Morgunblaðið - 08.12.1987, Page 3

Morgunblaðið - 08.12.1987, Page 3
í'tnnv'!':n J’í'il' /iV H( 5M HCtA19H’l,öM(')Vt. MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987 3 GYWGBQNBáL IDAG? ÆVIDAGAR ffgS SETBERG Freyjugötu 14 Sími 17667 SAGNASNILLD A HEIMSVISU KRISTIN LAFRANZDÓTTIRI-III Sigrid Undset Þegar þetta mikla verk Nóbelsskáldsins var lesið af Helga Hjörvar í útvarpi tæmdust götur bæja og borga, slíkar voru viðtökur íslenskra hlustenda. í sögunni sem gerist á íjórtándu öld flæðir lífið í fang lesandans í allri sinni flölbreytni. Við fylgjumst með Kristínu sem ung hittir Erlend, örlagavaldinn í lífi sínu, ástarsögu þeirra og þeim miklu sviptingum sem eiga sér stað í kringum hana. Ný og glæsileg útgáfa þýðingar Helga Hjörvar og Arnheiðar Sigurðardóttur á þessari stórbrotnu ástar- og ættarsögu, sem varð öðru fremur til þess að Sigrid Undset hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels. ÞRÆLLINN_____________________________________ Isaac Bashevis Singer Enn lyftir Nóbelsskáldið frásagnarlist sinni í nýjar hæðir með stórbrotinni sögu um djúpan harm og sterkar ástríður. Jakob hefur misst konu sína og börn í gyðingaofsóknum, flúið, en verið hnepptur í ánauð. Þar þjónar hann guði sínum, staðráðinn í að standast allar raunir og freistingar, - holdsins jafnt sem andans. Til sögunnar kemur Wanda, ung ekkja, afbragð annarra kvenna... Ein blæbrigðaríkasta bók Singers, þrungin dramatískri spennu og hraðri atburðarás. ALÍSLENSKAR ENDLRMINNINGAR „SKYLDU ÞEIR RÓAI DAG?“ ÆVIDAGAR TÓMASAR ÞORVALDSSONAR ÚTGERÐARMANNS Gylfi Gröndal Síðara bindi sögu Gylfa Gröndal af minningum Tómasar hefst á hernámsárunum og segir síðan frá óvenju farsælu og hetjulegu starfi björgunarsveitarinnar Þorbjörns í Grindavík, m.a. Clamstrandinu fræga. „Ég er nú að nokkru lagstur til hlés“ segir Tómas. „Enn er þó hugurinn sem tyrr bundinn sjónum, og á hverjum morgni vakna ég með sömu spurninguna á vörum: Hvernig er veðrið? Skyldu þeir róa í dag“? Vönduð saga sjómanns og útgerðarmanns sem þekkir sjóinn, hvað hann tekur og hvað hann gefur, prýdd 80 myndum. ÉG MANÞÁTÍÐ Hermann Ragnar Stefánsson Við gerð hinna vinsælu útvarpsþátta, „Ég man þá tíð“, hefur Hermann Ragnar kynnst íjölda athyglisverðra íslendinga víðs vegar af landinu. í þessari skemmtilegu bók er spjall Hermanns Ragnars við átta úr þessum stóra hópi; fólk af ólíku bergi brotið sem hefur frá mörgu fróðlegu að segja. Allt efni bókarinnar, sem geymir fjölda mynda, er nýtt af nálinni. Athyglisverð bók um athyglisvert fólk. \sooc m 'IM. diupon^09

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.