Morgunblaðið - 31.03.1988, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
Viðræður KÍ
og ríkisins:
Samninga-
fundurinn
árangurslaus
- segja kennarar
FUNDUR kjararáðs Kennara-
sambands Islands og samninga-
nefndar ríkisins í gær var árang-
urslaus að mati fulltrúa kennara,
segir.í fréttatilkynningu frá KI,
sem gefin var út í gærkvöldi.
Nýr fundur í deilunni hefur ekki
verið boðaður.
Formaður og varaformaður KI
hittu Jón Baldvin Hannibalsson,
fjármálaráðherra og Indriða H.
Þorláksson, formann samninga-
nefndar ríkisins, í hádeginu í gær
og var fundur fulltrúa KÍ og ríkis:
ins haldinn í framhaldi af því. I
fréttatilkynningu KÍ segir að enn
hafí ekkert skriflegt tilboð komið
fram frá ríkinu, en samninganefnd
ríkisins hafí gert grein fyrir hug-
myndum sínum munnlega. Þar sé
ekki gert ráð fyrir neinni upphafs-
hækkun, en fímm áfangahækkun-
um, sem fela munu í sér um 8,8%
launahækkun til 1. mars á næsta
ári, og starfsaldurshækkunum sem
KÍ metur sem um 1% launahækk-
un. „Að loknum fundinum í dag
ríkir ekki bjartsýni hjá kjararáði
KÍ um niðurstöðu viðræðna,“ segir
í lok fréttatilkynningarinnar.
Deiluumverk-
fall HÍK skotíð
til félagsdóms
STJÓRN Hins íslenska kennarafé-
lags ákvað í gær að óska úrskurð-
ar félagsdóms í deilumáli um lög-
mæti boðaðs verkfalls HÍK.
Bandalags háskólamenntaðra
ríkisstarfsmanna mun reka málið
fyrir dómnum.
Deilan stendur um hvort telja eigi
með auða atkvæðaseðla þegar metið
er hvort meirihluti þeirra sem tóku
þátt í atkvæðagreiðslu um verkfalls-
boðun hafi samþykkt hana. Málið
verður dómtekið miðvikudaginn 6.
apríl en verkfallið er boðað frá og
með 13. apríl.
Páll Halldórsson formaður BHMR
sagði við Morgunblaðið að bandalag-
ið teldi að fá yrði úrskurð um þetta
vafaatriði. Páll sagði að reftarstaðan
í svona málum yrði að vera skýr og
BHMR hefði tekið ákvörðun um að
reka málið þar sem þetta hefði þýð-
ingu fyrir öll aðildarfélög þess.
Morgunblaðið/Bj arni
Matthías Á. Mathiesen samgönguráðherra vígir hina nýju VHF-
miðunarstöð í húsakynnum björgunarsveitarinnar Ægis. í miðið
er Haraldur Henrysson forseti Slysavarnafélags Islánds og til
hægri er Hannes Hafstein forstjóri Slysavarnafélagsins. Á milli
þeirra Haraldar og Hannesar sést í miðunarstöðina.
Garður:
Arið 1956 var vigð radíómjðunarstöð í Garðinum. Við það tæki-
færi var þessi mynd tekin. Ólafur Thors þáverandi samgönguráð-
herra vígir stöðina. Með honum á myndinni eru Guðbjartur
Ólafsson forseti SVFÍ og Henry A. Hálfdanarson framkvæmda-
stjóri félagsins.
VHF-miðunarstöð afhent SVFÍ
- verður í umsjón björgunar-
sveitarinnar Ægis í Garði
NÝ ojg fullkomin VHF-miðunarstöð var í gær afhent Slysavarnafé-
Iagi Islands og falin björgunarsveitinni Ægi, í Garði, til umsjónar.
Matthías Á. Mathiesen samgönguráðherra afhenti stöðina fyrir
hönd Vitastofnunar. Við sama tækifæri var björgunarsveitinni
færð vélknúin vararafstöð, sem EUert Eiríksson afhenti fyrir hönd
sveitarfélagsins. Viðstaddir afhendingu tækjanna voru fjölmargir
gestir, þ. á m. forráðamenn SVFÍ og fulltrúar slysavarnadeilda
og björgunarsveita í Garði.
Hin nýja VHF-miðunarstöð er
af fullkomnustu gerð og mun nýt-
ast við staðsetningu báta og skipa
á Faxaflóa. Með aukinni umferð
smábáta um flóann var komin rík
þörf fyrir slíkt öryggistæki. Áður
hafa verið staðsettar miðunar-
stöðvar í Garðinum, sú fyrsta var
sett upp í ársbyijun 1952 og var
notuð í fyrsta skiptið þann 29. jan-
úar það ár, þegar strandferðaskip-
ið Hekla óskaði eftir staðsetningu.
