Morgunblaðið - 31.03.1988, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐÍÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
35
*
Norður-Irland:
Leiðtogar stríðandi fylkinga
tilbúnir til friðarviðræðna
London. Reuter.
ALDA ofbeldisverka í Norður-
írlandi að undanfömu hefur leitt
til þess að leiðtogar stríðandi
fylkinga segjast nú reiðubúnir
til viðræðna um hugsanlega
verka- og valdsskiptingu þar í
landi.
John Hume, sem telst til hófsam-
ari leiðtoga kaþólikka, átti í gær
tveggja stunda fund með Tom King,
sem fer með málefni Norður-írlands
í brezku stjóminni. Eftir fundinn
sagðist Hume reiðubúinn að eiga
viðræður við leiðtoga mótmælenda
(sambandssinna) um lyktir ofbeldis,
sem verið hefur.við lýði á Norður-
írlandi í 20 ár, og friðsamlega sam-
búð íbúanna.
Hume er formaður Jafnaðar- og
verkamannaflokks Norður-írlands
(SDLP). Hann varaði við of mikilli
bjartsýni en sagði að timi væri kom-
inn til að leiðtogar kaþólikka og
mótmælenda hæfu viðræður um
„Því fyrr sem við
því betra,“ sagði
lausn deilumála.
hefjumst handa
hann.
Jim Molyneaux, sem telst til hóf-
samari leiðtoga mótmælenda, átti
viðræður við King fyrir skömmu.
Gaf hann til kynna eftir þær að
hann væri reiðubúinn til viðræðna
við leiðtoga kaþólikka með því að
segjast hlynntur hugmyndinni um
samstarf stjómvalda í London og
Dublin um friðsamlega lausn deilu-
mála á Norður-írlandi. Sú yfírlýsing
markaði í raun þáttaskil því leið-
togar mótmælenda höfðu ætíð lagst
gegn aðild yfirvalda í írska lýðveld-
inu að samningum um Norður-
írland.
Hume átti í síðustu viku viðræður
við leiðtoga stjórnmálaarms hins
ólöglega írska lýðveldishers (IRA)
um hugsanlegar leiðir að friðsam-
legri lausn deilumála á Norður-
írlandi. í gær sagðist hann hlynntur
hvaða formi valdsskiptingar sem
væri ef sýnt þætti að hún yrði til
að bijóta niður múra, sem risið
hefðu milli kaþólskra íbúa og mót-
mælenda.
Norður-írland var sett undir
beina stjóm frá London árið 1972,
þremur árum eftir að hinn ólöglegi
írski lýðveldisher (IRA) hóf hryðju-
verk sín í þeim tilgangi að losa
héraðið undan yfírráðum Breta.
Tilraunir með þingræði ári seinna
mnnu út í sandinn og landið sett
aftur undir beina stjórn frá London.
Reuter
Michael Dukakis vann stórsigur í forkosningum demókrata í Connec-
ticuf á þriðjudag. Dukakis sem er rikisstjóri í nágrannaríkinu Massac-
hussets hlaut um 60% atkvæða.
Edgar Faure,
fv. forsætísráð-
herra Frakk-
lands, látinn
París. Reuter.
EDGAR Faure, einn kunnasti
stjórnmálamaður Frakklands
eftir strið, lézt í gær á sjúkra-
húsi, 79 ára að aldri.
Faure var tvívegis forsætisráð-
herra og sjö sinnum ráðherra á
rúmum 30 ámm. Hann er einn fárra
franskra stjómmálamanna, sem
gegndu ráðherradómi bæði á dög-
um fjórða lýðveldisins, sem leið
undir lok árið 1958, ogþess fimmta.
Einna kunnastur er Faure fyrir
að hafa átt fmmkvæði að laga-
breytingum á sviði menntamála er
leiddu til þess að illvígum stúdenta-
mótmælum árið 1968 linnti. Hann
neitaði einnig að taka sæti í stjórn
Francois Mitterrands, sem tók við
völdum árið 1981.
Faure var formaður afmælis-
nefndar, sem undirbjó mikil hátí-
ðahöld í tilefni 200 ára afmælis
frönsku byltingarinnar á næsta ári.
