Morgunblaðið - 31.03.1988, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 31.03.1988, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988 Mínnísblað lesenda MORGUNBLAÐIÐ veitir les- endum sínum að venju upplýs- ingar um heilsugæslu, sérleyfis- ferðir, strætisvagna og aðra þjónustu um bænadaga og páska. Slysadeild Slysadeild og sjúkravakt Borg- arspítalans er opin allan sólar- hringinn. Sími þar er 696600. Læknaþjónusta Helgarvakt lækna er frá klukk- an 17 á miðvikudegi fyrir páska til klukkan 8 á þriðjudagsmorgni eftir páska. Símanúmer vaktarinn- ar er 21230. Á Heilsugæslustöðinni er hægt að panta viðtalstíma við heimilis- lækna á kvöldin og um helgar og eru nánari upplýsingar veittar í síma 21230. Veittar eru upplýsingar um læknavakt og lyfjabúðir í síma 18888 sem er símsvari Læknafé- lags Reykjavíkur. Tannlæknavakt Upplýsingar um neyðarvakt Tannlæknafélagsins eru veittar í síma 18888. Slökkvilið Slökkviliðið í Reykjavík hefur símann 11100, slökkviliðið í Hafn- arfirði 51100 og slökkviliðið á Akureyri 22222. Lögregla Lögreglan í Reykjavík hefur símann 10200 en neyðarsími hennar er 11166 og upplýsing- asími 11110. Lögreglan á Akur- eyri er í síma 23222, í Kópavogi 41200 og Hafnarfirði 51166. Sjúkrabifreiðir I Reykjavík er hægt að leita aðstoðar sjúkrabifreiða í síma 11100, í Hafnarfirði 51100 og Akureyri 22222. Lyfjavarsla Apótek Austurbæjar og Breið- holts Apótek eru opin á skírdag en það fyrrnefnda sér um nætur- vörsluna. Á föstudaginn langa, paskadag og annan í páskum sjá Háaleitis Apótek og Vesturbæjar Apótek um þjónustuna en það fyrrnefnda verður með nætur- vörslu. Guðsþjónustur Tilkynningar um guðsþjónustur eru í C-blaði á blaðsíðum 19 C og 20 C. Skrá yfir fermingarbörn er á blaðsíðum 22 C til 26 C. Dagskrár útvarps- sjónvarpsstöðva Dagskrár útvarps- og sjón- varpsstöðvanna, ásamt efnisúr- dráttum nokkurra dagskrárliða, eru í B-blaði á blaðsíðum 1 B til 16 B. Menningarvið- burðir um páskana Upplýsingar um menningarvið- burði um páskana eru í A-blaði á blaðsíðum 66 A og 67 A. Bilanir Bilanir í hitaveitu, vatnsveitu og gatnakerfi tilkynnist til Véla- miðstöðvar Reykjavíkur í síma 27311. Þar verður vakt allan sól- arhringinn frá skírdegi til annars í páskum. Símabilanir er hægt að tilkynna í síma 05 frá klukkan 8 til 24 alla daga. Rafmagnsveita Reykjavi'kur er með bilanavakt allan sólarhringinn í síma 686230. í rieyðartilfellum fara viðgerðir fram eins fljótt og auðið er. Afgreiðslutími verslana og söluturna Leyfilegt er að hafa verslanir opnar frá klukkan 9 til 16 laugar- dag fyrir páska en að öðru leyti verða þær lokaðar um páskana. Sölutumar mega vera opnir á skírdag, laugardag fyrir páska og og annan í páskum til klukkan 23.30 en verða að venju lokaðir á föstudaginn langa og páskadag. Afgreiðslutími bensínstöðva Á skírdag og annan í páskum verða bensínstöðvar opnar frá klukkan 12 til 16.30 en á laugar- dag fyrir páska frá klukkan 7.30 til 20. Þær verða hins vegar lokað- ar á föstudaginn langa og páska- dag. Bifreiðastjórum er einnig bent á sjálfsala sem eru á bensínstöðv- um víðs vegar um borgina og víða á landsbyggðinni. Strætisvagnar Reykjavíkur Á skírdag verður ekið eins og á sunnudögum, föstudaginn langa samkvæmt sunnudagstímatöflu en laugardag fyrir páska hefst akstur á venjulegum tíma og ekið sam- kvæmt laugardagstímatöflu. Á páskadag hefst akstur um klukkan 13 og ekið verður samkvæmt sunnudagstímatöflu og annan í páskum verður ekið eins og á sunnudögum. Strætisvagn- ar Kópavogs Á skírdag verður ekið eins og venjulega sunnudaga, föstudaginn langa hefst akstur klukkan 14 og ekið eins og sunnudaga, laugar- daginn fyrir páska verður ekið eins og á venjulegum laugardegi, páskadag ekið eins og föstudaginn langa, annan í páskum ekið eins og á sunnudögum og sumardaginn fyrsta ekið eins og á sunnudögum. Mosfellsleið Á skírdag og annan í páskum verður ekið samkvæmt sunnu- dagsáætlun. Engar ferðir verða á föstudaginn langa og páskadag. Langf erðabifreiðir Gera má ráð fyrir að um pá- skana ferðist um 5.000 manns með sérleyfisbifreiðum. Frá Um- ferðarmiðstöðinni verða daglega 40 til 60 komu- og brottfarir frá klukkan 8 til 23.30. Á skírdag verður ekið á öllum leiðum sam- kvæmt áætlun en á föstudaginn langa og páskadag verða engar ferðir á lengri leiðum en á styttri leiðum verður ekið _ samkvæmt stórhátíðaráætlun. Á annan í páskum verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun á flestum sér- leyfísleiðum. Nánari upplýsingar um akstur sérleyfísbifreiða um páskana veitir BSÍ á Umferðar- miðstöðinni í síma 91-22300. Vegaeftirlit Símsvari Vegaeftirlitsins veitir upplýsingar um færð á helstu veg- um í símum 91-21000, 91-21001 og 21002. Eftirlitið verður einnig með vakt frá klukkan 8 til 12 á skírdag, laugardag fyrir páska og annan páskadag. Starfsábyrgdartrygging arkitekta, byggingarfrœðinga, tœknifræðinga og verkfrœðinga Lítils háttar reikningsskekkjur eða yfirsjónir arkitekta, byggingarfræðinga, tæknifræðinga og verkfræðinga sem vinna við ráðgjöf, hönnun og eftirlit geta haft alvarlegar afleiðingar og leitt til hárra skaðabótagreiðslna. Þá kemur starfsábyrgðartrygging Sjóvá til skjalanna. Hún er vátrygging gegn kröfu á hendur vátryggingartaka í slíku tilviki. Þessi starfsábyrgðartry^ging Sjóvá er ný tegund vátrygginga á Islandi. Vátrygging sem enginn í starfs- greinunum ætti að vera án. Markaðsdeild Sjóvá veitir allar nánari upplýsingar um starfsábyrgðartryggingar. Tryggingarfélag í einu og öllu. Sjóvátryggingarfélag íslands hf., Suðurlandsbraut 4, sími (91)-692500.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.