Morgunblaðið - 24.02.1988, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1988
Minning:
Garðar Sigfússon
bifreiðastjóri
Fæddur 6. apríl 1924
Dáinn 15. febrúar 1988
í dag er til grafar borinn Garðar
Sigfússon bifreiðastjóri, vinur minn
og samstarfsmaður hjá Strætis-
vögnum Kópavogs um margra ára
skeið.
Garðar var aðeins 63 ára þegar
hann lést og hafði ætíð verið í fullu
starfí. Kom því fregnin um andlát
hans mjög á óvart þó að kunnugir
vissu að hann gekk ekki lengur
heill til skógar.
Garðar Sigfússon var fæddur 6.
apríl 1924 að Stóruhvalsá í Hrúta-
fírði. Hann var 8. í röðinni af 14
systkinum. Foreldrar hans voru
hjónin Kristín Gróa Guðmundsdótt-
ir og Sigfús Sigfússon bóndi að
Stóruhvalsá.
Ungur að árum var Garðar látinn
í fóstur til hjónanna Ólafíu Sæ-
mundsdóttur og Eíðs Jónssonar á
Kjörseyri við HrútaQörð og ólst
hann upp hjá þeim hjónum að Kjörs-
eyri og á Brandagili. Ungur vandist
hann öllum störfum við landbúnað
og sjóróðra. Sautján ára gamall fór
hann svo með eldri bróður sínum
Steingrími til Patreksfjarðar og
stundaði hann sjómennsku þaðan
og frá fleiri stöðum á Vestfjörðum
um nokkurt skeið. Rúmlega tvítug-
ur að aldri flutti hann svo til
Reykjavíkur eins og fleiri ungir
menn af landsbyggðinni á þeim
árum. Fyrstu tvö árin vann hann
við landbúnaðarstörf að Bessastöð-
um en fór síðan að stunda akstur
leigubíla og strætisvagna og var
mjög farsæll og vel látinn í því
starfí. Næst tók Garðar við starfí
iögregluþjóns hér í Kópavogi og
síðar var hann starfsmaður við raf-
virkjanir á hálendinu. Nýlega var
hann svo tekinn við starfí húsvarð-
ar í ijölbýlishúsi að Espigerði 2.
Garðar Sigfússon var traustvekj-
andi maður í allri framkomu, skýr
í hugsun og yfírvegaður í málflutn-
ingi. Á uppvaxtarárum Garðars var
þröngbýli mikið og fátækt í sveitum
landsins. Framhaldsnám að loknum
bamaskóla var aðeins fjarlægur
draumur hjá ungu fólki frá stórum
ijölskyldum. Strax um fermingar-
aldur fóru unglingamir í fullt starf
við búskapinn eða aðra vinnu hvar
sem hana var að fá.
Það fór því eftir upplagi og áhuga
hvers einstaklings hvemig til tókst
um öflun almennrar menntunar sem
nú stendur öllum opin.
Garðar Sigfússon settist aldrei á
skólabekk eftir að hann lauk námi
t
Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir,
EINVARÐUR HALLVARÐSSON
fyrrverandl starfsmannastjóri,
Melhaga 8, Reykjavik,
lést 22. febrúar sl.
Vlgdfs Jóhannsdóttir,
Hallvarður Einvarðsson, Erla Magnúsdóttir,
Jóhann Einvarðsson, Guðný Gunnarsdóttir,
Sigrföur Einvarðsdóttir, Gunnar Björn Jónsson.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ELIMAR TÓMASSON
frá Skammadal,
til heimilis f Hamraborg 32,
Kópavogi,
lóst í Landakotsspítala þann 19. þ.m. Hann verður jarðsunginn
frá Bústaöakirkju föstudaginn 26. febrúar kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlega bent á að láta líknar-
stofnanir njóta þess.
Guðbjörg Pálsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn og
barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn,
HERMANN BÆRINGSSON
yfirvélstjórl,
Barmahlfð 51, Reykjavík,
lést í Landakotsspítala að kveldi mánudagsins 22. febrúar.
Ragna Eirfksdóttir.
t
Móðir mín, -
KRISTJANA G. FANNBERG,
lést mánudaginn 22. febrúar. Fyrir hönd vandamanna,
Eyþór Fannberg.
t
Dóttir okkar og systir, "
SIGRfÐUR INGIBJÖRG INGIBERGSDÓTTiR KVIST,
andaðist í sjúkrahúsi í Danmörku þann 20. febrúar. Fyrir hönd
aðstandenda.
Guðrún Guðmundsdóttir,
Ingiberg Sigurgeirsson,
Páll Ingibergsson.
í barnaskóla en hann náði ótvírætt
góðum árangri í sínu sjálfsnámi.
