Morgunblaðið - 03.12.1987, Side 23

Morgunblaðið - 03.12.1987, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987 23 Umdeildur maður viðurkenndur höfundur öfundur bókarinnar Heiður í húfi (A matter of Honour) Jeffrey Archer er löngu heims- frægur fyrir bækur sínar. Fyrsta bók hans, Not A Penny More, Not A Penny Less, komst strax á lista yfir mest seldu bækurnar og þar hafa allar aðrar bækur hans kom- ist þegar eftir útgáfuna og verið þar í efsta sæti í lengri eða skemmri tíma. Jeffrey Archer er maður sem löngum hefur verið töluvert umdeildur, en óneitanlega mikið í sviðsljósinu. Hann var aðeins 29 ára þegar hann var í fyrsta sinn kosinn á breska þingið, einn yngsti maðurinn sem þar hefur setið. Hann varð síðan að segja af sér vegna gjaldþrotamáls, en fyrir nokkrum árum skaut honum upp aftur í breska stjórnmálalífinu og varð þá varaformaður breska Ihaldsflokksins. í desember 1986 lenti hann aftur í hneykslismáli er vændiskona hélt því fram, að hann hefði átt vingott við sig og reyndi að beita hann fjárkúgun. Varð Arc- her þá að nýju að segja af sér þingmennsku. Hann fór í mál við blöð sem fjallað höfðu mikið um málið og leiddi rannsókn í Ijós, að Archer var saklaus af öllum ávirðingum og fékk hann dæmd- ar miklar skaðabætur. En þótt Jeffrey Archer hafi lent í ýmsu hefur hann alltaf átt gífurlegum vinsældum að fagna sem rithöfundur. Hann kann þá list að segja sögu flestum öðrum betur. Frásagnir hans eru trúverðugar. Hann sækir gjarnan efni í samtímann og lætur frægar persónur koma við sögu. Hann nær að magna spennu án þess að yfirkeyra nokkru sinni. Hann hrífur lesandann með sér inn í sögusviðið og heldur honum hugföngnum. Sagt er að erfitt sé að leggja frá sér bók eftir Jeffrey Archer fyrr en hún er fulllesin. Spielberg kvikmyndar HEIÐUR í HÚFI Gerðarhafa verið kvikmyndireða sjónvarpsmyndaflokkar eftir flestum bókum JeffreyArcher, og munu flestir íslendingar t.d. kannast við mynd- ina „ Kane og Abel". Nú er hafinn undirbúningur að gerð kvikmyndar eftir sögunni Heiður i húfi. Hinn heimsfrægi kvikmyndaframleiðandi Steven Spielberg hefurkeypt réttinn. JeffreyArcher segir, að það sé ekki tilviljun að Spielberg sóttist eftirað gera myndeftir HEIÐUR í HÚFI. „ Við erum báðir sagnamenn, “ segirhann. innaftyiaðveras Útál?m^0vetao,«nne,nhver 3'anda XamhSnunv á annað borö^M • °ar en einu srnn, hanP . þegara, ii. Hvem.91099^,3 .s 9er. 9*™ En nú Þ«ieW6^nsen. 9hebresk svo virkUega oroim iröardóttur sem birtist í Söguþráður í HEIÐUR í HÚFI Adam Scott fær í hendur gulnað umslag, þegar erfðarskrá föður hans er lesin upp. í kjölfar þess gerast ótrúlegir atburðir. Það hafði alla tíð hvílt skuggi yfir starfsferli föður hans í hernum, en enginn vissi hver raunveruleg ástæða þess var. Þegar Adam Scott kemst á snoðir um leyndarmál föður sins er eins og sprengju hafi verið kastað. Leynimakkið, tilfinningahitinn og ágirndin eiga rætur allt frá Þýskalandi stríðsáranna og austur til Rússlands. Scott finnur verðlausan íkon í bankahólfi í Sviss og íkoninn er lyk- illinn að leyniskjali, sem gæti haft áhrif á sambúð austurs og vesturs. Aðeins örfáir vita um tilvist þessa skjals, en þeir eru all- ir reiðubúnir að fórna hverju sem er til að koma höndum yfir það - jafnvel fremja morð. Þegar ástkonu Scotts er rænt hefst flótti hans yfir Evrópu og á flóttanum verður hann að berjast fyrir lífi sínu, bæði við KGB-menn, CIA-menn og eigin landa. Sú barátta er spennuþrungin og margt kemur á óvart. Frjálst framtak

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.