Morgunblaðið - 03.12.1987, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987
53
Amnesty International:
Fangar mánaðarins
— nóvember 1987
Mannréttindasamtökin Am-
nesty Interaational vilja vekja
athygli almennings á máli eftir-
farandi samviskufanga í nóvem-
ber. Jafnframt vonast samtökin
til aðf ólk sjái sé fært að skrifa
bréf til hjálpar þessum föngum
og sýna þannig í verki andstöðu
sína gegn því að slík mannrétt-
indabrot séu framin. íslandsdeild
Amnesty gefur einnig út póst-
kort til stuðnings föngum
mánaðarins og fást áskriftir á
skrifstofu samtakanna.
Singapore: Vincent Cheng er
fertugur ritari í friðarhreyfíngu
kirkjunnar í Singapore. Hann er
einn af sex aðilum sem voru hand-
teknir í maí og júní sl. Amnesty-
samtökin telja að þeir hafí verið
handteknir vegna friðsamlegra
starfa innan kirkju, námsmanna-,
verkamanna- og listamannasam-
taka. Þeir eru allir ákærðir um
„marxiskt samsæri til að umbreyta
ítalir óánægð-
ir með ís-
lenzka skreið
KVARTANIR hafa enn borizt frá
ítölum vegna gæða skreiðar, sem
þeir hafa keypt héðan. Fyrst í
stað bárust aðeins kvartanir
vegna skreiðar verkaðrar sunn-
an lands, en nú er einnig kvartað
undan skreið að norðan. Málið
er í biðstöðu, þar sem beðið er
nánari upplýsinga að utan.
Fyrst, þegar kvartað var undan
skreiðinni, fóru fulltrúar frá ríkis-
mati sjávarafurða og útflytjendum
utan. Niðurstöður þeirra voru á þá
leið að skreiðin stæðist gæðakröf-
ur. Síðan bárust frekari kvartanir
að utan og hefur vegná þess verið
beðið um upplýsingar frá ítölsku
kaupendunum um framleiðendur og
nánari lýsingu á göllum. Ekkert af
skreiðinni hefur verið endursent,
enda telja framleiðendur hér heima,
að með þessu séu ítalir að reyna
að ná fram lækkun á áður um-
sömdu verði.
félagslegu og stjómmálalegu kerfí
í Singapore". Þeim er haldið skv.
ákv. öryggislögum (ISA) sem leyfa
varðhald án réttarhalda. Þeir hafa
því ekki fengið tækifæri til að veija
sig opinberlega. Sannanir gegn
þeim byggja á játningum sem skv.
sögn fulltrúa Amnesty-samtakanna
voru fengnar í kjölfar andlegra og
líkamlegra pyntinga.
Úganda: Lance Seera Muw-
anga er á fimmtugsaldri og starfar
í mannréttindasamtökum í Úganda
(UHRA). Hann var handtekinn af
stjómarhemum í febrúar sl. og hef-
ur verið í varðhaldi síðan. Ástæðan
fyrir handtöku hans virðist vera
viðtal við hann í tímariti í London
þar sem hann gagnrýnir stjómar-
herinn fyrir mannréttindabrot.
Ótímabundið varðhald án ákæm er
leyfilegt í Úganda. UHRA-samtök-
in vom stofnuð í Svíþjóð 1982 og
börðust gegn mannréttindabrotum
sem framin voru í stjómartíð þáver-
andi forseta Úganda. Þegar stjóm
hans var felld 1985 fluttu samtökin
til Kampala og hafa unnið þar síðan
að mannréttindafræðslu og gegn
mannréttindabrotum.
Sovétríkin: Leonid Litvineko er
45 ára gamall hvítasunnumaður frá
Úkraínu. Hann hlaut 10 ára fang-
elsis- og útlegðardóm árð 1981 fyrir
að hafa stundað trúarbrögð sín án
leyfis. Hann var fluttur í vinnubúð-
ir í Kazakhstan sem er í 2.000 km
fjarlægð frá heimili hans. Þar hlaut
hann 3 ár til viðbótar fyir að hafa
neitað að vinna á sunnudögum.
