Morgunblaðið - 24.02.1988, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1988
51
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Athyg’lisverð grein
MOBCUKBLADIP. SUWKUPAGUR 14. FEBKOaR l«M
Blóðbaðið
í Nanking
FyrrverandiJapanskirhermenrU^firbótarfei^
Kæri Velvakaridi.
Mig langar að nota þetta tæki-
færi til þess að óska Morgunblaðinu
til hamingju með greinina „Blóð-
baðið í Nanking" sem birtist í
sunnudagsblaði þann 14. febrúar.
Eg tek það skýrt fram að það er
ekki mín ætlun að vekja andúð á
japönsku þjóðinni en mér finnst
mikið óréttlæti á ferðinni þegar
Hirohito keisari er hvítþveginn af
öllum þeim glæpum sem japanski
herinn framdi, en Kurt Waldheim
forseti er hvað eftir annað ofsóttur
vegna vitneskju hans um glæpi
Þjóðveija. Enn fremur þessi eilífa
þvæla um Hírósíma og Nagasaki.
Það voru fleiri þúsund borgir og
bæir lagðir í rúst í seinni heimsstyrj-
öld. Hvað um þau? Það skiptir engu
máli hvaða vopnategund er notuð
og því fyrr sem mannkyn skilur
það, því betra. Og að bandarísk
yfirvöld skuli meina forseta Aust-
urríkis að koma til Bandaríkjanna
og einnig saka forseta Panama um
eiturlyfjasmygl en samt loka augum
sínum varðandi ýmsa leiðtoga sem
hafa mjög óhreinar hendur. Ef
mannkyn kallar yfir sig ragnarök
verður það eingöngu vegna argasta
aumingjaskapar.
Vilhjálmur Alfreðsson
I
I
t
I
I
Ij
Þessir hringdu ..
Góð morgunleikfimi
Elín Friðríksdóttir hringdi:'
„Ég vil þakka fyrir morgunleik-
fimi Halldóru Björnsdóttur á rás
eitt. Ég held að þetta séu góðar
og heppilegar æfíngar fyrir alla,
ekki síst fyrir þá sem eru lasburða
og aldraðir. Vonandi verður
áframhald á svona leikfimi fram-
vegis.“
Skíðaskór
Skíðaskór fannst á Miklubraut
fyrir nokkru. Eigandi hans getur
hringt í síma 685014 eftir hádegi.
Gleraugu
Nýleg karlmanns gleraugu töp-
uðust í janúar. Pinnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
síma 36217. Fundarlaun.
Lionair — hæpinn
ávinningur
Ó.G. hringdi:
„Ég tel saming þann sem gerð-
ur hefur verið milli V.R. og Liona-
ir hæpinn ávinning fyrir félags-
menn V.R. Samkvæmt honum
verður aðeins um einn áfangastað
að ræða og brotfarardagar verða
aðeins fjórir. Enginn þessara brot-
farardaga hentar mér og veit ég
um fleiri sem þannig er ástatt um.
Fólk hefði gjaman viljað borga
nokkur þúsund í viðbót til að geta
valið um áfangastaði og haft um
fleiri brotfarardaga að velja.
Páfagaukur
Lltill grænn páfagaukur fannst
hjá Kennaraháskólanum sl. föstu-
dag. Eigandi hans er beðinn um
að hringja í síma 20579 eftir kl.
18.
Hefur stofnandinn
gleymst?
S.E. hringdi:
„Afmæli Þjóðminjasafnsins
verður hinn 26. febrúar. Mér
fínnst safnið ekki hafa gert nógu
vel við stofnanda sinn, Sigurð
Guðmundsson. Teikningar eftir
hann, sem áður voru til sýnis í
safninu, hafa verið teknar niður
og sjálfsmynd Sigurðar, sem þar
er til sýnis, er farin að skemmast
og þyrfti að gera við hana. Mér
er kunnugt um að til eru eftir
Sigurð fjöldi teikninga. Hvar eru
þær niður komnar? Væri ekki
tímabært að halda sýningu á
þeim.“
Miljarðar og bfljónir
Skúli Helgason hringdi:
„Fyrir skömmu varð fétta-
manni Ríkisútvarpsins á sú skyssa
að tala um fjörutíu biljónir doll-
ara. Þama var greinilega átt við
fjörutíu miljarða en Bandaríkja-
menn nota biljón fyrir miljarð.
