Morgunblaðið - 03.12.1987, Blaðsíða 68
68
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987
rokksfönn
Casablancasnarl
ÁRNI MATTHÍASSON
S.h. draumur
Ljósmynd/BS
Ljósmynd/BS
Dalsy Hill Puppy Farm; Jesus and Mary Chain íslands sagfii einhver.
Veröldin er
veimiltíta
Snarlkassettan svokallaða,
sem á voru lög sex hljóm-
sveita, vakti verðskuldafia
athygli í sumar og seldist
snœldan í 500 eintökum þó
ekki hafi þafi komið fram á
dreifbýlislistanum í DV.
Það var Erðanúmúsík sem
gaf út Snarlsnælduna og á
henni átti hljómsveitirnar Sog-
blettir, Múzzólíní, Gult að
innan, Daisy Hill Puppy Farm,
Parror og S.h. draumur. Á
Snarl 2, sem heitir reyndar
Veröldin er veimiltíta, eru
hljómsveitirnar öllu fleiri, eða
fimmtán alls, tvö lög með
hverri, alls 30 lög. Fimnrr
hljómsveitanna sem lög eiga á
Snarl 2 áttu og lög á fyrri Snarl-
spólunni, Sogblettir, E-X, 16
eyrnahlífabúðir, Daisy Hill
Puppy Farm, Yesminis Pestis,
Óþekkt andlit, Múzzólíní, Syk-
urmolarnir, Blátt áfram, Bleiku
bastarnir, Qtzjí Qtzjí Qtzjí, Balli
og blómálfarnir, Gult að innan,
Mosi frændi, og S.h. draumur.
Allt bílskúrshljómsvöitir nema
Sykurmolarnirog S.h. draumur
sem verður a.m.k. að telja
bílskúrshljómsveitir í stærri
kantinum.
Að sögn prókúruhafa Erð-
anúmúsík urðu þó nokkrar
sveitir frá að hverfa, enda ekki
rúm fyrir mikið meira en 30 lög
á einni spólu. En ef miða má
við viðtökur Snarl 1, má reikna
með Snarl 3 stuttu eftir ára-
mót, enda nóg á seyði í tónlist-
arheiminum annað en það sem
stórfyrirtækin sinna.
Pötuf 6ð
Plötuútgáfa er blómleg um
þessar mundir eins og alltaf
er verifi að tönnlast á og plötu-
sala ekki síður.
Þó er nokkuð erfitt fyrir al-
menning að gera sór grein fyrir
plötusölu, enda er enginn
marktækur sölulisti til um
þessar mundir. DV-listinn svo-
kallaði er orðinn nokkurskonar
dreifbýlislisti og má geta þess
að aðeins eru 150 seld eintök
á bak við plötuna í fyrsta sæti
þessa vikuna en 120 á bak við
plötuna í öðru sæti.
Metsöluplatan hingað til er
plata Bubba Morthens sem hef-
ur þegar selst í um 9000 eintök-
um. Næst á eftir kemur Bjartmar
með rétt innan við 5000 plötur.
Þar á eftir er Megas með á
fjórða þúsund eintök, Ríó tríó
með 2500, Gunnar Þórðarson
með hátt í 2000, Jólagestir
Björgvins með rúm 1500 eintök,
Greifarnir hafa náð 1500 eintök-
um, Jón Múli á þrettánda
hundraðið, Grafík 1100. Aðrar
plötur eru fyrir neðan þúsundið,
mislangt þó.
í framhaldi af þessari upp-
talningu má síöan gera það sér
til gamans að telja upp gullið.
Samkvæmt nýju úthlutunarregl-
unum á gullplötum hefði Bubbi
fengið þrjár gullplötur og eina
platínu, Bjartmar og Megas eina
gullplötu.
í kvöld heldur Smekkleysa
s/m kynningar- og skemmti-
kvöld í veitingahúsinu Duus f
Fischerssundi, þar sem kynnt
verður plötuútgáfa Smekk-
leysu.
Smekkleysa s/m gefur út
fyrir þessi jól plötur með
tveimur af efnilegri rokksveit-
um ársins 1987, Sogblettum
og Bleiku böstunum og því til
viðbótar fá aðdáendur ómeng-
aðrar rokktónlistar loks Luft-
gitar Johnnys Triumphs á
plast. Á kynningartónleikun-
um, sem verða í Duus, koma
því fram Sogblettir, Bleiku
bastarnir og Johnny Triumph,
og leika hljómsveitirnar fimm
lög hver, en Johnny syngur tvö
lög við undirleik Sykurmol-
anna. Fram kemur einnig Hið
afleita þríhjól.
Að sögn aðstandenda
skemmtikvöldsins verður fjöldi
aðgöngumiöa takmarkaður.
