Morgunblaðið - 25.09.1987, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1987
15
Norrænt þing um
fj ölskyldumeðferð
Nýlega var haldið „Fyrsta nor-
ræna þingið í fjölskyldumeðferð
í Linköping í Svíþjóð. Þátttak-
endur voru um 800 frá öllum
Norðurlöndum. Flestir voru fé-
lagsráðgjafar og sálfræðingar,
en einnig voru þar geðlæknar
og aðrir fulltrúar starfsstétta á
sviði félags- og geðheilbrigðis-
mála.
Fjallað var um víðtæk efni, sem
snerta þróun fjölskyldunnar, sam-
skipti í fjölskyldum og mynstur í
hjónatengslum og foreldrahlutverk.
Fyrirlestrar voru 61 og skiptust
þannig, að einn flokkur var um
rannsóknir, rannsóknaraðferðir og
rannsóknamiðurstöður, annar um
aðferðarfræði, tækni og meðferðar-
leiðir og fræðslu. Enn einn var um
hugmyndafræði og kenningar og
annar um kliniska reynslu. Að lok-
um var fjailað um sess fjölskyldu-
meðferðar á stofnunum og tengingu
þessa meðferðarforms við önnur.
Auk fyrirlestranna gafst kostur
á þátttöku í umræðuhópum eftir
þema og var það einn styrkur þessa
þings hversu óhindrað vísinda- og
verkviðhorf (teoria og praktik) gátu
skipst á af gagnkvæmni í ftjórri
umræðu.
Þátttakendur af íslands hálfu
voru 11, þar af 8 manna hópur
félagsráðgjafa, sálfræðinga og geð-
lækna frá geðdeild Landspítalans.
Hópurinn hefur um 2ja ára skeið
starfað sem meðferðarteymi og
unnið að því að koma á fót skipu-
legri fjölskyldumeðferð fyrir sjúkl-
inga og aðstandendur þeirra, bæði
við göngudeild og á innlagnardeild-
um. Hopurinn hélt sameiginlega
erindi með yfirskriftinni: „Utveckl-
ing av det familjeterapeutiska
arbetssattet inom en psykiatrisk
klinik", sem Ingibjörg P. Jóns-
dóttir deildarfélagsráðgjafí flutti.
Gerð var grein fyrir ákveðinni með-
ferðartækni og reynslu af að tengja
fjölskyldumeðferð öðru meðferðar-
starfí á geðdeild Landspítalans.
Sigrún Júlíusdóttir yfírfélagsráð-
gjafi, sem hefur leitt hópstarfíð,
flutti auk þess erindi, þar sem
kynntar voru niðurstöður athugun-
ar á viðhorfum skjólstæðinga, er
notið höfðu hjónameðferðar á
göngudeild geðdeildar Landspítal-
ans, „Parbehandling pá en
poliklinisk mottagning".
Kristín Gústavsdóttir og eigin-
maður hennar, Karl Gustaf Piltz,
sem búsett eru í Gautaborg og eru
vel kunn á íslandi fyrir handleiðslu,
kennslu og meðferð á sviði ein-
staklings-, hjóna- og fjölskyldumeð-
ferðar, fluttu einnig erindi á
þinginu. Erindi Kristínar bar heitið:
„Modell för involvering av fam-
iljen i behandling av unga
vuxenpsykiatriska patienter" og
erindi Karls Gustafs: „Systemteori
och familjeterapi".
Ennfremur fluttu íslendingarnir
Bjami Amgrímsson bamageðlækn-
ir og Halldóra Gunnarsdóttir sál-
fræðingur, sem einnig em búsett í
Gautaborg, sameiginlegt erindi um
valdahugtakið í fjölskyldunni, er
þau nefndu: „Makt i familjen“.
í pallborðsumræðum í lok þings-
ins var það sameiginleg niðurstaða,
að þingið markaði tímamót í sögu
og þróun fjölskyldumeðferðar á
Norðurlöndum. Fram að þessu hef-
ur fjölskyldumeðferð á Norðurlönd-
um fyrst og fremst verið undir
áhrifum frá bandarísku frumkvöðl-
unum og sótt fyrirmyndir í þekk-
ingu og reynslu bandarískra
sérfræðinga á sviði fjölskyldumeð-
ferðar. Nú kom það fram, svo að
ekki verður um villst, að á Norður-
löndunum fer fram umfangsmikil
rannsóknarvinna á þessu sviði og
verið er að þróa eigin vinnuaðferðir
og tækni, sem falla eðlilega að okk-
ar eigin menningu, fjölskylduhefð-
um og fjölskyldugerð.
