Morgunblaðið - 08.12.1987, Síða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987
listræn hönnun til sóma hverju heimili
Ný og stórglæsileg útfærsla á hinum vinsæla
FIGGJO-heimilisboröbúnaöi. Litaskreytingin er undir
glerungi og endist þvi ótakmarkaö.
BLÁKLUKKAN hefur fengið gæðastimpilinn V555 sem þýðir:
• Engin hætta á sprungum í glerungi
• Þolir vel alla venjulega meöhöndlun, uppþvottavélar
og örbylgjuofna.
1 ARS ABYRGÐ
Veröur þú svo óhepþin(n) aö brjóta hlut úr stellinu bætum viö þér
skaðann þér aö kostnaðarlausu - jafnvel þótt sökin sé þín.
Ræi°
yœdcuMaveqttci
UTSÖLUSTAÐIR:
Verslunin KÚNIGÚND, Skólavörðustíg 6-Sími: 1 34 69
Verslunin RÓM, Tjarnargötu 3, Keflavík-Sími: 3308
Sumt sem ekki
á samleið með
mannlífinu...
Bókmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Kristján Jóhann Jónsson: Undir
húfu tollarans
Útg. Iðunn 1987.
Ef Undir húfu tollarans er dæmi-
saga úr íslenzku þjóðfélagi, einkum
þó Reykjavík væntanlega, er óhætt
að fullyrða, að höfundur lítur ekki
beinlínis björtum augum á um-
hverfi sitt, en ritfæmi hans verður
ekki dregin í efa. Við þessa sögu
kemur aragrúi persóna, slíkur að
maður verður lengi framan af að
hafa sig allan við að átta sig á
hver er hvað og hver er skyldur
hveijum. Þetta blessast sem betur
fer, en það er bágt ástandið á öllum
þessum fjölskyldumeðlimum.
Eilífur sem er bróðir Línu, er
tollvörður austur á fjörðum og er
að búa sig undir að fara í fermingar-
veizlu systurdóttur sinnar. Í kveðju-
skyni hendir Ingibjörg, kona hans,
sósukönnu í hausinn á honum, en
kemur að öðru leyti ekki við sögu.
Eilífur fer heldur aldrei í fermingar-
veizluna, hann hefur annað og
skemmtilegra í hyggju, hann ætlar
að sletta úr klaufunum í höfuð-
staðnum og fara í Óðal(?). En hefst
þá næsti kafli þar sem Karl kenn-
ari og Lína eru að undirbúa ferm-
ingarveizlu Guðrúnar, einkabarns-
ins og gengur það allt á
afturfótunum. Karl er drykkfelldur
og í fermingarveizlunni fer hann
fram á klósett og felur sig og fær
sér brennivín.
í fermingarveizlunni, sem reynist
hafa afdrifarík áhrif á líf þessara
persóna er til dæmis Gvendur, bróð-
ursonur Kalla. Hann fer á fjörumar
við Stínu, konu Þórðar. Þórður er
bróðir Gvendar. Stína er ekki á því
að halda við Gvend, en svo undar-
lega ber við, að Gvendur hverfur
og spyrzt ekki til hans framar. Þrátt
fyrir ötula framgöngu Dagbjartar,
rannsóknarlögreglumanns, sem
kemur til sögunnar og höfundur
gerir sérstæð skil. Er ekki úr tízku
að láta löggur vera hallæríslega
bjálfa? Hvað sem þessu nú líður, í
fermingarveizlunni er líka Munda,
systir Línu og mamma Péturs.og
Kolla sem Kalli sefur hjá um nótt-
ina. Að ógleymdum verktakanum
Bimi Guðmundssyni sem er faðir
Gvendar og Þórðar. Og þar af leið-
andi náttúrlega bróðir Kalla. Ekki
má gleyma skörungnum og skass-
inu Siggu frænku, sem er móður-
systir Kalla og Bjöms og Þorláki,
sem er systrungur við Kalla og
Björn, búsettur í þorpi suður með
sjó.
