Morgunblaðið - 24.02.1988, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1988
31
Safnaðarheimili Hallgrímskirkju:
Kynning á Laus-
anne-hreyfingunni
SÉRA Bent Reidar Eriksen, sókn-
arprestur í Drammen í Noregi,
kynnir Lausanne-hreyfinguna á
opnum fundi i safnaðarheimili
Hallgrímskirkju á morgun,
fimmtudag, og hefst fundurinn
klukkan 20.30.
Árið 1974 héldu evangelískir
kristnir menn Qölmenna ráðstefnu í
borginni Lausanne í Sviss. Þar var
rætt um samstarf evangelískra kris-
tinna manna innan ólíkra kirlqu-
deilda og boðun fagnaðarerindisins
með sérstöku tilliti til kristniboðs.
Eftir ráðstefnuna hafa evangelískir
kristnir menn haft samband sín á
milli í laustengdum samtökum sem
nefnd eru Lausanne-hreyfingin.
Önnur kristileg ráðstefna verður
haldin á næsta ári í Singapore í
Asíu, þar sem reynt verður að meta
hvað áunnist hefur í þessu samstarfi
evangelískra manna, auk þess sem
rætt verður um starfið framundan.
íslendingum hefur verið boðið að
senda fulltrúa til ráðstefnunnar og
ákveðið hefur verið að undirbúa
formlega þátttöku evangelískra
manna á íslandi í Lausanne-hreyf-
ingunni. Koma séra Bent Reidar
Eriksen til íslands er liður í því starfí.
Hann mun einnig predika við guðs-
þjónustu sem hefst klukkan 11 nk.
sunnudag í Hallgrímskirkju og tala
á samkomu sem hefst klukkan 20.30
um kvöldið hjá KFUM á Amt-
mannsstíg 2, segir í fréttatilkynn-
ingu frá biskupsstofu.
Ófeigur III dæmdur ónýtur
tí'ygginguraðilur
Ofeiir
Þorlákshöfn.
EFTIR að
höfðu skoðað Öfeig III á
strandstað í fjörunni við Ós-
eyramesvita á laugardags-
morgun dæmdu þeir bátinn
ónýtan og sögðu björgunar-
sveitarmönnum í Þorlákshöfn
að þeir mættu hreinsa úr hon-
um allt sem nothæft væri. Ekki
hefur þó formlega verið gefið
út af tryggingaraðilum að
björgunarsveitarmenn megi
eiga það sem úr bátnum næst.
Fyrir því hefur þó myndast eins
konar hefð að björgunarsveitir
fái að nýta sér þá báta sem
dæmdir hafa verið ónýtir á
strandstað.
Ófeigur III ér tryggður hjá
Vélbátaábyrgðarfélagi Vest-
mannaeyja og munu þeir að
líkindum halda stjómarfund á
fimmtudag og endanlega ákveða
hvað gera skuli.
Mjög rösklega var gengið í
björgunarstörf af slysavama-
mönnum og að þeirra sögn vom
á milli 60 og 70 manns að störfum
þegar mest var. Þess vora dæmi
að menn tækju sér frí úr vinnu,
sérstaklega vélstjórar og vél-
smiðjumenn.
Stórvirkar vinnuvélar voru not-‘
aðar, vélskófla ruddi veg að bátn-
um svo að stór krani, vörabflar
og lyftari kæmust að. Miklum
verðmætum tókst að ná
óskemmdum í land, bæði vélbún-
aði, veiðarfæram og rafmagns-
tækjum. •
- JHS
Suðurland:
Skarphéðins-
þing um helgina
Sýnishorn af hinni nýju
svörtu línu frá Gliti.
Glithfá
Islands-
kynningu
í Gautaborg
Nú stendur yfir ísland-
skynning á Sheraton hótelinu
i Gautaborg i Sviþjóð. Á sýn-
ingunni er lögð áhersla á að
kynna landið, íslenskar fram-
leiðsluvörur og islensk vöru-
merki.
Glit hf tekur þátt í þessari
sýningu og kynnir þar nýja fram-
leiðslulínu í svörtum tónum, eins
og segir í fréttatilkynningu frá
fyrirtækinu. Þar er um að ræða
gjafavöru úr steinleir sem hönn-
uð er af starfsfólki Glits. Þátt-
taka í þessari sýningu er fyrsti
liður í kynningarstarfsemi Glits
á 30 ára afmæli fyrirtækisins.
Hljómsveitin E-X.
Morgunblaðið/Sverrir
Tónleikar í Duus
Rokktónleikar verða haldnir í
veitingastaðnum Duus i Fisch-
erssundi fimmtudaginn 25. febr-
úar.
Þar koma fram hljómsveitimar
E-X og Jojo.
Væntanleg er plata með E-X í
byijun mars og á tónleikunum
kynnir hljómsveitin þá plötu og
nýrra efni. Hljómsveitin Jojo kemur
fram í fyrsta skipti þetta kvöld.
Tónleikamir hefjast kl. 10.
Selfossi.
ÞING Héraðssambandsins
Skarphéðins verður haldið helg-
ina 27. og 28. febrúar í Félags-
lundi í Gaulverjabæjarhreppi og
hefjast þingstörf klukkan 14.00
á laugardag.
