Morgunblaðið - 31.03.1988, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 31.03.1988, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988 49 Morgunblaðið/Þorkell KOMU FÆRANDIHENDI Starfsmenn Hagkaups í Skeifunni komu færandi til að gaiða sér á um páskana. Var þeim fagnað vel hendi í Skálatúnsheimilið í Mosfellssveit í fyrradag. að vonum. Þeir gáfu vistmönnum fímm stórar súkkulaðikanínur I Morgunblaðið/Ól.K.M. Afhending sveinsbréfa íhúsasmíði Fimmtíu sveinsbref í húsasmíði voru afhent fyrir nokkru og var ein kona í þeim hópi, sem útskrifaðist. Á myndinni sést Jón Hannesson, formaður prófanefndar, afhenda Sigríði Þorleifsdóttur sveinsbréf hennar. Morgunblaðið/Pétur Þorsteinsson Fermingarbarnahópurinn á tröppum gamla skálans í Vatnaskógi. Fermingarbarna- mót í Vatnaskógi Fermingarbarnahópur úr Garðinum og Sandgerði dvaldi í Vatna- skógi um síðustu helgi. 30 börn voru i hópnum ásamt sóknarpresti sínum, Hirti Jóhannssyni á Útskálum, og Magnúsi Erlingssyni, æskulýðs- fulltrúa. Viðfang helgarinnar var fræðsla og að kynnast betur inn- byrðis, enda Vatnaskógur ákjósanlegur staður til þess að fara á og hafa dýrmæta samfélagseflingu. Hefur þótt vera bót að því, að fermingarböm komi saman eina helgi eða svo. Sagði Hjörtur, sóknar- prestur á Útskálum, að þetta fyrir- komulag væri gott, þar sem þetta væri tilbreyting fyrir krakkana og gerlegt væri að ná meiri trúarlegri upplifun í ferðum sem þessari í Vatnaskóg, heldur en væri í skólan- um. Þar væri fermingarfræðslutím- inn venjulegast aðeins viðbót við alla hina tímana í skólanum, sem yfirleitt væru ekki í neinu uppáhaldi hjá krökkunum. Eftiið, sem farið var í á fræðslu- stundinni á laugardagskvöldið, fjall- aði um djöfulinn, helvíti og endur- komu Krists á efsta degi, og tengt við boðskap páskanna. Síðan var kvöldvaka í umsjón fermingarkrakk- anna sjálfra og endaði með kvöld- stund og bænum úti í kapellunni í Vatnaskógi. Sagði Hjörtur, að með fyrirkomulagi sem þessu upplifðu krakkamir allt aðra þætti heldur en unnt væri að viðhafa í kennslustund. Oft væru upplifanir sem þessar hið helzta, sem krakkar myndu eftir, þegar frá liði og horft væri til ferm- ingarfræðslunnar. Reynslan væri því miður sú, að fermingin væri oft á tíðum útskrift úr kirkjunni, og liðu oft mörg ár þar til sumir kæmu aft- ur í kirkju eftir fermingarathöfnina. -pþ. Afmælisfundur AA-samtakanna - á föstudaginn langa AA-samtökin halda árlegan afmælis- og hátíðarfund sinn á föstudag- inn langa, 1. apríl n.k. Fyrstu íslensku AA-samtökin voru stofnuð á föstudaginn langa árið 1954. Síðan hefur þessi dagur verið hátíðar- og afmælisdagur samtakanna, sama hvaða mánaðardag hann ber upp á. Hátíðarfundurinn verður í Há- skólabíói og hefst kl 21:00. Þar koma fram gestir frá Al-anon og Al-ateen samtökunum, sem eru samtök að- standenda alkóhólista. í dag eru starfandi um 190 deildir AA-sam- takanna um land allt, þar af um 90 í Reykjavík. Erlendis eru starfandi 5 íslenskumælandi deildir. Hver þessara deilda heldur að minnsta kosti einn fund í viku. Upplýsingar um fundi og fundarstaði er hægt að fá á skrifstofu AA-samtakanna að Tjarnargötu 5, 101 Reykjavík. { fréttatilkynningu frá AA-sam- tökunum segir svo um samtökin: „AA-samtökin eru félagsskapur karla og kvenna, sem samhæfa reynslu sína, styrk og vonir, svo að þau megi leysa sameiginlegt vanda- mál sitt og séu fær um að hjálpa öðrum til að losna frá áfengisbölinu. Til þess að gerast AA-félagi þarf aðeins eitt: Löngun til að hætta að drekka." Ennfremur segir þar: „AA-sam- tökin lofa ekki neinum bata, en benda má á, að mikill fjöldi fólks hefur öðlast nýtt viðhorf til lífsins