Morgunblaðið - 03.12.1987, Síða 42
Sambandsmenn hljóta að
vita að þeir eru velkomnir
- segir Sigfús Jónsson bæjarstjóri
„Ég hef ekki boðið Sambandinu
formlega land undir höfuð-
stöðvar sínar á Akureyri, en
Sambandsmenn hljóta að vita
að þeir eru velkomnir hvenær
sem er,“ sagði Sigfús Jónsson
bæjarstjóri á Akureyri í samtali
við Morgunblaðið.
Sigfús sagði að afkoma Akur-
eyrarbæjar myndi ekkert batna
við það þó fjölga myndi í bænum.
„Menn eru ekkert ríkari í 20.000
manna bæ heldur en í 10.000
manna bæ og ef SÍS myndi vilja
flytja höfuðstöðvar sínar norður,
þýddi það aðeins útgjöld á móti.
Við hér á Akureyri erum ekkert
ríkari heldur en þeir á Húsavík
þótt við séum fímm sinnum stærra
bæjarfélag. Ég vil hinsvegar ekki
bera mig saman við sveitarfélögin
á höfuðborgarsvæðinu þar sem
eitt atvinnusvæði er bútað niður í
mörg sveitarfélög. Ef höfuðstöðv-
ar SIS myndu koma norður, myndi
allt starfsfólkið ef til vill flytjast
norður líka og þyrfti ég þá að fara
að útvega því skóla, bamaheimili,
götur, slökkvilið og þar fram eftir
götunum. Fólkið, sem vinnur hjá
SÍS í dag, heldur hinsvegar áfram
að búa á þeim stað sem það býr
nú á, hvort sem höfuðstöðvar
verða í Kópavogi eða í Reykjavík,"
sagði Sigfús.
Hann sagði að rétt væri að
Sambandið væri mikill lands-
byggðarvinur í orði að minnsta
kosti og sýndi ef til viil gott for-
dæmi með því að flytja höfuð-
stöðvamar norður í þar sem sífellt
væri rætt um að flytja þurfí stofn-
anir og fyrirtæki út á land. Það
ættu að minnsta kosti að vera hæg
heimatökin þar sem stjómarform-
aðurinn sjálfur byggi á Akureyri.
Frá slysstað
Keyrt á mann á hjóli
KEYRT var á fullorðinn mann
á hjóli í hádeginu í gær á gatna-
mótum Akurgerðis og Þing-
vallastrætis er hann var á leið
yfir gatnamótin.
Sjáanleg meiðsl voru á höfði
mannsins, en hánn var þó með
meðvitund. Maðurinn var fluttur
á Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri til rannsóknar.
Þá var ekið á kyrrstæðan bíl
við Stórholt um klukkan 8.30 í
gærmorgun. Ökumaðurinn reynd-
ist bæði drukkinn og próflaus, en
var á bíl vinar síns. Hann hafði
verið sviftur ökuleyfí árið 1979,
þá fyrir ölvun.
Hriseyjarfeijan við nýja feijubryggju á Árskógssandi.
Morgunblaðið/Jóhanna Ingvarsdóttir
Árskógssandur;
Ný bryggja fyrir ferjuna
Sveinn Jónsson oddviti.
Tiljólagjafa
• Myndavélar
• Myndavélatöskur
• Sjónaukar
^PediGmyndir?
Hafnarstræti 98 - Sími 96-23520
Vandaður
karlmannafatnaður
í úrvali
Leggjum áherslu á góða
ogöruggaþjónustu.
Klæðskeraþjónusta.
enrabudin
Hafnarstræti 92 - Sími 96-26708
nn es
SIEMENS
heimilistæki
Mikið úrval
afsmátækjum til
jólagjafa
Furuvöllum 1, 600 Akureyri
Sími 96-27788
Ný feijubryggja fyrir Hríseyj-
arfeijuna var tekin í notkun
síðastliðinn laugardag á Ár-
skógssandi. Jafnframt fögnuðu
heimamenn og gestir lengingu
hafnargarðs á Árskógssandi um
nær 60 metra.
Sveinn Jónsson oddviti sagði við
tækifærið að undirbúningur hefði
staðið yfir í um það bil ár þegar
ljóst hefði verið að þingmenn og
Qárveitingavaldið myndi sinna
þessu brýna verkefni. Verktaki við
bryggjuna var Guðlaugur Einarsson
frá Fáskrúðsfirði. „Ohætt er að
segja að þessi framkvæmd sé ein
mesta hafnarframkvæmd landsins
í ár. Kostnaður nemur um 30 millj-
ónum króna. Ýmislegt er þó ógert.
Eftir er að ljúka landgangi, frá-
gangi og malbikun plans ofan við
bryggjuna. Þá á eftir að setja upp
ljósamastur til að lýsa upp svæðið
og setja þarf stálþil inn á gijótgarð-
inn. Heimamenn gera sér miklar
vonir um fjármagn í þá framkvæmd
á næsta ári,“ sagði Sveinn.
Hann sagði að þessi mannvirki
þýddu umbyltingu í allri aðstöðu
■ fyrir Árskógsstrendinga. Á Ár-
skógssandi eru nú gerðir út fímm
bátar af stærri gerðinni, eins og
Sveinn orðaði það, frá 30 tonnum
og upp í 180 tonn, auk sex minni
báta. Samtals eru bátamir 700
brúttórúmlestir og stefnir aflaverð-
mæti þeirra í 400 milljónir króna
þetta árið.
Hundrað
þúsundasti
farþeginn
HUNDRAÐ þúsundasti farþegi
Flugleiða á einu ári á flugleið-
inni Akureyri-Reykjavík lenti á
Akureyrarflugvelli síðastliðinn
sunnudag. Sú heppna var Elín
Sigurðardóttir sem eyddi helg-
inni í Reykjavík ásamt eigin-
manni sínum, Marteini
Hámundarsyni.
Gunnar Oddur Sigurðsson um-
dæmisstjóri Flugleiða á Akureyri
færði Elínu blómvönd og farseðil
til Reykjavíkur og aftur til baka.
Gunnar Oddur sagði í samtali við
Morgunblaðið að aldrei áður hefðu
náðst 100.000 farþegar áður á einu
ári. í fyrra hefði verið metár, en
þá komu rúmlega 95.000 farþegar
á heilu ári. Hinsvegar hefði hundrað
Oddviti þakkaði öllum þeim sem búnu sigldi Hríseyjarfeijan með
lagt höfðu hönd á plóginn vegna gesti út í Hrísey þar sem boðið var
þessara framkvæmda og að því til kvöldverðar.
Morgunblaðið/GSV
Gunnar Oddur Sigurðsson umdæmisstjóri Flugleiða á Akureyri fær-
ir hér hundrað þúsundasta farþeganum, Elinu Sigurðardóttur,
blómvönd við komuna til Akureyrar og farseðil til Reykjavíkur og
aftur til baka. Vélin lenti á Akureyrarflugvelli laust fyrir klukkan
18.00 á sunnudagskvöld.
þúsundasti farþeginn komið í lok annars af auknu ráðstefnuhaldi hér
nóvember í ár og mætti búast við norðanlands enda hefði ráðstefnu-
að minnsta kosti 10.000 farþegum aðstaða verið bætt til muna auk
í viðbót í desembermánuði. Hann þess sem gistirými hefur verið auk-
sagði að fjölgunin stafaði meðal ið.
jnbn^nn'
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI