Morgunblaðið - 07.02.1988, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1988
55
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
BORGARSPÍTALINN
Lausar Stödur
Staða aðstoðardeildarstjóra á deild
E-63 Heilsuverndarstöð við
Barónsstíg
er laus til umsóknar.
Leitað er eftir hjúkrunarfræðingi með áhuga
á stjórnun og uppbyggingu hjúkrunar fatl-
aðra og aldraðra einstaklinga. A deildinni eru
25 rúm. Þar fer fram endurhæfing, viðhalds-
meðferð og langtímaumönnun.
Miklar breytingar hafa verið gerðar á hús-
næðinu sem bæta mjög aðstöðu fyrir sjúkl-
inga og starfslið.
Möguleiki er á sveigjanlegum vinnutíma.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 1988.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunardeildar-
stjóri Ólöf Björg Einarsdóttir í síma 22400.
Hjúkrunarfræðingar - sjúkraliðar
Lausar eru stöður á hinum ýmsu deildum
spítalans.
Starfsfólk
óskast í aðstoðarstörf í Arnarholti.
Hafir þú áhuga á að starfa með okkur á
Borgarspítalanum, þá er upplýsinga að leita
hjá hjúkrunarframkvæmdastjóra starfs-
mannaþjónustu, Elínborgu Ingólfsdóttur í
síma 696356.
Aðstoðar læknir
Ársstaða reynds aðstoðarlæknis (super-
kandidats) við slysadeild Borgarspítalans
(slysa- og sjúkravakt og slysa- og bæklunar-
lækningadeild). Staðan veitist frá 1. apríl
1988.
Nánari upplýsingar gefur yfirlæknir deildar-
innar í síma 696600.
Uppeldisfulltrúi
Uppeldisfulltrúi óskast sem fyrst að með-
ferðarheimili fyrir börn á Kleifarvegi 15.
Upplýsingar gefur Guðbjörg Ragna Ragnars-
dóttir sálfræðingur í síma 81615.
Viðskiptafræðingur
af endurskoðunar-
sviði
Fyrirtækið er bankastofnun í Reykjavík.
Starfið felst í ýmsum störfum í endurskoðun-
ardeild bankans, auk eftirlits með útibúum
bankans á landsbyggðinni.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu við-
skiptafræðingar af endurskoðunarsviði.
Æskilegt er að viðkomandi hafi einhverja
reynslu af bankastörfum.
Vinnutími er frá kl. 9.00-17.00.
Umsóknarfrestur er'til og með 16. febrúar nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9.00-15.00.
Skólavördustig 1a - 101 Reykjavik - Simi 621355
Laus staða
Verðlagsstofnun óskar eftir að ráða fulltrúa
til eftirlitsstarfa í verðgæsludeild. Æskilegt
er að umsækjandi hafi verslunarpróf eða
sambærilega menntun. Umsækjandi þarf að
hafa bifreið til umráða.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist Verðlagsstofn-
un, Borgartúni 7, 105 Reykjavík fyrir 15.
febrúar nk.
Upplýsingar um störfin eru veittar í síma
27422.
Veröiagsstofnun.
Okkur vantar
hönnuð
og klæðskera
1. Okkur vantar hönnuð, sem þarf að kunna
„grateringu".
2. Okkur vantar klæðskera, sem getur tekið
að sér sérsaum.
Upplýsingar gefa Margrét Sigurðardóttir
og/eða Kolin Porter í síma 45800.
^^KARNABÆR
málning
Óskum eftir að ráða starfsfólk í eftirfarandi
störf:
1. Miðaálímingu. Frekar þægilegt starf, sem
hentar vel starfskrafti yfir þrítugt. Hálfs-
eða heilsdagsstarf kemur til greina.
2. Framleiðslu á málningu. Hér er leitað eft-
ir starfskrafti sem hefur helst eitthvað
komið nálægt vélum.
Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu. Málning
hf. borgar hluta af matarkostnaði.
Upplýsingar um störfin veita verkstjórar á
vinnustað Funahöfða 9, milli kl. 13.00 og
15.00 eða í síma 685577.
