Morgunblaðið - 03.12.1987, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987
37
Forsetaframbjóðendur repúblikana:
Tóku flestir afstöðu gegn
afvopnunar samningnum
Wafihington, Reuter.
RONALD Reagan Bandaríkja-
forseti varð fyrir þeirri sérkenni-
legu lífsreynslu á þriðjudaginn
að vera lofsunginn af sex for-
setaframbjóðendum demókrata
og við sama tækifæri var hann
gagnrýndur af öllum flokks-
bræðrum sínum í hópi frambjóð-
enda. Þessi umskipti á
væntanlegum forsetaframbjóð-
endum urðu þegar allir, sem
keppa um að hljóta útnefningu
flokkanna, tóku þátt f umræðu-
þætti í sjónvarpi um afvopnunar-
samning risaveldanna.
Aðeins George Bush, varaforseti
Bandaríkjanna, studdi samninginn
sem undirritaður verður af Reagan
og Gorbatsjov í Washington, 8. des-
ember næstkomandi. Hann- var sá
eini repúblikananna sex sem keppa
að því að hljóta útnefningu flokks-
ins sem var samþykkur varnar-
samningnum. Bush, sem talinn er
líklegastur repúblikana til að hljóta
útnefningu flokksins, gagnrýndi
hina frambjóðendur repúblikana
fyrir að vilja setja svo mörg skil-
yrði í samninginn að útilokað væri
að ná um þau samkomulagi.
Pierre du Pont, fyrrum öidunga-
deildarþingmaður Delaware-fylkis,
sagði að Bandaríkjamenn hefðu
samið af sér og sjónvarpsklerkurinn
Pat Robertson sagði samninginn
veikja vamir Evrópu. Leiðtogi repú-
blikana í öldungadeild þingsins,
Robert Dole, sem er helsti keppi-
nautur Bush um útnefningu, hélt
að sér höndum í sjónvarpsþættin-
um. Sagðist hann vilja lesa samn-
inginn áður en hann leggði dóm á
innihald hans. Gaf hann í skyn að
hann styddi það að öldungadeildin
yfírfæri og greiddi atkvæði um
samninginn.
Albert Gore, öldungadeildarþing-
maður frá Tennessee, sagði það
vera skelfílegt að fímm af sex hugs-
anlegum frambjóðendum repúblik-
ana skuli ekki styðja samning um
fækkun kjamavopna. Ágreiningur
um afvopnunarsamninginn er það
eina sem varpað hefur skugga á
samstöðuna innan Repúblikana-
fíokksins.
Þessi sjónvarpsþáttur er talinn
hafa varpað ljósi á skoðanaágrein-
ing milli flokkanna tveggja. Auk
afvopnunarsamningsins deildu for-
setaframbjóðendur um afskipti
Bandaríkjanna í Mið-Ameríku. Full-
trúar Demókrataflokksins réðust
harkalega að Reagan fyrir að styðja
kontra-skæruliða í Nicaragua.
Repúblikanamir sögðu þá demó-
kratana vera hrædda við að styðja
frelsi í þessum heimshluta.
Sjúkdóminn alnæmi bar á góma
í sjónvarpsþættinum og demókratar
vildu halda því fram að Reagan
forseti hefði vilja gleyma alnæmi
og að meiru fé ætti að veija tii
rannsókna á sjúkdómnum. Repú-
blikanar vildu að meiri áhersla
væri lögð á að fínna hina sýktu.
Reuter
Þátttakendurnir i sjónvarpsumræðunni. Frá vinstri: George Bush varaforseti, Robert Dole, Pierre du
Pont, Alexander Haig, Jack Kemp, Pat Robertson, Tom Brokow frá NBC sjónvarpsstöðinni, Paul Sim-
on, Jesse Jackson, Albert Gore, Richard Gerhardt, Michael Dukakis og Bruce Babbitt.
Á flygildi til Ástralíu
Brian Milton í flugtaki á flygildinu Dalgety flyer frá bryggju í Lon-
don. Milton ætlar að fljúga vél sinni til Ástralíu, eða 19.000 kílómetra
leið. Vonast hann til að komast þangað á innan við mánuði, en hann
ráðgerir að hafa viðkomu á 28 stöðum á leiðinni. Flugvélin nær 112
kílómetra hraða á klukkustund. Vonast Milton til að setja fluglengdar-
met í flygildi af þessu tagi á leiðinni yfír Saudi-Arabíu, en þá ráðgerir
hann að vera 9 stundir á lofti. Smáflugvél af þessu tagi hefur mest
verið flogið í 7 stundir og 31 mínútu hingað til.
Mikið ber á milli í
friðar samningnm
Managua. Reuter.
MIKIÐ ber á milli i friðarsamning-
um fulltrúa stjómarinnar {
Niacaragua og fulltrúa contra-
skæruliða, að sögn stjórnarerind-
reka.
Fulltrúar deiluaðila eru nú I Dóm-
infkanska lýðveldinu vegna friðar-
samninga. Sendinefndimar ræðast
þó ekki við augliti til auglits heldur
ber milligöngumaður, Miguel Obando
y Bravo, skilaboð á milli.
Stjómarerindrekar segja það í
sjáifu sér mikinn áfanga að fulltrúar
deiluaðila skuli setjast að samningum
þótt með þessum hætti sé. Skærulið-
ar hafa lagt til að eins mánaðar
vopnahlé hefjist 8. desember og
krefjast þess að pólitfskum föngum
verði geftiar upp sakir, að neyðarlög,
sem verið hafí í gildi f fimm ár, verði
numin úr gildi, og að ýmsar opin-
berar stofnanir og samtök verði lögð
niður. Jafnframt vilja skæruyliðar fá
að halda vopnum sfnum og lands-
svæðum.
Margar af kröfum skæruliða em
óaðgengilegar fyrir stjóm sandinista,
að sögn stjómarerindreka. Vilja full-
trúar stjómarinnar í friðarviðræðun-
um að þær verði einskorðaðar við
vopnahlé.
Herfduáeína
iVMSj
PHIUPS
Tvær sjónvarpsstöðvar eru barnaleikur
fyrir Philips HQ-VR 6542 myndbandstækið
tæki sem svarar kröfum nútímans.
• Þráðlaus fjarstýnng
• Sjálvirkur stöðva leitan
• 16 stöðva forval
• Upptökuminni i 14 daga
fyrir 4 skráningar
• Skyndiupptaka óháð
upptökuminni
Myndleitari í báðar áttir
Frysting á ramma
Og ótal fteiri möguleikar
sem aðeins Philips kann tökm a
. Verðið kemur þér á óvart.
Opiðídag:
Sætúni 8 kl. 10-13
Kringlunnikl. 10-16