Morgunblaðið - 03.12.1987, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 03.12.1987, Qupperneq 59
heimabyggð í jarðeldunum árið 1973. En allt gekk vonum framar. Hann var ekki fyrr stiginn á land í Þorlákshöfn en Guðmundur bróðir hans náði í hann og fór með hann til Hveragerðis og ekki leið langur tími þar til Finnur var orðinn verk- stjóri hjá Rafveitu Hveragerðis. Undu þau Anna og Finnur sér vel á fastalandinu, en samt var sú taug sem batt þau við Eyjamar sterk og árið 1978 fluttu þau aftur út í Eyj- ar og Finnur hóf að nýju störf hjá ísfélaginu, en þar sem hann var að verða „löggilt gamalmenni" þá fór hann í rólegra starf en áður. Finnur stundaði vinnu allt þar til seint á síðasta ári. Anna, eiginkona Finns, varð bráðkvödd 19. janúar árið 1980 og var það Finni þungbær missir, en þau höfðu verið ákaflega samrýmd og Anna búið manni sínum hlýlegt og gott heimili. í fjóra áratugi hafði Anna tekið á móti Finni sínum þeg- ar löngum og erfiðum starfsdegi lauk eða komið var í land eftir róð- ur og af myndarskap hafði hún annast böm og bú. Fráfall hennar hafði miklar breytingar í för með sér, en Finnur hefur aðlagast þess- um breytingum á högum sínum og nú er það yndi hans að sinna heimil- inu og hafa þar allt bæði hlýlegt og hreinlegt. Hann les mikið og hefur mikið og gott samband við böm sín og bamaböm. Finnur býr við góða heilsu og daglega kemur hann við í ísfélaginu og heilsar upp á gamla vinnufélaga og fylgist með æðaslætti atvinnulífsins. Kynni mín af Finni hófust þegar ég sem smástrákur hóf störf hjá ísfélaginu. Þá var gott að leita til Finns og þiggja hjá honum góð ráð og hvatningu. í mörg ár vann ég á sumrin í ísfélaginu og það var sann- arlega gott að vera undir stjóm og leiðsögn Sigurfinns Einarssonar. Seinna kynntist ég syni hans, Sig- fínni og er góð vinátta á milli okkar. Ég og fjölskylda mín óskum Sig- urfinni Einarssyni til hamingju með 75 árin og óskum honum alls hins besta í framtíðinni. Magnús Kristinsson MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987 59 • ' t.-.y ' y.,J ....' i • -V |i;Ék ' •«; T a.Iv 1 'V;'. a|j ILæ) •{ p'wtú ii w < i fev.:; S ELKO, igs m SIGURÐUR ELIASSON OPNAR DYR í NÝJU HÚSNÆÐI AÐ SMIÐJUVEGI Q \ r r )l $ !í( n SELKO SIGURÐUR ELÍASSON HF. SMIÐJUVEGI 9, 200 KÓPAVOGI SÍMI: 41380 - 41381 Með hurðum lokum við dyrum og njótum friðhelgi og einkalífs. Með hurðum opnum við dyr og njótum samvista við aðra. Við höfum hurðir stöðugt fyrir augunum. Vönduð smíði, góður frágangur og fallegt útlit hafa verið einkunnarorð Selkó frá upphafi, enda hafa inni- hurðirnar frá Sigurði Elíassyni notið sérstaks álits um 40 ára skeið. Komið á Smiðjuveginn og kynnið ykkur verð og gæði. Bjóddu konunni þinni í mat Farþegarnir eru mjög ánœgðir með matinn sem Glóðin í Keflavík útbýr fyrir okkur. ■ Komið og bragðið á. ~h
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.