Ráðningaþjónustu Hagvangs hf. hefur verið
falið að annast ráðningu á tveimur riturum
fyrir Verðbréfamarkað Iðnaðarbankans
Ármúla 7, Reykavík. Hér er um ný störf að
ræða og verður gengið frá ráðningu sem
fyrst.
Ritari Veðdeildar (81)
Starfssvið: Frágangur á skuldabréfum,
færsla bókhalds og fleira. Lögð er mikil
áhersla á góða bókhalds- og tölvuþekkingu.
Starfið krefst nákvæmni og skipulegra vinnu-
bragða. Verslunarmenntun (stúdentspróf) og
starfsreynsla skilyrði.
Ritari (82)
Starfssvið ritara: Annast gagnagrunn fyrir-
tækisins, frágang skjala (skuldabréfa) og
fleira. Starfið krefst góðrar tölvuþekkingar,
mikillar nákvæmni í vinnu og getu til að
starfa sjálfstætt. Stúdentspróf eða önnur
sambærileg menntun.
í boði eru áhugaverð framtíðarstörf hjá vax-
andi fyrirtæki. Vinnutími er frá kl. 9-17 en
möguleiki a 75% starfi.
Nánari upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningaþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar númeri viðkomandi starfs.
Hagvangurhf
Grensásvegi 13
Reykjavík
Sími 83666
Ráðningarþjónusta
Rekstrarráðgjöf
Skoðanakannanir
Bókhaldsþjónusta
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ÁRMÚLA 3 SIMI681411.
Starf
í skýrsluvéladeild
Óskum eftir að ráða vélstjórnanda (operator)
í skýrsluvéladeild.
Æskilegt að umsækjendur hafi góða undir-
stöðumenntun. Unnið er á vöktum.
Hér er um að ræða lifandi starf fyrir réttan
og áhugasaman aðila.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð
hjá starfsmannahaldi, Ármúla 3, sími 681411.
Samvinnutryggingar g. t.
JL-húsið
Óskum eftir duglegu og ábyggilegu starfs-
fólki í matvörumarkað einnig starfsmanni á
matvörulager.
Upplýsingar hjá verslunarstjóra.
Afgreiðslustarf
Starfskraftur óskast hálfan daginn í sérversl-
un í Hafnarfirði.
Umsóknum með upplýsingum um aldur og
fyrri störf sé skilað á auglýsingadeild Mbl.
fyrir 15. febrúar merkt: „T - 3554“
MJl Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar
W Starfskraftur
óskast í sambýli 3 til 4 klst. á dag, 6 daga
vikunnar.
Upplýsingar í síma 13744 eða 11534 milli
kl. 13.00 og 16.00 á mánudag.
Varahlutaverslun
Okkur vantar röskan mann í varahlutaaf-
greiðslu okkar. Góð laun fyrir réttan mann.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „S - 4673“ fyrir 15. febrúar nk.
Stilling hf.,
sérverslun með hemlahluti,
Skeifunni 11.
Framkvæmdastjóri
við Norræna
sumarháskólann
(NSU) óskast
(30 stundir/viku)
★ Menntun og reynsla: háskólamenntun.
Þekking á starfsemi Norræna sumar-
háskólans æskileg.
★ Starfssvið: Undirbúa gögn fyrir stjórnar-
fundi NSU, sjá um daglegan rekstur og
ritstýra blaði sumarháskólans (Informat-
ion frá NSU, 4 tbl. á ári).
★ Staðsetning skrifstofu: í einhverri há-
skólaborg miðsvæðis á Norðurlöndum.
★ Ráðingartími: Staðan er veitt til 3 ára
með möguleika á endurveitingu til 3 ára.
★ Laun: Eftir samkomulagi.
Umsóknir sendist til NSU’s generalsekretar-
iat, Langagervej 6, 9220 Álborg Ö, Danmark,
fyrir 31. maí 1988. Staðan er veitt frá 1.
september 1988.
Upplýsingar veitir formaður NSU, Gerd-lnger
Voje, Trondheim, vinnusími 7-598205, heima
7- 556136, eða skrifstofa NSU í Álaborg,
8- 155648. Lýsing á stöðunni verður að finna
í Information frá NSU 1/1988, sem hægt að
panta frá skrifstofunni í Álaborg.