Morgunblaðið - 24.02.1988, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 24.02.1988, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1988 25 Bandaríkin: Reagan skipar nýjan flotamálaráðherra Washington, Reuter. RONAJLD Reagan, Bandaríkjafor- seti, skipaði i gœr William Ball, sem starfað hefur í utanríkisráðu- neytinu og i öldungadeildinni, í embætti flotamálaráðherra. Fyr- irrennari hans, James Webb, hafði sagt af sér embættinu eftir að hafa gegnt þvi i tíu mánuði. Hann var óánægður með þá ákvörðun bandaríska varnar- málaráðuneytisins að fresta áætl- un um 900 skipa flota fyrir árið 1990. Þótt talsmenn ríkisstjómarinnar segðust harma afsögn Webbs reyndi' enginn að telja honum hughvarf. „Þetta er hluti starfsins," sagði tals- maður vamarmálaráðuneytisins. „Ef menn geta ekki stutt vamarmálaráð- herrann ræða þeir það ekki frekar eða hætta. Þess vegna hætti hann.“ Aðrir talsmenn stjómarinnar sögðu að þrátt fyrir afsögn Webbs yrðu engar breytingar gerðar á fjár- hagsáætluninni sem Frank Carlucci, vamarmálaráðherra, sendi Banda- ríkjaþingi í síðustu viku. Webb hafði birt bréf sem hann sendi Reagan forseta, þar sem hann mótmælti spamaðarráðstöfunum vamarmála- ráðherrans. Marlio Fitzwater, talsmaður Bandaríkjaforseta, tilkynnti í gær að Ronald Reagan hefði skipað Will- iam Ball í embætti flotamálaráð- herra. Fitzwater sagði fréttamönn- um að Ball yrði sterkur talsmaður sjóhersins á Bandaríkjaþingi. Emb- ættismaður stjómarinnar sagði við fréttamann Reuter að Ball væri í nánum tengslum við ríkisstjómina og Bandaríkjaþing, og ætti að geta orðið Carlucci að miklu liði í sam- skiptum hans við þingið. Fitzwater sagði á fréttamanna- fundinum að Reagan forseti tæki spamaðarráðstafanimar nærri sér, en þær væru þó nauðsynlegar að hans mati. Reuter James Webb, fyrrum flotamála- ráðherra. ERLENT Peres sagður hafa ætl- að að þiggja mútur Washington. Reuter. EDWIN Meese, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, var skýrt frá þvf á minnismiða, sem hann fékk í hendumar árið 1985, að Shimon Peres, sem þá var forsætisráðherra ísraels, hefði samþykkt að taka við 700 milljónum dollara vegna fyrirhugaðrar lagningar olíuleiðslu frá Irak. Átti féð að renna til ísraelskra stjómvalda og einnig í sjóði Verka- mannaflokks Peresar. Minnismiðinn var frá manni, sem vann að því að kynna áætlunina um leiðsluna, og hefur verið vitað um tilvist hans í nokkum tíma. Það var þó ekki fyrr en á mánudag, að lög- fræðingar Meeses sýndu hann og kom þá í ljós, að Peres var flæktari í málið en áður var talið. Peres sjálf- ur hefur þó neitað því, að honum hafi verið boðnar mútur fyrir að sam- þykkja olíuleiðsluna en nú hefur ver- ið hætt við hana. Lögfræðingamir birtu einnig bréf frá Peres til Meese þar sem hann lýsir áhuga sínum á olíuleiðslunni en hún átti að liggja frá írak til jórdönsku hafnarborgar- innar Aqaba við Rauðahaf. Sérstakur saksóknari í Banda- ríkjunum er nú að kanna hvort Me- ese hafí brotið lög með því að bera fé á útlenda embættismenn en lög- fræðingar hans segja, að minnismið- inn sýni, að hann hafi engan hlut átt að máli. Höfundur minnismiðans er fom- vinur Meeses, E. Robert Wallach, en hann gekk erinda svissnesks kaup- sýslumanns, Bruce Rappaports, sem ætlaði að leggja leiðsluna og' vildi tryggja sér stuðning Bandaríkja- stjómar. ísraelar áttu að fá umrædda Qárhæð, um 70 milljónir dollara ár- lega í