Morgunblaðið - 29.04.1987, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987
4
i * II i * j ji
' 1 I ■I txo
Bjarni Sigurðsson á æfingu í gær.
Morgunblaðið/Símamynd/B. Valsson
Verður örugglega
mikið að gera
- sagði Bjarni Sigurðsson, markvörður
BJARNI Sigurðsson, aðalmark-
vörður íslenska landsliðsins í
knattspyrnu mun trúlega hafa
nóg að gera f leiknum gegn
Ný aðferð til
að ná and-
anum upp:
(Þama lástu i því! Þetta er bara
auglýsing, en nú ertu oröinn svo
forvitinn að þú verður að lesa
áfram):
Firma- og hópakeppni
Aftureldingar í utanhúss-
knattspyrnu verður haldin
við íþróttahúsið að
Vamná helgina 2.-3. maí.
7 manns verða í liði, 5 lið í
riðli og skiptimenn að vild.
Aðstaða er góð og við erum
búnir að panta gott veður.
Núna er tækifærið til að fá
mannskapinn saman og ná
gamla vinnu- eða (ungmenna)
félagsandanum upp í léttum
leik.
Símsvarí í síma 667406 tekur
við þátttökutilkynningum all-
an sólarhrínginn. Nánari
upplýsingar fást hjá Jóhanni
Pétri, s. 641488 eða Herði,
s. 621177.
Knattspymu-
deild U.M.F.
Þar sem knatt-
spyrna er list...
Frökkum f kvöld. Ef til vill mun
enginn ísiensku leikmannanna
hafa meira aö gera en einmitt
hann. Hvað heldur Bjarni, verður
þetta erfiður dagur?
„Frekar á ég nú von á því já,
en hvort það verður mest að gera
hjá mér af öllum leikmönnum veit
ég ekki. Ég hleyp í það minnsta
ekki mest í leiknum. Það er á
hreinu," sagði Bjarni brosandi.
„Það er mjög líklegt að ég hafi
meira að gera í kvöld en á Laugar-
dalsvellinum í haust þegar við
lékum við þá. Þeir eru á heima-
velli og ég reikna frekar með því
að þeir taki á móti okkur mun fram-
ar á vellinum og setji þannig meiri
þrýsting á vörnina. Þeir eru undir
miklum þrýstingi með að ná góð-
um úrslitum, því þeir hafa ekki
skorað mark í síöustu fjórumlands
leikjum, og gera það ekki í kvöld,"
sagði Bjarni og glotti.
„í alvöru talað, þá er það alltaf
markmið mitt að halda hreinu og
ef mér tekst það er ég ánægður
með mína frammistöðu, en ekki
er víst að markmið liðsins hafi
náðst því leikurinn getur endað
með jafntefli, þó ég fái ekki á mig
mark.
Ég reikna með að við leikum
svipað og heima, við verðum þó
að fara okkur enn hægar nú. Við
erum á útivelli og verðum að haga
okkursamkvæmt því. Skyndisóknir
okkar geta verið hættulegar og
þeir Arnór og Pétur eru stórhættu-
legir frammi og þurfa ekki mörg
tækifæri til að skora."
- Hvernig undirbýrð þú þig
fyrir leik sem þennan?
„Ég undirbý mig alltaf á svipað-
an hátt. Ég reyni að ná góðu
andlegu jafnvægi og hugsa ekki
mikið um andstæðingana. Ég veit
þó vel að við erum að fara að leika
gegn Platini, og fleiri snillingum,
og að hann er hættulegur þegar
hann nálgast vítateiginn, en ég
hugsa ekkert sérstaklega um
hvernig ég eigi að bregðast við ef
hann reynir eitt af sínum frægu
skotum. Mitt eina markmið er að
halda hreinu!" sagði Bjarni að lok-
um.
Evrópukeppni U-21:
Danir sigruðu
DANIR unnu Finna 1:0 í gær-
kvöldi í Evrópukeppni landsliða
skipuð leikmönnum 21. árs og
yngri. Leikurinn fór fram f Finn-
landi, en þessar þjóðir eru með
íslendingum í 6. riðli og eru Dan-
ir og Tékkar efstir f riðlinum með
5 stig.
