Morgunblaðið - 08.12.1987, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987
17
Athugasemd við grein Kristínar
Einarsdóttur, alþm., um stóriðju
RAFORKUVERÐ TIL IÐNAÐAR
í HÖFUÐBORGUM V-EVRÓPU 1986
kr/kWtt
5
AFLTOPPUR 500 kW
NÝTINGARTÍMI 4000 klst.
ÁRSORKA 2.0 GWlt
Dk No Íb Fl Sv Au ít Pý Ho ír Sw Bo Pó Lú Gr Sp En Fr Sk
NORÐURLÖND ÖNNUR V-EVRÓPULÖND
kr/kWst
8 ■
AFLTOPPUR 100 kW
NÝTINGARTÍMI 1600 klst.
ÁRSORKA 160.000 kWst
O SKATTAR
M ÁN SKATTA
i. Fl Dk No Sv Au it Pý ir B« Ho Lú Sw Pó Sk Fr Gr En Sp
NORÐURLOND
ÖNNUR V-EVRÓPULÖND
eftirHalldór
Jónatansson
Miðvikudaginn 2. þ.m. birtist í
Morgunblaðinu erindi það, sem
Kristín Einarsdóttir, alþingismaður,
flutti á ráðstefnu sem Verkfræð-
ingafélag íslands efndi til 26.
nóvember sl. um stóriðju. Erindi
Kristínar fjallaði um „stóriðju, um-
hverfí og félagslega röskun“. í
erindi Kristínar felast m.a. eftirfar-
andi staðhæflngar:
a. Verð það sem almenningur
hér á landi greiðir fyrir raforku er
með því hæsta sem gerist miðað
við nágrannaþjóðimar.
b. Innlend fyrirtæki eru látin
greiða niður orkuverð til útlend-
inga.
Halldór Jónatansson
Hér er í báðum tilvikum um rang-
ar staðhæfíngar að ræða, sfcr.
eftirfarandi:
1. Rafmagnsverð til almenn-
ings. Rafmagnsverð til heimila hér
á landi er mjög sambærilegt við það
sem gerist á Norðurlöndum og
lægra en annars staðar í Vestur-
Evrópu. Er þetta í samræmi við
niðurstöður ítarlegs samanburðar,
sem Samband íslenskra rafveitna
gerði á rafmagnsverði 1986 hér á
landi og í öðrum Evrópulöndum,
sbr. súlnaritið á mynd 1. Áthugun
þessi hefur ekki enn verið endur-
skoðuð en margt bendir til að síðan
hún var gerð hafí rafmagnsverðið
hér á landi lækkað í samanburði
við þau erlendu. Er ástæðan einkum
sú að rafmagnsverðið hér á landi
hefur farið lækkandi að raungildi,
á meðan það hefur staðið í stað eða
hækkað að raungildi í nágranna-
löndunum.
2. Rafmagnsverð til iðnfyrir-
tækja. Uni sarrianburð á rafmagns-
verði til iðnfyrirtækja hér á landi
og í öðrum Evrópulöndum gildir það
sama og kemur fram hér á undan
um verðið til heimila, sbr. súlnaritin
á mjmd 2.
Af erindi Kristínar má ráða að
hún standi í þeirri meiningu að raf-
magnsverðið til ISAL valdi hækkun
á rafmagnsverði til annarra iðnfyr-
irtækja og almennings. Orkustofn-
un gerði athugun hér að lútandi
1983 að ósk þáverandi iðnaðaráð-
herra og komst að þeirri niðurstöðu
að ekki væri hægt að halda því fram
með réttu að almenningi væri gert
að greiða hærra rafmagnsverð en
ella vegna rafmagnssölunnar til
ISAL, en yrði rafmagnsverðið til
ISAL ekki hækkað í náinni framtíð
væru allmiklar líkur á að svo mundi
fara. Nokkru síðar náðust samning-
ar við ISAL, sem leiddu til tvöföld-
unar á verðinu til ISAL, þ.e. úr
6,475 mill/kWst í verð á bilinu
12,5 mill/kWst og 18,5 mill/kWst,
en það er nú samkvæmt hlutaðeig-
andi verðbreytingarákvæði tæp 15
mill/kWst. Með þeim samningi var
því loku fyrir það skotið að raf-
magnsverðið til ISAL geti orðið
íþyngjandi fyrir almenning og
reyndar er því þveröfugt farið.
Höfundur er forstjóri Landsvirkj-
unnr.
RAFORKUVERÐ TIL HEIMILA
í HÖFUÐBORGUM V-EVRÓPU 1986
□ SKATTAR
□ ÁN SKATTA
Falleg gjöf, sem vekur til umhugsunar.
VIÐ BJÓÐUM Í»ÉR ÞRJÁR TEGUNDIR AF STJÖRNUKORTUM
MEÐ ÖLLUM KORTUNUM FYLGIR SKRIFLEGUR TEXTI
Hvað gerist nœstu tólf mánuðl?
Framtíðarkortið segir frá hverjum mánuði,
bendir á jákvæða möguleika og varasama
þætti. Hjálparþérað vinna með lífþitt á
uppbyggilegan hátt og finna rétta tímann
tilathafna.
PERSONUKORT
Lýsir persónuleika þínum, m.a.:
Grunntóni, tilfinningum, hugsun, ást og
vináttu, starfsorku og framkomu. Bendir á
hæfileika þína, ónýtta möguleika og
varasama þætti.
Öll kortin okkar eru unnin af
Gunnlaugi Guðmundssyni,
stjörnuspekingi og miðast við
reynslu af fslenskum
aðstæðum.
- Samanburður á kortum tveggja einstaklinga
Hvernig er samband þitt við maka þinn og nána vini?
Hvernig semur þér við börnin þín?
Ertu viss um að þú þekkir þarfir fólksins, sem þú umgengst
mest í daglegu lífi?
Samskiptakortið er eitt kort, sem lýsir persónuleika ykkar
beggja og því, hvernig þið eigið saman - bendir á kosti og
galla og hjálpar ykkur að skilja og virða þarfir hvors annars.
VIÐ BJOÐUM EINNIG:
Bækur:
Allar nýjustu íslensku bækurnar um sjálfsrækt m.a. sálfræði,
heiisurækt, mataræði o.fl. Auk þess fjöldi nýrra erlendra bóka
um stjörnuspeki og jákvæðan lífsstíl.
Kassettur:
Tónlist til afslöppunar og spennulosunar.
***. *** -k
Líttu við eða hringdu í síma 10377 og pantaðu kort!
Opið alla virka daga frá kl. 10-18 e.h., laugardaga kl. 10-16 e.h.
★ *
*
STÍURNUSREKÍ__
UÐSTOÐI
* ^
*
LAUGAVEGI 66,
SÍM110377.