eftir að hafa kynnst AA-samtökun- um og fengið að njóta þess að kom- ast út úr myrkri ofdrykkjunnar yfir í ljós og birtu eðlilegs mannlífs, an áfengis." Allir eru boðnir velkomnir á há- tíðarfundinn á föstudaginn langa og verða kaffiveitingar að honum lokn- um. Tvö lítil lömb til að gæla við KJeDDiárnsrevkium. ^ ^ t Kieppjárnsreykjum. EFTIR mesta snjó vetrarins sem kom í síðustu viku fékk Páll Guðnason bóndi á Steindórsstöð- um áminningu um að vorið væri i nánd. Þegar hann kom út í fjár- hús í mestu ófærðinni tóku á móti honum tvö lömb. Ekki er þó hægt að segja að sauðburður sé eiginlega hafinn þar sem þetta er undantekning. Páll sagðist „ekki hafa hleypt til ánna neitt fyrr en venjulega þannig að þetta hefur verið forskot á sæluna hjá blessaðri ánni. Það er óneitan- lega gaman að hafa tvö lítil lömb að gæla við svona seinni hluta vetr- ar“. Nokkuð er um að erlendar vinnu- konur séu á bæjunum hér i Reyk- holtsdal. Tvær eru frá Austurríki og vinna þær aðallega við tamning- ar og tvær eru frá Noregi og ein frá Hollandi. Regnboginn: Leiðrétting í FRÉTT í Morgunblaðinu laug- ardaginn 26. mars féll niður setn- ing í frétt um dvalarheimilið í Barmahlið og verður málsgrein- in við það markleysa. Málsgreinin á að vera svona: Hér á Reykhólum fer að fjölga fólki sem þarf á læknishjálp að halda en hana þarf að sækja til Búðardals. Þess vegna er það samdóma álit lækn- anna i Búðardal og þeirra sem njóta læknishjálpar að það sé eitt af for- gangsverkefnum sem þingmenn verða að beita sér fyrir að koma brú yfir Gilsfjörð. Við það styttist leiðin um 20—24 km eða fjórða part. Kvikmyndin Bless krakkar frumsýnd Morgunblaðið/Bemhard Jóhannesson Páll Guðnason bóndi á Steindórsstöðum og fyrstu lömbin. Kvikmyndahúsið Regnbog- inn hefur tekið til sýningar frönsku myndina Bless krakkar (Au revoir les En- fants). Leikstjóri er Louis Malle. Myndin er tilnefnd til 8 Óskarsverðlauna og nýlega hlaut hún 8 Cesar-verðlaun, en það eru frönsk kvikmynda- verðlaun. Myndin gerist árið 1944 og fjallar um samband drengjanna Julien og Jean sem eru í ka- þólskum drengjaskóla. Stríðsástandið skapar sterkan undirtón, hemám Þjóðverja, matarskömmtun, gyðingahatur o.fl. Aðálhlutverkin leika tveir ungpr drengir, Gaspard Manesse og Raphael Fejtö. Aðalleikarar kvikmyndarinn- ar Bless krakkar, Gaspard Manesse og Raphael Fejtö. Vil ekki sýna hveija mynd oftar en einu sinni - segir Sigþrúður Pálsdóttir sem opnar sýningu á Kjarvalsstöðum á laugardag Myndlistakonan Sigþrúður Pálsdóttir opnar sína fjórðu einkasýningu í Kjarvalssal Kjarvalsstaða, laugardaginn 2. apríl kl. 14. 40 myndir, allt frá smámyndum upp í stór verk, verða á sýningunni, sem stendur til 17. apríl. Myndimar eru fígúratívar og flestar unnar í olíu en nokkrar eru unnar með blandaðri tækni. Þær eru allar unnar á innan við ári og sagði Sigþrúður það stafa af því að hún vildi helst ekki sýna hveija mynda sinna oftar en einu sinni. „Hvert verkanna er unnið sem sjálf- stætt verk,“ sagði Sigþrúður. „Mér fínnst þær allar töluvert skyldar, þó þær líti ef til vill ekki út fyrir það. Allar flalla þær um sama myndefnið, manninn og sálina." Sigþrúður er 33 ára og hefur lagt stund á myndlistanám í Kaup- mannahöfn og New York. í Kaup- mannahöfn vann ég við gluggaskre- ytingar og skiltagerð og var á myndlistamámskeiðum Meirihluti námsins fór fram í New York á áranum 1977-1982 í 2 skólum; The Morgunblaðið/Sverrir Sigþrúður Pálsdóttir við tvö verka sinna, „Góðan daginn" og „Tara“. Art Students League og The School Of Visual Arts. Undanfarin fímm ár hefur Sig- þrúður málað hér í Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.