Morgunblaðið - 29.04.1987, Side 46

Morgunblaðið - 29.04.1987, Side 46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRIL 1987 46 félk í fréttum Ljón og ljónynjur egar haldið var upp á 30 ára afmæli Lionsklúbbs Borgar- ness á Hótel Borgarnesi nýlega héldu Lionessurnar í Borgarnesi um leið stofnskrárhátíð sína, en þær fstofnuðu sinn klúbb í janúar sl. og hlaut hann nafnið Lionessuklúbbur- inn Agla, Borgarnesi. Á þessari afmælis- og stofnskrárhátíð sáu ljónynjurnar um skemmtiatriði og brugðu þær sér þá í ýmis hlutverk og gervi. Eitt atriðið hét „Eróbikkj- urnar“ og annað „Bera btjóstgóða". Vöktu ljónynjurnar verðskuldaða athygli þetta kvöld fyrir hressileg og nýstárleg skemmtiatriði. TKD Lionessur á stofnskrárhátíð. I'. K Dolly Parton 20 kílóum síðar Söngkonan Dolly Parton, sem orð- in er 41 árs gömul, olli töluverðu fjaðrafoki nýlega er hún boðaði til blaðamannafundar og í ljós kom að hún hafði létst um hvorki meira né minna en 18-22 kíló. Parton sem er mjög smávaxin hefur um árabil verið fremur þybbin og neitaði því stað- fastlega að veikindi hefðu valdið því að hún lagði af. Sagðist hún hafa fundið sjálf leið til að grennast eftir að hafa árangurslaust reynt ýmsa megrunarkúra. Hefði hún borðað mörgum sinnum á dag, en lítið í einu og hefði virkilega reynt á viljastyrk- inn, sérstaklega til að byija með, á meðan líkaminn var að venjast því að fá minna magn af mat en venju- lega. Hefðu þessar aðgerðir staðið yfir í 3 ár, þótt ekki hefði hún verið að vekja athygli á þeim fyrr. Ekki sagðist hún ætla að gefa út bók með megrunarráðleggingum á næstunni. Að vísu hefðu margir bókaútgefendur þegar haft samband við hana og einn- ig fyriitæki er vildu að hún auglýsti vörur frá þeim, en öllu slíku hefði hún’ hafnað í bráð. Nú væru á döf- inni hjá sér gerð nýrra sjónvarpsþátta og hljómplatna. Parton er nýkomin úr 5 vikna hljómleikaferð um Ástr- alíu með Kenny Rogers og sagðist mjög ánægð með þá ferð. Hún sagð- ist hafa fengið mörg tilboð um að leika í kvikmyndum m.a. í nokkurs konar framhaldi af myndinni frægu „9 til 5“, en ekki hefði hún haft áhuga á því. Morgunblaðið/Theodór. Ein ljónynjan brá sér í gervi „Beru bijóstgóðu“ og dansaði nokkur spor í salnum við feikigóðar undirtektir ljónanna. Rcuter. Betur fór en á horfðist fyrir spænska nautabananum, Espartaeo, sl. laugardag í Sevilla, er 490 kg. naut er hann var að fást við, kastaði honum hátt í loft upp. Nærstaddir nautabanar og aðstoð- armenn komu Espartaco þegar til hjálpar og slapp hann með smámeiðsl og skrekkinn í þetta sinn. Reuter Betur fór en á horfðist

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.