Hann var lagður inn á sjúkrahús
fyrir röskum mánuði vegna melt-
ingartmflana og gekkst tvisvar
undir skurðaðgerð, en allt kom fyr-
ir ekki.
Forkosningar demókrata í Connecticut:
Oljós staða þrátt _
fyrir sigur Dukakis
New York. Reuter.
MICHAEL Dukakis, ríkisstjóri Massachussets, vann yfirburðasigur
í forkosningum Demókrataflokksins í Connecticut á þriðjudag og
hlaut rúmlega . Dukakis fékk tæplega 60% atkvæða, Jesse Jackson
29% og Albert Giore 8%. Þrátt fyrir þennann sigur Dukakis, sem
flestir höfðu spáð fyrirfram, er hann þó langt frá því búinn að vinna
sigur yfir Jesse Jackson í baráttunni um útnefningu Demókrata-
flokksins.
Til þess að vera ömggur um útn-
efningu þarf frambjóðandi að vera
búinn að ná 2082 kjörfulltrúum
Danmörk:
• •
Olvaðir ökumenn velji milli
fangelsis og hælisvistar
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun,
ÁKVEÐIÐ hefur verið að gefa
mönnum, sem reynast sekir að
ölvunarakstri, að velja milli
fangelsisvistar eða meðferðar
á drykkjumannahæli. Taki þeir
síðari kostinum fellur refsing
niður sem slík.
Samkvæmt nýju reglunum,
sem koma til framkvæmda á
morgun, 1. apríl, eiga dómarar
að benda ökumönnum á valkost-
ina þegar þeir hafa kveðið upp
fréttaritara Morgunblaðsins i Danmörku.
úrskurð sinn.
Talsmenn yfirvalda segja að
tveggja vikna fangelsun oku-
manna, sem ekið hafa ölvaðir,
dugi skammt. Árlega afplána á
Qórða þúsund manns fangelsis-
dóm fyrir ölvunarakstur í Dan-
mörku. Um helmingur þeirra eru
það langt leiddir í drykkjunni að
það væri ugglaust vænlegra til
árangurs að þeir fengju meðferð
við drykkjusýki.
Stjórnarkreppan á Ítalíu:
Sósíalistar reyn-
ast de Mita erfiðir
-Tekið til við gerð málefnasamnings eftir páska
fyrir þing Demókrataflokksins sem
haldið verður í Atlanta í júlí. Með
sigrinum í Connecticut krækti Duk-
akis sér í 34 kjörfulltrúa en Jackson
16. Þeir standa því tiltölulega jafn-
ir að vígi enn sem komið er, báðir
með rúmlega 600 kjörfulltrúa, og
beina nú augunum að næstu for-
kosningum sem haldnar verða í
Wisconsin 5. apríl næstkomandi.
Samkvæmt skoðanakönnunum
verða kosningamar í Wisconsin
mjög jafnar. Þær verða mjög mikil-
vægar fyrir Dukakis, sem hefur átt
undir högg að sækja eftir stórsigur
Jacksons í Michigan, þar sem kosn-
ingasigurinn í nágrannaríki hans
Connecticut voru nánast á „heima-
velli".
698 sjálfkjörnir fulltrúar
Mun mikilvægari eru þó forkosn-
ingamar í New York 19. apríl nk.
en þar em mjög margir kjörfulltrú-
ar í veði. Jackson er talinn vera
ömggur um fylgi svartra kjósenda
í ríkinu en þeir em þar um 20%
kjósenda. Dukakis og Gore takast
síðan á um fylgi hvítra kjósenda
en þeim síðamefnda hefur ekki enn
tekist að vinna sigur í norðurríki.
Dukakis einbeitir sér nú einnig að
þeim 698 kjörfulltrúum úr röðum
forystumanna flokksins sem sjálf-
kjömir em á þingið. Þessir fulltrúar
gætu ráðið úrslitum um hver verður
útnefndur forsetaframbjóðandi
flokksins en vitað er að margir
þeirra em þeirrar skoðunar að dem-
ókrötum myndi ekki takast að sigra
frambjóðanda repúblikana með
svertingja í framboði.
