Morgunblaðið - 07.02.1988, Side 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1988
töflureiknir og grafík
Fjölbreytt námskeiö um notkun
áætlanagerðarforrita í viöskíptum og heima
Dagskrá: ___
• Qrundvallaratriöi Excel JHft
• Aætlanir og útreikningar IV umím
• Notkun töflureikna i viöskiptum ffwr. . „.F
• Myndrænframsetningtalna i J
Söfnun upplýsinga meö Excel
Dag og kvöldnámskeiö
Halldór Kristjánsson
verkfræöíngur
Næstu námskeið hefjast 15. febrúar
Isll verkfræé^þjímuslan
Grensásvegi 16, sími 68 80 90 einnig um helgar
%
Minning:
Jón Guðmunds-
son, Sauðárkróki
Fæddur 3. september 1900.
Dáinn 30. janúar 1988.
Mánudagánn 8. febrúar nk. verð-
ur til moldar borinn í Fossvogs-
kirkjugarði afí minn, Jón
Guðmundsson, sem lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsi Sauðárkróks 30.
janúar sl.
Afí Jón fæddist í Efra-Haganesi
í Fljótum 3. september árið 1900,
sonur hjónanna Aðalbjargar Pét-
ursdóttur og Guðmundar Halldórs-
sonar. Afí átti þijár yngri systur,
Jórunni og Petru, sem báðar eru
búsettar í Reykjavík, og Halldóru,
er lést fyrir nokkrum árum, og eldri
fóstursystur, Sigríði Benediktsdótt-
ur, sem einnig er látin. í uppvextin-
um naut afí ástríkis foreldra, sem
létu sér mjög annt um uppeldi bama
sinna. Þau bjuggu á ýmsum bæjum
í Fljótum, lengst af í Neskoti og
Neðra-Haganesi, en bemskuminn-
ingar afa voru einkum tengdar
ámnum í Neskoti.
Ungur að ámm fór afí að stunda
sjóróðra, 14 ára gamall var hann
ráðinn sem háseti á sexæringi og
upp frá því var hann við sjó-
mennsku í áratug. í fímm vor var
hann á hákarlaskipum auk þess sem
hann fór á vertíðir og stundaði
síldveiðar.
Afí Jón hefur sennilega haft
svolítið sjómannsblóð í æðum sér,
j>ó að ævistarfíð yrði við bústörf.
Ar sjómennskunnar vom sveipuð
ævintýraljóma í endurminningunni
og naut einstök frásagnargáfa hans
Lada Samara 5 gíra 299.000
Lada Samara 4 gíra 285.000
Það er ekki að ástæðulausu sem LADA SAMARA er með
athyglisverðustu framdrifsbílum sem í boði eru. Pað sem
meðal annars gerir bílinn svo eftirsóttan er hin einstaka
fjöðrun sem á öllum vegum gerir bílinn svo léttan og lipr-
an íakstri. LADA SAMARA er öruggur fjölskyldubíll, búinn
öryggisbeltum fyrir alla farþega, léttur í stýri og umfram
allt sparneytinn. Og til þess að kóróna sparnaðinn er LADA
SAMARA á undraverði og ekki spilla vinsælu greiðslukjör-
in.
Komið, skoðið og reynsluakið sparbílnum frá Lada.
OPIÐ LAUGARDAGA FRÁ10-16 OG ALLA VIRKA DAGA
FRÁ 9-18.
Beinn sími söludeildar er 31236.
Verift velkomin.
sín vel er hann rifjaði upp atburði
tengda þeim tíma.
Arið 1921 kvæntist hann ömmu
minni, Helgu Guðrúnu Jósefsdóttur
frá Stóru-Reykjum í Fljötum, og
bjuggu þau í nær 40 ár í Fljótum,
lengst af í Móskógum og á Mola-
stöðum. Þau eignuðust 13 böm,
sem öll komust upp, en einn son
sinn, Ásmund, misstu þau árið
1958. AIls munu afkomendur þeirra
nú vera um 155 á lífí. Árið 1960
brugðu afí og amma búi og fluttu
suður í Kópavog þar sem þau
bjuggu sér heimili f lítilli íbúð í
húsi foreldra minna, Önnu Bjama-
dóttur og Guðmundar sonar þeirra.
Afí var snilldar skrifari og ná-
kvæmur bókhaldsmaður, hann
hafði með höndum bókhald fyrir
Samvinnufélag Fljótamanna í mörg
ár og oddviti fyrir Haganeshrepp
var hann í 3 ár, auk þess sem hann
gegndi ýmsum öðmm trúnaðar-
störfum fyrir Fljótamenn. Bók-
haldsþekking hans kom sér vel við
nýjar aðstæður og fyrstu tvö árin
fyrir sunnan starfaði hann hjá
byggingarvörudeild SÍS, en árið
1962 réðst hann sem bókhaldari
að nýju fyrirtæki, Byggingarvöru-
verslun Kópavogs, sem sonur hans,
Guðmundur, var annar stofnenda
að.
Árið 1971 lést Helga amma mín
eftir langvarandi veikindi. Missir
afa var þá mikill því ástríki var
með þeim hjónum og er mér sér-
staklega minnisstætt, hve natinn
og umhyggjusamur hann var við.
hana í erfíðu sjúkdómsstríði.
Afí Jón var hávaxinn maður,
hæglátur og virðulegur í fasi. Hann
var afskaplega nákvæmur og vand-
virkur við allt sem hann gerði og
vissi upp á hár hvemig hann vildi
hafa hlutina. Bækur voru honum
mjög hugleiknar, hann las alla tíð
mikið alveg þar til hann fór að tapa
sjón nú á síðasta ári og var ótrú-
lega minnugur á það sem hann
hafði lesið.
Eftir að afí var orðinn einn og
var hættur að vinna, þá sótti hann
mikið félagsstarf aldraðra í Kópa-
vogi og eignaðist í gegnum það
góða vini. Hann ferðaðist í nokkur
skipti erlendis og naut þess inni-
lega. Fyrstu utanlandsferðina fór
hann til Skotlands um páskana áríð
1974 og var Björk systir mín í fylgd
með honum. Ferðin var farin til að
heimsækja mig og fjölskyldu mína,
en við vomm þá búsett í Edinborg.
Það varð okkur ógleymanlegt að
ferðast með afa í Skotlandi. Hann
vissi n'ákvæmlega hvað hann lang-
aði til að sjá og gera, þekkti lfka
marga staði af lýsingum, sem hann
hafði lesið, og var heimsmaður í
útlöndum.
Árið 1981 flutti afí aftur í Skaga-
Qörðinn til yngstu dóttur sinnar,
Svölu, og eiginmanns hennar,
Pálma Friðrikssonar, en þau eru
búsett á Sauðárkróki. Þar naut
hann einstakrar umönnunar síðustu
æviárin.
Að leiðarlokum þakka ég afa
samfylgdina.
„Til föðurlands vors svo förum heim,
þar framar ei rennur dagur.
Borg lifanda Guðs í iöndum þeim
og ljóminn svo undra fagur
oss tekur þá við, - þar endar ei
vor indæli sæluhagur."
(Stef. Thor.)
Bjarnheiður Guðmundsdóttir