Morgunblaðið - 08.12.1987, Blaðsíða 74
74
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987
> Auk þess að vera leikari og dans-
ari, mun Patrick einnig vera
liðtækur söngvari.
PARTICK SWAYZE
Djarflega
stígur
hann
dansinn
Patrick Swayze er hérlendum ungl-
ingum líklega að góðu kunnur fyrir
frammistöðu sína í „Dirty Danc-
ing“. Þar leikur Patrick annað
aðalhlutverkanna og dansar af mik-
illi snilld. Hann hefur dansað
mestan hluta ævi sinnar, er fæddur
og uppalinn í kúrekaborginni Ho-
uston, þar sem dansandi strákar
voru litnir hornauga. Lengi vel
þijóskaðist hann við en þegar hann
hafði bæði rifbeins- og nefbrotnað
ákvað hann að hætta dansinum.
Það breytti engu því hann var eftir
sem áður álitinn skrýtinn, svo hann
byijaði aftur og kynntist þá kon-
unni sinni, hinni fínnskættuðu Lisu.
Þau urðu dansfélagar, „um leið og
við hittumst vissi ég að við höfðum
þekkst í fyrra lífi, þessvegna náðum
við svona vel saman“ segir Lisa.
Hún hefur verið hans stoð og stytta
í þau 11 ár sem þau hafa verið
gift og þau eru jafnástfangin núna
og þegar þau hittust í Houston forð-
um. „Ég hef tilhneigingu til sjálfs-
Tvö dansatriði úr „í djörfum
dansi“.
eyðingarhvatar, rétt eins og Jim
Morrison og Janis Joplin og verð
að gæta mín. Lisa hefur bjargað
mér frá því að eyðileggja sjálfan
mig á áfengisneyslu en næsta skref
er að hætta alveg að drekka,“ seg-
ir Patrick.
Astæðan fyrir því að hann valdi
hlutverkið í „Dirty Dancing" er ein-
faldlega sú að afar fáir karlleikarar
eru einnig góðir dansarar. Gefum
Patrick orðið: „Upptökurnar voru
erfiðar og seinlegar, því við ræddum
hvert einasta atriði ofan í kjölinn
en ég er ánægður með útkomuna.
Ég held að fólk sé farið að dansa
aftur á gamla mátann því við höfum
öll svo mikla þörf fyrir snertingu.
Fólk er búið að fá nóg af því að
dansa eitt og sér eins og á áttunda
áratugnum. Danstákn áttunda ára-
tugarins, John Travolta, er dæmi
um hvemig getur farið fyrir dönsur-
um. Hann festist í hlutverki sem
hann getur ekki losnað úr og það
er miður því hann hefur heilmikla
hæfileika. Ekki er hann þó frumleg-
ur, því þegar hann var að æfa sig
fyrir dansinn í „Urban Cowboy" þar
sem mamma mín samdi og stjórn-
aði dönsunum, tók ég eftir þvi að
hann apaði hveija einustu hreyfingu
mína eftir, hermdi eftir því hvemig
ég talaði og hvernig ég hagaði
mér.“
Patrick hefur verið á ferðalagi
um Evrópu undanfarið og hefur
lent í mörgum hrellingum í ferð-
inni. Unglingsstúlkur hafa gert
nokkrar tilraunir til að tæta utan
af honum hveija spjör og nærri
kramið hann í öllum látunum. En
verst þótti honum þegar ósvífnir
blaðamenn hófu að spyija hann
spjömnum úr um stjórnmálaskoð-
anir hans og vi'suðu þá til myndar
sem hann lék í og hét „Hinir ungu
og hugrökku“. Fjallaði hún um inn-
rás Sóvétmanna í Bandaríkin og
var víða bönnuð þar sem hún þótti
fjalla á óraunsæislegan hátt um hin
afar viðkvæmu samskipti austurs
og vesturs. „Blaðamennirnir spurðu
og spurðu og skyndilega gerði ég
mér grein fyrir því að þeir vom
kommúnistar. Ég hafði aldrei áður
hitt kommúnista og varð ógurlega
skelkaður þegar þeir fóm að yfir-
heyra mig. En eftir þessa reynslu
skil ég loks að ekkert er ópólitískt,
ég hef bara aldrei litið á sjálfan
mig sem mann með skoðanir."
-'JL
MYNDBÖND
George á leið til kirkju.
George fer í kirkju
GEORGE Michael hefur farið
geyst upp og niður vinsældalist-
ana að undanförnu með lagið
„Faith“ sem útleggst á því ást-
kæra ylhýra sem „trú“. Og eins
og vaninn er, var tekið upp mynd-
band við lagið og var því ætlað
að gerast í kirkju, svona rétt til
að undirstrika boðskapinn.
Hringdi George í prófastinn í sinni
sókn og pantaði tíma. En þegar
George mætti ásamt tökuliðinu
kom í Ijós að presturinn hafði
tvíbókað í kirkjuna og var jarðar-
för nýhafín þegar þau bar að
garði. George er hvorki trúaður
né tillitssamur maður og stillti sér
upp ásamt tökuliðinu aftast í
kirkjunni og beið þess að jarðar-
förinni lyki, algerlega án tillits til
hinna syrgjandi aðstandenda.
Ekki virtist presturinn telja neitt
athugavert við það, því að athöfn-
inni lokinni gekk hann til Georges
og þakkaði honum kærlega fyrir
að sýna fjölskyldunni þann skiln-
ing að leyfa þeim að kveðja ástvin
sinn í friði.
Á afmælishátíðinni söng Nils Wahlgren, sem lék í „Bróðir minn Ljónshjarta“, visu fyrir Astrid.
BARNABÆKUR
Astrid áttræð
Barnabókahöfundurinn sívinsæli, Astrid Lindgren, hélt upp á áttræðisafmæli sitt í síðasta mánuði með
pompi og prakt. Byijað var á að sýna myndina um bræðuma Ljónshjarta, en tíu ár eru liðin síðan hún
var frumsýnd. Að lokinni sýningunni var haldin stærðarinnar veisla og var fjölda manns boðið til henn-
ar, meðal annarra öllum bömunum sem hafa leikið í myndum gerðum eftir sögum hennar.