Morgunblaðið - 07.02.1988, Qupperneq 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1988
Margrét Jóns-
dóttir - Minning
Fædd 30. september 1899
Dáin 28. janúar 1988
„Þér væri nær að ræða við mig
en einhverjar kerlingar úti í bæ!“
Þessi kostulegu skilaboð bárust
undirrituðum einn góðan veðurdag
fyrir röskum fjórum árum frá
Margréti Jónsdóttur, ekkju Þór-
bergs Þórðarsonar rithöfundar, sem
alþjóð þekkir best undir nafninu
Mammagagga. Þau urðu upphaf
að samskiptum og kynnum, sem
seint munu gleymast. Ég heimsótti
hana á Droplaugarstaði, þar sem
hún dvaldist síðustu æviár sín, oft-
ast vikulega um hálfs árs skeið, og
árangurinn af spjalli okkar birtist
í bókinni „Við Þórbergur", sem kom
út fyrir jólin 1984.
Það var unun að hlýða á frásögn
hennar, þegar hún var í essinu sínu.
Þá lyftist hún í hjólastólnum, sem
hún var bundin síðustu árin, fór á
kostum og kastaði til höfði, af-
dráttarlaus í skoðunum, orðhvöss
og meinhæðin.
Hún var sterkur og litríkur per-
sónuleiki, stór jafnt í kostum sínum
og göllum, heit í skapi og hrein-
skiptin, vinur vina sinna — en
óvægin við þá, sem reyndu að troða
illsakir við hana.
Hún varð mikil af sjálfri sér í
félagi við meistara Þórberg, þekkti
hann betur en nokkur annar og
gerði honum kleift að stunda list
sína heill og óskiptur.
Fyrir það á þjóðin henni ómældar
þakkir að gjalda.
Þegar mér barst andlátsfregn
Margrétar, komu mér í hug um-
mæli hennar sjálfrar, er hún frétti,
að Ragnar i Smára væri látinn:
„Sumir munu eflaust segja sem
svo, að vegna hins erfiða sjúkdóms,
sem hann hefur orðið að stríða við
í mörg ár, sé það blessun, að hann
skuli hafa fengið hvíldina. En þann-
ig hugsa ég ekki. Mér er tregi og
söknuður í huga. Það segi ég satt.
Og einhver japlar kannski á máls-
hættinum gatslitna, að maður komi
í manns stað. Hvílík endemis vit-
leysa! Hver kemur svosem í staðinn
fyrir Ragnar í Smára? Enginn!"
Það kemur heldur enginn í stað-
inn fyrir Mömmugöggu.
Þannig hverfur heil kynslóð unn-
enda bókmennta og lista á landi
hér á mesta blómaskeiði aldarinnar,
hverfur hægt og hægt — og kemur
ekki aftur.
Margrét Jónsdóttir var fædd í
Innri-Njarðvík hinn 30. september
árið 1899 og var því 88 ára gömul
er hún lést. Foreldrar hennar voru
Þorbjörg Ásbjamardóttir og Jón
Jónsson, bóndi í Innri-Njarðvík og
síðar kaupmaður í Reykjavík.
Tveir nafnkunnir merkismenn
erú fæddir í Innri-Njarðvík: Jón
Þorkelsson, skólameistari í Skál-
holti, en honum var reistur þar
minnisvarði fyrir fáum árum, og
Sveinbjöm Egilsson, skáld og fyrsti
rektor Menntaskólans í Reykjavík. •
Til hans átti Margrét ættir að rekja,
því að Þorbjörg móðir hennar var
dóttir Ásbjamar Ólafssonar, Ás-
bjamarsonar, Sveinbjamarsonar,
en hann var bróðir Egils, föður
Sveinbjamar rektors.
„Já, ég get státað af göfugum
ættmennum eins og flestir íslend-
ingar," sagði Mammagagga.
„Meira að segja Jón Sigurðsson
forseti er skyldur mér. Móðir mín
var komin af Einari Jónssyni, sem
kallaður var stúdent, en hann var
tengdafaðir Jóns Sigurðssonar. Og
þau hjónin vom systkinaböm, svo
að ég er skyld þeim báðum."
