Morgunblaðið - 29.04.1987, Síða 45

Morgunblaðið - 29.04.1987, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRIL 1987 45 Minning: ÞorbergurB. Jóns- son, Húsavík Þann 4. apríl sl. var jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju Þorbergur Benedikt Jónsson. Hann fæddist 7. ágúst 1909 í Tröllakoti á Tjörnesi. Bensi, eins og við kunningjarnir kölluðum hann, lést í sjúkrahúsinu á Húsavík úr sjúkdómi sem hefur svo marga að velli lagt. Bensi var að eðlisfari hlédrægur maður en hafði fastmótaðar og ákveðnar skoðanir um menn og málefni. Með hófsemisstefnu sinni liafði hann alltaf nóg fyrir sig. Hann kaus að lifa sem mest frá skarkala lífsins og það held ég að honum hafi tekist í litla rauða hús- inu á Héðinsbraut 3, sem hann var búinn að lagfæra á ýmsan hátt. Þar bjó hann einn eftir að Sigurbjörg fóstra hans dó. í æsku- og á fullorðinsárum þurfti Bensi að sjá á bak ástkærum vinum, sem hann syrgði alla tíð. Síðan komu inn í líf hans vinir sem hann tók trygglyndi við. Á hans notalega heimili þótti vin- um hans gott að koma til að spjalla við hann og þiggja hans góða kaffi. Oftast átti hann góðgæti til að bjóða með. Bensi fékkst við margskonar vinnu. Hann reyndist traustur og góður starfsmaður og áreiðanleiki var honum í blóð borinn. Á síldarár- unum á Húsavík starfaði hann sem beykir. Fór orð af lagni hans við það starf. Þegar líða tók á efri árin hætti hann að vinna önnur störf en þau að sinna sínum kindum, öndum og gæsum sem veittu honum mikla ánægju. Selfoss: Ég á eftir að sakna þess að geta ekki oftar heimsótt Bensa á falleg- um vorkvöldum, þar sem hann sýslaði við skepnurnar sínar við fjárhúsið eða úti á túni, svo stoltur með sinn litla bústofn. Ég minnist Bensa með þakklæti fyrir tryggð hans og góðvild við mig og fjölskyldu mina. Hólmfríður Hannesdóttir Norrænir dagar í Hótel Selfossi Selfossi. DAGSKRÁ á vegum Norræna hússins og Norræna félagsins undir heitinu Norrænir dagar hefst á Selfossi miðvikudaginn 29. april ldukkan 21.00 í Hótel Selfossi með dönsku vísnakvöldi og kórsöng kórs Fjölbrautaskól- ans á Suðurlandi. 3. maí klukkan 21.00 verður færeysk vaka í Hótel Selfossi undir stjórn Hjartar Pálssonar og 6. maí mun Gunnar Eyjólfsson lesa ur verkum Ibsens og hefst sú dagskrá einnig klukkan 21.00. Norrænum dögum á Selfossi lýkur síðan sunnu- daginn 10. maí með sýningu á listmunum frá Álandseyjum. Sýn- ingin verður opnuð klukkan 16.00 í anddyri Hótels Selfoss og verður opin nokkra daga. — Sig. Jóns. Fróðleikur og skemmtun fyrirháa semlága! t Eiginkona mín og systir okkar, ARNDÍS FINNBOGADÓTTIR, Kvisthaga 10, Reykjavik, andaðist á heimili sfnu föstudaginn 24. apríl sl. Kristinn Tryggvason og systkini hinnar látnu. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐNÝ STEFANÍA GUÐMUNDSDÓTTIR, Vífilsgötu 22, Reykjavfk, verður jarösungin frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 30. apríl. kl. 13.30. Magnús Brynjólfsson, Guðmundur H. Magnússon, Guðbjörg Richter, Hrafn Magnússon, Kristfn Erlingsdóttir og barnabörn. t Jaröarför móður okkar, SESSEUU KONRÁÐSDÓTTUR fró Stykkishólmi, fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 30. apríl kl. 13.30. Auður Jónsdóttir Coiot, Ingibjörg Margrót Jónsdóttir, Þóra Margrót Jónsdóttir, Eyjólfur Konróð Jónsson. t Móðir mín, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR G. SIGURÐARDÓTTIR, Suðurbraut 10, Hafnarfirði, andaöist i St. Jósefsspítala Hafnarfirði 20. þ.m. Jaröarförin hefur