Morgunblaðið - 08.12.1987, Síða 82
82
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1987
„Lítið þarf til að kvikni í
púðrínu í slökkvistöðinni“
Soffanías Cecilsson fráfarandi formaður í ræðustóli
Aðalfundur Sambands fiskvinnslustöðvanna:
Rekstri fiskvinnslu
hér á landi ógnað
AÐALFUNDUR Sambands fisk-
vinnslustöðvanna var haldinn
siðastliðinn föstudag. Helztu mál-
efni fundarins voru afkomumál,
kjaramál og fiskvinnsla á tíma-
mótum. í ályktun fudnarins segir
á þá leið, að ætli stjómvöld sér
að viðhalda fastgengisstefnunni
verði þau að gripa til róttækra
aðgerða i peninga- og efnahags-
málum nú þegar i þeim tilgangi
að lækka verðbólgu og bæta kjör
fiskvinnslunnar. Soffanías Cecils-
son, fráfarandi formaður, telur
að við núverandi aðstæður aukizt
útgjöld fiskvinnslunnar um 2 til
*»%% á mánuði og engin tekjuaukn-
ing komi á móti. Amar Sigur-
mundsson, Vestmannaeyjum, var
kjörinm formaður sambandsins í
stað Soffaníasar.
Ályktun sambandsins er svohljóð-
andi: „Þensluástand, stórfelldar
kostnaðarhækkanir og versnandi við-
skiptakjör samfara falli bandaríkja-
dollars ógna nú rekstri fiskvinnslu
hér á landi. Stórhækkað raungengi
krónunnar hefur fært flármuni frá
útflutningsframleiðslunni til annarra
g^jreina atvinnulífsins og er nú svo
komið, að fískvinnslan er rekin með
umtalsverðum halla, sem fer sívax-
andi.
Við þessar aðstæður er fullkom-
lega óskiljanlegt að rikisstjómin
miðar enn við að skerða rekstraraf-
komu sjávarútvegs með því að hætta
endurgreiðslu uppsafnaðs söiuskatts,
sem allar aðrar útflutningsgreinar
njóta og samtímis að skattleggja iau-
nagreiðslur, en því var hætt fyrir
rúmu ári, svo fiskvinnslan fengi
staðizt stöðugt gengi.
Gengisfall dollarans á alþjóðlegum
markaði er sameiginlegt áfall þjóðar-
innar allrar. Ef það er raunverulegur
ásetningur stjómvalda að halda
gengisskráningu íslenzku krónunnar
óbreyttri við núverandi aðstæður, þá
verða stjómvöld að grípa til róttækra
aðgerða í peninga- og efnahagsmál-
um núna strax í þeim tilgangi að
lækka verðbólgu og bæta kjör fisk-
vinnslunnar eftir öðrum leiðum.
íslenzkur sjávarútvegur stendur
nú á tímamótum. Framtíð hans og
afkoma þjóðarinnar veltur á því, að
aukin framleiðni verði í greininni
með aukinni vélvæðingu og bættri
skipulagningu. Forsenda þessarar
þróunar er að rekstrarskilyrði batni
og stjóm verði á efnahagsmálum
þjóðarinnar."
Soffanías Cecilsson sagði meðal
annars í ræðu á fundinum, að nú
væri svo komið að fastgengisstefna
ríkisstjómarinnar og verðbólgan í
landinu kostaði fiskvinnsluna 2 til
3% útgjaldaaukningu á hveijum
mánuði. Enginn atvinnurekstur, sem
byggði afkomu sína á útflutningi
gæti staðið undir slíkum kostnaðar-
hækkunum meðan gengi væri haldið
föstu nema í mjög skamman tima.
Framundan væru kjarasamningar og
ljóst væri, að miðað við núverandi
aðstæður gæti fiskvinnslan ekki boð-
ið neinar kjarabætur, þótt hún fegin
vildi.
BALDUR Baldursson, talsmaður
brunavarða f Slökkvistöðinni f
Reykjavfk, segir að lftið þurfi til
að það kvikni í púðrinu f stöðinni,
þvf mikil óánægja sé meðal bruna-
varðanna, aðallega vegna launa-
málanna. Verðirnir hafa neitað
að mæta f læknisskoðun og þrek-
próf, því óljóst sé hvort stjórnend-
ur stöðvarinnar viiji virða
samþykktir og reglugerðir um
þrekpróf, læknisskoðun og reykk-
öfun og vilja þrýsta á að fá túlkun
stjómenda slökkvistöðvarinnar á
þeim. Slökkviliðsstjóri segir að
betra sé að vinna að málunum
með jákvæðu hugarfari, heldur
en að „vera alltaf að rýna í ein-
hveija reglugerðarbókstafi“.
