Morgunblaðið - 08.12.1987, Side 84
Þorskveiðar:
Talað um tíu pró-
jsenta samdrátt
HALLDÓR Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra segir að fiski-
fræðilegar staðreyndir standi til aflasamdráttar á næsta ári.
Hann sagði þetta þegar hann mælti fyrir frumvarpi um stjóm
fiskveiða á Alþingi í gær. Hann sagði að ekki væri hægt að
segja nú hvað draga þyrfti saman, en sagðist hafa nefnt tölur
eins og 10% samdrátt í þorskveiðinni en margir telji það of lítið.
Sagði ráðherra að þetta þýddi
að tekjur sjávarútvegsins og sam-
félagsins í heild minnkuðu á næsta
ári og yrði að meta hvað hægt
væri að leggja mikinn samdrátt á
sjávarútvegsaðila, fólkið sem
starfar í sjávarútvegsgreinunum
og þjóðfélagið í heild.
í umræðunum sagði Skúli Alex-
andersson þingmaður Alþýðu-
bandalagsins ljóst að þorskaflinn
stefndi upp undir 400 þúsund tonn
á árinu 1987, þrátt fyrir að Haf-
rannsóknastofnun hafi lagt til 300
þúsund tonn afla og sjávarútvegs-
ráðuneytið hafi sett aflamarkið við
330 þúsund tonn. Sagði Skúli m.a.:
Þetta sýnir að kvótakerfíð og
veiðistýringin hefur brugðist. Þeg-
ar ráðherra talar um að skerða
þurfl þorskafla um 10% milli ára
er hann að viðurkenna þetta.
Sjá frásögn af umræðunum á
Alþingi á bls. 47.
Starfsmenn Markaðsdreifingar Strax senda fyrstu skattkortin af stað í gær. Morgunblaðið/Börkur
Dreifing á skattkortum hafin
DREIFING á skattkortum hófst í gær en alls
munu um 180 þúsund kort verða borin út. Dreif-
ing seðlanna tekur meiri tíma en útburður
venjulegra bréfa þar sem tryggja verður að
kortin komist í hendur eigenda sinna.
Ríkisprentsmiðjan Gutenberg annaðist prentun
kortanna og ber ábyrgð á dreifíngu þeirra, en til
þess verks hefur verið ráðinn undirverktaki sem er
„Markaðsdreifíng Strax“, sem sér um dreifingu til
póststöðva. Búist er við að lokið verði að dreifa
kortunum í þessari viku.
Fasteignamatið hækkaði umfram byggingavísitölu:
Heildarmatíd hækkar um
hundrað milljarða króna
Tekjur sveitarfélaganna hækka um mörg hundruð milljónir kr.
VIÐ GILDISTOKU nýs fast-
eignamats þann 1. desember
síðastliðinn hækkuðu . fast-
eignir á bilinu 20—44%. Mesta
hækkunin var á íbúðarhús-
næði á Akureyri, 44%, en
íbúðarhúsnæði á höfuðborg-
arsvæðinu hækkaði um
24—34%. Heildarfasteignamat
allra eigna í landinu hækkaði
Flogið vikulega með
saltfisk til Amsterdam
Fiskurinn síðan seldur í matvöruverzlunum í Sviss
REGLUBUNDINN útflutning-
ur á saltfiski með flugi er nú
hafinn á vegum Sölusambands
íslenzkra fiskframleiðenda.
Vikulega fara eitt til tvö tonn
af flöttum þurrkuðum fiski
flugleiðis til Amsterdam og
þaðan samdægurs landleiðina
til Sviss. Þar er fiskurinn seld-
ur í einni af stærstu matvöru-
verzlunarkeðjum landsins.
Sigurður Sigfússon, sölustjóri
hjá SÍF, sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að þessi útflutningur
hefði hafízt í ágúst síðastliðnum,
fyrst í tilraunaskyni, en væri nú
orðinn reglubundinn. í upphafi
næsta árs væri ennfremur fyrir-
hugað að senda utan með þessum
hætti saltfisk, pakkaðan í neyt-
endaumbúðir.
