Morgunblaðið - 31.03.1988, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
9
HUGVEKJA
„Það var rétt fyrir
páskahátíðina“
eftir sr. HALLDÓR GUNNARSSON
Skírdagur, föstudagurinn langi
og páskadagamir koma núna til
okkar, hver dagur með sína boð-
un, vitnisburð, þjáningu og lof-
gjörð. Dagarnir eiga að vera svo
miklu meira en liðin saga, þeir
eiga að koma til okkar sjálfra og
tala til okkar um lífið sem við lif-
um, um þjáninguna sem við reyn-
um, um sorgina og eftirsjána og
flytja okkur síðan fagnaðarboð-
skapinn um upprisu Jesú Krists
og sigur hans yfír sorginni og
dauðanum.
Það var rétt fyrir páskahátíð-
ina, að Jesús kallaði lærisveina
sína saman til kvöldverðar tii að
neyta páskamáltíðarinnar.sem var
páskalambið, sem slátrað var fyr-
ir hátíðina, en þannig minntust
ísraelsmenn björgunar Guðs frá
oki Egypta, lausnar frá plágunum
10, ferðarinnar yfir Rauðahafið
og síðan yfir Sínaieyðimörkina.
Spádómur Jóhannesar skírara um
Jesúm höfðaði til páskalambsins
og slátrunar þess fyrir páskahá-
tíðina, þegar hann sagði: „Sjá,
guðslambið, er ber synd heims-
ins.“ Þessi spádómur Jóhannesar
skírara kom fram föstudaginn
langa.
Mér finnst að Jesús hafi stofn-
að til kvöldmáltíðarinnar með
lærisveinunum á líkan hátt og
hann setti fram dæmisögur. sínar.
Hver dæmisaga, sem Jesús sagði,
flytur við fyrstu heyrn einfalda
frásögn og auðskilda, en eftir því
sem dæmisagan er oftar heyrð,
skilst dýpri merking hennar og
það er eins og dæmisagan fylgi
aldri okkar og þroska, hún flytur
aftur og aftur nýjan boðskap til
okkar.
Kvöldmáltíð Jesú með læri-
sveinunum er við fyrstu skoðun
aðeins kvöldverður en þegar nán-
ar er að gætt koma öll táknin
fram. Fyrst fótaþvotturinn,
hreinsunin, sem skírdagur ber
nafn sitt af. Hann getur flutt
okkur boðskap um skírleika og
hreinsun hugans gagnvart öðrum,
þess að við fyrirgefum öðrum og
leitum fyrirgefningar, þess að við
umberum af kærleika, hlúum að
og ræktum það sem bætir, gleður
og gefur. Hreinsunin getur einnig
höfðað til hins nýja sáttmála sem
Jesús setur fram með kvöldmáltíð
sinni um sigur lífsins yfir dauðan-
um — um hreinsun frá hinu jarðn-
eska til hins himneska. Sáttmál-
inn sjálfur fjallar um brauðið sem
er brotið — svo fer fyrir líkama
þínum, hann brotnar, og um vínið,
sem minnir á blóðið — það hverf-
ur, en þrátt fyrir það sigrar lífið
dauðann, lífíð, sem Drottinn Guð
gefur fyrir Jesúm Krist.
Kvöldmáltíðin varð lærisvein-
unum heilög athöfn, þegar þeir
komu saman og rifjuðu upp allt
sem hafði skeð með Jesú og þeir
skildu allt, sem áður hafði verið
■ Skírdagur
Jóh. 13; 1.-15.
svo óskiljanlegt. Þessi stund varð
vikuleg samvera á sunnudögum,
þegar lærisveinarnir minntust
þess sem var stórkostlegast af
öllu, páskadagsmorguns, upprisu
Jesú — þess að lífið hafði sigrað
dauðann í fullvissu þeirra, von og
trú. Kvöldmáltíðin varð þannig
upphaf að guðsþjónustu kristinna
manna á sunnudögum, sem braut
í bága við helgidag gyðinga, sem
héldu laugardaginn hátíðlegan, til
að minnast sjöunda dagsins í
sköpunarsögunni.
Kvöldmáltíðin varð síðan að
altarisgöngu í guðsþjónustu krist-
inna manna'og er hejgasta athöfn
guðsþjónustunnar. A skírdag og
við fermingu fer sú athöfn fram
og oftar, því i raun kallar hver
guðsþjónusta á altarisgöngu. I
altarisgöngunni mætum við Jesú
Kristi við borðið hans. Þar játum
við, að vilja leitast við að fremsta
megni að gera hann að leiðtoga
lífs okkar. Þar játum við á áþreif-
anlegan hátt, að við mætum Jesú
í leyndardómi altarisgöngunnar.
Þann leyndardóm er ekki hægt
að útskýra til fullnustu með orð-
um, en athöfnin sjálf segir: Þú
tekur á móti Jesú Kristi og lætur
hann helga líf þitt.
„Það var rétt fyrir páskahátíð-
ina. — Jesús vissi, að stund hans
var komin, að hann færi burt úr
heimi þessum til föðurins. Hann
hafði elskað sína, þá er í heiminum
voru — svo auðsýndi hann þeim
nú elsku sína allt til enda. Og
kvöldmáltíð stóð yfir ...“
Brauðið var brotið. Þannig fór
einnig fyrir lærisveinunum tveim-
ur sem voru á ferð til Emmaus á
páskadagsmorgni með mikla
hryggð í huga. Jesús kom uppris-
inn til þeirra en þeir þekktu hann
ekki. Hann útskýrði fyrir þeim
það sem ritningin hafði sagt fyrir
um, en þeir skildu hann ekki fyrr
en hann braut fyrir þeim brauðið.
Erum við ekki mörg sem mæt-
um Jesú með sama hætti á lífsleið
okkar? Hrygg tökum við á móti
erfíðleikum, veikindum, þjáningu
og dauða ástvina okkar, en svo
skeður það: Hann stendur hjá
okkur og brýtur brauðið og gefur
og við dreypum af kaleiknum
hans. Með öðrum orðum sagt: Við
lærum í þjáningu okkar, sjáum
ljósið úr myrkrinu og finnum að
við eignumst við að missa. Jesús
stendur hjá okkur og brýtur
brauðið. Við finnum hann á ný,
trúum og treystum orðunum sem
hann sagði: „Ég lifi og þér munuð
lifa.“
RITVÉLAR
REIKNIVÉLAR
PRENTARAR
TÖLVUHÚSGÖGN
Verð á þessu hjólaborði
er aðeiiis kr. 10.800.-
MEÐIMETIOG HÖLDUM.
Nú er upplagt tækifæri til að fá sér
borðtennisborð í bílskúrinn eða
tómstundaherbergið.
Skemmtilegt sport fyrir alla
fjölskylduna.
Eigum einnig fyrirliggjandi fleiri gerðir
af CORNILLEAU borðtennisborðum.
Frönsku
CORNILLEAU
borðtennisborðin eru betri!
Bjóðum nú þessi
viðurkenndu borð á
frábæru verði!
FRAMTKMN ER I
ÞÍNUM HÖNDUM
- IBM PS/2