Miðunarstöðvamar hafa síðan ver-
ið endumýjaðar í samræmi við
tækniframfarir. Árið 1956 var sett
upp radíómiðunarstöð, síðar kom
ljósmiðunarstöð og nú VHF-stöð.
Þessi miðunarstöð er staðsett í
húsi björgunarsveitarinnar Ægis,
skammt frá Garðsskagavita. Þar
eru einnig önnur björgunar- og
leitartæki, m.a. ratsjá, sem er mik-
ilvægt hjálpartæki við staðsetn-
ingu báta í neyð og nýtist vel með
hinni nýju miðunarstöð. Einnig á
björgunarsveitin VHF-talstöð og
fimm kalltæki, svonefnda „frið-
þjófa", sem Kiwanisklúbburinn
Hof, í Garði, gaf sveitinni.
Matthías Á. Mathiesen sam-
gönguráðherra ávarpaði gesti og
minntist mikils starfs, sem Garð-
búar hafa unnið að slysavömum.
Þakkaði hann árvekni slysavama-
fólks, hve oft hefur tekist að bjarga
mannslífum og verðmætum, þegar
óhöpp og slys hafa orðið. Afhenti
hann síðan forráðamönnum Slysa-
vamafélags íslands hina nýju mið-
unarstöð og fól Ægismönnum
umsjón hennar. Formaður Ægis
er Sigfús Magnússon.
Haraldur Henrysson, forseti
Slysavamafélagsins, ávai-paði
gesti. Hann rakti sögu slysavama
í Garðinum og lagði áherslu á mik-
ilvægi þess, að menn héldu ár-
vekni sinni. „Því miður em slys á
sjó allt of tíð og það er ennþá
mikið verk að vinna þó að við höf-
um mörgum áföngum náð. Það
sem hér er að gerast í dag er liður
í viðleitni til að spoma hér við, til
þess að fækka slysum. Það er
ánægjulegt þegar opinberir aðilar
og fijáls félagasamtök eins og
okkar geta unnið saman eins og
hér gerist," sagði Haraldur Henr-
ysson.
Ellert Eiríksson sveitarstjóri
Gerðahrepps afhenti björgunar-
sveitinni Ægi vararafstöð, til notk-
unar í rafmagnsleysi og eins ef
þörf krefur á björgunarstað. Það
er farstöð og meðfærileg tveimur
mönnum að fara með.
Að afhendingu tækjanna lokinni
var gestum boðið til kaffiveitinga
sem kvennadeild Slysavamafé-
lagsins á staðnum átti veg og
vanda af.
Álitsgerð lögfræðings Sambandsins:
Einstök kaupfélög eiga
ekki kröfu í eign SK
STJÓRN Sambands íslenskra
samvinnufélaga fól í gær for-
manni stjómar og forsljóra Sam-
bandsins að aðstoða einstaklinga
við að létta af þeim hluta af
ábyrgðum fyrir skuldum Kaup-
félags Svalbarðseyrar. í frétta-
tilkynningu segir, að það sé vilji
stjórnarinnar að Sambandið taki
þátt í lausn þess máls.
Stjómin fjallaði um kröfu Jóns
Oddssonar, hæstaréttarlögmanns,
Kona notaði nafn systur við giftingu:
Prestar munu óska eft-
ir skilríkjum með mynd
„ÉG er þess fullviss að prestar munu hér eftir óska eftir því við
fólk, sem hyggst ganga í hjónaband, að það leggi fram fullnægj-
andi skilríki með mynd af sér á, til að fyrirbyggja að þetta endur-
taki sig. Mér finnst hryggilegt að vita til þess að trúnaður prests
við sóknarböra hafi verið brotinn með þessum hætti,“ sagði Bern-
harður Guðmundsson, fréttafulltrúi þjóðkirkjunnar, er hann var
inntur álits á frétt í Morgunblaðinu í gær um konu, sem notaði
nafn systur sinnar við giftingu. Systirin hefur nú höfðað mál til
að fá hjúskapinn ógiltan með dómi.
eða ökuskírteini. í þessu tilfelli
Bemharður benti á að prestur-
inn, sem gifti fólkið, hefði farið í
einu og öllu að settum reglum.