Þetta er í fyrsta sinn, sem út-
flutningur á saltfiski með flugi á
sér stað héðan frá íslandi. Fiskur-
inn kemur til Amsterdam á
mánudögum, en um leið fær kaup-
andinn ferskan lax, humar og
Bjöm Blöndal
Saltfiskurinn kominn um borð í flugvélina á mánudagsmorgun.
I dag verður hann til sölu í Sviss
fleira fiskmeti frá öðrum löndum,
safnar því saman og flytur í verzl-
anir sínar í Sviss. Sigurður sagði,
að þetta staðfesti að saltfiskur
væri dýr og eftirsótt matvara og
útflutningur með þessum hætti
skilaði framleiðendum ekki minna
en hefðbundinn útflutningur.
um 32,8%, sem er nærri tvö-
föld hækkun byggingarvísi-
tölunnar á þessum tíma. Matið
hækkaði um rúmlega 100
milljarða kr. og hefur það í
för með sér að tekjur sveitar-
félaganna af fasteignaskatti
hækka um mörg hundruð
milljónir kr.
Fasteignamatið hækkaði þann-
ig, samkvæmt upplýsingum
Magnúsar Ólafssonar forstjóra
Fasteignamats ríkisins: Matsverð
einbýlishúsa og annars sérbýlis á
höfuðborgarsvæðinu (Reykjavík,
Kópavogur, Seltjarnames, Garða-
bær, Hafnarfjörður, Bessastaða-
hreppur og Mosfellsbær) hækkaði
um 24% en aðrar eignir um 34%.
í Keflavík og Njarðvík hækkaði
íbúðarhúsnæði um 28% og á Akur-
eyri um 44%. Annað íbúðarhús-
næði í þéttbýli hækkaði um 34%
og allar aðrar fasteignir, þar á
meðal lóðir, um 24%.
Heildarmat eigna í landinu
hækkaði úr 310,2 milljörðum kr.
í 411,9 milljarða, það er um 101,7
milljarða kr., eða 32,8%. Inn í
þessa hækkun kemur bæði hækk-
un á mati og nýjar eignir. Mest
hækkaði fasteignamat í
Reykjavík, um 34,1% og er nú 192
milljarðar alls. Matið á Norður-
landi hækkaði um 33,7%. Minnst
hækkuðu eignir á Vesturlandi,
29,9%, sem er litlu minna en á
Austurlandi.
Byggingavísitalan hækkaði á
þessum tíma um 16,7%, eða nærri
helmingi minna en heildarmatið.
Matið núna er því 50 milljörðum
kr. hærra en byggingavísitalan ein
gefur tilefni til, eða 13,8% hærra.
A það ber að líta að Fasteignamat
ríkisins fer yfir kaupsamninga og
hefur til hliðsjónar við upphækkun
fasteignamatsins.
Sveitarfélögin leggja fasteigna-
skatt á fasteignir og á hann að
vera á bilinu 0,375 til 0,625% af
fasteignamati á íbúðarhúsnæði og
0,75 til 1,25% af atvinnuhúsnæði.
Að auki leggja þau á ýmis önnur
fasteignagjöld, sem ákveðin eru í
gjaldskrá. Flest sveitarfélög nýta
meirihluta heimildarinnar og er
því ljóst að tekjur sveitarfélaganna
af fasteignaskatti hækka um
meira en hálfan milljarð króna á
árinu 1988, miðað við yfirstand-
andi ár.
Matthías
fer á for-
sætisráð-
herrafund
FUNDUR forsætisráðherra
Norðurlanda verður haldinn
í Osló miðvikudaginn 9. des-
emþer og fundur þeirra með
forsætisnefnd Norðurland-
aráðs.
í frétt frá forsætisráðuneyt-
inu segir, að sökum anna hafi
Þorsteinn Pálsson forsætisráð-
herra ákveðið að hætta við að
sækja fundina, en af hálfu hans
mun Matthías Á. Mathiesen,
samgönguráðherra og sam-
starfsráðherra í málefnum
Norðurlanda, sækja þá.