Þingið sitja fulltrúar allra félaga
sambandsins úr Ámes-og Rangár-
vallasýslu. Öllum er heimilt að sitja
sem áheymarfulltrúar hafi þeir
áhuga á að kynnast starfsemi sam-
bandsins.
Á laugardagskvöldið verður ár-
viss kvöldvaka í tengslum við þing-
ið. Þar verður íþróttamaður sam-
bandsins formlega kynntur og fleiri
verðlaun afhent. Bændaglíma verð-
ur glímd en glímumenn Skarphéð-
ins hafa skorað á úrval reykvískra
glímumanna í bændaglímu. Glíma
þessi er haldin í minningu Sigurðar
Greipssonar. Sleifarkeppni heitir
önnur keppni sem tengist þessu
þinghaldi, þar keppa menn í ýmsum
þrautum og á að launum gamla
sleif. Kvöldvakan er einnig opin
öllum.
Sig. Jóns.
Jassballett á Hótel íslandi
ÖNNUR sýning íslenska jassbal-
lettflokksins verður haldin á Hótel
íslandi fimmtudaginn 25. febrúar
næstkomandi. Núverandi þjálfari
flokksins, Carl Barbee frá Banda-
ríkjunum, hefur frumsamið verk-
in fyrir flokkinn, en þau eru sjö
talsins.
Fyrsta sýning flokksins var haldin
10. desember síðastliðinn og var það
þáverandi þjálfari flokksins, Evrol
Puckerin frá Englandi, sem setti þá
sýningu á svið. Á þessari sýningu
fékk flokkurinn sína fyrstu styrktar-
meðlimi, en tilgangur þessara fyrstu
sýninga flokksins, sem era boðssýn-
ingar, er að safna styrktarmeðlimum
til að koma fótunum undir þennan
nýstofnaða dansflokk. Markmið ís-
Morgunblaðið/Soffla Martónsdóttir
Atriði úr sýningu íslenska jassballettflokksins.
lenska jassballettflokksins er að
skapa dönsuram á íslandi fleiri tæki-
færi til að starfa við listgrein sína.
(ur fréttatilkynningu.)
Höfn:
Hvanney með
mestanafla
Höfn, Horaafirði.
Fiskimjölsverksmiðja Horna-
fjarðar fékk 5.314 tonn af loðnu
í fyrri viku og 2.813 í síðustu viku.
Mestu landaði Húnaröst, 2.797
tonnum. og Galti 2.034 tonnum,
en Gisli Arni kom með mest i einni
ferð, 635 tonn. Örlitið þróarrými
er að losna, en Húnaröst bíður
löndunar og fyllist allt þar með.
Skinneyjarbátar lönduðu rúmum -v
43 tonnum hjá Skinney hf. Steinunn
17,6 tonnum, Freyr 16,2 tonnnum
og Skinney 9,7 tonnum. Það var
síðasta langlúralöndun Skinneyjar,
sem nú er að búa sig til netaveið-
anna. Að auki lönduðu Freyr og
Steinunn tæpum 10 tonnum hjá
KASK.
Hvanney SF-51 bar mestan afla
á land til KASK, eða 59,8 tonn eftir
6 sjóferðir. Alls bárast 342,8 tonn
til Kaupfélagsins í vikunni úr 64
róðram 16 smærri og stærri báta.
Heildarafli móttekinn í KASK er nú
1.166 tonn í 232 sjóferðum, móti,
2.331 tonn í 320 sjóferðum fyrir
ári. Vísir og Haukafell lönduðu um
35 tonnum á Höfn, en báðir hafa
landað talsverðu í Vestmannaeyjum
af ufsa eða um 180—200 tonnum.
Rúm 22 tonn af Garðey SF-22
voru seld í Englandi í fyrri viku.
Verð um 80 kr./kg.
- JGG ,
Bokmenntir og listir á
Kópavogsvöku í kvöld
Svava Jakobsdóttir les úr eigin
verkum á Kópavogsvöku í kvöld.
Á dagskrá Kópavogsvöku í kvöld
er bókmennta- og listadagskrá
sem verður haldin í samkomusal
Félagsheimilis Kópavogs og
hefst klukkan 20.30. Gestur
kvöldsins verður Svava Jakobs-
dóttir, sem les úr úr eigin verk-
um auk þess sem sýnt verður úr
leikritum hennar.
Dagskráin hefst með söng Skóla-
kórs Kársness. Þá verður stutt dag-
skrá um verkum Svövu, meðal ann-
ars „Blýhólknum" og „Lokaæfingu"
og síðan tekur við ljóðadagskrá úr
verkum Jóns úr Vör í umsjón Leik-
félags Kópavogs. Dagskránni lýkur
með því að Kristín Sædal Sig-
tryggsdóttir syngur lög Þorkels
Sigurbjömssonar við ljóð úr „Þorp-
inu“ eftir Jón úr Vör. Á milli atriða
leika Kjartan Óskarsson klarinett-
leikari og Hrefna Eggertsdóttir
píanóleikari.
Á morgun verður jasskvöld í
umsjón Jassbands Kópavogs, undir
stjóm Áma Schevings og föstudag-
urinn verður helgaður unglingum.
Kópavogsvökunni lýkur á laugar-
dag með dansleik í félagsheimilinu.
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Unnið að björgun á verðmætum úr Ófeigi III á strandstað við Óseyramesvita.