Morgunblaðið - 08.12.1987, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987
Cicero
Erlendar bækur
Siglaugur Brynleifsson
Cicero — Selected Letters.
Translated with an Introduction
by D.R. Schackleton Bailey.
Penguin Books.
Marcus Tullius Cicero tók mikinn
þátt í þeim átökum sem einkenndu
síðustu tímaskeið rómverska lýð-
veldisins. Undirmál, svik, blóðug
átök og borgarastyrjaldir er saga
þessara tíma. Cicero var utan af
landi, taldist til riddarastéttarinnar
og tók snemma að láta að sér kveða
sem málafylgjumaður og stjóm-
málamaður. Hann var annálaður
ræðumaður, sá frægasti í Róm á
sínum tíma og það var snemma
almælt að hann ætti auðvelt með
að vinna mál með hinni einstöku
ræðusnilld sinni. Cicero var vel
framagjam og lék oft tveim skjöld-
Marcus Tullius Cicero
um, sem varð til þess að hann hefur
hlotið misjafna dóma sagnfræðinga,
Mommsen fyrirlítur fáar persónur
í Rómasögu sinni eins og Cicero og
sú fyrirlitning er blönduð hreinu
hatri. Aðrir em mildari í dómum
um pólitísk afskipti Cicerós. En
þótt megi flokka hann til fremur
ómerkilegra pólitískra spekúlanta
þá var annar Ciceró, meistari latn-
eskrar tungu og stílsnilldar. Rit
hans og bréf og ræður hafa verið
lesnar í tvö þúsund ár og hann er
talinn hafa ritað glæstasta latínu
allra samtíðarmanna sinna.
De Senectute, De Natura Deor-
um, In Catilinam, fillipísku ræðum-
ar og bréfin vom lesin í latínuskól-
um í margar aldir, og em það enn,
þar sem menn skynja latínunám
sem óaðskiljanlegan þátt evr-
ópskrar siðmenningar.
Shackleton Bailey er kunnur fyr-
ir rit sín og þýðingar um og úr
latínu. Hann hefur kennt við ýmsar
fremstu menntastofnanir í Englandi
og Bandaríkjunum og hefur gefið
út m.a. bréf Cicerós með athuga-
semdum, sem komu út í 10 bindum
hjá Cambridge á ámnum 1965—80.
Þetta mun vera vandaðasta útgáfa
bréfanna í enska málheiminum.
Þýðingar hans á bréfum Cicerós
komu út í Penguin Classics 1978,
H víld fyrir bakið
á meðan þú sefur
Dýnan lagar sig eftir þunga líkamans, gefur
veleftirogermjúk.
m
BAY JACOBSEN*
Dýnan nuddar líbmann á meðan þú sefur Með Bay Jacobsens heilsudýnu og kodda.
og viðheldur eðlilegum líkamshita. sefur þú værar og hvílist betur.
Bay Jacobsens heilsudýnan og koddinn hafa fengið frábærar
viðtökur um allan heim, ekki síst hér á landi.
Getur þú hugsað þér að gefa einhverjum betri og værari svefn í jólagjöf? Kannski sjálfum þér?
Bay Jacobsens heilsudýnan dregur verulega úr bak- og vöðvaverkjum á meðan þú sefur, þannig að þú hvílist betur og
vaknar hress og úthvíldur. Verð kr. 5750 - dýna, kr. 2450 - koddi.
HREIDRID
Grensásvegi 12
Simi688140-84660
Postholt 8312 - 128 Rvk
Sendum í póstkröfu.
Skilafrestur á dýnum og koddum seldum
eftir 1. desember er til 15. janúar 1988.
Cicerós Letters to Atticus og Cice-
rós Letters to his Friends í tveimur
bindum. Sú útgáfa nú uppseld og
því er þetta úrval úr þeirri útgáfu
gefið út. Þýðandinn skrifar inngang
og athugasemdir.
Bréfaskriftir milli vina voru
stundaðar í Róm, yfirstéttin stóð
mikið í ferðalögum um Ítalíu og til
Grikklands, en þar höfðu þeir sína
andlegu uppsprettu og grísk menn-
ing og heimspeki var þeim nægta-
hom. Þeir áttu því vini og kunningja
og pólitíska samheija víðar en að-
eins í Rómaborg. Þessvegna bréfa-
skriftirnar. Póstþjónusta var okki
57
til í vorum skilningi, sendiboðar
voru því sendir með bréfín eða fólk
sem stóð í ferðalögum, var beðið
fyrir bréfin. Á Grikklandi var þessu
öðmvísi farið. Borgríkin vom heim-
ur út af fýrir sig og ferðalög vom
þar lítt stunduð, þessvegna vom
bréfaskriftir sjaldgæfar.
Þessi bréf sem hér birtast fjalla
um pólitík og valdabaráttu, einnig
koma til einkamál, persónuleg efni
og stundum heimspekilegar hug-
leiðingar. Bréfín em því heimild um
höfundin og kunningja hans og vini
og ýmsa þætti daglegs amsturs.
AUSTURRÍKI
Ogleymanlegt
vetrarfrí í fjöllum
Austurríkis
Enn eru í boði frábæru, ódýru og eftirsóttu
skíðaferðirnar til Austurríkis.
Afangastaðina þekkja margir af góðri reynslu:
skíðabæina Zell am See, Mayrhofen og
Kitzbúhel.
Flugleiðir fljúga beint til Salzburg einu sinni
í viku og þaðan er ekið til skíðasvæðanna.
Þið munið góðu brekkurnar, sólina, snjóinn,
náttúrufegurðina, notalegu veitingastaðina,
þægilegu gistihúsin, fjörið og allt hitt.
Hafið samband við söluskrifstofur Flugleiða
eða ferðaskrifstofur og fáið nánari upplýsingar.
Upplýsingasími: 25 100
FLUGLEIDIR
-fyrir þig-
Tvær bamabækur
firáAB
Silfurstóllinn
Fjórða æviptýrabókin eftir C.S. Lewis sem kemur út á
íslandi. Elfráður, Skúti ogjúlía leita kóngssonar í töfra-
landinu Narníu.
Vinsældir bókanna um töfralandið aukast jafnt og
þétt hérlendis. Þýðing Kristínar R. Thorlacius
hefúr verið verðlaunuð.
Olla og Pési
eftir Iðunni Steinsdóttur, myndskreytt
af Búa Kristjánssyni.
Ævintýraleg bók um krakkana Ollu og Pésa. Olla elst
upp hjá þremur sérvitringum sem búa á síðasta
bændabýlinu innan borgarmarkanna. Ásamt hestinum
Rauð eiga hún og Pési í baráttu.
Iðunn Steinsdóttir hefúr þegar skapað sér nafn sem
einn besti barnabókahöfúndur okkar íslendinga.