Morgunblaðið - 24.02.1988, Side 56
Sparisjóösvextir á tékKareikninaa . með
hávaxtakjörum
% SAMVINNUBANKI
ÍSLANDSHE
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
Breytingar á toll-
mati notaðra bif-
reiða framundan
Grunur um að núgildandi reglur séu misnotaðar
í undirbúnmgi er að breyta tollmati á innfluttum notuðum bifreiðum
í fyrra horf en matinu var breytt 1. september á síðasta ári. Þá var
ákveðið að leggja til grundvallar tollafgreiðslu reikninga fyrir inn-
kaupsverði ytra, en siðan hefur orðið verulegt verðfall á innkaups-
verði þessara bifreiða, samkvæmt þessum reikningum. Því hefur
verið ákveðið að miða aftur við grunnverð nýrra bifreiða og lækkar
tollurinn um ákveðið hlutfall eftir aldri bifreiðanna.
Bjöm Bjömsson aðstoðarmaður
Qármálaráðherra sagði Morgun-
blaðinu að í tollalögunum væri
heimild fyrir ráðherra til að breyta
. j^-ollmati og væri. það væntanlega
gert nú vegna þess að menn teldu
þá aðferð sem notuð hefur verið
um sinn ófullnægjandi og hugsan-
lega misnotaða.
Sigurgeir A. Jónsson fulltrúi toll-
stjóra sagði við Morgunblaðið að
með þessum breytingum væri fyrst
og fremst verið að gera ráðstafanir
Yfir 300
umsóknir
um 10 flug-
freyjustörf
ARNARFLUG auglýsti
fyrir skömmu eftir um-
sóknum um flugfreyju-
störf. Um það bil 10 stöður
voru lausar hjá félaginu.
Umsóknarfrestur er nú
nýlega útrunninn og hafa
á milli 300 og 350 umsókn-
ir borist.
Að sögn Kristins Sigtryggs-
sonar forstjóra Amarflugs
verður gengið frá ráðningum
um eða eftir næstu mánaða-
mót. Hæfniskörfur til umsækj-
enda voru að þeir hefðu stúd-
entspróf eða sambærilega
menntun og byggju yfir góðri
kunnáttu í ensku og frönsku
eða þýsku.
til að tryggja að bifreiðar fái sam-
bærilega tollmeðferð, án tillits til
innkaupsverðs. Viðkomandi nytu
góðs af því hvemig kjörum þeir ná
við innkaupin en allir greiði sama
toll af sambærilegum bifreiðum.
Þegar Sigurgeir var spurður
hvort grunur léki á að ekki hefðu
verið lagðir fram réttir innkaups-
verðsreikningar við tollmeðferð
sagði hann ljóst að skyndilega hefði
orðið verðfall á notuðum bílum er-
lendis frá. Það væri raunar ákaflega
breytilegt eftir hvaðan og af hveij-
um bflar em keyptir. Hann sagði
að þessi breyting tryggði sam-
ræmda gjaldtöku af þessum vörum
og kæmi í veg fyrir tortryggni jarð-
andi vörureikninga, sem yrðú nú
lagðir til hliðar og skiptu ekki máli
við útreikning aðflutningsgjalda þó
þeir gerðu það enn við gjaldeyris-
yfirfærslur.
Frá slysstað á Breiðholtsbrautinni í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Júlíus
Banaslys á Breiðholtsbraut
BANASLYS varð i umferðinni i Reykjavík í
gærkvöldi. 55 ára gamall karlmaður lést þegar
hann varð fyrir bifreið á Breiðholtsbraut um
kl. 21.
Maðurinn var að ganga suður yfir Breiðholts-
braut, neðan við gatnamótin við Norðurfell. Hann
varð fyrir bifreið, sem ekið var austur brautina.
Ekki er unnt að b'irta nafn hans að svo stöddu.
Mjög slæmt skyggni var þegar slysið varð, rigning
og myrkur.
„Viðkvæmu málm“ rædd
á samningafimdi í nótt
TEKIST var á um starfsaldurs-
hækkanir, grunnkaupshækkanir
og verðlagsákvæði á samninga-
fundi Verkamannasambands Is-
lands og vinnuveitenda i gær-
kveldi, „viðkvæmu málin", eins og
einn viðmælanda Morgunblaðsins
orðaði það. Að öðru leyti liggur
þrettán blaðsíðna samningsupp-
kast fyrir samningsaðilum. A mið-
nætti var búist við að vinnuveit-
endur myndu leggja fram tillögur
um starfsaldurshækkanir, en alls
óvíst um viðbrögð forystumanna
VMSÍ og hve lengi samningafund-
ur stæði.
Á fundi stjómar Sambands físk-
vinnslustöðvanna í gær var ákveðið
nánast einróma að halda áfram
samningaviðræðum við Verka-
Kostnaðaráætlun ráðhússins lögð fram í borgarráði:
Kostnaður nú áætlaður
um 979 milljónir króna
Tillaga minnihlutans um að fresta framkvæmdum felld
Kostnaðaráætlun fyrir ráðhús Reykjavíkur var lögð fram á fundi
borgarráðs í gær. Samkvæmt henni er gert ráð fyrir að kostnaður
við byggingu kjallara og yfirbyggingar nemi samtals um 979 milljón-
um króna. í þeirri fjárhæð er ekki reiknað með frágangi á 760 fer-
metra tjöm norðvestan hússins, snyrtingu á Tjamarbökkum næst
ráðhúsinu og göngubrú frá Iðnó út í ráðhúsið.