Um nóttina rýkur fermingarbar-
nið Guðrún út og ætlar að drekka
sig fulla. Henni er misþyrmt og
síðan nauðgar lögreglumaður (?)
henni. Allir aðrir í fjölskyldunni eru
alltaf að detta í það, venjulega fara
þeir í Óðal. Og þessi fjölskylda virð-
ist eiga það sameiginlegt að vera
afleit með víni, svo að venjulega
logar allt í kjaftshöggum og slags-
málum áður en við er litið.
Víkur nú sögunni til Eilífs, sem
er loksins kominn til Reykjavíkur
og farinn að gera sér glatt kvöld.
Hann verður því miður fyrir því að
keyra niður mann - skyldi þó aldrei
hafa verið Gvendur? og þeirri
stundu verður Eilífur fegnastur
þegar hann kemst aftur undir húfu
Kristján Jóhann Jónsson
tollarans. Verkalýðsátök Þorláks og
gjaldþrota fyrirtæki verktakans,
sálarstríð Guðrúnar, þetta hrærist
svona til og frá í pottinum.
Þessa sögu má sem sagt lesa
sem lýsingu á fjölskyldu, sem er í
rúst. Það má einnig lesa hana sem
hugskotssögu Eilífs; ella væri raun-
ar mjög erfítt að gefa honum
tilverurétt í sögunni.
Kannski vakir það eitt fyrir höf-
undi að segja á harmrænan hátt frá
einu tímaskeiði í lífí venjulegrar
nútímafjölskyldu, með þeim átök-
um, innri sem ytri sem upp koma.
Að draga upp dökka/bjarta/gráa
eða græna mynd af þjóðfélagi okk-
ar er vert allrar virðingar. Samt
verður að gæta að því að þrátt fyr-
ir allt ftjálsræði lýtur skáldsagan
ákveðnum lögmálum. Ef þau lög-
mál eru brotin verður að gera það
af leikni og markvísi og kannski
umframallt mikilli ögun.
Kvikmyndasýning
á Freischiitz í
íslensku Operunni
í KVÖLD, þriðjudaginn 8. desem-
ber, kl. 20 sýnir styrktarfélagið
þýsku óperuna Töfraskyttuna, eftir
Carl Maria von Weber, í Gamla
Bíó. Töfraskyttan er tímamótaverk
í þýskri óperu og markar þar upp-
haf rómantískrar óperustefnu.
Sýningin er frá Óperunni f Ham-
borg undir listrænni stjórn Rolf
Lieberman. Með helstu hlutverk
fara Ernst Kozub (Max), Arlene
Saunders (Agatu), Gottlob Frick
(Kaspar), Edith Mathis (Anna),
Tom Krauuse (Ottokar), Hans Sotin
(einsetumaður).
A Krossgötum
Hér er á feröinni einstök hljómplata
meö söng sjö systkina...
Dvergarnir sjö var hún nefnd meðan veriö var að
vinna hana, en það er enginn tónlistar-
dvergur (hljómplötunni Á KROSSGÖTUM.
Rað er orðið fátítt á íslandi að sjö systkini
heyri til sömu fjölskyldunni og enn
fátíðara, ef ekki einsdæmi, að öll geti
sungið, hvað þá að úr börkum þeirra
komi góður söngur. Hér hefur undrið gerst...
KROSSGÖTUR er hljómplata með vandaöri
trúarlegri tónlist, sem á erindi til allra.
Auðbrekku 2, 200 Kópavogur S: 44500
Karsnesbraut 106. Simi 46044
SIEMENS
iHIMMBi.
SIEMENS uppþvottavél
LADY SN 4520 með Aqua-
Stop vatnsöryggi. Vandvirk
og hlióðlát.
# 5 þvottakerfi.
0 Fjórföld vöm gegn vatnsleka.
0 Óvenjulega hljóðlát og sparneytin.
Smith og Norland,
Nóatúni 4,
s. 28300.