Athyglinni var einnig beint að
þeim mikilvægu verkefnum, sem
framundan eru í málefnum fjöl-
skyldunnar. Fjölskyldufræðingar,
ráðgjafar og þeir sem að meðferð
vinna þyrftu að stilla saman strengi
sína og í vaxandi mæli gefa gaum
að nýjum rannsóknarverkefnum,
fræðslu, kennslu og stuðningsað-
gerðum auk fjölbreytilegra með-
ferðarmöguleika. Taka þyrfti þá
sérstaklega mið af þörfum foreldra
og hjóna og þeim breyttu viðfangs-
efnum, sem steðja að og fjölskyldur
þurfa að aðlagast og takast á við
í nútíma samfélagi út frá gjör-
breyttum forsendum frá því sem
áður var.
Einnig var rætt um, að mikil-
vægt væri að ryðja fjölskylduvið-
horfínu braut, þannig að í almennri
félags- og heilbrigðisþjónustu verði
lögð ríkari áhersla á að tengja fjöl-
skylduna málefnum einstaklingsins.
Unnið verði frá þeirri heildarsýn,
að hver einstaklingur tengist mörg-
um hópum og á sér að baki ijöl-
skyldu, sem í senn er einn
veigamesti möskvinn í stuðnings-
neti hans, bjargráðsbanki og sú
eining, sem á rétt á að fá og veita
upplýsingar og aðstoð, og ekki síst
að vera með í ráðum.
Fram kom, að stofnuð hafa verið
fagfélög fjölskyldusérfræðinga í
Svíþjóð, Noregi og Finnlandi. I
Danmörku og á íslandi eru ennþá
aðeins óformlegir samstarfshópar.
í Svíþjóð hefur verið komið á fót
formlegu sérfræðinámi í fjölskyldu-
meðferð fyrir þá sérfræðinga á sviði
félags- og geðheilbrigðisþjónustu,
sem vilja fá réttindi til að beita fjöl-
skyldumeðferð sem lækningarað-
ferð og leið til bættrar heilsu og
líðan innan fjölskyldunnar.
Næsta norræna þingið í fjöl-
skyldumeðferð verður haldið eftir 3
ár í Noregi.
Fyrirlestrar þingsins verða prent-
aðir og gefnir út í ráðstefnuskýrslu
og er hægt að fá þá hjá Sigrúnu
Júlíusdóttur yfirfélagsráðgjafa,
geðdeild Landspítalans.
(Fréttatilkynningf.)
i zö ar
HRESSINGARLEIKFIMIKYENNA 0G KARLA
Haustnámskeið hefjast mánudaginn 28. september nk.
Kennslustaðir: Leikfimisalur Laugarnesskóla og íþrótta-
hús Seltjarnarness.
Fjölbreyttar æfingar
Músík
Dansspuni
Þrekæfingar
Slökun
Innritun og upplýsingar
í síma 33290.
Ástbjörg S. Gunnarsdóttir,
íþróttakennari.
SÍMINN ER
UDÍIíæni # ramSaÍBS .691140 691141
nnlNbUU gmrogiM JE
(
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
V
Á FÖSTUDÖGUM 0G LAUGARDÖGUM
Sýnikennsla á Pfaff saumavélar er í nýju versluninni
okkar í KRINGLUNNI alla föstudaga frá kl. 14.00-18.
og laugardaga frá kl. 14.00-16.00.
Aukin þjónusta fyrir þá sem sauma. Skoðið HORN
saumavélaborðin sem henta fyrir allar helstu gerðir
saumavéla.
PFAFF
KRINGLUNNI OG BORGARTÚNI 20.
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
)
Frumsýnd í dag kl. 16.30
Lögreglukórinn og Hjörtur Benediktsson eftir-
herma skemmta fyrir sýningu.
Bein útsending á Bylgjunni. Frumsýningarpartý í
Evrópu íkvöld.
Hluti af aðgangseyri rennur í Slysa- og sjúkrasjóð
lögreglumanna.