Seinni hluta sumars kom út
safnsnældan Snarl, sem á var
tónlist sex neðanjarðarsveita.
í vikunni kom síðan út Snarl
2, og nú eru það fimmtán
hljómsveitir sem eiga tónlist á
spólunni. Síðasta fimmtudags-
kvöld voru tónleikar í Casa-
blanca sem kalla mætti
Snarltónleika, þó ekki hafi þeir
verið haldnir beint til að kynna
Snarlspólu númer 2.
Á tónleikunum komu fram
fjórar sveitir sem allar eiga lög
á snarlspólunni, Óþekkt andlit,
Daisy Hill Puppy Farm, Mosi
frændi og S.h. draumur.
Fyrst á svið voru Óþekkt and-
lit frá Akranesi. Sveitin er skipuð
yngri hljóðfæraleikurum en
flestar þær sem mest hefur
borið á í sumar, en er samt mun
þéttari og betri en margar
þeirra. Þó vantar enn nokkra
breidd í tónlistina. Óþekkt andlit
er búin að fullmóta hinn þétta
gítarhljóm sem einkennir sveit-
ina og það mátti heyra að hún
er að breytast, unditónninn er
orðinn harðari og rokkaðri, sem
lofar góðu.
Á eftir Óþekktum andlitum las
Baldur Kristinsson upp frums-
amin Ijóð. Vísast er það lítið
þekkt ytra að Ijóðalestur tengist
rokktónleikum, en það á þó yfir-
leitt vel við og svo var einnig
þetta kvöld. Ljóð Baldurs eru
með súrrealísku yfirbragði og
það má heyra að hann er undir
áhrifum frá T.S. Eliot og viðlíka
breskum/bandarískum skáldum
frá fyrri hluta sjöunda áratugar-
ins.
Næst á svið (sem var reyndar
ekkert) var Daisy Hill Puppy
Farm. Framan af mátti sjá og
heyra að ekki voru sveitarmenn
ýkja vel undir tónleikana búnir,
enda duttu þeir úr takti í miðjum
lögum og þurftu að nota þrjár
atrennur til að komast af stað í
einu laginu. Framlag þeirra var
enda þannig að á köflum, í einu
og einu lagi, var hljómsveitin
framúrskarandi, en datt síðan
niður í það að vera leiðinlega
tilgerðarleg og þreytuleg. Meiri
samæfing ætti að bæta úr því.
Mosi frændi kom nú á svið
með miklum fyrirgangi, enda
voru sveitarmenn allir afkára-
lega klæddir og málaðir. Sveitin
er sett saman til höfuðs öðrum
hljómsveitum og poppstjörnuí-
myndinni, sem er gott mál í
sjálfu sér, en betra væri ef það
hefði ekki skinið í gegn að með-
limir Mosa frænda vildu ekkert
frekar en verða stjörnur sjálfir.
Aðal sveitarinnar er að leika lög
eftir íslenskar poppstjörnur og
erlendar og afskræma þau. Því
til viðbótar lél sveitin eitt lag
sem Violent Femmes lék inn á
Ljósmynd/BS
Þrjú Óþekkt andlit.
Ljósmynd/BS
Mosi frændi; menntaskólahúmor á fyrsta stigi rotnunar.
plötu og nú bar svo við að af-
skræmingin var ekki viljandi,
heldur vegna getuleysis sveitar-
manna. í því lagi, meðal annars,
mátti glöggt greina hver draum-
ur Mosa frænda er: að slá í
gegn. Menn brostu að sveitinni
í fyrsta laginu, brosið stirðnaði
í því öðru og var horfið í því
þriðja. Það var því kærkomið að
fá S.h. draum á sviðið.
S.h. draumur hefur lengi,
lengi verið í hópi bestu rokk-
sveita á landinu og alla tíð farið
sínar eigin leiðir. Nýlega kom frá
sveitinni smáplatan Drap mann
með skóflu, sem á er meistara-
stykkið Helmút á mótorhjóli, og
væntanleg er platan Goð. Ef
marka má frammistöðu
Draumsins þetta kvöld má búast
við að Goð verði ein af plötum
ársins. Hljómsveitin er öll fram-
úrskarandi þétt og þar fremstur
meðal jafningja trommuleikarinn
Birgir • Baldursson, sem gefur
öðrum sveitarmönnum traustan
grunn. S.h. draumur er í fremstu
röð fyrir lagasmíðar og afbragðs
texta, sem oftar en ekki spegla
mannlífið á óþægilega nær-
göngulan hátt.
Morgunblaðið/Sverrir
Sjón eða Johnny Triumph?
Smekkleysa
kynnir...