Önnur úrslit urðu að Albanía og
Austurriki gerðu 1:1 jafntefli í 1.
riðli, sömu úrslit urðu í leik írlands
og Belgíu í 7. riðli, en ekkert mark
var skorað í leik Tyrklands og Eng-
lands í 4. riðli.
Þá sigruðu Hollendingar Vest-
ur-Þjóðverja 3:1 í 8. riðli, Grikkland
vann Pólland 2:0 í 5. riðli og Sovét-
menn unnu Austur-Þjóðverja 2:1.
Auðvitað er
skrekkur í mér
- sagði Sævar Jónsson um leikinn í kvöld
Frá Skúla Unnari Sveinssyni blaðamanni Morgunblaösins f París
„AUÐVITAÐ er smávegis skrekk-
ur í mér fyrir þennan leik, en
engu að síður leggst hann vel í
mig og okkur alla. Við erum orðn-
ir svo sjóaðir f þessu,“ sagði
Sævar Jónsson, varnarmaður úr
Val, aðspurður um hvernig hon-
um iitist á leikinn gegn Frökkum
f Evrópukeppni landsliða sem
fram fer í París f kvöld.
„Það þýðir ekkert að vera með
einhverja hræðslu fyrir leikinn, en
hins vegar er ekki hægt að neita
því að ég hef dálitlar áhyggjur af
því hversu lítið ég og aðrir sem
leika á íslandi, höfum leikið í vet-
ur. En það er vandamái sem við
verðum að lifa með. Tímasetningin
á leiknum er ekki eins og helst
væri á kosið, en við verðum að
sætta okkur við það.
Það hjálpar mér að vísu mikið
að við Valsarar vorum í æfingaferð
í Hollandi fyrir stuttu, þannig að
ég er ekki að koma á grasvöll í
fyrsta sinn á keppnistímabilinu.
Samt sem áður er ég dálítið
smeykur við þetta, sérstaklega ef
völlurinn verður þungur. Annars
held ég að ef okkur takist að halda
tuðrunni nógu vel og mikið og spila
út úr vörninni geti þetta gengiö
nokkur vel. Frakkar munu ábyggi-
lega pressa okkur talsvert meira í
vörninni en þeir gerðu þegar við
lékum við þá heima, en vonandi
bakka þeir eins og þeir eru vanir
þannig að við fáum meiri tíma."
Talsvert er rætt um að Frakkar
séu hættir í þessarri keppni. Þeir
sjái að þeir eigi ekki möguleika á
sigri í riðlinum og ætli því bara að
njóta þess að leika knattspyrnu.
Hvað segir Sævar um þetta?
„Þetta er nú bara ein leið til að
fá þá til að slappa af fyrir leikinn
þannig að þeir séu betur undirbún-
ir en ella. Frakkarnir vanmeta
okkur ábyggilega ekki, það væru
skrýtnir atvinnumenn sem gerðu
það, eftir jafntefli í fyrri leiknum!
Ég held að við ættum að geta
riáð nokkuö góðum úrslitum í
þessum leik og með góðum úrslit-
um á ég við eitt stig að minnsta
kosti. Jafntefli væri gott og sigur
auðvitað alveg frábær. Við erum
hér að sjálfsögðu til að vinna
(7-9-13), en Frakkar eru mjög
sterkir og því er ef til vili raun-
hæfara að tala um eitt stig," sagði
Sævar Jónsson, en á hann mun
reyna mikið í leiknum í kvöld ef að
líkum lætur.
Josép-Pouré
með á ný
Frá Skúla Unnari Sveinssyni bladamanni Morgunblaösins f París
í KVÖLD mun franski leikmaður-
inn Josép-Pouré leika á ný með
franska landsliðinu, eftir rúmlega
eins og hálfs árs fjarveru vegna
meiðsla.
