Morgunblaðið - 08.12.1987, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987
I
NotaAu símann þinn
beturl
Hringdu í Gulu línuna og
fí Au ókeypis upplýslngar
um vörur og þjónustu.
DÆMI:
Arkitekt, arinhleðslu, antikvörur,
áklæði, álsmiði, baöherbergisvörur,
baðtækni, barnavörur, bilavarahluti,
bílaviðgerðir, bókhaldsþjónustu,
blóm, borðbúnaðarleigu, bókbind-
ara, bruggefni, byssuviðgerðir,
byggingavörur, danshljómsveit,
dráttarbeisli, dúklagningamenn,
dúkkuviðgeröir, eldhústæki, farsima,
fatabreytingar, fiskvinnsluvélar,
flisalagnir, frystihólf, förðun, föndur-
vörur, gardinur, gardinuhreinsun,
gámaþjónusta, ginur, gler, gluggaút-
stillingar, gullsmið, gúmmíbát,
gúmmifóðrun, húsasmið, húsgagna-
smið, hljóðfæraviðgerðir, hótelvör-
ur, húsgagnasprautun, innanhúss-
arkitekt, innheimtuþjónusta,
innflutningsaðstoð, innrömmun,
járnsmiði, kennslu, kúnststopp, leð-
urhreinsun, lekaviðgerðir, Ijósmynd-
un, loftræstikerfi, lögfræðing,
markaðsráðgjöf, málverka viðgerðir,
mótorhjólakennslu, múrara, mynd-
bandsþjónustu, orgelviðgerðir,
olíuúðun, peningaskápa, pianóstill-
ingar, pipulagningamenn, plexigler,
prentþjónustu, raftækjaviðgerðir,
rafvirkja, reykskynjara, ritvinnslu,
ryðvörn, ræstingu, samkomusal,
saumakonu, silkiprent, sjónvarps-
viðgerðir, sjónvörp, skallameðferð,
skattaaðstoð, skemmtikraft, skjala-
þýðanda, skrifstofuvélar, skrifstofu-
húsgögn, skrifstofuþjónustu,
skósmið, snjóbræðslukerfi, snyrt-
ingu, sorplúguhreinsun, stálvaska-
slipun, stiflulosun, svefnherbergis-
húsgögn, skerpingar, teikningu,
tiskuvörur, tollskýrslugerð, trésmið,
tölvuskráningu, úrbeiningu, útgáfu-
þjónustu, varahtuti, vatnsrúm, veit-
ingar, veitingahúsavörur, verka-
menn, verkfæri, vélaþvott, vélritun,
vélsmiðju, vinnugalla, þjófavarnar-
kerfi, þúsundþjalasmiö, þýðingar,
ökukennara.
62 33 88
Enrlunninning-
ar Þrastar Sig-
tryggssonar
BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örl-
ygur hefur gefið út bókina
Spaugsami spörfuglinn, þar
sem „Þröstur Sigtryggsson
skipherra lýsir lífshlaupi sínu
í léttum dúr og skopast bæði
að sjálfum sér og samferða-
mönnum.“ Sigurdór Sigurd-
órsson blaðamaður skráði.
í kynningu útgefanda segir
m.a.: „Þröstur Sigtryggsson skip-
herra hefur starfað hjá Land-
helgisgæslunni í hartnær 40 ár
og sem sjómaður nokkuð lengur.
Þröstur hefur frá mörgu að
segja, allt frá grátbroslegum at-
vikum í landlegum til grafalvar-
legra atburða þegar átökin voru
sem hörðust um landhelgina.
Þröstur er virtur skipherra og
tekur starf sitt alvarlega, en hann
er jafnframt húmoristi og sögu-
maður eins og þeir gerast bestir.
Hann er einn þeirra fáu manna
sem alltaf sjá spaugilegu hliðam-
ar á tilverunni. Fyndni Islendinga
er oft á kostnað annarra en þeirra
sem sögumar segja. Þröstur Sig-
tryggsson hefur þann sjaldgæfa
eiginleika íslensks húmorista að
geta einnig gert grín að sjálfum
sér. Það gerir hann í þessari
minningabók sinni. Hann segir
líka drepfyndnar sögur af
skemmtilegum samferðamönnum
sínum til sjós og lands. Þessi bók
er ekki ævisaga í venjulegri
merkinu, hún er fyrst og fremst
frásögn af því sem Þresti hefur
þótt merkilegast og skemmtileg-
ast um ævina. Það á margur eftir
að lesa með athygli frásagnir
skipherrans á alvarlegum stund-
um í landhelgisgæslunni. Það
eiga líka margir eftir að skella
upp úr við lestur bókarinnar þeg-
ar Þröstur segir frá því spaugi-
lega af honum sjálfum og
samferðamönnum sínum.
Á bókarkápu segir að snemma
á sjómannsferli sínum hafi Þröst-
ur fengið gælunafnið Spörri,
dregið af spörfugl, og að nafn
bókarinnar sé ekki nein tilviljun."
„ÞIJ FÆRÐ EKKI
JAFN GÓÐA POTTA
MEÐ EINS ERFITT NAFIV„
Skúli Hansen matreiöslumeistari á Arnarhóli
notár Tischfein potta í matreiðsluþáttunum á Stöð 2.
.<
co
13
2
O
Sért þú í vandræðum með pottana þína; brenni við í
þeim, séu þeir lengi að hitna, orðnir Ijótir, höldurnar
brotnar af, þá skaltu athuga Tischfein pottana.
Tischfein - Vestur-þýsk gæði
Tischfein pottar og pönnur eru úr gæðastáli sem þola
allar uppþvottavélar. Höldurnar færðu annað hvort úr
stáli eða úr hitaþolnu þlasti. Stálhöldurnar þola hvaða
ofn sem er.
Hollari og betri matur með Tischfein
Tischfein pottar og pönnur eru sérstaklega hönnuð til
að leiða vel hita, og hitna því á mettíma. Einnig þarf
mjög lítið vatn við suðu sem þýðir að lítið tapast af víta-
mínum. Við steikingu er hægt að komast af með lág-
marks fitu og engar aukahitaeiningar veröa í fæðunni.
Frábær hönnun á Tischfein
Tischfein pottarnir þykja fallegir á borði og ekki að
ástæðulausu, því hönnun Tiscfein er sérlega vönduð
og smekkleg.
TISCHFEIN POTTAR OG PÖNNUR
- eilífðarlausn í eldhúsinu.
Heildsölubirgöir Útsölustaður:
JÓHANN ÓLAFSSON & CX). HF. ■Tf GJAFAVÖRUR
Sundaborg 13, 104 Rvík. Qj Hringbraut 121