Morgunblaðið - 08.12.1987, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987
• •
Oryggismála-
nefnd:
Ritgerð um
þróun af-
vopnunar-
mála
Öryggismálanefnd hefur
gefið út ritgerðina Þróun af-
vopnunarmála eftir leiðtoga-
fundinn í Reykjavík, eftir
Albert Jónsson stjórnmáiafræð-
ing og framkvœmdasljóra
öryggismálanefndar. Ritgerðin
er gefin út núna í tilefni af leið-
togafundi risaveldanna í
Washington.
í fréttatilkynningu frá öryggis-
málanefnd segir: „I ritgerðinni er
fyrst fjallað um sjálfan Reykjavík-
urfundinn, stöðu mála fyrir fund-
inn, viðræðumar sem þar áttu sér
stað og niðurstöður fundarins.
Síðan er rakin þróun mála í af-
vopnunarviðræðum risaveldanna
frá Reykjavíkurfundinum og þar
til núna síðustu dagana fyrir leið-
togafundinn í Washington og rætt
um líkur á árangri í viðræðum leið-
toganna þar. Sérstaklega er fjallað
um aðdraganda og innihald samn-
ingsins um eyðingu meðaldrægra
og skammdrægra kjamaflauga
sem undirritaður verður á Wash-
ington-fundinum, hvaða áhrif
samningurinn kann að hafa á
framhald afvopnunarviðræðna og
hvort líkur séu á að hann leiði til
fjölgunar kjamorkuvopna á höfún-
um.
Ritgerðin er i fyölriti og er 38
ERLENT
Frá' æfingu Pólýfónkórsins á Messíasi í Vörðuskóla. . Morgunbiaðið/Bjarni
Pólýf ónkórinn:
Flytur Hándel í Hallgrímskirkju
Pólýfónkórinn mun flytja grímskirkju sunnudaginn 12. verður flutt með hljómsveit og
Messías eftir Hándel í Hall- desember kl. 17:00. Verkið einsöngvurum, en stjórnandi
íslendingar, Norðmenn, Svíar og Danir:
Tvítugir og yngri á skákmóti
Keppnin fer fram í Sandnesi í Noregi
ÍSLENSKIR, norskir, sænskir og
danskir skákmenn, tvítugir og
yngri, leiða saman hesta sína á
móti í Sandnesi í Noregi dagana
11. til 13. desember nk., að sögn
Ólafs H. Ólafssonar hjá Skák-
sambandi íslands.
Keppt verður í tveiinur flokkum,
20 ára og yngri og 16 ára og yngri.
í flokki 20 ára og yngri verða Þröst-
ur Þórhallsson (2420 Elostig),
Andri Áss Grétarsson (2280 Elo-
stig), Davíð Ólafsson (2265 Elo-
stig), Tómás Björnsson (2170
Elostig), Arnar Þorsteinsson (2135
Elostig) og Snorri G. Bergsson
(2110 Elostig). í flokki 16 ára og
yngri keppa hins vegar Hannes
Hlífar Stefánsson (2390 Elostig),
Þröstur Árnason (2260 Elostig),
Sigarður D. Sigfússon (2155 Elo-
stig) og Héðinn Steingrímsson
(2145 Elostig).
verður Ingólfur Guðbrands-
son.
Þetta er í annað sinn sem Pólý-
fónkórinn flytur Messías í Hall-
grímskirkju, I fyrra söng kórinn
verkið við undirleik Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands, og voru þeir
tónleikar teknir upp, og gefnir út
á geisladisk og híjómplötu í fyrri
viku.
Nú á sunnudaginn verður
hljómsveit og allur flutningpir á
vegum Pólýfónkórsins, og fjórir
einsöngvarar koma fram. Þrír
þeirra eru nú að ljúka söngnámi
hjá Sigurði Demetz, en það eru
þau Inga Bachmann, sópran,
Sigríður Elliðadóttir, alt, og Gunn-
ar Guðbjörnsson, tenór. Auk þeirra
syngur bassasöngvarinn William
McKee frá Englandi.
Stofnuð samtök um sorg og sorgarviðbrögð:
Besta hjálpin er
að tala um sorgma
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð verða stofnuð S Reykjavík
í kvöld, þriðjudagskvöld. Sorg og dauði hafa verið allmikið til
umræðu í þjóðfélaginu að undanförnu. Nokkrir einstaklingar,
sem hafa átt um sárt að binda vegna ástvinamissins, hafa undir-
búið stofnun samtakanna og hefur þeim lengi verið ljós þörfin
fyrir slík samtök. Þarna er einnig um að ræða fagfólk; til dæm-
is lækna, presta og hjúkrunarfræðinga. Jóna Dóra Karlsdóttir
er ein þeirra er hefur starfað að þessum undirbúningi og greindi
nánar frá honum í spjalli við blaðamann Morgunblaðsins. Maður
hennar er Guðmundur Arni Stefánsson, en þau hjón misstu tvo
syni sína í bruna fyrri tæpum þremur árum.