Eftir þetta erfiða tímabil og aðeins
þremur mánuðum eftir að hann
hefur hafið að leika að nýju er
hann semsagt kominn í bláu treyj-
una og tilbúinn aö heyja sinn
ellefta landsliðsleik.
Endurkoma Pouré hefur komið
mörgum á óvart og um það segir
hann eftirfarandi: „Lið Bordeoux
er geysigott um þessar mundir.
Við höfum spilað mjög marga leiki
á stuttu tímabili og margir þeirra
hafa verið gegn nokkrum af sterk-
ustu liöum Evrópu. Þetta hefur
hjálpað til þess að ná mér á strik,
þannig að það kemur mér lítið á
óvart að hafa verið valinn.Ég von-
aði það alltaf og fyrst svo er þá
er það vegna þess að ég verð-
skulda það."
Josép-Pouré er 26 ára og var,
áður en hann meiddist, ein af aðal-
driffjöðrum Nantes og franska
landsliðsins. Honum var m.a. spáð
miklum frama á HM í Mexico, en
örlögin sáu til að svo fór ekki, þar
sem hann meiddist með Nantes í
Evrópuleik gegn Inter Mílanó í
mars 1986. En þrátt fyrir þetta
áfall hefur Josép ekki misst móð-
inn. Reyndar segir hann sjálfur að
margt hafi verið gott við meiðslin.
Hann tók sér frí frá fótbolta og
kynntist ýmsum nýjum hliðum á
lífinu, sem og á sjálfum sér og á
það leggur hann mikla áherslu:
„Ég þroskaðist mikið á þessum
tíma sem ég gat ekkert leikið, ég
fór að gera mér grein fyrir tak-
mörkum mínum. Ég hef líka gert
með grein fyrir því að ég hef næg-
an tíma, ég er einungis 26 ára og
mun vel geta leikið þar til ég verð
35 ára. Það er margir sem hafa
gert það og af hverju ekki ég."
Josép hefur sem sagt fundið
sitt gamla og góða keppnisskap
og verður því fróðlegt að fylgjast
með honum í kvöld, sem og í fram-
tíðinni.
Getraunir:
Tvær
tólfur
f 36. leikviku íslenskra getrauna
komu fram tvær raöir með tólf
réttum leikjum og er vinningurinn
fyrir hvora röð 196.580 krónur.
Ellefu réttir gáfu 12.035 krónur,
en raðirnar voru fjórtán.
Lengi vel leit út fyrir að aðeins
ein röð kæmi fram með tólf réttum
leikjum, en út úr siðasta búntinu
kom sú síðari.
Starfsári íslenskra getrauna lýk-
ur 9. maí og eru því aðeins tvær
leikvikur eftir að þessu sinni, en
getraunirnar byrja síðan aftur í
ágúst.
1X2 •O 'o (0 Z c 3 Ol O 5 > Q c c E P c .c *> s a Dagur ■O & 1 m £ cc Bylgjan Sunday Mirror Sunday People News of the World Sunday Express Sunday Telegraph SAMTALS
1 2 4
Arsenal — A. Villa 1 1 1 1 1 1 1 — — — — — 7 0 0
Charlton — Luton X X 2 X 1 X 2 — — — — — 1 4 2
Chelsea — Leicester 1 1 X 2 1 1 1 — — — — — 5 1 1
Coventry — Liverpool 2 2 2 2 2 2 2 — — — 0 0 7
Man.Utd. — Wimbledon 1 1 1 1 1 1 1 7 _
Nott.For. — Tottenham 2 X X 1 2 2 X __ __ 1 3 3
Oxford — Norwich 1 X 1 2 X 1 1 _ 4 2 1
Sheffield Wed. — QPR 1 x 1 X X 3. 4 0
Watford — Southamoton 1 1 1 1 1 1 1 2 0 0
Wnst Ham — Newcastln 1 1 2 X X X 1 a 3 1
Derbv — Leeds 1 1 X 1 1 2 1 5 1 1
Oldham — Plymouth 1 1 1 2 1 X 2 4 1 2