Það fékk hann staðfest þegar hann
sótti námskeið lögreglumanna en
þar fékk hann viðurkenningu fyrir
meðferð sína á íslensku máli. Garð-
ar var söngmaður góður og unn-
andi tónlistar. Hann tók lengi þátt
í starfí karlakóra í Reykjavík og í
Samkór Kópavogs.
Á aðfangadagjóla árið 1950 gift-
ist Garðar Sigfússon eftirlifandi
eiginkonu sinni Emilíu Böðvars-
dóttur, en þau höfðu þá búið saman
í Reykjavik um þriggja ára skeið.
Emilía var, eins og Garðar, fædd
og uppalin við Hrútaijörðinn. Hún
er dóttir hjónanna Ólafar Sigurjóns-
dóttur og Böðvars Eyjólfssonar sem
bjuggu á Kjörseyri og síðar á Bæ
í Strandasyslu.
Árið 1953 fluttu þau Garðar og
Emilía í Kópavog og keyptu litla
íbúð að Digranesvegi 26. Þau hjón-
in eignuðust 6 böm sem öll eru nú
uppkomin og hafa stofnað sín eigin
heimili. Auk þess tóku þau að sér
vandalausa stúlku á bamsaldri og
ólu hana upp sem sína dóttur. Hún
hét Ragnheiður Edda Hallsdóttir.
Hún lést af slysförum árið 1974.
Böm þeirra Emilíu og Garðars em
talin hér í aldursröð: Garðar Kári,
vélstjóri við Laxárvirkjun, Ragn-
heiður Ólafía, búsett í Kópavogi,
Ólöf Brynja, búsett í Reykjavík,
Hildur, búsett í Kópavogi, Hreimur
Hreiðar, bflamálari, búsettur í
Kópavogi og Kristín Sigfríður,
sjúkraliði, búsett á Seltjamamesi.
Garðar Sigfússon var vagnstjóri
hjá Landleiðum hf. þegar það fyrir-
tæki hóf morgunferðir strætis-
vagna hér um hálsinn. Hann varð
því fyrstur manna til að aka strætis-
vögnum hér í bænum. Þegar Stræt-
isvagnar Kópavogs voru stofnaðir
1. mars 1957 Var Garðar ráðinn
þar vagnstjóri.
Á þeim vettvangi vorum við nán-
ir samstarfsmenn um 12 ára skeið.
Frá þeim árum á ég honum mikið
að þakka eins og fleiri samstarfs-
mönnum mínum. Fyrstu árin gengu
vagnstjórar í öll störf sem vinna
þurfti hjá fyrirtækinu og er mér
minnisstætt hvað Garðar var jafnan
fús til að taka aukavaktir, jafnvel
næturvaktir við að hreinsa vagn-
ana. Þá voru allir starfsmennimir
samstilltir um að láta fyrirtækið
vinna sér fastan sess í bæjarlífinu.
Á fyrstu mánuðum Strætisvagna
Kópavogs lentum við Garðar í erfíðu
verkefni. Kaupdeila vagnstjóra stóð
yfír hjá Strætisvögnum Reykjavík-
ur og Landleiðum hf. Þá þurftu
vagnstjórar hjá Strætisvögnum
Kópavogs einnig að semja um sín
laun við okkar nýja fyrirtæki sem
þá var í mikilli óvissu um sinn
starfsgrundvöll. Þá var Garðar full-
trúi vagnstjóranna i samningunum
ásamt Jóni Guðmundssyni vagn-
stjóra.
Þá hafnaði ég, sem forstöðumað-
ur fyrirtækisins, atvinnurekenda-
megin við samningaborðið og var
heldur illa undir það hlutverk búinn.
Deilan varð nokkuð hörð og stóðu
þeir félagamir fast á kröfum sinna
umbjóðenda svo sem þeim bar að
gera. Ég hafði hinsvegar það hlut-
verk að sanna tilverurétt fyrirtækis-
ins og halda um það góðri sam-
stöðu. Deilan leystist farsællega
rétt áður en til verkfalls átti að
koma og ég held að við höfum allir
fagnað því jafn mikið. Ég mun
ætíð muna þann drengskap sem-
þeir félagar sýndu mér í þessari
deilu.
Ekkja Garðars Sigfússonar,
Emilía Böðvarsdóttir, hefur mikið
misst við sviplegt fráfall eigin-
manns síns. Ég vona að í djúpri
sorg sinni geti hún einnig litið á
björtu hliðar tilverunnar. Hún er
umvafín samúð og umhyggju 6
bama sinna og 18 bamabama.