Móðurafí Margrétar, Ásbjöm Ól-
afsson, var talinn best efnum búinn
í Njarðvíkunum á sinni tíð; hafði
stórt bú og rak auk þess mikla út-
gerð. Kona hans var Ingveldur
Jafetsdóttir, gullsmiðs í Reykjavík,
Einarssonar Johnsens. Þau eignuð-
ust flögur böm sem upp komust:
Ólaf, sem var kaupmaður í Keflavík
og síðar í Reykjavík, Helga, sem
tók við búi af föður sínum, Þor-
björgu, móður Margrétar, og
ólafíu, sem giftist Einari kaup-
manni _ Einarssyni í Grindavík.
Sonur Ólafs var Ásbjöm, stórkaup-
maðurinn þjóðkunni, en með honum
og Margréti var jafnan kært.
Faðir Margrétar, Jón Jónsson,
sem Þórbergur segir svo skemmti-
lega frá í Sálminum um blómið, var
ættaður úr Grímsnesinu. Afi hans
var Bjöm Jónsson á Búrfelli, sem
ýmist var kallaður smiður eða hinn
riki. Kona hans, Ragnhildur Jóns-
dóttir prests að Klausturhólum,
Jónssonar, varð ung ekkja, og þeg-
ar hún flutti frá Búrfelli vestur á
land, er sagt að hún hafí reitt gull-
ið með sér í koffortum.
Margrét var elst fímm systkina.
Ásbjöm málarameistari, faðir Lillu
Heggu, var næstur henni í röðinni,
síðan kom Helga, þá Skarphéðinn
og loks Arinbjöm.
Þegar Margrét sagði mér frá
því, að allir bræður hennar væru
nú dánir, varð henni að orði:
„Æ, það deyja allir. sem eitthvað
er varið fi“
Margrét ólst upp í Innri-
Njarðvík, um skeið átti fjölskylda
hennar heima í Keflavík, en fluttist
loks til Reykjavíkur. Hún útskrifað-
ist úr Kvennaskólanum þar, vann
um hríð í Verslun Gunnþórunnar
Halldórsdóttur leikkonu, en sigldi
að því búnu til Kaupmannahafnar
og dvaldi þar við nám og störf í
nokkur ár.
í Danmörku lærði hún ýmiss
konar hannyrðir, sem fáir kunnu
hér á landi, til dæmis að setja upp
púða, sauma gluggatjöld og fóðra
klukkustrengi.
„Það kom sér svei mér vel að
hafa lært þetta,“ sagði hún. „Ég
var önnum kafín við hannyrðir dag
út og dag inn og hafði af þeim tekj-
ur, þótt tímakaupið mitt þætti ekki
beysið nú á dögum. Ég var til dæm-
is um árabil eina manneskjan í
bænum, sem kunni að setja upp
púða.“
Skömmu eftir að Margrét kom
aftur til íslands, eða hinn 1. októ-
ber árið 1932, giftist hún Þórbergi
Þórðarsyni, og þau bjuggu síðan
saman alla tíð eða í 42 ár. Þeim
varð ekki bama auðið, en Margrét
hafði eignast tvö böm áður en leið-
ir þeirra Þórbergs lágu saman, Jón
Þór Einarsson og Kötlu Ólafsdótt-
ur, og lifa þau bæði móður sína.
Þegar ég spurði Mömmugöggu,
hvort brúðkaup þeirra Þórbergs
hefði ekki vakið athygli, svaraði
hún:
„Jú, það þótti auðvitað tíðindum
sæta, að Þórbergur Þórðarson
skyldi vera búinn að ganga í hjóna-
Tryggðu sparifé þínu
háa vexti á einfaldan
og öruggan hátt meÖ
spariskírteinum ríkis-
sjóÖs og ríkisvíxlum
Verðtryggd
spariskírteini
Verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs
bjóðast nú í þremur flokkum og eru
vextir á þeim allt að 8,5%.