Haldinn var fundur slökkviliðs-
manna 3. nóvember sl., þar sem
eftirfarandi var samþykkt: Þar sem
óljóst er um vilja stjómenda Slökkvi-
liðs Reykjavíkur til að virða sam-
þykkt um slökkviliðið og reglugerð
þar að lútandi, ásamt reglugerð um
reykköfun og reykköfunarbúnað frá
6. júlí 1984, sjá brunaverði*- í
Slökkviliði Reykjavíkur ekki ástæðu
til að mæta í læknisskoðun og þrek-
próf að svo komnu máli.
„í nokkurra ára gamalli samþykkt
borgarráðs um slökkviliðið í
Reykjavík er kveðið á um að bruna-
verðir skuli fara í þrekpróf,“ sagði
Baldur Baldursson. „Við teljum að
þessi samþykkt sé ekki haldin. Hún
virðist vera dálítið óljós og við viljum
þrýsta á að fá túlkun á henni. í reglu-
gerð Brunamálastofnunar ríkisins,
sem samþykkt var af félagsmála-
ráðuneytinu í júlí 1984, er aftur á
móti fjallað um reykköfunar- og
hlífðarbúnað slökkviliðsmanna en
ekkert minnst á þrekpróf, einungis
læknisskoðun.
{ 7. grein reglugerðarinnar segir
að reykkafari skuli fara árlega í sér-
staka læknisskoðun. Setja skuli
nánari reglur um heilbrigðisskoðun
og læknisvottorð í samráði við land-
lækni. Við vitum ekki til þess að þær
reglur hafi verið settar. í reglugerð-
inni er einnig kveðið á um að
brunaverðir skuli fara í verklegar
æfingar í reykköfun í samtals 25
Baldur Baldursson talsmaður
brunavarða í Slökkvistöðinni i
Reykjavík.
klukkustundir á ári hveiju, fyrir utan
vinnu og allar almennar æfingar, og
slökkviliðsstjóri skuli skrá þessar
æfíngar. Ég veit ekki til þess að
hann geri það.
„Virðist ekki farið
éftir reglugerðum“
Það eru of fáar talstöðvar til fyrir
reykkafara. 'Það stendur í reglugerð-
inni að reykkafari skuli ætíð vera í
góðu talsambandi við -stiómanda
björgunar- og slökkvistarfsins og við
þá reykkafara sem með honum
starfa. Við, sem höfum leyfí til að
stunda reykköfun, fáum sérstök
reykköfunarskírteini sem sagt er í
reglugerðinni að reykkafarar eigi að
hafa. Brunaverðir hér hafa einnig
verið skráðir í reykköfun án þess að
hafa fengið slík skírteini. Þannig að
það virðist vanta að farið sé eftir
reglugerðum og öðru slíku á full-
nægjandi hátt,“ sagði Baldur.
..Mér fínnast þetta vera furðuleg
viðbrögð," sagði Rúnar Bjamason
slökkviliðsstjóri. „Númer eitt í reykk-
öfun og reglugerð um hana er að
menn fari árlega í læknisskoðun.
Trúnaðarlæknir borgarinnar leggur
mikla áherslu á það. Þannig að mér
fínnst að sjálfsögðu að það sé verið
að byija á vitlausum enda að neita
Rúnar
stjóri.
Bjarnason slökkviliðs-
Ottast að að breytmgar á verði
'hafi áhrif á jólaverslunina
SAMKVÆMT samkomulagi ríkis-
stjómarinnar um breytingar á
óbeinum sköttum lækka ýmsar
vörur verulega i verði um áramót-
in. Sem dæmi má nefna snyrtivör-
ur, búsáhöld, hljómflutningstæki,
byggingarvörur og fleira. Þeir
kaupmenn sem Morgunblaðið
hafði samband við töldu að tolla-
breytingar væru mjög tímabærar
og af hinu góða, en vom þó á eitt
sáttir að fréttir af þessum breyt-
ingum ættu eftir að hafa mikil
áhrif á verslunina fyrir jólin, þar
»æm breytingamar eiga að taka
gildi um áramótin samkvæmt
frumvarpi ríkisstjóraarinnar.
Guðjón Oddsson formaður Kaup-
mannasamtakanna sagðist vera
sannfærður um að þeir sem ætluðu
að kaupa vörur fyrir jólin sem eiga
að lækka verulega í verði bíða nú
með það þangað til verðbreytingin
hefur tekið gildi.
