Morgunblaðið - 03.12.1987, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987
5
Starfsmaður fasteignasölu:
Farbann framlengt
þar til ákæra er birt
MÁL starfsmanns fasteignasölu
í Reykjavík, sem er sakaður um
stórfelld brot, fjársvik, skjalafals
og fjárdrátt, er nú til meðferðar
hjá ríkissaksóknara, en óvist er
hvenær það verður afgreitt það-
an. Á þriðjudag var maðurinn
úrskurðaður f áframhaldandi
farbann þar til ákæra verður
birt, þó ekki lengur en til 29.
janúar á næsta ári.
Snemma í sumar sagði Morgun-
blaðið frá máli þessa manns, sem
er sakaður um stórfelld brot gagn-
vart tugum viðskiptavina sinna.
Maðurinn var handtekinn í vor, en
sleppt úr haldi aftur í lok maí.
Hann var hins vegar úrskurðaður
í farbann, sem rann út þann 1.
desember, eða á þriðjudag. Þá var
lögð fram sú krafa að honum yrði
gert að sæta áframhaldandi far-
banni og á þriðjudag var kveðinn
upp sá úrskurður hjá sakadómi
Reykjavíkur að svo skyldi vera til
ákærubirtingar, þó eigi lengur en
til 29. janúar á næsta ári.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Bátar hafa að undanförnu komið inn á pollinn og kastad á síldartorf-
ur.
Síldarsöltun
að ljúka á Fá-
skrúðsfirði
Fáskrúðsfirði.
SÍLDARSÖLTUN er nú að mestu
lokið hér á Fáskrúðsfirði. Heildar-
söltun er um 21 þúsund tunnur.
Bátar hafa að undanförau komið
hér inn á pollinn og kastað á
sfldartorfur og sumir fengið full-
fermi.
Hér hefur verið mikil veðurblfða
og enn enginn snjór komið, það sem
af er vetri.
— Albert.
Björgúlfur
seldi í Hull
BJÖRGÚLFUR EA frá Dalvík
seldi f gær afla sinn, mest þorsk
í Hull. Verð fyrir aflann var hátt.
Björgúlfur EA seldi alls 131 lest
að verðmæti 10,5 milljónir króna.
Meðalverð var 80,36. Mest af aflan-
um var þorskur en eitthvað var líka
af kola. Framboð á ferskum físki í
Bretlandi er nú fremur lítið, bæði
héðan og öðrum löndum. Hins veg-
ar eru talsverðar siglingar skipa
héðan fyrirhugaðar á næstunni.
Grimsby:
Stafnes Ltd.
hætt rekstri
Bókhaid fyrir-
tækisins í
endurskoðun
Umboðsfyrirtækið Stafnes
Ltd. í Grimsby hefur nú hætt
rekstri um sinn. Verið er að end-
urskoða bókhald þess og framtf-
ðin óljós.
Fyrirtækið er í eigu íslenzkra og
erlendra aðila og hefur undanfarin
ár selt ferskan fisk fyrir íslenzka
útflytjendur á mörkuðunum í Hull
og Grimsby. Auk þess hefur það
verið í sölu á frystum fiskafurðum
í smáum stíl og fyrirgreiðslu fyrir
sjávarútvegsfyrirtæki hér heima.
Stafnes er eitt þriggja íslenzkra
umboðsfyrirtækja á Humber-svæð-
inu.
Kókaínsmyglari:
Gæsluvarð-
hald
framlengt
BRASILÍSKI karlmaðurinn, sem
flutti hingað til lands 450 grömm
af kókafni, var f gær úrskurðað-
ur f áframhaldandi gæsluvarð-
hald til 1. febrúar á næsta ári.
Maðurinn hefur nú setið í gæslu
frá því um miðjan október, en þá
voru hann og kona hans handtekin
með fíkniefnið í fórum sínum, auk
780 þúsund króna i peningum.
Konunni var sleppt, þar sem talið
er að maðurinn hafi staðið einn að
innflutningi efnisins.
OTDK
cXvm hreinn
Mll HUÓMUR
- Enn stígur Mobira
skref i f ramar í
farsímatækninni
Með Mobira Cityman
farsímanum nýtirðu tíma
þinn beturog eykur
athafnafrelsið svo um
munar, því hann ersá
minnsti, léttasti og því einn
sá allra notadrýgsti fyrir
athafnafólk á ferð og flugi.
• í bílnum
• í skjalatöskunni
• Á skrifborðinu
• Á vélsleðanum
• í hnakktöskunni
• Á bakvaktinni
- Reiðubúinn að
koma þér í öruggt
samband.
Hafðu samband við okkur
eða komdu í Ármúlann og
fáðu nánari upplýsingar.
mm
1 1 *jt __ «
rratæKmnr.
Ármúla26, símar: 91 -31500-36700
108 Reykjavík
Þettaer
Mobiia
Chyman
farsíminn
í fullri 1
stæid!