farið fram i kyrrþey að ósk hinnar látnu. Bóra Magnúsdóttir, Markús Kristjónsson og barnabörn. t Eiginkona min, VALGERÐUR HALLGRÍMSDÓTTIR KRÖYER, Norðurbrún 1, Reykjavfk, verður jarðsungin frá Áskirkju fimmtudaginn 30. apríl kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. Fyrir mína hönd og ættingja, Ingi H. Kröyer. t Utför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓRNÝJAR ÞORSTEINSDÓTTUR, Stigahlfð 34, Reykjavfk, verður gerð fró Fossvogskirkju fimmtudaginn 30. april kl. 15.00. Nína Sveinsdóttir, Óli Andreasson, Sólrún Sveinsdóttir, Gauti Arnþórsson, Þorsteinn Sveinsson, Þurfður Kristjónsdóttlr, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall litla drengsins okkar er fæddist á páskadag. Jarösett var ( kyrrþey. Ósk Axelsdóttir, Sigurjón Sigurðsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi, DÝRI BALDVINSSON, rennismiður, Brúnastekk 9, Reykjavík, verður jarðsunginn í dag miðvikudaginn 29. apríl frá Fríkirkjunni í Reykjavik kl. 13.30. Þóra Þórðardóttir, Ingunn Þóra Baldvins, Birgir Ágústsson, Sigríður Baldvins Martin, Jeffrey B. Martin, Elfsabet Baldvins, Kristjón Erlendsson og barnabörn. - 1 t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, JOHANN FRIÐLEIFSSON fyrrverandi vélstjóri fró Siglufirði, verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju fimmtudaginn 30. apríl kl. 13.30. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Eiginmaður minn og faðir okkar, ÓLAFUR KJARTANSSON, Hraunbæ 47, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 30. april kl. 13.30. Fyrir mína hönd og annarra aöstandenda, Hulda Kristinsdóttir og börn. t Maöurinn minn, faöir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR GUÐMUNDSSON, Stigahlfð 36, er látinn. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 30. april kl. 10.30. Ingibjörg Magnúsdottir, Ásta Sigurðardóttir, Grétar Pólsson, Elsa Sigurðardóttir, Helgi Ingólfsson, barnábörn og barnabarnabörn. t Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, dóttur minnar, tengdamóður og ömmu, ARNBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR, Hringbraut 64, Keflavfk. Sigrún Hannesdóttir, Jóhann Rúnar Björgvinsson, Guðmundur Björgvinsson, Magnús Ingi Björgvinsson, Eygló Rut Björgvinsdóttir, Sigurður Björgvinsson, Jóhanna Björgvinsdóttir, Björgvin Arnar Björgvinsson, Gréta Þóra Björgvinsdóttir. t Bestu þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför STEFANfU M. JÓNSDÓTTUR, Snorrabraut 30. Fjóla Gfsladóttir, Gunnlaugur Lórusson, Elfn Karlsdóttlr Beittel, James Beittel, Jón Karlsson, Hulda Friðriksdóttir, Lfna Karlsdóttir, Snorri Jónsson, Magnús Karlsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Bryndfs Karlsdóttlr, Póll Helgason, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega öllum þeim er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför EINARS ERLENDSSONAR fró Vfk. Þorgerður Jónsdóttir, Erlendur Elnarsson, Margrét Helgadóttir, Steinunn Einarsdóttir Fink, Albert Fink, Erla Einarsdóttir, Gísli Felixson, barnabörn og barnabarnabörn. t Hugheilar þakkir sendum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og Otför eiginmanns mfns, föður, tengda- föður, afa og langafa, ERLINGS EYSTEINS HJALTESTED fyrrv. bankaritara, Karfavogi 43. Guðrfður Sigurbjörg Hjaltested, Gunnar Hjaltested, Qyða Hjaltested, Stefón Bjarni Hjaltested, Margrét Pólsdóttir Hjaltested, Kristjón Björn Hjaltested, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.