„í reglugerð, sem kveður á um
könnun hjónavígsluvottorða, seg-
ir, að hjónaefni skuli leggja fram
fæðingarvottorð, skímarvottorð
eða nafnvottorð," sagði Bem-
harður. „Sé það ekki unnt, skal
hjónaefni færa sönnur á nafn sitt
og fæðingardag með öðrum per-
sónuskilríkjum, svo sem vegabréfi
mun konan hafa lagt fram fæð-
ingarvottorð eða skímarvottorð
og það telst fullnægjandi. Héðan
í frá munu prestar hins vegar
óska eftir að sjá vegabréf eða
ökuskírteini, með mynd af hjóna-
efnum, svo atburður sem þessi
endurtaki sig ekki. Eftir að frétt-
in birtist í Morgunblaðinu í gær
kom einmitt til mín prestur, sem
var ákveðinn I að taka þá reglu
upp. Það mun sjálfsagt reyna
mest á þetta í stómm söfnuðum,
eins og í Reykjavík, þar sem prest-
ar þekkja ekki öll sóknarböm sín
persónulega."
Bemharður sagði að mál þetta
væri einsdæmi. „Eg veit að svipuð
mál hafa komið upp erlendis, en
hingað til hafa íslenskir prestar
ævinlega getað treyst þeim upp-
lýsingum sem hjónaefni hafa veitt
þeim og yfirlýsingu svaramanna
um að þeir viti enga meinbugi á
ráðahagnum," sagði hann. „Mér
þykir afar hryggilegt að fólk skuli
leggjast svo lágt að blekkja prest-
inn með þessum hætti. Prestar
eiga ekki að þurfa að standa í
neinum lögregluaðgerðum vegna
þess gleðiatburðar sem
hjónavígsla á að vera."
um að þrotabú Kaupfélags Sval-
barðseyrar ætti að fá greidda hlut-
deild félagsins í eignum Sambands-
ins, sem væm í óskiptri_ sameign
kaupfélaganna i landinu. í álitsgerð
Jóns Finnssonar, hæstaréttarlög-
manns, segir að þessi krafa Jóns
Oddssonar eigi sér enga stoð í lög-
um um samvinnufélög og að einstök
sambandsfélög hafí engan lagaleg-
an rétt til að krefjast skipta á eign-
um Sambandsins.
í álitsgerð Jóns Finnssonar segir
að í kröfu Jóns Oddssonar fyrir
hönd Jóns Laxdals, fyrrum stjómar-
manns í Kaupfélagi Svalbarðseyrar,
séu réttarreglur um hlutafélög og
sameignarfélög yfírfærð á sam-
vinnufélög, en krafan sé ekki rök-
studd með Iögum um samvinnufé-
lög. Orðrétt segir m.a.: „Eina lög-
formlega leiðin til þess að eignir
Sambands íslenskra samvinnufé-
laga geti komið til skipta milli sam-
bandsfélaganna er sú að félögin
samþykktu að slíta Sambandinu.
Tillaga þess efnis verður að hljóta
samþykki */« hluta allra fulltrúa á
tveimur löglegum fulltrúafundum í
röð og málið verið borið undir fundi
í öllum sambandsfélögum milli
funda."
Niðurstaðan í álitsgerðinni er sú
að sambandsfélag sem gangi úr SÍS
geti einungis krafist inneignar
sinnar í stofnsjóði Sambandsins, en
eigi enga lögvarða kröfu í eignir
Sambandsins.
Stjóm Sambandsins hefur falið
Jóni Finnssjmi að svara kröfu Jóns
Oddssonar á grundvelli framan-
greindrar álitsgerðar.
Morgunblaðið/Ingólfur Birgisson
Gígja VE kemur til heimahafnar
með fullfermi, 750 tonn.
Fimm skip eft-
ir á loðnunni
AÐEINS 5 skip eru eftir á loðn-
unni og eiga þau lítið eftir af kvót-
anum. í gær tilkynnti einungis
Gígja VE um afla. Eftirtalin skip
voru með afla sl. mánudag og lön-
duðu þau öll í Eyjum:
Helga II RE var með 430 tonn,
ísleifur VE 500 tonn, Huginn VE
550 tonn og Guðmundur VE 850
tonn. SÍ. þriðjudag tilkjmnti Dagfari
ÞH um 520 tonn til Sandgerðis og
Galti ÞH 450 tonn til Bolungarvíkur.
í gær tilkynnti Gígja VE um 150
tonn til Vestmannaejja.
Mjólkurfræðingar:
Samið eftir
maraþonfund
NÝIR kjarasamningar mjólkur-
fræðinga verða bomir undir fé-
lagsfundi i Reykjavík og á Akur-
eyri strax eftir páska.
„Auðvitað eru menn aldrei
ánægðir með samninga," sagði Geir
Jónsson formaður Félags mjólkur-
fræðinga. „Þessi samningur er á
sömu nótum og samningamir, sem
gerðir voru á Akureyri um daginn.
Sfðasti fundurinn tók 33 tíma og það
sem við sátum lengst yfir voru ákveð-
in sérmál. Það var ágreiningur um
flókin orðalagsatríði sem við náðum
ekki að leysa í þetta skipti," sagði
Geir.