Biljón táknar hins vegar miljón
miljónir. Þetta bendir til þekking-
arleysis hjá fréttamanninum sem
hefði átt að vita betur. Þá finnst
mér til skammar þegar talað er
um að klukkan sé t.d. tíu mínútur
í eitthvað í útvarpi. Þetta er auð-
velt að orða á góðri íslensku og
ekki til of mikils mælst að það
sé gert.“
Glæsileg karlmannaföt
margir litir.
Klassísk snið og snið fyrir yngri menn.
Verð kr. 5.500,-, 8.900,- og 9.900,-
Terylenebuxur kr. 1.195,-, 1.395,-, 1.595,- og
1.795,- teryl./ull/stretch.
Gallabuxur kr. 790,-, 850,- og 875,- sandþvegnar.
Flauelsbuxur kr. 795,-
Andrés,
Skólavörðustíg 22a,
sími 18250.
SKRIFSTOFU-
STJÓRNUN
- Nýtt nómskeið
SKRIFSTOFAN’88
Námskeiðið Skrifstofustjómun er sérstaklega fengið til landsins í tilefni
sýningarinnarSkrifstofan ’88, sem Kaupstefnan hf. stendur fyrir í Laug-
ardalshöll dagana 2.-6. mars n.k. Námskeiði er haldið samhliða sýning-
unni og stendur í tvo daga.
Námskeiðið:
Skrifstofustjórnun getur verið allt frá stjómun lítillar og fámennrar skrif-
stofu til stjómunar stórrar og háþróaðrar skrifstofu, því sömu grundvallar-
atriði gilda í báðum tilfellum.
Námskeiðið Skrifstofustjómun hjálpar þeim, sem vinna við skrif-
stofustjómun til að gera starfið ánægjuríkara og árangursmeira og til að
ná hámarksárangri með samhæft og jákvætt starfsfólk, einkum átímum
tæknibreytinga.
Fyrirhverja?
Námskeiðið Skrifstofustjómun er sérstaklega sniðið fyrir fólk sem hef-
ur með mannaforráð að gera á skrifstofum, litlum sem stórum, jafnt þar
sem nýir og eldri starfsmenn eru.
Markmið:
Markmiðið er að þátttakendur öðlist mikilvæga þekkingu og efii hæfileika
sína til að stjóma skrifstofufólki eins og best verður á kosið.
Efni:
Fyrri dagur: Hlutverk skrifstofunnar innan fyrirtækisins - Hlutverk yfir-
manns á skrif stofunni - Ráðning og val á starfsfólki - Aðferðir til að bæta
samskiptin - Hvemig fylgst er með í starfsgreininni -Tímastjómun.
Seinni dagur: Meðhöndlun algengra vandamála á skrifstofu - Hvemig
skrifstofufólk er hvatt og þróað í starfi - Heilbrigði og öryggi - Vinnulag -
Framkvæmdaáætlun fyrir betri framtíð.
Leiðbeinandi:
Námskeiðið er eitt af vinsælustu námskeiðum BIM - British Institute of
Management, en það er stærsta fyrirtæki á sínu sviði í Bretlandi. Leið-
beinandi er Shelagh Robinson, CIPM, FBIM, einn helsti og reyndasti
leiðbeinandi BIM. Allt árið um kring ferðast hún um Bretland og megin-
landið og heldur stjómunamámskeið á vegum BIM og hefur gert í 15 ár.
Þá er hún einnig þekktur rekstrarráðgj afi.
Hvernig?
Námskeiðið Skrifstofustjómun fer fram á ensku og notast leiðbeinend-
ur við myndvarpa og myndbandstæki sér til aðstoðar.
Hvar/hvenær? |
Námskeiðið verður haldið dagana 3. og 4. mars n.k. að Hótel Holiday Inn |
frá kl. 9:30-17:00 báða dagana.
AllarupplýsingarveitirKaupstefnanhf.fsfma 11517. i
Takmörkuð þátttaka.
„CC KAUPSIEFNAN
Reykjavík