tíu ár, fyrir það eitt að sprengja ekki leiðsluna upp. Afganistan: Leppstjórnin ekki fulltrúi þjóðarinnar - segja leiðtogar frelsissveitanna Islamabad, Pakistan. Reuter. LEIÐTOGAR frelsissveita í Afg- anistan lýstu því yfir í gær að stjórn þeirra væri hinn rétti full- trúi afgönsku þjóðarinnar í við- ræðurp við ráðamenn í Pakistan um brottflutning sovéska her- liðsins frá landinu. Kváðust þeir ekki geta fallist á að leppstjórn Sovétmanna í Kabúl, höfuðborg Afganistans, skrifaði undir sam- komulag um brottflutning her- liðsins fyrir hönd afgönsku þjóð- arinnar. Óbeinar viðræður um brottflutn- ing sovéska innrásarliðsins, sem fram fara á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, hefjast 2. mars í Genf í Sviss. Munu fulltrúar leppstjómar- innar í Kabúl þá setjast að samn- ingaborðinu og ræða við fulltrúa Pakistana um hvemig sfcanda skuli að brottflutningnum. Míkhafl S. Gorbatsjov Sovétleið- togi sagði nýlega að flutningur her- liðsins frá Afganistan gæti hafist 15. maí ef fulltrúar Afgana og Pakistana, sem styðja skæruliða, næðu samkomulagi um fyrirkomu- lag brottflutningsins fyrir miðjan mars. Pakistanar telja að ný stjóm verði að hafa tekið við völdum í Kabúl áður en gengið verður til samninga. í tilkynningu sem frelsissveitir í Afganistan sendu frá sér í gær seg- ir að hinir ýmsu hópar skæruliða hafi náð §áttum um skipan bráða- birgðastjómar f Afganistan. Skæruliðar höfðu áður kunngert þessi áform en í tilkynningunni frá- f gær segir að 28 ráðherrar verði í hinnu nýju ríkisstjóm, 14 úr sveit- um andspymumanna, sjö úr röðum afganskra flóttamanna auk þess sem múhameðstrúarmenn sem búa í Afganistan muni fá sjö ráðherra í stjóminni. Bandaríkin: 2 prósenta efna- hagsvexti spáð Washington, Reuter. SEÐLABANKI Bandarfkjanna til- kynnti í gær að horfur væru á að efnahagsvöxtur Bandaríkjanna minnkaði á þessu ári f 2,0 pró- sent. í fyrra var vöxturinn 2,5 prósent og árið þar áður 3,8 pró- sent. í skýrslu Seðlabankans, sem kynnt var á Bandaríkjaþingi, er spáð að verðbólgan á þessu ári verði milli 3,25 til 3,75 prósent, en í fyrra var hún 3,0 prósent. Þá er spáð að at- vinnuleysi, sem var 5,8 prósent í desember og janúar, verði milli 5,75 til 6,0 prósent í lok þessa árs. Efnahagsspá bankans gerir eins og ríkisstjóm Reagans ráð fyrir að verg þjóðarframleiðsla aukist um 2,4 prósent. Ríkisstjómin hafði áður spáð að verg þjóðarframleiðsla yrði 3,5 prósent, en lækkaði prósentuna síðar, aðallega vegna hrunsins í verð- bréfamörkuðunum í október. EYMUNDSSON STENDUR YFIR í VERSLUN OKKAR í AUSTURSTRÆTI. BÆKLJR Á GÓÐU VERÐI Margar bókarma hafa ekki áðursést þess finna hitt og þetta fágæti sem á bókamarkaði og innan um má auk aðeins er til í takmörkuðu upplagi. ÞAÐ ERU NÆG BÍLASTÆÐi í GAMLA MIÐBÆNUM. Við viljum sérstaklega benda á Bakkastæðin, sem merkt eru inn á kortið. Nú eiga allir bókaunnendur erindi í Austurstræti og þeir sem ekki komast á staðinn, geta notfært sér pöntunarþjónustu okkar. Þetta er bókamarkaður allra landsmanna. Bókalisti birtist í Morgunblaðinu föstudaginn 19. febrúgr. SÍMSVARI. TEKIÐ ER VIÐ PÖNTUNUM ALLAN 5ÓLARHRINGINN. Ekkert póstkröfugjald. Pöntunarsímar: 91-18880 og 91-13522. Símsvari eftir kl. 18 til klukkan 09 : 91-16109. UPPGRIP PfRIR ALLA BOKAUNNENDUR BÓKAMARKAÐURl N N I988 AUSTURSTRÆTI I8 Pöntunarsímar: 91-18880 og 91-13522.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.