Hann sagði að kaupmönnum finn-
ist til bóta að samræma þetta kerfi
og telja það skref í rétta átt að
hæstu tollar verði lækkaðir. Alltaf
megi þó deila um hve hátt vörugjald
á að vera. Sagði hann að þessi breyt-
ing yrði til einföldunar og hagræðis.
Kaupmönnum hefði að vísu þótt
betra ef hún hefði orðið á öðrum
árstíma, því margir byggja afkomu
sína á verslun fyrir jólin.
Aðspurður sagði Guðjón að menn
væru yfirleitt ekki í stakk búnir til
að lækka verðið strax þótt líklega
freistuðust einhveijir til þess.
Ekkert Glasgow-verð
eftir breytingarnar
Kristmann Magnússon hjá Pfaff,
sem sæti á í samstarfsnefnd verslun-
arinnar um tollamál, sagði að
frumvarpið væri til mikilla bóta. Hins
vegar vildi hann mótmæla því, sem
komið hefur fram í umræðunni, að
hér gilti Glasgow-verð eftir breyting-
amar. Eftir þeim útreikningum sem
hann hefði gert miðað við að tollar
verði 15% pg vörugjald 14% þá verð-
ur vöruverð 43% hærra í Reykjavík
en í Glasgow og í fríhöfninni á
Keflavíkurflugvelli.
Kristmann taldi að frumvarpið
ætti eftir að hafa gífurleg áhrif á
jólaverslunina. í raftækjaverslunum
mætti búast við að sala I dýrari
smávörum, t.d. rakvélum, sem fólk
kaupir mikið til jólagjafa, ætti eftir
að dragast saman. Fólk myndi líklega
snúa sér að vörum sem eiga að
hækka eftir breytingamar.
Ekki hélt Kristmann að kaupmenn
myndu almennt lækka verðið fyrir
jól þar sem þeir þurfa að greiða háa
tolla af vömnum til áramóta. Það
yrði þá helst á vörum sem lækkar
ekki verulega.
Snyrtivörur lækka og
nauðsynjavörur hækka
Edda Hauksdóttir í snyrtivöru-
versluninni Stellu í Bankastræti
sagðist sem minnst vilja segja um
þetta samkomulag ríkisstjómarinnar
á þessu stig. „Ég vil ekkert segja
um þetta fyrr en frumvaiyið hefur
verið samþykkt í Alþingi. Ég er ekki
tilbúin til að trúa því að Alþingi ís-
lendinga samþykki að lækka snyrti-
vömr en -hækka um leið ýmsar
nauðsynjavömr“, sagði hún.
Oneitanlega gleðiefni
Leifur ísleifsson hjá byggingar-
vömversluninni ísleifur Jónsson hf.
sagði að það væri óneitanlega gleði-
efni að tollar á hreinlætistækjum eigi
að lækka. Hann taldi að þessar breyt-
ingar yrðu, ef á heildina væri litið,
til hins betra fyrir byggingarvöm-
kaupmenn. Auk þess yrðu þær til
þess að tollflokkun og tollafgreiðsla
yrði einfaldari. Sagði hann að breyt-
ingín kæmi á slæmum tíma því fólk
myndi halda að sér höndum, ef það
getur beðið með að kaupa þessar
vömr þar til breytingin hefur tekið
gildi.
Ætti að f æra verslunina
inn í landið
Sigurveig Lúðvíksdóttir hjá versl-
uninni Kúnígúnd sagði að það væri
alltaf til góðs ef hægt væri að ná
niður vöruverði. „Að mínu mati hafa
verið allt of háir tollar af góðum
vömm. Þetta hefur orðið til þess að
fólk hefur keypt þær erlendis og tek-
ið með sér heim. Með þessum
breytingum hlýtur að vera hægt að
færa verslunina meira inn í landið,"
sagði hún.
„Ný tollskrá hefur verið lengi í
vinnslu og kaupmenn hafa vitað að
þessi breyting hefur lengi staðið til.
Þetta ætti því ekki að koma neinum
kaupmanni á óvart, en svona breyt-
ingar eiga að mínu mati að verða á
einni nóttu.“
Annars sagði Sigurveig að hún
hefði ekki orðið mikið vör við sam-
drátt í sölu frá því að fréttist af
þessum breytingum.