-Við, sem höfum orðið fyrir því
að missa ástvini, höfum öll fundið
að eitt af því sem helst hjálpar
við að yfírvinna sorgina er að tala
við einhvem, sem hefur lent í
svipuðum aðstæðum. Við spjölluð-
um mikið saman tvær, sem höfum
kynnst sorginni, og ákváðum að
hafa upp á fleira fólki, sem hefði
áhuga á að reyna að hrinda í fram-
kvæmd þessari hugmynd, þ. e.
að koma á fót einhvers konar fé-
lagsskap tengdum ástvinamissi.
Og núna, ári seinna, er þetta að
verða að veruleika.
Að forðast ekki
Geta vinir og ættingjar lítið
hjálpað í þessum aðstæðum?
-Vissulega geta þeir hjálpað,
en þeir eru líka harmi slegnir og
þess vegna vill það oft verða þann-
ig að viðkomandi leitar út fyrir
Qölskyldu og nánasta vinahóp.
Hvernig geta þeir hjálpað?
-Til dæmis með því að forðast
ekki þann sem er í sorg, tala um
hinn látna og deila þannig sorg-
inni með fólkinu. Öllum þótti
okkur gott að fá að tala og aftur
tala og þá er ekki svo lítils virði
að einhver góður hlustandi sé til
taks, einhver með skilning og
svipaða reynslu að baki.
Hugmynd okkar með stofnun
samtakanna er sú, að geta veitt
þessa þjónustu á skipulegan hátt,
að þeir sem eiga um sárt að binda
geti komist í samband við ein-
hvetja sem vilja koma til aðstoðar.
Við höfum leitað til sérfræðinga,
til dæmis fengið sr. Sigfinn Þor-
leifsson sjúkrahúsprest í lið með
okkur og Pál Eiríksson geðlækni,
einnig félagsráðgjafa og hjúkr-
unarfræðinga. Fólk í sorg gerir
sér ekki alltaf grein fyrir því hven-
ær eða hvort þörf er að leita
aðstoðar sérfræðinga og þess
vegna teljum við nauðsynlegt að
hafa þá með í ráðum og geta vísað
á þá.
Við ráðgerum að koma upp
símaþjónustu og okkur hefur ver-
ið boðin aðstaða til þess á
Borgarspítalanum. Þar yrði hugs-
anlega eitthvert okkar til viðtals
ásamt með fagfólki. En þetta er
nokkuð sem skýrist betur á næst-
unni.
Bregðast margir við sorginni
á svipaðan hátt?
-Mér persónulega virðist flestir
bregðast mjög líkt við missi ást-
vinar, en það fer eftir því hvernig
fólki tekst að komast í gegnum
fyrstu mánuðina hvort því tekst
að lifa síðar eðlilegu lífi. Og það
er eins misjafnt og við erum mörg.
Hvað eru menn lengi að ná
sér?
-Það er mjög misjafnt. En það
er talið algengt að það taki allt
að tvö ár að ná fyrra jafnvægi
áður en við getum til dæmis að-
stoðað aðra. En þetta ræðst mikið
af aðstæðum. Hvernig taka hjón
missi barns síns? Geta þau talað
saman um það sem gerst hefur?
Geta þau bæði talað um sorgina
eða lokar annað þeirra sig af?
Styrkir þetta hjónabandið eða
Morgunblaðið/Þorkell
Jóna Dóra Karlsdóttir er ein þeirra er undirbúið hafa stofnun
samtaka um sorg og viðbrögð við henni.
sundrar þvf? Þama getur allt gerst
og við hjónin vorum svo lánsöm
að við gátum saman borið harm
okkar og líka talað um hann við
aðra.
Þama skiptir líka máli hvað á
undan hefur gengið. Eg er ekki
frá því að aðstandendur langvar-
andi veikra sjúklinga, sem deyja
síðan, standi að ýmsu leyti verr
að vígi en þeir sem verða fyrir
snöggu áfalli. Hjá þeim hefur svo
mikil orka farið í umönnun sjúkl-
ingsins og baráttuna með honum
að þrek þeirra er orðið lítið þegar
dauðinn vitjar.
Ekki feimnismál
Er sorgin feimnismál?
-Fram að þessu hefur hún verið
það, en á ekki að vera það og
ekki síst vegna þess erum við að
koma it fót þessum samtökum.
Sem fyrr segir á að halda stofn-
fund samtakanna í kvöld. Hefst
hann kl. 20.30 og fer fram í
Templarahöllinni við Eiríksgötu í
Reykjavík. Ræddar verða hug-
myndir um hvemig samtökin
gætu best starfað og- reynt að
finna þeim nafn. Jóna Dóra segir
að hliðstæð samtök starfi víða
erlendis, séu til dæmis mjög öflug
í Bretlandi og sagði hún hugsan-
legt að leitað yrði samstarfs við
þau. Einnig er hugmyndin að gefa
út bækling, standa fyrir nám-
skeiðum og fleiru. Þá sagðist hún
vonast til að samtökin myndu
ekki aðeins starfa á höfuðborgar-
svæðinu heldur að mögulegt yrði
einnig að koma á hópum úti á
landi.