I greinargerð sem Verkefnisstjórn
" tagði fram með kostnaðaráætluninni
kemur fram að frumhönnun hússins
er nú lokið og fyrir liggja hugmynd-
ir um gerð, efnisval og frágang húss-
ins. Heildarflatarmál bygginganna
er 5.422 fermetrar auk kjallara, sém
er 3.786 fermetrar. Þetta er nokkuð
stærri bygging en gert var ráð fyrir
í upphafi og er nú reiknað með
'^R.ækkun á borgarsljómarbygging-
íinni, stærra súlubili í kjallara til að
fullnægja staðli um stærð bílastæða
og þykkari súlum en í verðlaunatil-
lögunni í sámkeppninni um bygg-
ingu ráðhússins. Auk þess bætast
við tæknirými undir þaki, 290 fer-
metrar.
Kostnaðaráætlun Verkefnis-
stjómar er sundurliðuð sem hér seg-
ir: Stálþil 20 milljónir, gmnnur og
kjallari 178 milljónir, frágangur
kjallara með hönnun og eftirliti 121
milljón, yfírbygging ásamt hönnun
og eftirliti 660 milljónir, samtals 979
milljónir.
Tillaga frá fulltrúum Alþýðu-
flokks, Kvennalista og Alþýðu-
bandalags um að fresta byggingu
ráðhússins og efna til almennrar
atkvæðagreiðslu um málið samhliða
næstu sveitarstjómarkosningum
1990 var vfsað frá. Tillaga minni-v
hlutans varðandi 8 vikna kynningu
á skipulagi ráðhússreits var felld
með þremur atkvæðum gegn tveim-
ur. Hins vegar var samþykkt tillaga
sjálfstæðismanna þess efnis að aug-
lýsing á skipulagi ráðhússreits skyldi
hefjast 26. febrúar og standa til 25.
mars næstkomandi.
mannasambandið á þeim grunni sem
rætt hefur verið á að undanfömu.
„Það var ákveðið að halda áfram
viðræðum og þrýsta á stjómvöld um
svör um aðgerðir vegna stöðu vinnsl-
unnar þegar og ef samningar kom-
ast á lokastig," sagði Amar Sigur-
mundsson, formaður sijómar Sam-
bands fiskvinnslustöðvanna í samtali
við Morgunblaðið. Fulltrúar fisk-
vinnslustöðva innan Sambands
íslenskra samvinnufélaga sátu fund-
inn og verður flallað um málið á
fundi þeirra í dag.
Verkamenn á hafnarsvæði Eim-
skipafélags íslands lögðu niður vinnu
á hádegi í gær. Að sögn aðaltrúnað-
armanns verkamannafélagsins
Dagsbrúnar í Sundahöfn tóku hafn-
arverkamenn þessa ákvörðun upp á
eigin spýtur vegna þess að Eimskip
hefði ráðið til sín verktaka til að losa
gáma og vegna stöðunnar í samn-
ingamálum þeirra.
Hörður Sigurgestsson, forstjóri
Eimskipafélags Islands, segir að-
gerðir hafnarverkamannanna ólög-
legar og rangt að Eimskip hafi ráðið
verktaka til hafnarvinnu. Hann segir
þessar aðgerðir hafa verið ákveðnar
með þátttöku Dagsbrúnar og með
aðild stjómarmanna í Dagsbrún.
Hins vegar hafi Eimskip rétt til þess
að taka verktaka í sína þjónustu,
hvort sem yfirvinnubann sé við höfn-
ina eða ekki.
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar og VMSÍ, seg-
ir að Dagsbrún hafi ekki átt neinn
þátt í aðgerðum hafnarverkamanna
og hann hafi ítrekað bent skipafélög-
unum og Vinnuveitendasambandinu
á að þama væri allt á suðupunkti.
Hann sagðist hafa sagt vinnuveit-
endum að hann myndi beita sér fyr-
ir því, eins og í hans valdi stæði, að
ekki yrði framhald á ólöglegum að-
gerðum.
Sjá ennfremur bls. 38.
Morgunblaðið/Sverrir
Við Sundahöfn síðdegis í gær.
Sprengja
í aflanum
ANDEY SH 242 kom til hafn-
ar í Stykkishólmi í gærmorg-
un með sprengju á dekki.
Sprengjan er talin virk. Hún
kom upp með línu um það bil
40 mílur út af Jökli.
Að sögn lögreglu í Stykkis-
hólmi er sprengjan frekar lítil
ummáls og ekki er talið að um
sé að ræða venjulegt tundurdufl
veða djúpsprengju. I dag er von
á sprengjusérfræðingi frá Land-
helgisgæslunni til að gera
sprengjuna óvirka.