Söfnunarskírteini bera 8,5% vexti í 2 ár
eða 3 ár og hefðbundin spariskírteini með
6 ára binditíma og allt að 10 ára lánstíma
bera 7,2% vexti. Að binditíma liðnum eru
hefðbundnu spariskírteinin innleysanleg
af þinni hálfu og er ríkissjóði einnig heim-
ilt að segja þeim upp. Segi hvorugur skírt-
einunum upp beraþau áfram7,2% ársvexti
út lánstímann, sem getur lengst orðið 10 ár.
Verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs til sölu núna:
um innlausnardag hvenær sem er næstu 6
mánuði eftir gjalddaga. Endurgreiðslan er
miðuð við gengi þess dags.
Gengistryggð spariskírtcini ríkissjóðs til sölu núna:
Flokkur Lánstimi Ávöxtun Gjalddagi
1-SDR 3 ár 8,3% 11.jan. — 10. júli ’91
1-ECU 3 ár 8,3% 11.jan. — 10. júlí ’91
Flokkur Lánstimi Ávöxtun GjalddaRÍ
l.flD 2 ár 8,5% l.feb’90
l.fl. D 3 ár 8,5% l.feb. ’91
l.fl.A 6/10 ár 7,2% 1. feb ’94-’98
Iú hefur ríkissjóður hafið sölu á ríkis-
víxlum til fyrirtækja og einstaklinga.
Helsti kostur ríkisvíxla er sá, að á sama
tíma og skammtímafjármunir eru varð-
veittir á öruggan hátt bera þeir nú 33,1%
forvexti á ári. Það jafngildir 41,3% eftirá
greiddum vöxtum á ári miðað við 90 daga
lánstíma í senn.
Ríkisvíxlar:
Gengistryggd
spariskírteini
ý gengistryggð spariskírteini ríkis-
Isjóðs eru bundin traustum erlendum
gjaldmiðlum, sem verja fé þitt fyrir geng-
issveiflum.
Gengistryggð spariskírteini ríkissjóðs eru
annars vegar bundin SDR (sérstökum
dráttarréttindum) og hins vegar ECU
(evrópskum reikningseiningum), sem eru
samsett úr algengustu gjaldmiðlunum í
alþjóðaviðskiptum. Binditíminn er 3 ár
og í lok hans færðu greiddan höfuðstól
miðað við gengi á innlausnardegi auk
vaxtanna, sem eru 8,3%. Hægt er að velja
Lánstimi dagar Forvextir' Samsvarandi eftirá greiddir vextir Kaupverð 500.000 kr. víxils
45 33,1% 40,2% 479.312 kr.
60 33,1% 40,6% 472.417 kr.
75 33,1% 40,9% 465.521 kr.
90 33,1% 41,3% 458.625 kr.
• 15.1.1988
Ríkisvíxlar bjóðast nú í 45 til 90 daga. Þú
getur valið um gjalddaga innan þeirra
marka. Lágmarks nafnverð þeirra er
500.000 kr., en getur verið hvaða fjárhæð
sem er umfram það. (Kaupverð 500.000
kr. víxils miðað við 90 daga lánstíma er
kr. 458.625.)
Samsetning SDR
(Hlutföll (% ) m.v.
gengi 21/12 87).
Samsetning ECU
( Hlutföll ( % ) m. v.
gengi 21/12 ’87).
Pund 19,2
Pund 12,7
45 dagar 60 dagar 75 dagar 90 dagar
Spariskírteini ríkissjóðs fást í Seðlabanka
íslands og hjá löggiltum verðbréfasölum,
sem m.a. eru viðskiptabankarnir, ýmsir
sparisjóðir, pósthús um land allt og aðrir
verðbréfamiðlarar. Ríkisvíxlar fást í Seðla-
banka íslands. Einnig er hægt að panta þá
þar, svo og spariskírteinin, í síma-91-
699863, greiða með C-gíróseðli og fá
víxlana og spariskírteinin síðan send
ábyrgðarpósti.
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS