Morgunblaðið - 29.04.1987, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987 53
Æfingagalli úr glansefni frá Henson.
Þunnur tvískiptur gaiii frá Henson.
af erlendum aðilum. Svo hefur allt-
af verið draumurinn að auka við
útflutninginn gera þátt hans í fyrir-
tækinu enn stærri," segir Halldór,
en hann hefur flutt talsvert út á
Evrópumarkað, aðallega á sl.
þremur árum og hyggst nú reyna
fyrir sér á Bandaríkjamarkaði.
„Ég geri mér að vísu engar grill-
ur um Bandaríkjamarkaðinn, en ef
það dæmi gengur upp verðum við
að láta framleiða í auknu mæli
erlendis því við myndum ekki anna
því hór, auk þess sem það bara
borgaði sig ekki. Það þýðir ekki
að standa á móti þróuninni og hún
er sú að hingað er fluttur inn fatn-
aður sem er margfalt ódýrari í
framleiðslu en það sem við erum
að framleiða hér og sömu sögu
er að segja frá löndunum í kringum
okkur. Við verðum að geta boðið
upp á vöruna á sambærilegu verði,
án þess að það komi niður á gæð-
um hennar og slíkt er hægt með
þessu fyrirkomulagi. Enda má
benda á það sem dæmi að önnur
fyrirtæki gera þetta í auknu mæli
erlendis, Puma til dæmis framleið-
ir sjálft um 6% þess sem gert er
undir merkjum þess, annað er
framleitt fyrir þá."
Scana h.f. hóf framleiðsu á Don
Cano fatnaði 1980 og var þá eini
aðilinn sem framleiddi eftir hönnun
Jan Davidsson. I seinni tíð hafa svo
fyrirtæí:; erlendis framleitt eftir
sömu hönnun og merkjum, þannig
að ekki er leiigur útflutning að
ræða nú. „Við eigum líka fullt í
fangi með það eitt að anna
íslenska markaðnum," segir
Herdís Björnsdóttir, en frá Don
Cano koma árlega tvær línur, vetr-
arfatnaður og sumarfatnaður. Eru
um 6.500 flíkur framleiddar fyrir
sumarið nú í 13 mismunandi gerð-
um, tíu þeirra eru í settum og svo
þrjár tegundir af stökum flíkum.
Fyrir veturna er svo framleitt í
ámóta miklu magni, bæði af sett-
um, útigöllum og svo úlpum.
Að sögn Herdísar eru það oft-
ast tvær, þrjár týpur sem slá í
gegn í hvert sinn, en hún kvað þá
breytingu hafa orðið á, að nú væru
flíkurnar framleiddar í mismunandi
miklu magni, ein gerðin í t.d. 1000
stykkjum og önnur í 200, „til að
allir verði ekki eins. Við höfum
stundum heyrt að fólki finnst allt
of margir sjást í samskonar fatn-
aði og þetta er liöur til að koma
til móts við þá þróun. Don Cano
fatnaðurinn þekktur fyrir að vera
litríkur og áberandi og eðlilega vill
fólk ekki sjá aðra hverja mann-
eskju í samskonar fötum," segir
Herdís.
Talandi um liti, tekur hún undir
það að ákvörðum um þá geti verið
nokkuð flókinn, en Scana h.f. fram-
leiðir úr ítölskum efnum sem þarf
að panta meö talsverðum fyrir-
vara. „Erlendis má sjá kannski
mjög marga liti í gangi í einu, en
hér verða oft tveir eða þrir ofan á
og aðrir hreyfast ekki. Því er það
alltaf dálitill höfuðverkur að ákveða
liti fram í tímann, en það dæmi
hefur þó alltaf gengið upp, ekki
síst vegna þess að eitt af aðals-
merkjum Don Cano er litadýrð og
frískandi litir."
Enn um liti. Halldór Einarsson
bendir á það sem hann kallar eitt
af höfuðbaráttumálum íslensks
fataiðnaðar nú, sem er sameigin-
leg litunarverksmiðja og telur hann
að tilkoma slíks fyrirtækis væri
stór áfangi að bættri samkeppnis-
aðstöðu islensks fataiðnaðar. „Að
vísu eru það alltaf klassískir grunn-
litir í keppnisfatnaði sem gilda,
hvítt, rautt og dökkblátt, sem er
líklega mest notaði liturinn," segir
Halldór. „En þegar komið er út í
sportfatnað, þá gilda önnur lög-
mál. Því held ég að þá fyrst verði
samkeppnishorfur okkar orðnar
vel viðunandi, þegar litunarverk-
smiðja verður fyrir hendi."
En hvað sem verður um liti og
litun íþróttafatnaðar í framtíðinni,
þá er Ijóst af myndunum hér að
litagleðin er ríkjandi í íslenska
íþróttafatnaðinum og við látum
myndirnar tala sínu máli.
Samantekt/Vilborg Einarsdóttir
Myndir/Árni Sæberg
NBA-deildin íkörfubolta:
Úrslitakeppnin hafin
Frá Gunnari Valgeirssyni í Bandaríkjunum
SEXTÁN liða úrslit í NBA-deild-
inni hófust í síðustu viku. Flestir
spá þvf að það verði stórliðin
Boston Celtics og Los Angeles
Lakers sem komi til með að leika
til úrslita um heimsmeistaratitil-
inn.
