Morgunblaðið - 03.12.1987, Side 71
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1987
71
4-
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12 •
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Heilsubælið er
stórkostlegt
Til Velvakanda.
Það er nú oft svo að þegar mað-
ur opinberar nekt heimsku sinnar,
með því að skrifa í blöðin, og opnar
gáttina fyrir gagnrýni annara er
ekki opinbera, að maður missir þá
að þeirra mati ákveðin status,
hversu rétt sem það nú er.
En ég get ekki orða bundist og
viðurkenni hér með að þátturinn
um Gervaheimilið er vægast sagt
stórkostlegur.
Ekki bara það að maður afstress-
ast, líkt og fara í badminton eða
knattspymu, að njóta þessa þáttar,
heídur gefur hann ómælda ánægju
óg er í ofanálag hættulaus með öllu.
Mér fínnst að þáttaröðina eigi
að gefa út á myndbandi svo eðlilegt
fólk geti skoðað það nokkrum sinn-
um og er ekki í minnsta vafa að
Gervaheimilið muni þá sanna gildi
sitt.
Þessi þáttur gefur ekkert annað
en ánægju til þeirra er kunna að
meta og aðrir geta þá misskilið
hann eins og svo kannski ýmislegt
annað.
Ég leyfi mér, fýrir hönd þeirra
er lifa fyrir lífið sjálft og þjást ekk-
ert ægilega mikið, að þakka þeim
listamönnum er standa að gerð
þáttanna og vil endilega sjá þá
áfram leika af fíngrum fram.
Helgi Steingrímsson
Ráðhús sem fyrst
Til Velvakanda.
Ég er 67 ára og hef alið aldur
minn hér í Reykjavík og svo lengi
sem ég man hefur borgarstjómin
hokrað í leiguhúsnæði í apóteki, sem
einhver borgarstjóri, sem fáir núlif-
andi menn muna, sennilega Knud
Ziemsen, hefur á sínum tíma tekið
á leigu til bráðabirgða. Mikill manns-
bragur er að því, að borgarstjómin
undir forystu Davíðs Oddssonar skuli
nú ætla að byggja ráðhús. Og mikil
lifandis ósköp er ég feginn, hvað vel
hefur tekizt til með að velja því stað.
Tjömin á það skilið að þetta sé fyrir
hana gert. Húsið er lítið og fallegt
og fer vel og ekkert ráð betra var
hægt að fínna til að vemda og veija
Tjömina en að setja borgarstjómina
sjálfa á eilifðarvakt á þessum stað.
Ég hef mest unnið við húsbygging-
ar um dagana og oft blöskrað
seinagangur við stórbyggingar. Og
engu líkara er en þetta fari versn-
andi, þrátt fyrir allar tæknifram-
farimar. Ég treysti því að ráðhúsið
rísi hratt og það margborgar sig
peningalega, þótt það kosti einhveij-
ar krónur til viðbótar meðan á
framkvæmdum stendur.
Bjarni Steingrímsson
lciU
n'lsJ<>l nuincssei
Sól á heimsenda
Saga eftir Matthías Johannessen
Enn leggur Matthías á nýjar leiðir og sendir frá sér
alllanga sögu.
Hvemig tekst Ijóðskáldinu upp við sagnagerð?
é
bók
góð bók
VIISTIIIIM (iLÆSILEGRA
JÓLAHLABBORB?
NÆSTIIÞRJÁB HELCAR
Við verðum með glöðu geði við plmörgum áskorunum gesta okkar
um að endurtaka jólahlaðborðið sem við buðum upp á í desember sl.
og á 2. þúsund manns komu til að gæða sér á.
Við byijum í kvöld til næsta sunnudags svo og helgamar 10.-14.
des. og 17.-2L, öll kvöld ogeinnig í hádegi laugardaga og sunnudaga.
/ /
HATIBARMATSEÐILL
GLIÁÐ REYKT GRÍSALÆRI (m/rauðvínssósu)
VILLIBRÁÐARPATÉ (m/Cumberlandsósu)
PÖNNUSTEIKT HREINDÝRABUFF (m/tyttebeijasósu)
POTTRÉTTUR AÐ HÆTTIHÚSSINS
(m/kiyddhrísgijónum oggrófu brauði)
JÓLAHANGIKJÖT (m/uppstúfi, grænum baunum og rauðkáli)
FYLLTAR SKINKURÚIÍUR (m/sinnepsmauki)
SVÍNARÖLLUPYLSA (m/kjöthlaupi og steiktum lauk)
BLANDAÐIR SÍLDARRÉTTIR (m/rógbrauði)
Karrýsíld, Creamfrechsíld, appelsínusíld, sherrysíld.
BLANDAÐIR SJÁVARRÉTTIR í HVÍTVINSHLAUPI
GRAFIN SMÁLÚÐA (m/sinnepssósu)
REYKSOÐINN KARFI (m/piparrótarsósu)
/ /
ANNAB HATIBARMEÐLÆTI
Gratineraðar kartöflur,
rauðkál, ávaxtasalat (kalt), hrásalat, kartöflusalat, brauðkörfur,
heit hrísgrjón, súpupottur.
EFTIRRTETrm HLADBORBSINS
MOKKABÚÐINGUR
HRÍSGRJÓNAMÖNDLUBÚÐINGUR
SÚKKULAÐIMÚS
ÁVAXTAHLAUP
ÓKEYPIS FTRIR BÖRN Afi SEX ÁRA ALDRI,
HÁLFTVERB FYRIR6-12 ÁRA.
FYRIR ÞESSA ÓTRÚIEGC VEISLU ER GREIIT
JÓLAGJAFAYER9KR. 1050,
MM
matarhöll fjölskyldunnar,
HÚSIVERSLUNARINNAR - S. 685018 - 33272.
rn ijíjIs i9 yo blöjji (_
nij^l
M