Morgunblaðið - 07.02.1988, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1988
Frá sýningu á Rigoletto i Metropolitan-óperunni. Sherrill MUnes (t.v.) sem Rigo-
letto og Placido Domingo sem hertoginn.
Rigoletto eftir V erdi
í Islensku óperunni
Styrktarfélag íslensku óperunnar mun sýna á myndbandi óperuna Rigo-
letto eftir Giuseppe Verdi (1813—1902). Sýningin er næstkomandi þriðju-
dagskvöld 9. febrúar í Gamla bíói og hefst kl. 20.00 og er aðgangur ókeypis.
Með helstu hlutverk fara Garbis Boyagian (Rigoletto), Alida Ferravini (Gilda)
og Vincenzo Bello (hertoginn). Stjórnandi er Donato Rcnzetti. Sýningin er
upptaka frá útileiksviðinu í Verona frá árinu 1981.
Óperan Rigoletto var frumflutt
11. mars 1851 í Feneyjum. Þetta
var sextánda ópera Verdis og
hafði hann þegar markað sér sess
sem afkastamikið og eftirtektar-
vert tónskáld. Hann átti þá að
baki Nabucco, Emani og Mac-
beth, allt óperur sem notið hafa
vaxandi og verðskuldaðra vin-
sælda á síðustu áratugum. Hins
vegar markar Rigoletto viss tíma-
mót í lífi Verdis enda sló hún í
gegn hvað vinsældir snertir og
þær óperur sem í kjölfarið fylgdu
teljast allar til meistaraverka. Má
þar m.a. nefna La Traviata, II
Trovatore, Don CaHo, Aida, Ot-
ello og Falstaff.
Óperan Rigoletto er byggð á
leikriti eftir Victor Hugo sem
nefnist á frummálinu Le Roi S’a-
muse og var frumflutt 1832.
Francesco Maria Piave gerði text-
ann undir nákvæmri yfimmsjón
Verdis. Ekki gekk þó átakalaust
að yfirfæra hið umdeilda verk
Hugos á óperuform, enda er þar
höggvið nærri ýmsum háttsettum
embættismönnum franska ríkis-
ins, m.a. konungnum sjálfum.
Leikrit Hugos hafði valdið
hneyksli í París og var að lokum
bannað, þannig að ritskoðarar
ríkisins hugsuðu sér gott til glóð-
arínnar er Verdi hugðist nota
leikritið sem söguþráð í ópem.
Helstu andmæli ritskoðara vom
lýsingar á konimgi, m.a. lauslæti
hans og áform um að myrða hann.
Þessum átökum lauk þannig að
Verdi brejdti konunginum í her-
toga og færði atburðarásina til
Ítalíu. Ýmsar aðrar breytingar
urðu á verkinu í þessum með-
fömm, t.d. breyttist nafn sögu-
hetjunnar úr Tribolet í Triboletto
og síðar í Rigoletto. Þrátt fyrir
þessar breytingar hafði Verdi tek-
ist að skapa hádramatískt verk
sem hrífur flesta sem á hlýða og
eitt er víst að fáar ópemr inni-
halda eins mörg mihnisstæð lög
og Rigoletto.
Fmmsýningin 11. mars 1851
tókst með ágætum og hefur verk-
ið síðan farið óslitna sigurför um
heim allan. ófáir gagmýnendur
vom þó ekki ánægðir og kvörtuðu
yfir því að óperan væri ekki byggð
upp á hefðbundinn hátt. Þetta er
að mörgu leyti réttmæt gagmýni
því Verdi byggði ópemna upp sem
röð dúetta og þótt ótrúlegt megi
virðast em færri aríur í Rigoletto
en í nokkurri fyrri ópem Verdis.
Þegar prima donna ein áokaði
eftir því að Verdi bætti við aríu
fyrir sig í ópemna svaraði Verdi
eitthvað á þá leið: „Hvers vegna?
Og hvar á ég svo sem að láta
hana? Að bæta við aríu til þess
eins að fullnægja persónulegri
þörf söngvara þjónar engum til-
gangi.“
Jafnvel Victor Hugo, sem var
lftt hrifinn af tiltektum Verdis og
hafði tekist að stöðva uppsetningu
á Rigoletto í París, varð stórhrif-
inn af ópemnni þegar hann loks
sá hana. Þó em eftirfarandi um-
mæli höfð eftir Hugo f sambandi
við kvartettinn í þriðja þætti: „Ég
gæti náð sömu áhrifum og Verdi
ef ég léti fjórar persónur tala
samtímis, án þess að áheyrendur
misstu þráðinn."
Söguþráðurinn í Rigoletto er,
eins og í svo mörgum stórverkum
bókmenntanna, einfaldur en
markviss og átakanlegur. Rigo-
letto (baritón), sem er kryppling-
Tito Gobbi í hlutverki Rigolettos.
ur, er hirðfífl hjá hertoga einum
(tenor) á ítaliu. Rigoletto á sér
aðeins eina dýrmæta eign en það
er dóttir hans Gilda (sópran), sem
hann varðveitir eins og sjáaldur
auga sfns. Hertoginn er mikill
kvennamaður og nýtur hann í
fyrstu stuðnings Rigolettos. Þetta
breytist þegar hertoginn upp-
götvar Gildu og fer að gera hosur
sínar grænar fyrir henni. Hirð-
menn hertogans blekkja Rigo-
letto, nema Gildu á brott og færa
hana hertoganum. Fullur beiskju
og haturs ræður Rigolettu því
leigumorðingja til að drepa her-
togann. Gilda kemst á snoðir um
fyrirætlun föður síns og vegna
ástar sinnar á hertoganum fómar
hún sjálfrí sér og f stað hertogans
er hún drepin af leigumorðingjan-
um.