í úrslitakeppninni er liðunum
skipt í fjóra riðla, tveir í austur-
deild og tveir í vesturdeild. í 1. riðli
austurdeildar leika Boston,
Chicago, Milwaukee og Fhiladelp-
hia. í 2. riðli leika Atlanta, Indiana,
Detroit og Washington. í 1. riðli
vesturdeildar leika Lakers, Denver,
Utah og Golden State. í 2. riðli
leika Dallas, Seattle, Portland og
Houston.
Jordan stigahæstur
Stigahæstur á þessu keppn-
istimabili eftir unankeppnina var
Michael Jordan hjá Chicago með
3041 stig, en það er í þriðja sinn
í sögu NBA sem leikmaður kemst
yfir 3000 stiga múrinn. Jordan var
lang stigahæstur, skoraði að með-
altali 37,1 stig i leik. Sá sem hefur
tekið flest fráköst er Charles Bar-
kley frá Fíladelfíu, að meðaltali
14,6 fráköst í leik, en hann er
minnsti leikmaður í sögu NBA sem
hefur unnið frákastatitilinn. Það
ser svo Johnson frá Los Angeles
sem hefur átt flestar stoðsending-
ar í vetur. Hann aðstoðaöi að
jafnaði við 12,2 körfur í leik.
Jabbar hefur gert
36.432 stig
Kareem Abdul Jabbar hefur
skorað flest stig allra í NBA-deild-
inni frá upphafi, 36.432 stig, Wilt
Chamberlain kemur næstur með
31.419. Síðan koma Julius Erving
með 29.921, Dan Issel með 27.482
og Elvin Hayes með 27.313 stig.
Fjölgað ÍNBA
Ákveðið hefur verið að fjölga í
NBA-deildinni um fjögur lið fyrir
árið 1989 og verða þau þá 27.
Charlotte og Miami munu koma
inn í keppnina 1988 og Orlando
og Minneapolis 1989.
H
■■■korfubolti
• Mikill stærðarmunur er á þessum tveimur köppum sem leika í
NBA-deildinni. Spud Webb, Atlanta, er minnsti leikmaður deildarinn-
ar, en Manute Bol, Washington Bullets, sá hæðsti.
Keppni fyrir
alhliða skíðamenn
í Bláfjöllum
A sunnudaginn fer fram
tvíkeppni, svig og ganga, á vegum
Skíðaráðs Reykjavíkur í Bláfjöil-
um. Þetta verður í þriðja sinn sem
þessi skemmtilega keppni fer
fram og er hún haldin til minning-
ar um Harald Pálsson skíða-
kappa.
Keppni þessi hefur mælst mjög
vel fyrir hjá alhiða skíðamönnum.
Fyrst er keppt í léttri svigbraut og
síðan í göngu. Samanlagður
árangur ræður úrslitum.
Keppt verður í eftirfarandi flokk-
um;
12 ára og yngri, 13—16 ára, 17—34
ára, 35—49 ára og eldir en 50 ára
í bæði karla og kvennaflokki. Konur
Víkingur
Aðalfundur Knattspyrnufélagsins
Víkings verður haldinn í kvöld k|.
20 í félagsheimilinu við Hæðar-
garð. Félagar eru hvattir til að
mæta vel og stundvíslega.
Stjórnin.
börn og öldungar ganga 2,5 km
en aðrir 5 km.
Keppt er um veglegan farand-
bikar sem gefin var til minnigar
um Harald Pálsson skíðakappa.
Keppnin er öllum opin og ættu
skiðamenn að slá til og reyna sig
í svo nýstárlegri keppni.
Skráning fer fram við Borgar-
skálann í Bláfjöllum kl. 12. Keppni
hefst kl. 13.00.
Leiðrétting
í frétt Morgunblaðsins miðviku-
daginn 22. apríl um sundfólk í
mikilli framför slæddist inn villa
varðandi verðlaun á alþjóðlega
sundmótinu í Edinborg um pá-
skana og er það hér með leiðrétt.
Ragnheiður Runólfsdóttir varð i 4.
sæti í 200 metra bringusundi og í
2. sæti í 100 metra bringusundi,
en Eðvarð Þór Eðvarðsson hlaut
tvenn gullverðlaun, hann varð
fyrstur í 200 metra baksundi og í
100 metra baksundi. Beðist er
velvirðingar á þessum mistökum.
Skíði:
Þeir elstu
spreyta sig
í keppni
MEISTARAKEPPNIN í alpa-
greinum, sem er skíðamót
fyrir 30 ára og eldri „öld-
unga“, verður haldið í Bláfjöll-
um helgina 9. til 10. maí.
Mót þetta hefur verið mjög
vinsælt undanfarin ár hjá eldri
skíðaköppum sem láta sig aldr-
ei vanta. Keppt er í mörgum
flokkum, 30—35, 36—40 og svo
framvegis.
Keppendur eiga að mæta
föstudaginn 8. maí kl. 20.30 í
Þórskaffi þar sem mótið verður
sett og keppendur hittast.
Keppni hefst síðan með stór-
svigi á laugardag kl. 12. og
síðan er svig á sunnudag á
sama tíma. Á laugardagskvöld
verður komið saman í Þórskaffi
þar sem verðlaun verða afhent.
Þátttaka tilkynnist til Arnórs
Guðbjartssonar í síma
91-82922.