Morgunblaðið - 08.12.1987, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987
LISTAR
í fjölbreyttu úrvalí
Gólflistar- loftlistar
skillistar
' U
Höföatúni 2, Reykjavík. Sími 22184
Siwamat 5830þvotta-
vélin frá Siemens
fyrir vandlátt fólk
• Frjálst hitaval.
•Áfangaþeytivinding fyrir allan
þvott, líka ull. Mesti vindu-
hraði 1200 sn./mín.
• Sparnaðarkerfi þegar þvegið
er í hálffylltri vél.
• Skyndiþvottakerfi fyrir íþrótta-
föt, gestahandklæði og annað
sem lítið er búið að nota.
• Hagkvæmnihnappur til að
minnka hita og lengja þvotta-
tíma: Sparar rafmagn.
• Hægt er að fá þurrkara með
sama útliti til að setja ofan á
vélina.
• Allar leiðbeiningar á íslensku.
Hjá SIEMENS eru gæðl, endlng
og fallegt útlit ávallt sett á
oddlnn.
Smith og Norland
Nóatúni 4,
s. 28300.
MikiWsogkrafturenhljóðíatur
mótor. Fóthnappur-
Tveir auka hausar.
Pessi er 9°a____________
iolahreingem'nS-*1"*
m,öaöviösiaögreK>siu
Ráðgerð byggð á Valhúsahæð. Kort birtist upphaflega í fréttabréfi
Hagvirkis.
Hagvirki byggir 18
hús á Valhúsahæð
Á í viðræðum um lóðir undir 180
íbúðir til viðbótar
HAGVIRKI h/f hefur fest kaup
á átján byggingarlóðum í eigu
Seltjarnarnesbæjar. Lóðimar
era á Skólabraut við vestan- og
austanverða Valhúsahæð. Þar
hyggst fyrirtækið reisa
160- 180 fermetra einbýlisshús
í tveimur fjögurra og tveimur
fimm húsa þyrpingum. Síðar
ráðgerir fyrirtækið að byggja
180 íbúða hverfi í Kolbeins-
staðamýri, miili Vegamóta og
Nýjabæjar.
Samningur Hagvirkis við Selt-
jamamessbæ gerir ráð fyrir að
fyrirtækið byggi húsin og skili
þeim fullgerðum að utan og með
frágengnum lóðum. Að sögn Jó-
hanns G. Bergþórssonar forstjóra
Hagvirkis verður hafist handa við
jarðvinnu á næstu dögum ef tíðar-
far leyfir og er ráðgert að afhenda
kaupendum fyrstu húsin, fokheld
að innan, næsta haust. Aætlað er
að öllum framkvæmdum við þessar
byggingar verði lokið snemma á
árinu 1989.
Að sögn Sigurgeir Sigurðssonar
bæjarstjóra á Seltjamamesi er
umsamið kaupverð lóðanna yfír 20
milljónir. Sigurgeir sagði að gert
væri ráð fyrir þessari byggð á stað-
festu aðalskipulagi Seltjamamess
og jafnframt að til stæði að friða
þann hluta Valhúsahæðarinnar
sem enn er óbyggður að fram-
kvæmdunum loknum. Þá sagði
Sigurgeir að bæjarstjóm hefði
gengið svo frá samningum að
framkvæmdum yrði hraðað svo
sem mest mætti verða til að rask
og óþægindi þeirra vegna yrðu í
lágmarki.
Auk lóðanna við Valhúsahæð
hefur Hagvirki tryggt sér land
undir um það bil 180 íbúðir í Kol-
beinsstaðamýri við Nesveg, milli
Vegamóta og Nýjabæjar. Samn-
ingar standa yfír við landeigendur.
Þar mun Hagvirki ganga endan-
lega frá skipulagi, gera götur og
búa svæðið undir byggingu bland-
aðs hverfis með fjölbýlis-, par-,
rað- og einbýlishúsum. Jóhann G.
Berþórsson sagði að með þessu
væri fyrirtækið að tryggja sér
langtíma verkefni utan útboðs-
markaðar. „Vonandi verður þetta
fyrsti vísir að því að uppbygging
íbúðahverfa hérlendis færist af ein-
yrkjastiginu, og í það horf sem,
tíðkast víðast hvar erlendis, að
verktakafyrirtæki annist byggingu
heilla hverfa og beri á þeim
ábyrgð," sagði Jóhann G. Berg-
þórsson.
í dag, þriðjudaginn 8. des., verður staddur á skrif-
stofu okkar ráðgjafi frá 0MIA í Frakklandi og mun
hann svara fyrirspurnum um OMIA-sprautuklefa.
Komið á skrifstofuna eða hringið og fáið upplýsing-
ar. Heitt á könnunni.
Gísli Jónsson og Co hf.,
Sundaborg 11, sími 68664-4.