Erfitt fyrir kaupmenn
Bjami Stefánsson hjá Hljómbæ
sagði að það væri engin furða þótt
fólk vildi bíða með að kaupa hluti
sem ættu eftir að lækka. Hann sagði
að í sinni verslun hefði verið reynt
að koma til móts við viðskiptavini
með því að gefa afslátt. „Við teljum
að þessar breytingar séu það sem
koma skal, þótt enn sé spurning
hvað verður. En þetta er afskaplega
erfítt á meðan það gengur yfir,“
sagði Bjami.
„Það er mikið áfall fyrir kaupmenn
sem selja dýra hluti eins og hljóm-
flutnihgstæki að þetta komi upp rétt
fyrir jól og sala var mun minni á
laugardaginn en gert hafði verið ráð
fyrir. Þó hefur glaðnað yfír henni
aftur eftir helgina, að því er virðist.
Mér líst að mörgu leyti ágætlega
á þessar breytingar, þó á ég erfítt
með að sætta mig við að fískur
hækki verulega í verði og aðrar nauð-
synjavörur á sama tfma og lúxusvör-
ur lækka. Aftur á móti er tollalækk-
unin nauðsynleg og hefði átt að
lækka tolla fyrir löngu.“
að fara í þessa skoðun. Það er hins
vegar rétt að það gætir töluverðs
ósamræmis í samþykkt borgarráðs
um að brunaverðir skuli fara í þrek-
próf og reglum sem ráðið hefur sett
um námskeið og þjálfun brunavarða.
En borgarráð er búið að ákveða að
fela ákveðnum manni að endurskoða
þessar reglur og samræma, þannig
að þetta mál er i athugun.
Jákvætt hugarfar betra
en að rýna í reglugerðir
Það er að vissu leyti rétt að ekki
hafa verið settar nánari reglur um
heilbrigðisskoðun og læknisvottorð,
eins og reglugerð Brunamálastofn-
unar ríkisins kveður á um að skuli
gera. Trúnaðarlæknir borgarinnar
hefur hins vegar sett sig mjög vel
inn í þessi mál, bæði hérlendis og
erlendis. Ég held að hann sé manna
færastur til að dæma um hvemig
þetta eigi að fara fram. Það er nú
svona og svona að vera að rýna allt-
af í einhveija reglugerðarbókstafi.
Það er betra að vinna að málunum
með jákvæðu hugarfari, þannig að
það komi eitthvað út úr þeim.
Það er ekki rétt að verklegar æf-
ingar brunavarða í reykköfun séu
ekki skráðar, aðalvarðstjórarnir sjá
um það. Ég get alveg tekið undir
það að betra væri að eiga fleiri tal-
stöðvar. Hins vegar eru ekki brotin
ákvæði reglugerðarinnar um að
reykkafarar skuli ætíð vera í tal-
stöðvarsambandi við stjómanda
björgunar- og slökkvistarfsins. Það
er ætíð þannig að a.m.k. annar reyk-
kafaranna er með talstöð og hinn
verður ætíð að vera í talsambandi
við hann.
Það er alveg rétt að það hefur
tekið dálítið langan tíma að fá reykk-
öfunarskírteini gefín út. Það hefur
nú eiginlega ekkert síður strandað á
því að menn hafa ekki staðist læknis-
skoðun eða þrekpróf og trúnaðar-
læknir hefur ekki treyst sér til að
mæla með því að þeir fái skírteini.
Hins vegar ráðum við illa við það
að vera að útskúfa ungum mönnum,
sem hafa ekki náð því að fá þessi
skírteini,“ sagði Rúnar.
„Launamálin eru stór hluti af
þessu máli,“ sagði Baldur. „Það er
ætlast til þess að við fömm í þrek-
próf og að við höldum okkur við
líkamlega en það er ekkert metið.
Það var samþykkt í borgarráði að
bmnaverðir í Reykjavík skuli hafa
iðnmenntun, eða sambærilega
menntun og reynslu, sem nýtist þeim
í starfi. Ég veit ekki til að þess sé
krafist í öðmm sveitarfélögum. Nú
em gmnnlaun bmnavarða í
Reykjavík 33.810 krónur á mánuði
en bmnaverðir í Hafnarfirði em hins
vegar með 39.145 krónur í gmnn-
laun..
Það hefur verið mikil óánægja
héma, aðallega vegna launamál-
anna, sem hefur safnast upp smám
saman. Þetta mál er í sjálfu sér ekk-
ert stórmál en það þarf lítið til þess
að það kvikni í púðrinu og allt fari
í háa loft, þannig að staðan er mjög
viðkvæm hjá okkur núna,“ sagði
Baldur.
„Ég vil ekki tjá mig ( fjölmiðlum
um launamál bmnavarða," sagði
Rúnar.