Gore g'agnrýnir Jackson
Það bar einnig til tíðinda á þriðju-
daginn að Albert Gore, sem nú er
í þriðja sæti í baráttunni um útnefn-
ingu Demókrataflokksins, gagn-
rýndi blökkumannaleiðtogann Jack-
son harðlega en slík gagnrýni hefur
ekki áður heyrst opinberlega úr
röðum keppinautana. „Við emm
ekki að kjósa predikara heldur for-
seta,“ sagði Gore og hafði uppi efa-
semdir um að Jackson væri gæddur
þeim hæfileikum sem krafist væri
af þeim er gegndi æðsta embætti
þjóðarinnar.
Bushfékk75%
George Bush, varaforseti, vann
auðveldan sigur í forkosningum
Repúblikanaflokksins. Bush fékk
75% atkvæða en helsti andstæðing-
ur hans, Robert Dole, sem hafði
dregið sig úr baráttuni fyrr um
daginn, fékk 20% atkvæða.
Mílanó. Frá Benedikt Stefánssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
AÐUR en páskahelgin gekk í garð birti Chiriaco de Mita, aðalritari
Kristilega demókrataflokksins, aðilum fimm flokka stjórnarinnar
drög að málefnasamningi væntanlegrar ríkisstjórnar ítaliu. í næstu
viku setjast oddvitar flokkanna að samningum um efni skjalsins, sem
er á annað hundrað blaðsíðna að lengd. Þótt menn séu enn hæfilega
bjartsýnir um árangur stjórnarmyndunarviðræðnanna, er slagur um
ráðherrastólana þegar hafinn, bæði innan f lokkanna og milli þeirra.
Helsti þröskuldur í vegi de Mita koma í ljós, að stuðningur þeirra
eru sósíalistar, annar stærsti flokk
urinn í fimm flokka stjórninni. Þeg-
ar de Mita tókst það verkefni á
hendur fyrir hálfum mánuði að
mynda stjórn, einsetti hann sér að
koma saman ríkisstjórn með „skýr
markmið". Á tungumáli ítalskra
stjórnmálamanna merkir það, að
flokkamir sættist á verkefnalista í
stað þess að komast að málamiðl-
un, sem oft hefur lítið gildi, þegar
á reynir. Sósíalistar tóku heils hug-
' ar undir þessa stefnu, en nú er að
gæti orðið dýru verði keyptur.
Sósíalistar hafa þegar krafist
þriggja mikilvægra ráðuneyta úr
hendi Kristilega demókrataflokks-
ins, innanríkis- og dómsmála, auk
ráðuneytis Suður-Italíu. Það síðast-
nefnda virðist þeim einna mikilvæg-
ast. Segja þeir, að kristilegir demó-
kratar hafi misnotað þá gífurlegu
fjármuni, sem ráðuneytið fer með
og ýtt undir óstjórn og spillingu.
Giovanni Goria, fráfarandi forsætis-
ráðherra og flokksbróður de Mita,
mun hafa verið lofað því embætti.
Aðalritarinn má einnig illa af inn-
anríkisráðuneytinu sjá, því að þar
situr einn af valdameiri mönnum
flokksins.
I málefnasamningi de Mita er
gert ráð fyrir breytingum á starfs-
háttum þingsins, takmörk verði sett
á leynilegar atkvæðagreiðslur og
verkefni fulltrúadeildar og öldunga-
deildar aðgreind. Þar er líka tekið
á nýjum útvarpslögum, en kristilega
demókrata greinir verulega á við
sósíalista um veldi fjölmiðlajöfurs-
ins Berlusconi. Sósíalistar munu
þegar hafa sett það á oddinn, að
hann fái fullt frelsi til að keppa við
ríkissjónvarpið, en hvor þessara
aðila ræður yfir þremur rásum á
landsvísu.
Fann
guUklump
í
garð-
mum
Bob Boyce, sem
býr skammt frá
Brisbane í Ástr-
alíu, brosir út að
eyrum er hann
sýnir blaða-
mönnum gull-
klump er hann
fann í garði
sínum á þriðju-
dag. Boyce kom
niður á klumpinn
er hann var að
gróðursetja tré
við sveitabýli sitt
nærri Brisbane.
Sérfræðingar
segja að klump-
inn geti Ástral-
inn fundvísi að
líkindum selt
fyrir um 70.000
Bandaríkjadali
(tæþar 2,8 millj-
ónir ísl. kr.).
Reuter