Morgunblaðið - 07.02.1988, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1988
29
Reykjavíkur
prófastsdæmi:
Fræðslu-
kvöld
ÞRIGGJA kvölda fræðsluflokkur
um trúarhreyfingar og flokka á
íslandi hefst á þriðjudaginn.
Þessi þijú kvöld verða samveru-
stundimar í Háteigskirkju og
hefjast kl. 20.30.
Séra Jónas Gíslason heldur inn-
gangserindi á hverju kvöldi og
flallar í fyrsta fyrirlestrinum um
efni sem hann nefnir „Trúfrelsi á
íslandi. Þegar aðventistar, hjálp-
ræðisherinn og fleiri fríkirkjuhreyf-
ingar komu til landsins“.
Eftir fyrirlesturinn er boðið upp
á kaffi og almennar umræður, síðan
eru fluttar kvöídbænir.
Allir eru velkomnir á þessi
fræðsiukvöld sem verða þijú þriðju-
dagskvöld í röð, þ.e. 9., 16. og 23.
febrúar.
Moígunblaðið/Ámi Heigason
Nýi báturinn sem hefur bæst við
flotann í Stykkishólmi, Mar SH
118.
Stykkishólmur:
Nýr bátur
í flotann
Stykkishólmi.
ÞAÐ VAR mikið um að vera við
höfnina í Stykkishólmi laugar-
daginn 30. jánúar sl. Veður var
stillt, sólskin og frost um 1 stig.
Það var kominn heljarmikill
krani frá Akranesi til þess að
koma nýjum bát sem Kristján
Guðmundsson skipasmíðameist-
ari í Stykkishólmi hafði afhent
fyrir skömmu til Björgvins Guð-
mundssonar o.fl.
Það dreif marga að til að fylgj-
ast með athöfninni og þurfti að
margfæra bátinn fram á ystu nöf
garðsins, þar sem smábátahöfnin
er, til þess að hægt væri að láta
hann fara á djúpið.
Þennan bát eiga nokkrir menn í
sameign og ætla þeir að stunda
bæði grásleppuveiðar og annað sem
fellur til og þeim verður úthlutað.
Fréttaritari spurði eigendur um
hvemig þeim litist á þessa smíð og
vom þeir allir sem einn hæstánægð-
ir með hana og töldu að allar óskir
þeirra hefðu verið uppfylltar í
smíðinni, enda hefðu þeir fylgst
með. Gera þeir sér góðar vonir um
að þeim verði báturinn til gagns.
Fréttaritari skoðaði bátinn og var
þeim félögum sammála. Er þetta
vönduð smíð eins og allt sem Krist-
ján lætur frá sér fara.
Árni
m
Tökum eitt verðdæmi:
17 daga ferð fyrir kr. 33.050*
Gist í 3 nætur á Econo Lodge í Orlando og 14 nætur á
Colonial Gateway Inn, St. Petersburg Beach. Innifalið
í verði er flug og gisting.
Að sjálfsögðu getur þú valið um lengri eða styttri tíma.
*Verðið er meðalverð fyrir tvo fullorðna og tvö börn (2-11 ára) saman í
herbergi og gildir frá 6. febrúar.
Ótrúlegt tækifæri.
3 daga skemmtisigling frá Canaveralhöfða til
Bahamaeyja fyrir aðeins 10.915 krónur.
Innifalið: Gisting um borð og fullt fæði.
Sólin er á sínum stað en farðu ekki á mis við DISNEY
WORLD, CYPRESS GARDENS og SEA WORLD.
P.S. Er vegabréfið þitt í lagi?
FLUGLEIDIR
-fyrírþíg-
Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum
Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum.
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju
og Kringlunni. Upplýsingasími 25 100.
PICflVEER
GEISLASPILARAR