Slíkan auð eiga ekki allir-til að
dreifa sárum söknuði.
t
Eiginmaður minn
VALGEIR JÓNSSON,
rafvirkjameistari frá Patreksfirði,
Asparfelli 2,
Reykjavík,
andaðist í Borgarspítalanum aðfararnótt 23. febrúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Kristfn Gunnlaugsdóttir.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúö og hlýhug
við andlát og útför föður okkar, tengdafööur og afa,
GUÐJÓNS BENEDIKTSSONAR
vélstjóra.
Steinunn Guðjónsdóttir,
Ingibjörg Guðjónsdóttir,
Hulda Guðjónsdóttir,
Guðrún Guðjónsdóttir,
Hera Guðjónsdóttir,
Elsa Guðjónsdóttir,
Haukur Guðjónsson,
Óskar Guðjónsson,
Böðvar Eggertsson,
Haukur Sveinsson,
Oddur Ingvarsson,
Helgi S. Guðmundsson,
Laila Guðjónsson,
Kristín Jónsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
t
Hjartans þakklæti til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug viö andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður og ömmu,
RAGNHEIÐAR EYGLÓAR EYJÓLFSDÓTTUR,
Álfaskeiði 59,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki lungnadeildar Vífilsstaðaspítala.
Jóhannes Sævar Magnússon,
Kristinn Arnar Jóhannesson, Björg Leifsdóttir,
Ármann Jóhannesson, Gunnvör Karlsdóttir,
Anna Kristfn Jóhannesdóttir, Þórður Helgason
og barnabörn.
Ég sendi Emiiíu, öldmðum föður
hennar og allri hennar stóm fjöl-
skyldu innilegar samúðarkveðjur.
Ólafur Jónsson
Þann 15. febrúar sl. andaðist á
Borgarspítalanum Garðar Sigfús-
son, húsvörður, Espigerði 2. Hann
hafði um nokkurt skeið kennt þess
sjúkdóms er varð honum að aldur-
tila.
Garðar fæddist að Stóm-Hvalsá
í Hrútafírði 6. aprfl 1924. Með þess-
um kveðjuorðum verður eícki rakinn
æviferill hans.
Fyrir nokkram ámm var stofnað-
ur blandaður kór innan Kvöidvöku-
félagsins Ljóðs og sögu og nefnist
hann Kvöldvökukórinn. í honum tók
Garðar virkan þátt ásamt fjóram
systkinum sínum, enda raddmaður
góður og unnandi þjóðiegrar tónlist-
ar. Hann bar hag kórsins mjög fyr-
ir bijósti og var formaður kómefnd-
ar þegar kallið kom.
Vð félagar Garðars minnumst
margra ánægjustunda sem við átt-
um sameiginlega og þökkum sam-
fylgdina að leiðarlokum.
Grandvar maður, hlýr og traust-
ur er genginn til feðra sinna.
Konu hans, Emilíu Böðvarsdótt-
ur, bömum, systkinum og öðmm
vandamönnum, sendum við innileg-
ar samúðarkveðjur.
Ólafur Jónsson
Elsku bróðir minn, hann Garðar,
er farinn til æðri heima. Snögg
urðu þessi umskipti fyrir fjölskyldu
hans, ættingja og vini. Þó vitum
við öll að ekki er nema eitt lítið
fótspor milli þessa heims og ann-
ars, eða eitt lítið andartak, sem við
skynjum en skiljum ekki, en trúum
samt að sé leiðin til ijóssins og betri
heima og að þar sé tekið á móti
okkur, af þeim sem á undan okkur
em famir.
En söknuður og hryggð ríkir nú
meðal fjölskyldu hans, og bið ég
góðan Guð að styrkja þau og styðja,
í þeirra miklu sorg og eins alla
ættingja og vini. Ég ætia ekki að
fara að rekja æviferil Garðars, það
gera aðrir mér færari, heldur ætla
ég aðeins að þakka honum sam-
fylgdina sem hafði mátt vera meiri
og lengri, þakka honum allt sem
hann var mér, sem góður bróðir og
félagi.
Sjá, hve færist yfir húmsins hönd
svo að hljóðna fer um sæ og lönd
meðan sól til viðar sígur hljótt
Sofðu rótt.
Standi allir góðir vættir vörð
færi veikum styrk og frið á jörð.
Megi guð á himnum gefa drótt
góða nótt.
(J.B.)
Hvfli hann í friði.
Gógó
Blóma- og
skreytingaþjónusta ®
hvert sem tilefnid er. ^
GLÆSIBLÓMIÐ
GLÆSIBÆ,
Áltheimum 74. sími 84200
Birting af-
mælis og
minningar-
greina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð i
Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins i Hafnar-
stræti 85, Akureyri.