Morgunblaðið - 03.12.1987, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987 '
29
Sjómaður segir frá
BÓKAFORLAG Máls og menn-
ingar hefur gefið út bókina
Brimöldur sem er frásögn Har-
alds Ólafssonar sjómanns.
í kynningu útgefanda segir: „A
fyrstu áratugum þessarar aldar
yfírgáfu margir átthaga sína og
héldu til útgerðarbæjanna í von um
atvinnu og bætt kjör. Einn þessara
var Haraldur Ólafsson. Hann ólst
upp austur í Ölfusi en fór ungur á
sjóinn, fyrst sem útróðrarmaður í
Þorlákshöfn. Síðan var hann til sjós
um nærri sex áratuga skeið á árun-
um milli 1920 og 1980, fyrst á
árabátum, svo á skútum og síðar á
togurum, lengst af á Baldri og
Helgafelli. Á þessum tíma urðu
verulegar breytingar á öllum at-
vinnu- og lifnaðarháttum þjóðarinn-
ar, einkum skipti mjög um upp úr
stríðslokum.
í Brimöldum rekur Haraldur
sögu sína sem auk þess að vera
ævisaga er heimild um atvinnulíf
og sjávarútveg og kjör sjómanna á
kreppu- og stríðstímum. Bókin
geymir margar frásagnir af sjávar-
háska og baráttu sjómanna fyrir
bættum kjörum en ekki síst lífínu
oldur
MsSgtt iióuvmai,
jón Cuðnðson ikUidt
um borð, mannskapnum, andanum
sem ríkti og vinnubrögðunum."
Jón Guðnason sagnfræðingur
skráði frásögn Haralds. Fjöldi
mynda er í bókinni sem er 252 bls.
að stærð, prentuð í Prentbergi hf.
en Steinholt hf. annaðist setningu
og umbrot. Kápu hannaði Teikn.
Aldrei glæsilegra
úrval af herraslopp-
um, innisettum og
náttfötum frá
finnwear
GEíSIBf
SÍGILDIR BJARTIR STERKIR
, HORPU,
i SKIN
OUÁSTIG 10
vatnsþynvoriog innintSw'S
M notttunac á síein. jám og t*
HÖRPUTÓNAR •L.
AUK hl. 111.12/SÍA