Óperan endar á því að Gilda
deyr í örmum föður síns, Rigolett-
os.
Hlutverk Rigolettos er mjög
erfitt og krefst bæði góðrar söng-
raddar og dramatískra leikhæfi-
leika, enda hafa allir meiri háttar
baritónar reynt að gera hlutverk-
inu einhver skil. Hátt á annan tug
hljóðritana eru fáanlegar af Rigo-
letto og er kannski við hæfi að
minnast hér á tvær þær helstu.
Sú eldri er hljóðrituð í mónó árið
1956 undir stjóm Tullio Serafin
(1879—1968). Ekki em söngvar-
amir af verra taginu en það er
frægasta söngtríó 6. áratugsins,
þ.e. Tito Gobbi (1913-1984),
Maria Callas (1923—1977) og
Giuseppe di Stefano
(1921— ). Þetta er örlftið
stytt útgáfa og Serafin, sem notar
hér frekar hægan takt, fær góðan
stuðning frá Callas og Di Stef-
ano. Þau þrjú falla þó í skuggann
af Tito Gobbi, sem með túlkun
sinni á hinum harmi slegna föður,
sýnir það og sannar að hann átti
engan jafningja í þessu hlutverki.
Þetta er klassísk túlkun sem allir
baritónar, fyrr og síðar, em mið-
aðir við. Seinni útgáfan er hljóð-
rituð í steríó árið 1971 undir stjóm
Richard Bonynge (1930— ).
Með helstu hlutverk fara Sherrill
Milnes (1935— ), Joan Sut-
herland (1926— ) og Luciano
Pavarotti (1935— ). Með
smærri hlutverk fara m.a. söngv-
arar á borð við Martti Talvela
(1935— ) og Kiri Te Kanava
(1944— ). Þessi útgáfa er að
öllu jöfnu sú besta sem fáanleg
er, enda er hér einvala lið á ferð
og Sherrill Milnes, sem hér syng-
ur af sínum alkimna krafti og
skilningi, hefur verið ókrýndur
konungur baritóna síðustu 20 ár-
m.
Grétar ívarsson
Vinningar afhentir
Vinningshafar { Sjónvarpsb-
ingói Stöðvar 2 og Styrktarfé-
lagsins Vogs fengu vinninga sína
afhenta fyrir skömmu. Vinnings-
hafí í 3. viku bingósins var
Almennar tryggingar og veitti
Ólafur B. Thors bifreiðinni mót-
töku. Bryndis Alfreðsdóttir frá
Akranesi vann síðan f 4. viku bin-
gósins. Myndin var tekin þegar
bilarnir voru afhentir, talið frá
vinstri: Ásgeir Hannes Eiríksson
frá Styrktarfélaginu Vogi, Ólafur
B. Thors forstjóri Almennra
trygginga, Bryndís Alfreðsdóttir
vinningshafí og eiginmaður henn-
ar Bjöm Hafsteinsson og Ámundi
Ámundason framkvæmdastjóri
Styrktarfélagsins Vogs.
Tillögur um skipan dómsvalds og umboðsvalds í héraði:
Breytinga þörf, en fleiri
en einn kostur fyrir hendi
segir Rúnar Guðjónsson, formaður Sýslumannafélags íslands
„ÉG tel að þessar breytingar
verði afdrifaríkar fyrir embætti
sýslumanna. Hins vegar gera
flestir sér grein fyrir að breyt-
inga er þörf, en það em ekki
allir sammála um hvernig
standa beri að þeim og fleiri en
einn kostur koma til greina,"
sagði Rúnar Guðjónsson, form-
aður Sýslumannafélags íslands,
er hann var inntur álits á frétt
Morgunblaðsins á föstudag um
drög að frumvarpi til laga um
skipan dómsvalds og umboðs-
valds í héraði.
í frétt Morgunblaðsins kom
fram, að dómsvald verður að veru-
legu leyti tekið frá sýslumönnum,
en stofnaðir verða 7 héraðsdóm-
stólar.
„Sýslumenn hafa sjálfír rætt um
þijá möguleika á að aðskilja dóms-
vald og umboðsvald og mér sýnist
af frétt Morgunblaðsins að einn
möguleikinn sé nefndur f drögum
frumvarpsins, það er að stærri
dómsmál verði tekin frá sýslu-
mönnum að mestu leyti, en þeir
fari áfram með smærri mál,“ sagði
Rúnar. „Þannig mun til dæmis
vera gert ráð fyrir að sýslumenn
fari með skipta- og uppboðsrétt.
Þá kæmi einnig til greina að lög-
reglumál heyrðu ekki lengur undir
embætti sýslumanna, heldur verði
lögregía landsins sett undir einn
hatt, til dæmis undir stjóm Rann-
sóknarlögreglu ríksisins. Þar með
væri það úr sögunni að sýslumenn
fari bæði með rannsókn mála og
dæmi í þeim. Þriðji kosturinn er
sá, að löggilda fulltrúa eða héraðs-
dómara, sem hefðu sjálfstætt
dómsvald, svo þeir yrðu ekki undir
stjóm sýslumanna í dómarastörf-
um. Ég vil þó taka fram að ég hef
ekki fengið óyggjandi upplýsingar
um tillögur nefiidarinnar, sem
dómsmálaráðherra skipaði, svo ég
á erfitt um vik að tjá mig um þær.“