu alla umferð á götum Reykjavíkur var Guðrún ævinlega mætt stundvíslega eins og endra- nær. Ef hún var spurð hvernig í ósköpunum hún hefði komist á vinnustað svaraði hún af sinni al- kunnu hægð: „Ég bara gekk þetta í rólegheitum." Þannig var hún, gekk hljóðlega til sinna starfa, yfír- lætislaus ög samviskusöm. Enginn var hún augnaþjónn. Guðrún var ein af þeim sem ung hreifst af hugsjónum SÍBS. Maður hennar, Ásberg Jóhannesson, kenn- ari, var einn af stofnendum SÍBS og fyrsti gjaldkeri Reykjalundar. Því starfi, auk annarra trúnaðar- starfa fyrir samtökin, gegndi hann til dauðadags 13. september 1955. Guðrún fylgdist líka mjög vel með málum SIBS og sat flest þing sambandsins. Hún hafði sínar ákveðnu skoðanir og starfaði sam- kvæmt þeim. Hún andaðist á Reykjalundi 15. apríl sl. Veri góð vinkona kært kvödd. Við söknum hennar léttu lundar og þægilegu umgengni. Samstarfsfólk SÍBS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.