Morgunblaðið - 11.08.1987, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 1987
55
Beljavsky
Elvar Guðmundsson
Jóhann Hjartarson kominn í áskor-
endakeppnina í Kanada í febrúar.
Næstsíðasta umferðin á
laugardag.
Kanadamaðurinn Allan hefur
ekki átt sjö dagana sæla á milli-
svæðamótinu og varð að þola hvorki
meira né minna en fjórtán töp.
Hann hélt oft í horfinu fram í mið-
tafl og átti jafnvel unnar stöður á
þá Portisch og Velimirovic og setti
stórt strik í reikninginn með því að
ná jafntefli við þann fyrmefnda.
Biðskák hans við Nunn var einnig
dautt jafntefli, en Allan mundi ekki
biðstöðuna rétt og rannsakaði því
ranga stöðu. Það auðveldaði Nunn
að snúa á hann og svíða skákina.
Jóhann Hjartarson tók skákina
við hann á laugardaginn því mjög
alvarlega. í byijuninni tefldi Allan
rólega, en Jóhann lagði of mikið á
stöðuna og fékk leiðinlegt tafl. En
þegar Allan gat uppskorið árangur
erfíðisins síns og unnið peð kom
styrkleikamunurinn í ljós. Hann
lagði allt í vonlausa sókn og varð
að fóma manni fyrir þijú peð til
að halda taflinu gangandi. I tíma-
hraki lék hann síðan skákinni
endanlega af sér.
Hvitt: Allan
Svart: Jóhann Hjartarson
Sikileyjarvörn
I. e4 - c5 2. Rf3 - d6 3. Bb5+
- Bd7 4. Bxd7+ - Rxd7 5. d4 -
cxd4 6. Dxd4 — Rgf6 7. Rc3 —
e6 8. 0-0 - a6 9. Bg5 - Dc7 10.
Hadl - Hc8
Jóhann leggur að vonum kapp á
að flækja taflið og þessi og næsti
leikur hans þýða að hann verður
að geyma kónginn á miðborðinu.
Svartur hefði hins vegar átt auð-
velt með að jafna taflið með því að
leika 10. — Be7 og hróka.
II. Bh4 - Re5 12. Bxf6! - gxf6
13. Rxe5 — dxe5 14. De3 — h5
15. Hd3 - Be7 16. Hfdl - Hd8
17. Hxd8 - Bxd8 18. Dg3! - Dc5
19. Dg7 - Hf8 20. Dh6 - b5 21.
a3 - Ke7 22. Hd3?
Allan tekur alveg skakkan pól í
hæðina. Þótt svarti kóngurinn sé á
miðborðinu er hann vel varinn af
peðum og sókn að honum er því
ekki rétta áætlun hvíts. Allan hefði
E.t.v. hefur Allan yflrsézt að
hann tapar manni eftir 25. Dxf6+
— Ke8. Hann reynir því að ná sókn-
arfærum með því að gefa manninn
á annan hátt.
25. Rd5+ - exd5 26. Dxf6+ -
Kd7 27. Dxe5 - Dd6 28. Dxh5 -
dxe4 29. Hxf7+ - Hxf7 30.
Dxf7+ Be7 31. Df5+ - De6 32.
Db5+ - Dc6 33. De2 - Bf6 34.
c4?
Mun skárra var 34. b3, en þegar
til lengdar lætur er svarta staðan
vafalaust töpuð.
34. - Dd6 35. h4 - Dd3 36.
Dg4+ Ke7 37. c5 - Dbl+ 38.
Kh2 — Dxb2 39. Dxe4 — De5+
40. Dxe5 — Bxe5+ og hvítur gafst
upp.
Það var hart barist í skák þeirra
Portisch og Nunn í næstsíðustu
umferðinni á laugardaginn. Þrátt
fyrir æsispennar.di skák og miklar
tilraunir fengust ekki úrslit svo nú
verða þessir heimsfrægu og öflugu
skákmenn að tefla sex skáka ein-
vígi um það hvor þeirra fylgir
Jóhanni og Salov í áskorendakeppn-
ina. í þeirri baráttu ætti reynsla
Portisch að vega þungt. Hann hefur
t.d. teflt í hverri einustu áskorenda-
keppni frá 1964, að keppninni 1971
undanskildri. Nunn hefur hins veg-
ar aldrei áður komist áfram úr
millisvæðamóti, þrátt fyrir að hann
sé löngu heimsfrægur skákmaður
og sérlega þekktur fyrir sóknar-
skákir sínar.
Hvítt: Portisch
Svart: Nunn
Kóngsindversk vörn
1. d4 - Rf6 2. c4 - g6 3. Rc3 -
Bg7 4. e4 - d6 5. f3 - 0-0 6.