Fangar í sovéskum vinnubúðum
eiga rétt á einum frídegi I viku.
Amnesty-samtökin vita af fjölda
manns sem hafa hlotið refsingu
fyrir að neita að vinna á hvíldardög-
um þó þeir vilji vinna alla aðra
daga vikunnar.
Þeir sem vilja leggja málum þess-
ara fanga lið, og þá um leið
mannréttindabaráttu almennt, eru
vinsamlegast beðnir að hafa sam-
band við skrifstofu íslandsdeildar
Amnesty, Hafnarstræi 15, Reykja-
vík. Þar fást nánari upplýsingar
sem og heimilisföng þeirra aðila
sem skrifa skal til. Einnig er veitt
aðstoð við bréfaskriftir ef óskað er.
BETRI KAUP - AFSLÁTTUR
GÓLF-PAKKI
HJÁ okkur fást flest gölfefni sem
FRAMLEIDD ERU OG NJÓTA VINSÆLDA:
VIÐ SEGJUMST ÞV( GETA BOÐIÐ
GÓLF - PAKKA
Því hjó okkur fást nú:
Gólfteppi — vinylgólfdúkar — gúmmlgólfdúkar —
takkadúkar — korkur — linoleum — marmari —
grásteinn — keramikfltsar —
brenndar leirfllsar — steingólf — krossllmt parket —
massfft parket — ílagningarefni og tilheyrandi Ifm -
sparsl — grunnar og undirlagsefni — raestiefni —
gólfþvottavélar og handverkfæri f miklu úrvali.
Mælum — gerum tilboö — önnumst lögn.
Staögreiösluafsláttur — greiösluskilmálar.
„Hjá okkur ná gæðin í gegn“
Þar sem þú gengur að gæðemerkjum.
ÁSÍÐUSTU dögum Víetnamstríðsins er Björn Guðbrandsson
við læknisstörf í Saigon. Skothvellir heyrast í fjarska og herir
kommúnista nálgast borgina. Tveimur áratugum áður er Björn staddur
í Tokyo á vegum bandaríska hersins. Kóreustríðið geisar og Björn
kemst í kynni við mannlegar hörmungar og ógnir styrjalda.
Víða liggja leiðir ...
Björn barnalæknir hefur séð tímana tvenna og komið víða við.
Hann riíjar upp æskuárin í Skagafirði þegar örþreyttir sveitalæknar
riðu um héruð og börn hrundu niður úr barnasjúkdómum. Síðan víkur
hann að dvöl sinni í Þýskalandi eftir stúdentspróf og lýsir kynnum
sínum af forsprökkum nasista árið 1939 þegar Evrópa rambaði á barmi
heimsstyrjaldar.
... gleði og raunir ...
Á stríðsárunum stundar Björn nám við læknadeild Háskóla íslands
og er um leið aðstoðarlæknir á Vífilsstaðahæli. Hann lýsir af hreinskilni
baráttuþreki og dauðastríði sjúklinganna, daglegu lífi þeirra, gleði
og raunum. Síðan heldur Björn vestur um haf og verður þar einn af
fyrstu sérfræðingum íslendinga í barnalækningum. Hann lýsir
sérstæðum mönnum og eftirminnilegum atburðum í lífi sínu sem
maður og læknir í stríði og friði.
... spilltir kerfismenn - og börn.
Eftir Kóreustyrjöldina tekur Björn til starfa við Landakotsspítala
í Reykjavík. í sögu sinni bregður hann upp minnisstæðum myndum
úr læknisstarfi sínu og spítalalífi, stefnumótum við dauðann, sorgum
og sigrum. Hér kemur margvíslegt fólk við sögu - læknar, hjúkrunar-
fólk, templarar, náttúruverndarmenn, spilltir kerfismenn - og börn.
FORLAGIÐ
FRAKKASTÍG 6A SÍMI 91-25188
AUK hl. x7.3/SlA