Be3 — Rc6
hins vegar átt að hirða peðið á h5
og haft þá vænlega möguleika, því
svartur hefur ekki nægar bætur
fyrir peðsmissi.
22. - a5 23. Hf3? - b4! 24. axb4
— axb4
Það er nú þegar orðið ljóst að
báðir ætla að láta sverfa til stáls í
þessari skák. Nunn velur hvassasta
svarið gegn Saemisch afbrigði Port-
isch. Sennilega hefur þetta komið
Portisch á óvart því upp á síðkastið
Priðrik Ólafsson.
á mínum ferli. Ég tók stórstígum
framförum um tvítugt, kannski
einum of. Það má vera að ég hafí
ekki verið búinn að taka út minn
þroska og því megi um kenna að
ég náði ekki betri árangri en raun
varð á. Þetta var feykilega sterkt
mót, þama var varla snöggan
blett að fínna á nokkrum manni.
En eftir slíka þolraun meUir mað-
ur betur eigin stöðu. Ári síðar
náði ég síðan mjög góðum ár-
angri í mótum og hafði þá
þroskast meira," sagði hann.
„Sjálfsagt bjóst enginn við því
að mér gengi svona vel úti í Júgó-
slavíu, fremur en Jóhanni í
Ungveijalandi. Hann hefur sýnt
áðdáundarvert öryggi og ákveðna
taflmennsku. Þrátt fyrir að á
móti blési hefur hann ekkert látið
á sig fá og gengið til leiks af
hörku. Ég vona bara að íslenskir
skákmenn nái sem æðstum met-
orðum. Við íslendingar eigum
jafna möguleika á við aðrar þjóðir
að eignast heimsmeistara í skák
og mig skyldi ekki undra þótt að
því kæmi,“ sagði Friðrik Ólafsson.
hefur Nunn jafnan leikið 6.... Rbd7
með góðum árangri.
7. Rge2 - a6 8. Dd2 - Hb8 9.
h4 - h5 10. Rcl
Þetta er ný hugmynd, eftir að
hafa leikið 9. h4 er yfírleitt teflt
upp á kóngssókn og leikið 10. 0-0-0
eða 10. Bh6. Hins vegar er oft leik-
ið 9. Rcl, en í því afbrigði teflir
hvítur upp á stöðuyfirburði á mið-
borði og drottningarvæng. Með
þessari nýju leikjaröð sinni heldur
Portisch því opnu hvora áætlunina
hann velur. Það er einnig stór kost-
ur við þessa leikjaröð hans að ef
svartur leikur einhvem tíma f7-f5
hefur hvítur óskoruð yfírráð yflr
g5 reitnum.
10. - e5 11. d5 - Rd4 12. Rb3
— Rxb3 13. axb3 — c5 14. b4 — b6
Drottningarvængurinn opnast
hvítum í hag eftir 14. — cxb4 15.
Ra4.
15. b5 — axbö 16. cxb5 — Re8
17. Bd3 - f5 18. Dc2 - Dc7 19.
Kdl
Portisch ætlar að geyma kónginn
á drottningarvæng en vill ekki lang-
hróka, því þá missir hann a lfnuna.
19. - Df7 20. Kcl - Rf6!?
Nunn er farið að leiðast þófið og
nú fara í hönd mikil uppskipti.
21. exf5 - gxf5 22. Bxf5 - Rxd5
23. Bg6 - De6 24. Rxd5 - Dxd5
25. Hdl - De6 26. Be4 - Bb7
27. Bxb7 - Hxb7 28. De4 - Hd7
29. Dc6
Það gæti virst svo sem hvítur sé
að ná yfírhöndinni, en með peðsfóm
tekst Nunn að komast út í þægilegt
endatafl.
29. - e4! 30. Dxe4
Sízt betra var 30. fxe4 — Db3
og hvítur verður að leika 31. Dd5+
og skipta upp á drottningum.
30. — Dxe4 31. fxe4 — He8 32.
Ha4 - d5! 33. Bg5 - d4 34. Hel
— Hf7 35. Ha6 - Hf2
Það var einnig mjög freistandi
að reyna að halda stöðunni með 35.
— He6, en hvítur virðist geta leikið
36. Bd8!. T.d. 36. - d3! 37. Hxb6
Hd7 38. Kdl! - He8 39. Bf6 eða
38. - Hxb6 39. Bxb6 - c4 40. e5.
Eftir þennan hvassa leik Englend-
ingsins virðast leikir beggja þving-
aðir, allt til loka skákarinnar.
36. Hxb6 - d3 37. Bd2 - c4 38.
Hc6 - Bxb2+ 39. Kxb2 - Hxd2+
40. Ka3! - Hc2
41. b6 - d2 42. Hdl - c3 43. b7
- Hcl 44. Hc8 - Hdl 45. Hxe8
Hxdl 46. Hf8+ - Ke6 47. He8+
- Kf7 48. Hf8+. Jafntefli.
Morgunblaðið/Ólafur Bemódusson
Nýtt gistíheimili
á Skagaströnd
Skagastrðnd.
NÝTT gisti- og veitingahús var opnað á Skagaströnd um verslunar-
mannahelgina. Nýja gistiheimilið heitir Dagsbrún og er fyrsta gistihú-
sið sem rekið er á Skagaströnd síðan gistihúsið Viðvík var lagt niður
upp úr sfðustu aldamótum.
I Dagsbrún eru 3 tveggja manna
herbergi og 5 einstaklingsherbergi
þannig að gistirúm er fyrir 11 manns
í einu. Auk herbergjanna er vistlegur
matsalur í Dagsbrún þar sem hægt
er að taka á móti allt að 40 manns
í mat í einu, tvær setustofur, mjög
vel búið eldhús og baðherbergi.
Að sögn hótelhaldaranna, Líneyjar
Jósefsdóttur og Sveins Inga
Grímssonar, á Skagstrendingur hf.
gistiheimilið en þau hjónin sjá alfarið
um reksturinn á Dagsbrún.
Töldu þau Sveinn Ingi og Líney
að með gistiheimilinu væri bætt úr
brýnni þörf og sögðu að síðan opnað
var hefðu um 30 manns borðað hjá
þeim á dag auk mikils fjölda fólks
sem kom fyrsta daginn í kaffí. Fyrstu
svefngestimir komu svo strax daginn
eftir að opnað var þrátt fyrir nánast
enga auglýsingu á staðnum. Dags-
brún mun verða opin allt árið og
starfsmenn verða 3—4.
Eru þau Sveinn Ingi og LSney með
ýmislegt á pijónunum til að auka
aðsókn að Dagsbrún en vildu ekki
láta það uppi að svo stöddu að öðru
leyti en því að hægt er að fá keypt
hjá þeim veiðileyfi í fengsæl veiðivötn
í grennd við Skagaströnd. Þá áforma
þau hjónin að hafa kaffíhlaðborð um
helgar og vonast þau eftir að Skag-
strendingar og aðrir verði duglegir
að sækja til þeirra í veitingasalinn.
Einnig hafa þau sótt um vínveitinga-
lejrfi sem þau telja sig fá nú á
næstunni.
Gisting í tveggja manna herbergi
í Dagsbrún kostar 2.900 krónur með
morgunmat en 2.100 krónur í ein*+
staklingsherbergi. Líney og Sveinn
Ingi eru bjartsýn á að reksturinn
muni ganga vel og að nýting á gisti-
rými verði góð.
Dagsbrún er á miðhæðinni í nýju
þriggja hæða húsi sem Skagstrend-
ingur hf., Hólanes hf. og Höfðahrepp-
ur eiga í sameiningu. Á efstu hseð
hússins eru Skagstrendingur og
Hólanes með skrifstofur sínar og
sameiginlegan fundarsal. Á neðstu
hæðinni er svo Höfðahreppur með
skrifstofu en þar er einnig ibúð fyrir
hótelhaldara Dagsbrúnar og nokkuíf*"
stór salur sem Búnaðarbankinn á
Blönduósi hefur tekið á leigu.
Allt húsið er um 825 fm eða 275
fm hver hæð. Byijað var á byggingu
þess haustið 1985 og þá steyptir upp
sökklar en síðan hófust framkvæmd-
ir af krafti vorið 1986 og er nú um
það bil að Ijúka. Áætlaður kostnaður
við bygginguna með frágenginni lóð
er um 36 milljónir króna.
- ÓB
Starfsfólk Dagsbrúnar, talið frá vinstrí: Joan, Ásta Þórhalla, Líney
og Sveinn Ingi.
n.k. verður farin 3ja vikna ferð
til Grikklands.
Norðurhlutinn, sem verður skoðaður að þessu
sinni, er frábrugðinn suðurlandinu að mörgu
leyti og býður upp á annarskonar tækifæri til að
kynnast Grikklandi.
Undir traustri fararstjórn Kristjáns Árnasonar
háskólakennara kynnumst við og skoðum m.a.
CC
<
2
Ferdaskrifstofan
(arandi
Vesturgötu 5. Reykjavík
* 62 24 20